Morgunblaðið - 04.02.1978, Qupperneq 2
2
MORGXJNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. EEBRUAR 1978
Hitaveita hækk-
ar um 18%
GJALDSKRÁ Hitaveitu
Re.vkjavíkur hækkaði frá
og með 1. febrúar s.l. um
18.5% þannig að fyrir af-
not heitavatnsins skal nú
greiða samkvæmt vatns-
mæli 75 krónur fyrir hvern
rúmmetra vatns í stað
63.25 króna áður, en þetta
þýðir í tekjuauka fyrir
hitaveituna í kringum 400
milljónir króna á ári, að
því er Jóhannes Zoéga
Ilitaveitustjóri sagði í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
Arlega eru um 34 milljón tonn
af heitu vatni deilt til íbúa á
veitusvæði Hitaveitu Reykjavík-
ur, þannig að bein gjöld hitaveit-
unnar af þessu eru um 2.5
milíjarðar króna á ári. Eftir þessa
hækkun heita vatnsins verður
kynding húsa með hitaveitu um
26% ódýrari en hitun með olíu, en
var áður um 24%,, sagði Jóhannes
Zoega ennfremur.
Línuritið sýnir landrisið við Grímsstaði við Mývatn á árinu 1977, en þá
var risið þar um 18 sm. hraðast í jarðskjálftahrinunni samfara
aprflgosinu. Nú í janúar sjást þess merki að sig sé b.vrjað við norður-
og norðausturströndina. Athugið að vorflððin hafa áhrif á vatnsborðið.
Land aftur tekið
að síga við Mývatn
MIKIL hreyfing hefur verið á
landi við Mývatn síðan eldsum-
hrotin hófust þar og órói af jarð-
skjálftum. Samkvæmt mæling-
um, sem Sigurjón Rist hefur á
hendi við vatnið Iftur út fyrir, að
norður- og norðausturströndin sé
nú tekin að sfga, þótt hægt fari.
Miðað við að staða Alftagerðis
hafi haldizt óbreytt f janúar, hafa
Grímsstaðir sigið um 2 sm og
Útför Jóns Jóns-
sonar á Lofts-
stöðum í dag
JÓN Jónsson, fyrrum bóndi á
Loftsstöðum f Gaulverjabæjar-
hreppi, er nýlátinn. Fer jarðarför
hans fram f dag frá Gaulverja-
bæjarkirkju, en húskveðja
verður að Loftsstöðum kl. 1.15.
Jón heitinn Jónsson var með
kúnnari bændum á Suðúrlandi
úm áratugaskeið, en á árum áður
stundaði hann einnig sjó-
mennsku.
Síðustu æviárin bjó Jón á Sel-
fossi, en han tók þó áfram þétt í
bústörfum á Loftsstöðum þrátt
fyrir að aðrir eigendur hefðu.tek-
ið við jörðinni.
Vogar um 4 sm. Þessar tölur, sem
Sigurjón lét Mbl. hafa, eru sam-
kvæmt samanburðarmælingum 1.
febrúar s.l., en mælingarnar
gerðu þeir I)agbjartur«Sigurðsson
í Alftagerði, Steingrímur
Jóhannsson á Grfmsstöðum og
Hallgrímur Þorhalisson f Vogum.
Þegar Mb). birti síðast fréttir af
mælingum á þessum stöðum um
áramótin, hafði land risið hjá
Vogum um 36 sm og hjá Grims-
stöðum um 18 sm, aðallega á
síðastliðnu ári, en hraðast var ris-
ið í jarðskjálftahrinunni samfara
aprilgosinu. Er land rís hjá
Grímsstöðum, lækkar vatnsborðs-
staðan eins og sést á línuriti
Grfmsstaðamælis, sem við birtum
hér með.
Annars er vatnsborðið á sf-
felldu kviki, segir Sigurjón. 1 maí
kemur vorfylla i vatnið. Þá
hækkar vatnsborðið hjá báðum
mælunum, en þá er það vindstefn-
an sem mestu ræður. 1 norðanátt
læ^kar vatnsborðið í Ytri-Flóa, en
hækkar í Syðri-Flóa, en hið gagn-
stæða á sér stað í sunnanátt, eins
og ^iuðveldlega má greina þegar
línuritin eru borin saman. Kvaðst
Sigurjón hafa þann hátt á, að
Kristjana Ásbjörnsdóttir, hús-
Framhald á bls. 24
Sjálfstæðisflokkur í Keykjavík:
Kosningu kjömefndar
vegna prófkjörsins
lýkur á mánudaginn
KOSNINGU til kjörnefndar
vegna skipunar prófkjörlista
Sjálfstæðisflokksins vegna
borgarstjórnarkosninganna lýkur
á mánudag og skulu fulltrúaráðs-
meðlimir skila kjörseðlum per-
sónulega í Valhöll fyrir klukkan
18 á mánudag.
Til kjörnefndar bárust 13 fram-
Framhald á bls. 24
Byrjað að tefla áReykja-
vflíurskákmótinu í dag
Dregið var um töfluröð keppenda á Hótel Loftleiðum í gærkvöldi
<400
lVÉr
Frá hófinu að Hótel Loftleiðum í gærkvöld.
KEPPENDUR á Reykja-
vfkurskákmótinu drógu
um töfluröð mótsins í
gærkvöldi, en á undan
bauð Einar S. Einarsson
forseti skáksambandsins
alla keppendur vel-
komna. Þá ávarpaði Guð-
mundur Arnlaugsson yf-
irdómari mótsins gesti
áður en keppendur drógu
um töfluröðina úr'1Tlm-
slagi hjá honum og sagði
hann m.a. að eftir endur-
skoðun á skákstigum
keppenda hefði það kom-
ið í ljós aó mótið færi í
tólfta styrkleikaflokk en
hafði verið sett í 11.
flokk, og væri þetta lang-
sterkasta skákmót sem
haldið hefði verið hér-
lendis.
Röð keppenda verður sem
hér segir: 1) Helgi Ólafsson,
2) William Lombardy, Banda-
ríkjunum, 3) Bent Larsen,
Walther Shawn Browne, stór-
meistari frá Bandarfkjunum.
Margeir Pétursson dregur um töfluröð sína í Reykjavfkurskákmót-
inu f gærkvöld.
Dinmörku, 4) Vlastimil Hort,
Tékkóslóyakíu, 5) Leif ögaard,
Noregi, 6) Walter Shawn
Browne, Bandaríkjunum,
7) Jón-’L. Árnason, 8) Anthony
Miles, Bretlandi, 9) Lev Polu-
gaevsky, Sovétríkjunum,
10) Jan Smejkal, Tékkóslóvak-
íu, 11) Margeir Pétursson,
12) Gannedy Kuzmin, Sovét-
ríkjunum, 13) Friðrik Ólafs-
son, 14) Guðmundur Sigur-
jónsson, því tefla saman í
fyrstu umferð í dag þeir: Helgi
og Guðmundur, Lombardy og
Friðrik, Larsen og Kuzmin,
Hort og Margeir, Browne og
Polugaevsky, Jón og Miles, en
skák þeirra Ögaards og Smejkal
var frestað fram á miðvikudag
vegna þess að Smejkal kemur
ekki til landsins fyrr en seint í
kvöld.
Þá voru þeir Hort, Larsen og
Friðrik tilnefndir í sérstakan
dðmstól til aðstoðar Guðmundi
Arnlaugssyni yfirdómara og til
vara voru þeir Polugaevsky og
Miles tilnefndir.
Anthony Miles, stórmeistari
frá Englandi.
Olafsvík:
Óánægja vegna breyt-
ingar á launagreidslum
OKlafsvfk, 3. fohrúar.
ALLMIKIL óánægja er nú
meðal verkafólks í fisk-
vinnslustöðvunum í Ólafs-
vík vegna þess að í vænd-
um mun vera, og raunar að
nokkru leyti komin á,
breyting á greiðslufyrir-
komuiagi launa þannig aö í
stað þess að fyrirtæki
greiði í reiðufé, þá greiða
þau launin inn á bankabók
eða hlaupareikning á nafn
viðkomandi launþega í úti-
húi Landsbanka tslands í
Ólafsvfk.
Svo er að skilja, að útibú Lands-
bankans hér hafi beint þeim til-
mælum til forráðamanna fisk-
vinnslustöðvanna, að þeir kæmu
þessari tilhögun á. Raunar gat
fréttaritari ekki fengið þetta stað-
fest. því útibússtjóri Landsbank-
ans vildi ekkert láta hafa eftir sér
varðandi þetta.
Bakki sf. greiddi vinnulaún
með þessum hætti nýlega og tókst
gott samkomulag, þannig að fólk
gat sagt til um, hvort það vildi
frekar fá laun sfn í reiðufé, og
fengu þeir það sem vildu. í dag
Framhald á bls. 24