Morgunblaðið - 04.02.1978, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. FEBRUAR 1978
35
Jóhann Snœfeld
Pálsson - Minning
Fæddur 16. febrúar 1919.
Dáinn 17. desember 1977.
Þokubakkar hvfla lágt yfir
Húnaflóanum. Við erum þrír á
handfæraveiðum norður af Kaldr-
ananesi á mildum góðviðrisdegi. í
skutnum stendur skipstjórinn,
búinn að draga að borði 200
punda þverhúkkaða spröku, sem
berst um við borðstokkinn. Hann
kallar til okkar hásetanna
tveggja, 13 ára strákpolla, að
koma afturí með ifæruna og
reyna að koma henni í fiskinn. Ég
stend stjarfur af hræðslu um
stund, en byrja svo að fikra mig
aftur eftir bakborðsmegin með
ífæruna í skjálfandi hendi. Allt i
einu tekur sprakan ógurlegan
kipp, slítur sig af króknum og
hverfúr i djúpið. „Ansans klaufa-
skapur," segir hann, „að missa
hana svona.“ Þá sé ég að í öðrum
handlegg hans standa á kafi tvær
þríkrækjur af færi hans, án þess
hann gæfi því sérstakan gaum.
Þannig var Jóhann Pálsson Snæ-
feld að dagfari, æðrulaus, hug-
prúður og djarfur en yfirvegaður
í öllu, sem hann tók sér fyrir
hendur. Ég hefi oft hugsað síðan,
hvað hefði getað skeð, þennan
dag, ef lúðan stóra hefði ekki
slitnað af neðsta króknum þar
sem maðurinn var jafn fastur i
færinu og stóð þar að auki í næl-
onlínunni, en þetta var einmitt
fyrsta sumar nælonfæranna við
Húnaflóa og ekki búið að finna
upp færarúlluna.
Ég kynntist Snæa fyrst 7 ára
gamall, er ég kom fyrst í Hamars-
bæli með móður minni að heim-
sækja æskustöðvar hennar.
Næstu sumur var ég nágranni
hans, þar sem ég var f sveit hjá
fósturforeldrum mömmu, önnu
og Jóni Atla Guðmundssyni.
Allt frá fyrstu kynnum, bar ég
sérstaka lotningu fyrir þessum
gjörvilega manni og Höllu hans
dásamlegu konu. Vorið, sem ég
fermdist, bauð hann mér háseta-
pláss á Lofti S.T.19, sem ég þáði,
ekki aðeins með þökkum, heldur
með gleði þess manns, sem finnur
sig mikils metinn, að bjóðast skip-
rúm hjá jafn dugmikium skip-
stjóra. Það sumar lærði ég meira
um lífið og gæði þess en margra
ára skólamenntun gæti nokkurn
tíma frætt mig um. Heimilið var
einstakt reglu og myndarheimili.
Þar féll t.d. styggðaryrði um
menn eða málefni aldrei af vör-
um. Ahersla var lögð á að allir
töluðu hreint og fagurt islenskt
mál og aldrei var slegið erlendri
slettu.
Á sjónum lærði ég að fást við
veiðarfæri, vinna fisk og stjórna
báti. Þar varð hvert handtak að
lærast, Snæi vildi ekkert nema
vandaða vinnu, þá kröfu gerði
hann til okkar Hilmars, kröfur
um álag og vinnuafköst gerði
hann aftur á móti aðeins til sjálfs
sín. Hann var hafsjór af fróðleik
og var hver sjóferð kennslustund
í náttúrufræði. Hann kenndi okk-
ur nöfn og hegðun dýra, fugla og
fiska. Fegurð fjallanna við Húna-
flóann var undirstrikuð með
þekkingu á örnefnum og fiskimið-
um.
Þótt ég hafi haft marga góða
kennara í skóla, þá þekki ég eng-
an sem jafnast á við þennan
sanna prófessor í skóla lífsins að
atgervi og þekkingu á sinum
fræðum.
Snæi byrjaði ungur sjó-
mennsku við flóann. Hann var
afburða skytta og dró marga
björg í bú með byssunni, bæði seli
og fugla. Úr sjó dró hann hákarla
og stórspökur, engu síður en
þorsk og ýsu.
Nú síðari árin var hann á
rækjuveiðum á nýjum og stórum
báti, ef miðað er við gamla Loft,
sem var um 3 lestir að stærð.
A þeim báti hvarf hann í djúpið
ásamt háseta sinum, Lofti Ingi-
mundarsyni frá Hafnarhólmi i til-
tölulega skaplegu veðri rétt fyrir
jólin. En svona er lífið, eftir ára-
tuga farsæla sjósókn og marga
hildi við Ægi konung í öllum
veðrum á litlum opnum báti
lengst af er hann skyndilega horf-
inn. Eftir stöndum við agndofa og
hljóð. Island hefur misst eina af
sínum sterkustu mannlífsstoðum.
Eigi má sköpum renna, lífið held-
ur áfram, ný kynslóð tekur við,
mannvænleg börn þeirra Höllu og
Snæa munu hefja á loft drifhvít-
an gunnfánann og halda honum
hátt á lofti í minningu þess manns
sem í hverju verki var hinn sanni
íslendingur, fulltrúi manndóms
og sjálfstæðis í lýðfrjálsu landi.
Elsku Halla. Engin orð fá bugað
harm þinn og sórg. Sá sem átt
hefur mestan lífsins fjársjóð á
mest að missa. Enginn skilur hve
mikið þú hefur misst. Mér er
horfinn sá maður, sem ég hef
hvað mest dáð allra manna. Hjá
ykkur lærði ég að dá hið fagra og
• góða í óblíðum heimi. Við hjónin
sendum þér, börnum þínum og
öðrum ástvinum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Úlfar Agústsson.
Um leið og við kveðjum son
okkar viljum við minnast Jóhanns
Snæfelds Pálssonar sem einnig
fórst með Pólstjörnunni þann 17.
des. 1977. Snæi, en svo var hann
oftast nefndur, var nágranni okk-
ar og vinur. Hann stundaði sjó og
var alla tíð heppinn og farsæll
sjómaður. Flestir drengjanna
okkar hófu sinn sjómennskuferil
undir hans stjórn. Það er litlu
byggðarlagi mikill skaði er slíkir
menn hverfa af vettvangi lífsins
og skarðið sem myndaðist í vina-
hópinn við fráfall hans verður
aldrei fyllt. Við vottum eiginkonu
hans, Höllu Sæmundsdóttur, og
börnum þeirra dýpstu samúð okk-
ar og hluttekningu.
Kristln og Ingimundur.
ALLT MEÐ
Afmælis- og
minningargreinar
Aö marggefnu tilefni skal athygli vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar veröa að berast
blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast
í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt
með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í
sendibréfsformi eða bundnu máli.
Sé vitnað til Ijóða eða sálma skal höfundar getið.
Greinarnar þurfa að vera vélritaðar og með góóu
línubili.
Skíðaferðir í Skálafell
Fastar áætlanaferðir verða i vetur á skíðasvæðið í Skálafelli. Sérstakar ráðstafanir eru
gerðar til að veita góða þjónustu með ferðum um allt Stór-Reykjavikursvæðið í
Skálafelli er gott skíðaland við allra hæfi 5 lyftur í gangi frá morgni til kvölds. Ókeypis
lyftuaðstaða við félagsskála KR fyrir börn. Kennsla fyrir almenning Þjálfun fyrir
keppendur FerSir laugardaga og sunnudaga.
LEIÐ I
Kl.
9.45 Mýrarhúsaskóli
KR heimilið.
10.00 BSÍ
Söbekksverzlun
10.15 Sundlaugar
Sunnutorg
Kron Langholtsvegi
10.30 Essostöðin Ártúnshöfða
10.45 Kaupfélagið Mosfellssveit
LEIÐ II
Kl.
10.00 Kaupfél. Garðabæ
Silfurtún v/Arnarnes
10.15 Sparisjóður Kópavogs
Vörðufell
10.30 Essostöðin Ártúnshöfða
LEIÐ III
Kl.
10.00 Kron efra Breiðholti
Straumnes
10.15 Barnaskólinn
neðra Breiðholti
10.30 Essostöðin Ártúnshöfða
LEIÐ IV
Kl.
13.00 BSÍ
Shellstöðin Miklubraut
Skeiðarvogur/ Miklabraut
Essostöðin Ártúnshöfða
13.15 Kaupfélagið Mosfellssveit
Verið velkomin í Skálafell
Skíðadeild KR
Kjósendur Reykjaneskjördæmi
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA
ER í DAG OG Á MORGUN
ÞETTA ERU YKKAR DAGAR — Nú ráðið
Það eru 7 ár síðan þið fenguð
síðast að velja — Hver veit
hvenær það verður næst?
th.
Sigurgeir Sigurðsson
bæjarstjóri, Seltjarnarnes
NÚ ERU ATKVÆÐI YKKAR —
JÖFN ATKVÆÐUM ANNARRA LANDSMANN
1 3. feb
1 5. feb
21. feb
28. feb
7. feb
14 feb
21 feb
28.feb. Pj
EIMSKIP
Á næstunni
ferma skip vor
til íslands p
sem hér segir: [rj{
li ANTWERPEN:
Stuðlafoss
Lagarfoss
__ Fjallfoss
Æj Lagarfoss
g ROTTERDAM
rji Úðafoss
U! Lagarfoss
m Fjallfoss
Lagarfoss
rl FELIXSTOWE
\ l| Dettifoss
|£J; Mánafoss
[S Dettifoss
rr. Mánafoss
y HAMBORG
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
1 PORTSMOUTH
Selfoss
Bakkafoss
Hofsjökull
Brúarfoss
Bakkafoss
GAUTABORG
Háifoss
Laxfoss
Háifoss
KAUPM.HÖFN
Háifoss
Laxfoss
Háifoss
HELSINGBORG
Urriðafoss 4. feb.
Tungufoss 20. feb.
MOSS
Urriðafoss 6. feb. . .
Tungufoss 21.feb jjf
KRISTIANSAND ^
Urriðafoss 7. feb. Jjjjjr
i
9. feb.
16. feb.
23. feb.
2. marz
P
f
6.feb -J
8. feb
9. feb jp
28. feb. fJ,
7. marz ÍH
iF
6. feb. [17
13. feb tí,
20. feb.
ll
7. feb. íp
14. feb. tT
2 1. feb. [FJ
!7
i
írH
Tungufoss 22. feb
STAVANGER
Urriðafoss 8. feb Jj
Tungufoss 23. feb.
ÞRÁNDHEIMUR (P
Urriðafoss 9. feb
GDYNJA/GDANSK
Irafoss
VALKOM
Múlafoss .
Fjallfoss
RIGA
Skógafoss
1 3. feb
8. feb.
'fd
[í
>
mánudaga
Reykjavík til ísafjarð-
IJJ ar og Akureyrar.
m" Vörumóttaka i A-skála p
j/j" á föstudögum.
\©\