Morgunblaðið - 04.02.1978, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.02.1978, Blaðsíða 43
MORGUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1978 43 Stjarnan gegn Fylki í2. deild ENN er vika f að keppnin í 1. deild íslandsmótsins í hand- knattleik hefjist, en heil um- ferd verður um aðra helgi. 1 dag og á morgun verða fjöl- margir leikir f öðrum flokkum og deildum og sá leikur sem ber hæst er viðureign tveggja af toppliðum annarrar deiidar, Stjörnunnar og Fylkis f Garða- bæ. Leikir helgarinnar í 2. deild karla og 1. deild kvenna verða sem hér segir: LAUGARDAGUR: Akureyri kl. 16, 1. d. kvenna: Þór — Fram SUNNUDAGUR: Hafnarfjörður kl. 17.45, 1. deild kvenna: FH — Haukar. Garðabær kl. 20, 2. d. karla: Stjarnan — Fylkir. Garðabær kl. 21.15, 2. d. karla: HK — Grótta. IpróHlrl Fjölmennt meistaramót unglinga í badminton ISLANDSMEISTARAMÓT unglinga f badminton verður haldið um helgina í TBR- húsinu við Gnoðarvog. Kepp- endur eru um 150 talsins og er mótið eitt fjölmennasta bad- mintonmót, sem hér hefur ver- ið haldið. Hefst mótið klukkan 9 f.h. í dag, en úrslitaleikir mótsins hefjast sfðan klukkan 14 á morgun. Keppendur eru frá 7 félögum, þ.e. BH, ÍBV, KR, TBR, TBS, Stjörnunni og Val. Allir þyngstu júdómennirnir msetast íopnum flokki á morgun SEINNI hluti Afmælismóts Júdósambandsins fer fram á morgun í Iþróttahúsi Kennara- háskólans og hefst mótið klukkan 14. Keppt verður í opnum flokki karla — án þyngdartakmarkana — og einnig f kvennaflokki. Að auki verða háðar úrslitaglfmur f flokkum unglinga 15—17 ára. Forkeppni f unglingaflokkun- um verður í dag í æfingasal JFR. Allir beztu júdómenn landsins úr þyngri flokkununi taka þátt f opna flokknum. Fyrri hluti Afmælismótsins var haldinn sfðastliðinn sunnudag, en þá var keppt f þyngdarflokkum karla. Norölend- ingar suður UM HELGINA Verða margir leikir í blakinu. A laugardag- inn koma Norðmenn í heim- sókn og leika hér nokkra leiki og enn fleiri á sunnudag. Laugardagur: 1. deild karla ÍS — UMSE kl. 14 í Hagaskóla. önnur deild kvenna ÍS —Völs- ungur kl. 16.30 á sama stað. A sunnudaginn leika sfðan kl. 12.50 í 1. deild kvenna Þróttur og Völsungur f Voga- skóla. Kl. 14 leika á sama stað Þróttur og UMSE í 1. deild karla og að lokum Þróttur-b og UMSE-b f annarri deild kl. 15.30. UOT/Mí. lÍKAMSe>OZ.€>'l S'lMA. ÍS MÓtí AOSTOítelncjS- KÖlOfs)orv\, tfTÍe. DtfiUAsJ LE’ite £yt= érlO Plwriý\o|THA'-DH5 boe.E.KA 'i TALKCuoauTn RXOlðZBíiÚO, ALl_£!“\AUOÍ. OCt MOlori. Skotinn Archie Gemmill, smár en knár. Hann hefur aldrei ver- ið betri en með Nottingham Forest f vetur. LÍKURNAR verða sterkari á því með hverri vikunni sem líður, að Notthingham Forest verði enskur meistari í knattspyrnu árið 1978. Félagió kom upp úr 2. deild s.l. vor með naumindum, varð þar í þriðja sæti og fram- kvæmdastjórinn Brian Clough sagði þá, að hann efaðist um að félagið hefði nógu góða leikmenn til að halda því uppi í 1. deild. En þarna spáði hann rangt, Notthingham tók forystuna strax í upphafi keppninnar s.l. haust og þeim, sem héldu að liðið væri lofthóla, sem springi þá og þegar, varð ekki að trú sinni. Notthingham hefur haldið stöðu sinni á toppi deildarinnar og með réttum kaupum á leikmönnum hefur Clough tekizt að byggja upp mjög gott lið, sem nú hefur sex stiga forystu í deildinni. ,,Ég er ekki í nokkrum vafa um að viö lékum í dag gegn bezta liöinu í 1. deild, „sagöi Maleholm McDonald, miðherji Arsenal, á dögunum, þegar Notthingham hafði unnið Arsenal á heimavelli sínum 2:0 og haft umtalsverða yfirburði í leiknum. Og McDonald bætti við: „Brian Clough hefur einstakt lag á því að láta leik- menn sína leika betur en þeir í rauninni gera venjulega. Margir hafa spáð því að Notthingham springi á limminu seinna í vetur og missi forystuna en ég er á öndverðum meiði.“ Terry Neill, framkvæmdastjóri Arsenal, sagði eftir leikinn að úr þessu reyndist öðrum liðum erfitt að ná Notthingham að stigúm. „Ég óska liðinu alls hins bezta, það verðskuldar að verða Eng- landsmeistari," sagþi Neill. í dag verður leikið í ensku deildarkeppninni og líklegt má telja, að Notthingham haldi öruggri forystu áfram, þvi liðið leikur í dag gegn Wolves á heima- velli. Arsenal leikur gegn Aston Villa heima, Liverpool gegn miðverðina Kenny Burns frá Birmingham og David Needham frá QPR, miðvallarspilarann Archie Gemmill frá Derby og markvörðinn Peter Shilton frá Stoke og allir leika þeir betur núna í vetur en nokkru sinni fyrr. Notthingham Forest hefur aldrei orðið enskur meistari en næst þvi komst félagið árið 1967, þegar það hafnaði í öðru sæti. Fólkið i Nottingham hefur fylgzt af áhuga meðframgangi félagsins og fleiri áhorfendur sækja nú heimaleiki liðs þess en um margra ára sjceið. Þessi borg i miðlöndum Englands, sem er frægust fyrir Hróa hött, er nú á allra vitorði vegna knattspvrnu- liðsins, sém kennt er við borgina. Coventry á útivelli, Everton gegn Leicester á heimavelli og leikur dagsins verður viðureign Manchesterrisanna, United og City, á leikvelli fyrrnefnda liðs- ins, Old Trafford. „Héðan í frá verða allir leikir okkar eins og bikarúrslitaleikir, svo mikilvægur verður hver leik- ur, “ sagði Brian Clough í blaða- viðtali nýlega. „Við erum ekki eins gamlir og Red Rum (frægasti yeóhlaupahestur í Bretlandi) en samt höfum við komist klakklaust yfir hindranirnar hingað til. Ég vona að við komumst yfir þær hindranir, sem eftir eru fram til vors, við eigum það skilið,“ sagði Clough. En hver er skýringin á hinni miklu velgengni Brians Clough? „Clough kaupir nokkra góða leik- menn og þrælar þeim meira út en þeir hafa nokkru sinni þurft áð- ur,“ segir Terry Neill hjá Arsen- al. Síðan Notthingham vann sig upp í 1. deild í fyrravor hefur Clough keypt fjóra nýja menn, SÆTUR SIGUR HJÁÍSGEGNKR Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ fór fram einn leikur í mfl. kvenna i íslandsmótinu i körfuknattleik. Áttust þar við ÍS og KR og var um mikinn baráttuleik að ræða. Var leikurinn lengst af mjög jafn en þegar 7 minútur voru til leiksloka og staðan var 44:42 fyrir KR fór að halla undan fæti hjá þeim og stúdentar skoruðu 12 stig gegn 1 stigi KR-inga siðustu minúturnar og sigruðu 54:45. Við þennan sigur standa ÍS- stúlkurnar mjög vel að vígi i mótinu. hafa hlotið 6 stig i 3 leikjum KR-ingar hafa hins vegar 2 stig eftir 3 leiki, en þess ber þó að geta. að enn er óútkljáð kærumálið við Þór frá Akureyri Það er greinilegt að Dirk Dunbar kann ýmislegt fyrir sér i sambandi við þjálfun þvi að ÍS-liðið verður sterkara með hverjum leik. á nú möguleika á að vinna íslandsmótið i fyrsta sinn Beztar að þessu sinni voru Guðný Eiríksdóttir og Kolbrún Leifsdóttir Þá átti Ingi- björg Birgisdóttir ágætan leik Hjá KR var' Emelía Sigurðardóttir langbezt og barðist eins og Ijón allan timann Linda Jónsdóttir átti þokkaleg- an leik. en aðrar léku undir getu Stigin fyrir ÍS Guðný Ejriksdóttir 19. Kolbrún Leifsdóttir 1 5.« Ipgibjörg Birgisdóttir 10. Ragnhildur Steinbach 4. Anna Björg Aradóttir 3. Sigurlaug Karlsdóttir 2 Stiginfyrir KR Emelía Sigurðardótt- ir 21, Linda Jónsdóttir 13. Erna Jónsdóttir og Salina Helgadóttir 4 hvor. Arndís Sigurgeirsdóttir 2 og Björg Kristjánsdóttir 1 Staðan i mfl kvenna ÍS 3 3 0 147 128 6 ÞÓR 2 1 1 37 42 2 KR 3121211102 ÍR 2 0 2 102 127 0 Ath að hér er reiknað með 2:0 sigri Þórs yfir KR — ÁG. Skjaldar- glíma jT Armanns SKJALDARGLlMA Armanns verður haldin 19. febrúar n.k. kl. 16 f Vogaskólanum f Reykjavfk. Þátttaka tilkynnist fyrir 12. febrúar Guðmundi Ölafssyni, Möðrufelli 7, Re.vkjavfk, sími 75054. Brian Clough (t.h.) og aðstoðarmaður hans, Peter Taylor. Þeir hafa saman náð stórgóðum árangri í ensku knattspyrnunni en beztum árangri hjá Derby og Notthingham Forest. HÍWKJ 5. V/6-C.€iA. VALDA3CÍPTÍ ALK>É>e>A- KIJATtSPVIZMUMIVJI , 'ITAlAa S'l Cy ÍAft 4 ~0 MC-O ÞAA(U<, öíuatia n\6--o ezi fr'ÓKHxu CrvU_AU>Ae.Ú©ó AjStOR- ^IICIS LOte\e>,í£|-\ HE-FO^. C>(t,öTTWAÖ VFtfe HélbASKlOATr- ^veiDUKjKj', N\e-E> >oo6€>- Htroofvn Éftros ot\ SCHAlJL, <fSCHNd$‘iLD, U , KIA.OSCH , srAi^Tvcy. oc. pjXi-tacimio MUítO Méiíl. fresTi sitiure. þe-IBEA IZ« se ÞeÍR.UWWU wastum eAiöceuisuJcA ?■. oe* *i jz. { cA 'osiöeAerte z\ w; dMöuV1 H&ir^SKePPlOÍVl jCOroi Ti(_ öP S6ÍÍ/T. FAe æiM H<J£FAe£TVijeiMM e.C r'Afc'l AJAJ C6> OrieO*. &12. CSOtST v; V© Mivecu AF TiÍAlOTA OCitoufeKOAtOCii LuiOI MOVJTl. HAUM rteiiASBlK-AeiJOM Fs>eie AieereMTÍuo En! dttAOÍ Srs'eAe. ITAUSKOe ÞeerM. hAom la-toco sée. EHic'c Au-T FVR.ie Sbeokyr', BecUMA fc-eciAe 6>eeA K APOST^Ðiofcrlo>0 ÍDUie<AwiNl XJ HM í K N A T T s p Y NOTTINGHAM STEFNIR AÐ MEISTARATITLI í FYRSTA SKIPTI í SÖGU FÉLAGSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.