Morgunblaðið - 04.02.1978, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1978
— 60 daga gæzluvarðhald
Framhald af bls. 44.
upp í fíkniefnamáli hér-
lendis.
Umræddur maður var
handtekinn á Húsavík fyrr
í vikunni vegna gruns um
þátttöku í þessu máli en
þar starfaði hann sem sjó-
maður.
Samkvæmt upplýsing-
um, sem Mbl. hefur aflaö
sér, er hér um að ræða
meintan innflutning ' á
mörgum kílóum af fíkni-
efnum. Maðurinn var úr-
skurðaður í 5 daga gæzlu-
varöhald á Húsavík og
fluttur til Reykjavíkur í
yfirheyrslu. Gæzluvarð-
haldið var framlengt um 60
daga í gær af Arnari Guð-
mundssyni fulltrúa við
Fíkniefnadómstólinn.
Maðurinn hefur kært
þennan úrskurð til Hæsta-
réttar og einnig gæzluvarð-
haldsúrskurðinn, sem
kveðinn var upp á Húsavík.
— Óánægja
Framhald af bls. 2
voru vinnulaun greidd í Hróa hf.,
og allt inn á hlaupareikninga í
útibúi Landsbankans og var all-
mikil óánægja hjá nokkrum
starfsmanna vegna þess. Forráða-
menn hraðfrystihússins eiga eftir
að kanna vilja starfsmanna sinna,
en frystihúsið greiddi vinnulaun í
dag í reiðufé sem ekki var fengið í
útibúi Landsbankans.
Það sem verkafólk setur helzt
fyrir sig er að samningar kveða á
urn, að laun skuli greidd í reiðufé.
Sömuleiðis það að ekki kæra sig
allir um hlaupareiknings- eða
bankabókarviðskipti með laun
sem venjulega hverfa stfax í
gjaldfallnar greiðslur og sé því
bara amstur af slíku. í síðasta lagi
nefna margir að þeir séu í við-
skiptum við Sparisjóð Ólafsvíkur
og vilji sjálfir ráða, hvar þeir hafa
peningaviðskipti sín. Reikna má
með að vinnuveitendur og laun-
þegar hér í Ölafsvík leiti sam-
eiginlega að lausn, sem allir geta
fellt sig við.
—Helgi.
— Borgarráð
Framhald af bls. 44.
hafa fyrst neitað vanskilum hafi
Páll greitt 9. desember umræddar
fjárhæðir og jafnframt sagt að
ekki væri um frekari vanskil að
ræða” Endurskoðunardeildin hafi
þá hafið nánari athugun og strax
12. desember hafi komið fram
grunur um frekari vanskil. Þann
dag sagði Páll starfi sínu lausu.
Var honum þá jafnframt tjáð af
borgarstjóra, að endurskoðunar-
deildin óskaði eftir að gera leit að
skjölum í herbergi hans og hon-
um gefinn kostur á að vera við-
staddur, sem hann afþakkaði.
— Frissi köttur
Framhald af bls. 44.
myndina sjö sinnum á kvik-
myndahátíðinni", sagði Jón.
“Ég hafði strax samband við
það fyrirtæki, sem ég keypti sýn-
ingarréttinn af og kom þá í ljós,
að leyfi þess var bundið við eina
sýningu fyrir boðsgesti á kvik-
myndahátíðinni. Þessa afstöðu
ítrekaði þetta fyrirtæki í sím-
skeyti til aðstandenda kivk-
myndahátíðarinnar.
Ég fór svo fram á fund með
þeim, þar sem ég bauð að myndin
yrði sýnd tvisvar, þrisvar sinnum
án endurgjalds, en þessu tilboði
var ekki svarað."
— Mývatn
Framhald af bls. 2
freyja i Alftagerði, minnir gæzlu-
mennina á að huga að símritum
og föstum merkjum og lesa sam-
tímis af vatnsstöðunni, þegar
veður er stillt og hefur svo veriö
undanfarið.
í upphafi árs 1977 var vatns-
staðan nálægt 50 sm á báðum
mælunum (við Alftagerði og
Grímsstaði). Landris var þá að-
eins 1—2 sm á Grímsstöðum. í lok
árs 1977 leynir landrisið sér ekki
við samanburð á tínuritum. Og nú
í janúar litur út fyrir að norður-
og norðausturströndin sé tekin að
síga, sem fyrr er sagt.
— Loðna
Framhald af bls. 44.
verið lítil veiði sfðustu tvo sólar-
hringa vegna þess, hversu dreifð
loðnan væri. Gangan sem fór fyrir
Langanes eftir 20. janúar var lítil
og við hana hefur lítið sem ekkert
orðið vart út af Austfjörðunum.
Langanesloðnan nú myndi hins
vegar ganga mjög hratt suður
með Austfjörðunum eftir hrogn-
um og svilum að dæma. Þetta
myndi þá vera þriðja loðnugang-
an, sem þeir á Bjarna Sæmunds-
syni fundu í gær.
Í fyrrinótt fengu 22 loðnuskip
afia; samtals 5.100 lestir.
— Kosning
Framhald af bls. 2
boð, en fulltrúaráðsmeðlimir eiga
að kjósa 8 menn úr þeim hópi og
verður að kjósa fæst sjö til að
seðillinn sé gildur.
1 framboði eru; Anna Borg,
framkvæmdastjóri, Bjarni Guð-
brandsson, pipulagningameistari,
Bogi ingimarsson, hrl., Brynjólf-
ur Bjarnason, rekstrarhagfræð-
ingur, Hannes Þ. Sigurðsson,
deildarstjóri, Hinrik Bjarnason,
framkvæmdastjóri, Inga Magnús-
dóttir, húsmóðir, Jóna Sigurðar-
dóttir, húsmóðir, Jón Hjartarson,
forstjóri, Sigurður Angantýsson,
rafvirki, Skafti Harðarson, skrif-
stofumaður, Þorvaldur Mawby,
framkvæmdastjóri, og Þorvaidur
Þorvaldsson, bifreiðastjóri.
— Skírnir
Framhald af bls. 44.
Akranesi, sem gerir út bátinn,
þegar Mbl. ræddi við hann í
gær. Haraldur sagði að vélin í
bátnum væri splunkuný. Hún
var sett í hann seinni hluta árs
i fyrra og var aðeins búið að
keyra hana í 1400 klukku-
stundir þegar bilunin varð.
Vélin er af Alpha-gerð og var
hún sett f bátinn í Frederiks-
havn í Danmörku.
Sem fyrr segir komu sér-
fræðingar frá verksmiðjunum
og litu á vélina. Fundu þeir
sprungu í slif, sem talið er að
hafi orsakað skemmdirnar á
vélinni. Töldu þeir að místök
hefðu átt sér stað við niður-
setningu vélarinnar og þar
sem vélin er í ábyrgð, borga
verksmiðjurnar tjónið. Hafa
þær sent danskan dráttarbát
til landsins, serrt mun draga
Skírni til Frederikshavn.
Skírnir var frá veiðum í
fyrrasumar á meðan unnið var
að niðursetningu vélarinnar og
nú er Ijóst að skipið missir af
vetrarloðnuvertíðinni einnig.
Er þetta mikið tjón fyrir út-
gerðina og þá ekki siður áhöfn
skipsins, sem missir af tveimur
loðnuvertiðum í röð vegna bil-
unarinnar.
— Lægsta tilboð
Framhald af bls. 3.
Énglandi, en tilboðið var ófull-
komið og var af þeim sökum
ekki unnt að gefa upp tölur úr
þvi.
Tilboðin, sem opnuð voru í
gær gilda öll i 6 mánuði frá
opnunardegi og samkvæmt
þeim er Landsvirkjun áskilinn
réttur til að festa kaup á þriðju
vélasamstæðunni mrian 48
mánuða frá því að tilboði er
tekið. Vélarnar tvær eru hvor
um sig 70 megawött, en gert er
ráð fyrir að Hrauneyjafoss-
virkjun fullbúin verði 210 MW.
— Sendiherra
brottrækur
Framhald af bls. 1.
isráðuneytisins, John Trattn-
ers. Þetta er einnig í fyrsta
skipti sem sendiherra hefur
verið sakaður um þátttöku í
njósnamáli i Bandaríkjunum
að sögn talsmannsins.
Talsmaðurinn vildi ekki til-
greina hvaða hlutverki Thi
sendiherra hefði gegnt i
njósnamálinu. Auk hans voru
viðriðnir málið starfsmaður
bandarisku upplýsingaþjón-
ustunnar og víetnamskur hag-
fræðingur.
— Schmidt
hreinsar til
Framhald af bls. 1.
inn, en ekki afstýra falli hennar.
Hans-Dietrich Genscher utanrík-
isráðherra, úr flokki frjálsra
demókrata, samstarfsflokki
sósíaldemókrata í ríkisstjórn, full-
vissaði sósíaldemókrata um
áframhaldandi stuðning flokks
síns.
Leber fráfarandi landvarnaráð-
herra naut mikila álits og í aðild-
arlöndum bandalagsins NATO, en
vinstrisinnaðir sósfaldemókratar
tortryggðu hann vegna harðrar
afstöðu hansgegn kommúnistum.
• Leyniþjónusta hersíns hlei
aði samtöl ritara Lebers án þess
að láta hann vita. Starfsmenn
leyniþjónustunnar eru einnig
taldir hafa hlerað samtöl starfs-
manna ráðuneytisins án vitundar
hans.
Heimildir í flokki sósíaldemó-
krata herma, að Schmidt hafi
lengi ætlað að gera breytingar á
stjórn sinni og hlerunarmálið hafi
aðeins flýtt fyrir breytingunum.
— Carter
hvetur Sadat
Framhald af bls. 1.
skriður geti komizt á viðræður
landanna. og taka sér Henry
Kissinger fyrrverandi utanríkis-
ráðherra til fyrirmyndar.
Sadat mun aðallega benda á það
i Camp David, að Ísraelsmenn
krefjist áframhaidandi búsetu
Gyðinga á Sinaiskaga og vilji að-
eins veita Palestínumönnum á
vesturbakka Jórdan takmarkaða
sjálfstjórn.
Carter gagnrýndi i vikunni
landnám Gyðinga á herteknum
svæðum og kvað það ólöglegt og
hindrun i vegi fyrir friði. Hann
sagði lika að leysa yrði Palestinu-
rnálið i öilum atriðum. þótt hann
væri sammála þeirri afstöðu
Ísraelsmanna að fallast ekki á
stofnun sjálfstæðs Palestínurikis
á vesturbakkanum.
Að sögn bandariskra embættis-
manna mun Carter hlusta vand-
lega á Sadat áður en hann
ákveður hvaða ráðstafanir hann
skuli gera til að koma skriði á
friðarviðræðurnar. Carter skilur
ekki enn hvers vegna Sadat sleit
viðræðunum í skyndi í Jerúsalem
í siðasta mánuði og er sagður telja
rósemi nauðsynlega i. Miðaustur-
löndum um stund, svo menn átti
sig betur á vandamálunum.
Bandariskir embættismenn
búast ekki við stórtiðindum frá
Camp David. En Sadat forseti
ætlar að halda uppi harðri sókn
fyrir málstað sínum opinberlega.
þegar hánn kemur aftur til
Washington. Hann ætlar að halda
meirihattar ræðu i blaðamanna-
klúbbnum i milli Rafah á gömlu
egypzku landamærunum og EI
Arish. Hann kvað stjórn sina hafa
ákveðið að éfla aðeins og stækka
núverandi byggðir á sCæðinu nái-
ægt Rafah. Hann sagði. að enginn
ísraelskur leiðtogi hefði nokkru
sinni lofað Bandarikjamönnum
að hefja ekki nýtt landnám á her-
teknum svæðum.
— 0 —
I Algeirsborg sögðu leiðtogar
landa. sem eru andvíg stefnu
Sadats i dag. að samningur. þar
sem Palestínumenn væru snið-
gengnir. gæti aðeins táknað það.
að „strið lægi niðri". Þeir kváðu
stefnu Sadats til þess fallna að
breyta Miðausturlöndum i vett-
vang árekstra milli „afla heims-
valdastefnu og sjálfstæðis". Þeir
fordæmdu „ihlutun heimsvalda-
sinna" i Miðausturlöndum og
Norður-Afriku og kváðu sovézk
vopn hafa að engu gert þá goð-
sögn, að lsraelsmenn væru ósigr-
andi. Á milli linanna i yfirlýsingu
þeirra mátti lesa dulbúna hótun
um beitingu vopnavalds.
— Frankinn
á niðurleið
Framhald af bls. 1.
sigruðu i kosningunum, að þeir
fengju sjö mikilvæg ráðuneyti:
ráðuneyti landvarna, utanríkis-
mála, innanríkismála, efnahags-
mála, félagsmála og sveitarstjórn-
armála.
Kommúnistaleiðtoginn Georges
Marchais segir, að flokkur hans
muni setja það skilyrði að ráð-
herraembættinu verði skipt i sam-
ræmi við fylgi þeirra flokka, sem
muni standa að myndun vinstri-
stjórnar. Hann hefur óskað eftir
viðræðum við jafnaðarmenn um
samsetningu vinstristjórnar og
stefnu slíkrar stjórnar eftir fyrri
lotu kosninganna. Eftir þær við-
ræður munu kommúnistar líklega
ákveða, hvort þeir hafa samvinnu
jafnaða í síðari kosningalotunni
eða ekki.
Samkvæmt skoðanakönnunum
fá jafnaðarmenn 30%, en komm-
únistar 21 % í kosningunum.
— Almáttugur
Við erum
að hrapa
Framhald af bls. 20
krafti í hreyflana að nýju og forða ef
til vill 1 10 manns frá dauða
Og næstum jafnskjótt og hryll-
mgurinn hafði byrjað, endaði hann
Klukkan 10 16 nákvæmlega þrem
ur minútum eftir að fyrsti hreyfill-
inn hafði drepið að sér tilkynnti
Anllo flugstjóri að þeim hefði tekizt
að koma einum hreyfli i gang aftur
10.18 tilkynnir rödd flugstjórans
aftur i talstöðina Allir hreyflar
komnir i gang!
Vélin hafði á fimm mínútum svif-
ið niður úr 33 þúsund feta hæð
niður í 25 þúsund feta hæð og
ekkert virtist biða hennar nema að
steypast í sjóinn
„Góðir farþegar, neyðarástand-
inu er aflétt Hafið sætisólarnar
samt ,áfram spenntar Við höldum
til Jacksonville, þar sem lent
verður,” tilkynnti Anllo Grátur
breyttist í hlátur og spennan fékk
útrás i tárum
Þegar vélin lenti heilu og höldnu
stóðu farþegarnir upp, klöppuðu og
hrópuðu húrra fyrir áhöfninni
Rannsókn á biluninni hófst um
leið og farþegar voru gengnir frá
borði Frú Goodwin sagðist hafa
hugsað um kvikmyndina ..Airport”
,.Ég trúi varla að þetta hafi hent mig
og það sem meira er að ég skuli
vera á lífi til að segja frá því
— Árásir í
Nicaragua
Framhald af bls. 1.
á vesturbakka Nicaragua-vatns.
Bardagarnir stóðu í tvo tíma að
sögn Wolfsons, og skæruliðar
kveiktu í fjarskiptastöð Þjóðvarð-
liðsins, simstöð og pósthúsi.
Önnur árás var gerð skömmu
síðar og skæruliðar réðust að svo
búnu á bæinn Rivas, þar sem kom
til harðra vopnaviðskípta að sögn
talsmannsins. Talsmaðurinn taldi
ástæðu til að ætla, að skæruliðar
hefðu ráðizt á Grananda, hörfað
fljótt og komið til liðs við skæru-
liðasveitina, sem réðst á Rivas.
Talsmaðurinn sagði, að þjóð-
varðliðar hefði hrundið árásinni á
Rivas og skæruliðar hefðu flúið í
stolnum bifreiðum. Hann sagði,
að þjóðvarðliðar hefðu veitt þeim
eftirför til staðar skammt frá
landamærunum, en þeir hefðu
komizt undan.
Sandinistaskæruliðar kenna sig
við Cesar Augusto Sandino, liðs-
foringja sem stjórnaði uppreisn
gegn Bandaríkjamönnum á ájun-
um eftir 1930. Þetta eru umfangs-
mestu aðgerðir þeirra síðan í
október í fyrra, þegar þeir réðust
á stöðvar þjóðvarðliða í sex bæj-
um. Stjórnin sagði, að 25 hefðu
fallið, þar á meðal skæruliðar, en
manntjón varð meira samkvæmt
öðrum heimildum.
Sandinistar eru marxistar og
hafa reynt að steypa Somoza af
stóli í rúm tíu ár. Verkfall geng
stjórn Somoza, sem hófst fyrir
tólf dögum, stendur enn og nær
til landsins alls.
— Prófkjör
Framhald af bls. 3.
sætunum samkvæmt prófkjörinu,
enda hafi þeir fengið hver fyrir
sig atkvæði á a.m.k. helmingi
alira gildra prófkjörsseðla. Þó er
kjörnefnd heimilt í tillögu sinni
að færa frambjóðendur úr einu
sæti í annað innan framan-
greindra sæta ef hún telur það
nauðsynlegt vegna heildarsvips
listans, eða að það sé lsitanum til
styrktar.
Að lokum skal þess getið að
yfirkjörstjórn hefur aðsetur sitt í
Sjálfstæðishúsinu í Kópavogi þar
sem allar upplýsingar varðandi
prófkjörið verða gefnar í síma
40708.
— Greinargerð
Framhald af bls. 23
blaðaviðtölum, en ég get ekki
borið ábyrgð á uppslætti orða
og fyrirsögnum blaða.
Virðingarfyllst,
Bergur Tómasson,
borgarendurskoðandi.
Við undirriaðir, kjörnir
endurskoðendur Reykjavíkur-
borgar, höfum kynnt okkur það
sem að framan segir, og erum
samþykkir meðferð málsins.
Bjarni Bjarnason.
Hrafn Magnússon.
Meðf.:
1. Ljósrit af mótt. víxlum
innheimtudeildar.
2. Ljósrit af minnisblaði
Björns Kristjánssonar.
Reykjavík, 14. des. 1977.
Innheimtudeild hefur í dag
móttekið eftirfarandi vixla af
Birni Kristjánssyni, endurskoð-
unardeild.
1. Samþ. Guðmundur Axelsson,
gjaldd. 15/11. ’77 Kr. 300.000,-
2. Samþ. Þorsteinn
Kristjánsson, gjaldd. 25/12. ’78.
Kr. 600.000,-
3. Samþ. Bernhard Petersen
h.f., gjaldd. 15/12. ’77. Kr.
600.000,-
4. Samþ. Bernhard Petersen
h.f., gjaldd. 1/10. ’78. Kr.
600.000,-
Samt. kr. 2.100.000,-
F.H. innheimtudeildar,
Hjörtur Hjartarsson.
Reykjavík, 2. febrúar. 1978.
Minnisblað
Mánudag 12,- desember 1977,
kl. 14.30 til 15.00, afhenti ég
borgarstjóra ný gögn I máli
borgarlögmanns og ræddi þá
um það, að endurskoðunardeild
þyrfti að sjá öll þau gögn, sem
Páll hefði undir höndum eða í
skrifborði sinu, um mál þetta.
Borgarendurskoðandi var fjar-
verandi vegna jarðarfarar. Um
kl. 16.00 hringdi borgarstjóri og
sagði að borgarlögmaður hefði
sagt upp starfi sínu og aðspurð-
ur af borgarstjóra kvaðst Páll
ekki vilja vera viðstaddur, þeg-
ar endurskoðunardeild færi í
skrifborð hans. Borgarstjóri
taldi bezt, að í skrifborð Páls
yrði skoðað eftir vinnutíma. Kl.
16.15 mætti ég á skrifstofu
borgarstjóra og þar voru mætt-
ir auk borgarstjóra, borgarrit-
ari og skrifstofustjóri. Nokkru
síðar mætti borgarendurskoð-
andi og skrifstofustjóri hans.
Um kl. 17.00 ræddust þeir við
borgarstjóri og borgarendur-
skoðandi og var þá rætt um leit
í skrifborði borgarlögmanns.
Lyklar að skrifborðinu voru á
staðnum, nema á einni skúffu,
sem hægt var að opna á auð-
veldan hátt, án þess þó að
spengja upp lásinn og í þeirri
skúffu voru þau plögg, sem leit-
að var að.
Björn Kristjánsson.
M i i ,t..t UUJl i J •* / vi * I, J i « j lit \jk