Morgunblaðið - 04.02.1978, Síða 44

Morgunblaðið - 04.02.1978, Síða 44
AlWLÝSINfiASÍMIXN EK: 22480 íHírflvmblnöiíi Lækkar hitakostnadinn LAUÍiARDAGUR 4. FEBRUAR 1978 Lengsti gæzluvarðhaldsúrskurður í hassmáli hérlendis: Maður úrskurð- aður í 60 daga gæzluvarðhald 23 ára gamall maður var í gær úrskurðaður í allt að 60 daga gæzluvarðhald vcgna rannsóknar fikni- efnamálsins mikla, sem nú er til meðferðar hjá Fíkni- efnadómstólnum og fíkni- efnadeild lögreglunnar í Reykjavfk. Er þetta lengsti gæzluvarðhaldsúrskurður, sem kveðinn hefur verið Kramhald á hls. 24. Kvikmyndahátíð: Hafnarbíó á réttinn á Frissa ketti” hér á landi 99 „MÉR finnst út af fyrir sig allt í lagi þútt m.vndin verdi sýnd tvisv- ar, þrisvar sinnum og ég hef boðið aðstandendum kvikmynda- hátfðarinnar upp á það. En þetta er það dýr mynd fyrir llafnarbfó, að það kemur ekki til greina að hún verði sýnd sjö sinnum f Há- skólahfói án þess að nokkrar greiðslur komi í staðinn", sagði Jón Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Hafnarbfós, f samtali við Mbl. f gær, er Mbl. spurði hann. hvort rítt væri að Hafnarbíó hefði lagzt gegn sýningum á teikniinyndinni Frissi köttur á kvikmyndagátíðinni. Sýningu á myndinni, sem vera átti í gær- kvöldi, var frestað þar sem mynd- in væri ekki komin til landsins. Jón Ragnarsson sagði, að Hafn- arbíó hefði keypt réttinn til sýn- inga á myndinni hérlendis. Hefði aðstandendum kvikmyndahátið- arinnar verið bent á Hafnarbíó, þegar þeir voru að falast eftir myndinni. Sagði Jón að þá hefði verið haft samband vió hann og hefði hann þá ekki tekið illa í það að myndin yrði sýnd tvisvar, þrisvar sinnum á kvikmyndahá- tíðinni. „Síðan heyrði ég ekkert meir og vissi ekki neitt, fyrr en ég las í blöðunum að það eigi að svna Framhald á hls. 24. J affa-appelsínur: Ekkert óvenjulegt fannst í gær IIEILBRIUÐISEFTIRI.IT ríkisins lók sýnishorn af Jaffa appelsfnum frá fimm dreifingaraðilum hér á landi og voru rann- sóknir á þeim framkvæmdar á rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, þar sem kvikasilfursmælingar á fiski eru framkvæmdar. t gær hafði ekkert óvenjulegt fundi/t f appelssfnunum, en lokaniður- stöður mælinganna eiga að liggja fyrir á mánudag. Vegna misskilnings í frétt Mbl. í gær, skal þess getið að umboðs- aðili Jaffa hér á landi er Eggert Kristjánsson ogCo hf. Þessa mvnd tók ÓI.K.M. á rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins í gær, þarsem unnið var að rannsókn á appelsínunum. Borgarrád vísar máli fyrrverandi borgarlögmanns til frekari med- ferðar rannsóknarlögreglustjóra Veitti móttöku rösklega 5 milljónum í bílastædagjöld, sem ekkikomufram hjá borgarsjódi. Endurgreiddi tæpar 2millj. kr. Túrbína Kröflu í gang í dag? EKKI varð af því að túrbína Kröfluvirkjunar yrði gangsett í gær, en Einar Tjörvi Elías- son, verkfræðingur Kröflu- nefndar, sagði Mbl. í gær- kvöldi, að reyna ætti að gang- setja túrbínuna fyrir hádegi í dag. Undirbúningsvinnu fvrir gangsetningu túrhínunnar lauk um kvöldmatarleytið í gærkvöldi, en hún hafði tafizt nokkuð vegna frosts f leiðsl- um. Þegar setja átti svo túr- hfnuna í gang í gærkvöldi stóð öryggisventill á sér og var þá hætt við gangsefninguna og henni frestað þar til í dag. □ ----------------------- □ Sja greinargerð I i ______á bls. 23______ j BORGARRÁÐ ákvað í gær að vísa máli Páls Líndals, fyrrverandi borgarlög- manns, til frekari meðferð- ar rannsóknarlögreglu- stjóra ríkisins. i greinar- gerð frá skrifstofu borgar- stjóra segir að rannsðkn endurskoðunardcildar, sem nái allt aftur til ársins 1965, hafi leitt í ljós, að á árunum 1971—77 hafi Páll Líndal veitt móttöku bif- reiðastæðagjöldum að fjár- hæð samtals 5.069.729, sem ekki verður séð að skilað hafi verið í borgarsjóð. Inn á þessa fjárhæð greiddi Páll Líndal 9., 14. og 15. desember sl, samtals 1.973.704 krónur. I grein- argerðinni segir, að Páll hafi fengið skýrslu endur- skoðunardeildar 31. janú- ar, „en hefur ekki síðan iinnt tilmælum endurskoð- iinardeildar um að koma og gera grein fyrir málinu af sinni hálfu.“ í tilkynningu skrifstofu borgar- stjóra segir að í byrjun desember sl. hafi komið upp grunur um, að í ákveðnum tilvikum hafi ekki ver- ið gerð skil til borgarsjóðs á inn- heimtum bifreiðastæðagjöldum, sem Páll Líndal, þáverandi borg- arlögmaður, hafi veitt móttöku í marz og október 1977. Eftir að Framhald á bls. 24. B jarni Sæmundsson: Fundu töluvert af góöri loönu í gær „VIÐ HOFUM fundið tölu- vert mikið af loðnu síðasta sólarhringinn og mér lízt nú óneitanlega betur á þetta, en satt að segja var manni eiginlega hætt að lítast á blikuna“, sagði Hjálmar Vilhjálmsson, Gjaldeyrisafgreiðslan: Bifreiðar, hljómflutningstæki og heimilistæki ekki afgreidd „S(J SKIPAN, sem hefur verið á afgreiðslu gjaldcyrismála frá há- degi á föstudag, er þannig, að allar frflistaafgreiðslur fara fyrir fund gjaldeyrisnefndar bank- anna, en venjan er að frflistaaf- greiðslur geri það ekki, nema í þeim tilfellum, þar sem um gjald- frest er að ræða,“ sagði Björgvin Guðmundsson, formaður gjald- eyrisnefndarinnar, f samtali við Mbl. í gær. „Það nauðsynlegasta, eins og hráefni til iðnaðar og rekstrarvörur atvinnuveganna, fá skjóta meðfcrð, en tregða er sett á til dæmis skipagjöld og bifreiðar, hljómflutningstæki og heimilis- tæki eru ekki afgreidd." Björgvio sagði að f vikunni hefði verið lítill stígandi í gjald- eyrissölunni, en hins vegar hefði orðið vaxandi eftirspurn vegna bifreiða, sjónvarpa, hljómflutn- ingstækja og heimilistækja. Sagði hann Iegið á geysilegum fjölda umsókna í bönkunum, einkum varðandi bifreiðar. „Eftirsóknin eftir gjaldeyri vegna þessara vara hefur vissulega borið einkenni spákaupmennsku og menn hafa greinilega viljað fara i gang með kaup af þessu tagi með tilliti til einhverra hugsanlegra aðgerða“, sagði.Björgvin. Afgreiðsla á ferðamannagjald- eyri, sjúkra- og námskostnaði var með eðlilegum hætti í gær og fyrradag og engar hömlur eru á gjaldeyrisreikningum. fiskifræðingur, er Mbl. ræddi við hann um borð í Bjarna Sæmundssyni í gærkvöldi, en í gær fundu þeir töluvert af loðnu um 50 mílur norður af Mel- rakkasléttu og þaðan vestur eftir langleiðina að Kolbeinsey. Hjálmar sagði að þetta væri mjög falleg loðna; hrygnan 16.7 sm og hængurinn 17,7 sm. „Eini galiinn er sá, að hér er ekki veiðiveður og spáin ekki góð“, sagði Hjálmar. Hjálmar sagði að Stapavfk frá Siglufirði hefði tvær undanfarnar nætur fengið 450 tonn af góðri loðnu 20—25 mílur norðaustur af Kolbeinsey. í fyrrinótt fór Bjarni Sæmundsson þarna yfir og fannst þá töluvert mikið af loðnu í litlum torfum. í gær fundu þeir á Bjarna svo mjög góðar torfur. „Þessar torfur lyftu sér þegar dimmdi og voru fljótlega komnar á 15—25 faðma, en þá skiptu þær sér“, sagði Hjálmar. „Eftir sem áður er tals- vert af þokkalegum torfum hér og verst að ekki skuli vera veiði- veður". Hjálmar sagði að töluvert af loðnu hefði verið komið norðaust- Framhald á bls. 24. Skírnir AK dreginn tilDanmerkur: Splunkuný vél ónýt ALVARLEG vélarbilun varð í loðnuskipinu Skírni AK þegar skipið var að leggjast að bryggju í Ölafsfirði á mánu- daginn. Sérfræðingar frá verk- smiðjunum komu til landsins f vikunni og úrskurðuðu að vél- in væri ónýt og setja þvrfti nýja vél í bátinn. „Þetta er mikið áfall fyrir útgerðina og áhöfn bátsins núna í byrjun loðnuvertíðar- innar,“ sagði Haraldur Stur- laugsson framkvæmdastjóri Haralds Böðvarssonar og CO á Framhald á bls. 24.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.