Morgunblaðið - 10.02.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRUAR 1978
Kaupir Háskólinn
Reykjavíkurapótek?
„ÞESSU máli hefur verið hreyft,
en það er á frumstigi ennþá,“
sagði Guðiaugur Þorvaldsson,
háskólarektor, er Mbl. spurði
hann, hvort viðræður hefðu farið
fram um að Háskóli tslands
keypti Reykjavfkurapótek.
Guðlaugur sagði, að það væri
mjög erfitt að koma lyfjafræði-
nemum til verkmenntunar í lyfja-
búðum og þvf væri það álitlegur
möguleiki fyrir skólann að
eignast lyfjabúð þar sem fá mætti
aðstöðu til rannsókna og verk-
menntunar auk þess sem verzlun
yrði að sjálfsögðu rekin áfram.
Frumvarp umbann
við fjárhagsstuðn-
ingi erlendra aðila
Tilkomið vegna „iátningar Alþýðuflokksins
FRIIMVARP til laga um bann við
fjárhagslegum stuðningi er-
lendra aðila við íslenzka stjórn-
málaflokka var lagt fram á Al-
þingi í gærkvöldi.
I greinargerð flutningsmanna,
sem eru fjórir; Stefán Jónsson,
Abl., Oddur Olafsson, S, Jón
Ármann Héðinsson, A, og Stein-
grímur Hermannsson, F, segir, að
vegna „játningar Alþýðuflokks-
ins“ um að hann hafi leitað fjár-
framlaga erlendis frá til útgáfu
blaðs síns telji þeir nauðsynlegt
að flytja strax þetta frumvarp,
enda þótt heildarfrumvarp um
stjórnmálaflokkana sé í smíðum
hjá sérstakri nefnd. Segja flutn-
ingsmenn að engu skipti þótt fé sé
sótt til Norðurlandanna, þar sem
enginn erlendur aðili eigi að fá
,,að gera út stjórnmálaflokka hér í
landi“.
Reyðarfjörður:
Fara úr Framsókn
Mótmæla stöðuveitingu samgönguráðherra
„ÞAÐ ER rétt að ég hef sagt mig
úr Framsóknarfélaginu hérna í
mótmælaskyni við þessa em-
bættisveitingu samgönguráð-
herra. Ég hef alla tíð gagnrýnt
það, þegar flokkar hafa þrýst
mönnum í embætti af pólitískum
ástæðum og ég læt það sama gilda
Blaðamenn
segja upp
samningum
BLAÐAMANNAFÉLAG Is-
lands boðaði í gærmorgun
vinnustöðvun félagsmanna
sinna frá og með föstudegin-
um 17. febrúar n.k. að undan-
genginni allsherjar atkvæða-
greiðslu í félaginu. Ef til
vinnustöðvunar kemur hætta
dagblöðin að koma út, svo og
nokkur vikublöð og tímarit.
Launamálanefnd blaða-
manna og samninganefnd út-
gefenda ræddust við hjá Torfa
Hjartarsyni sáttasemjara í
rúmar tvær klukkustundir í
gær en sá fundur varð
árangurslaus. Næsti fundur
hefur verið boðaður á mánu-
dag.
Blaðamannafélag íslands
hefur óskað að koma þvi á
Framhald á bls. 23
um Framsóknarflokkinn og aðra
flokka 1 þessum efnum,“ sagði
Hjalti Gunnarsson, hreppsnefnd-
armaður á Reyðarfirði, f samtali
við Mbl. f gær, en sú ákvörðun
Halldórs E. Sigurðssonar að veita
Guðjóni Þórarinssyni rafvirkja-
meistara stöðu rekstrarstjóra
Vegagerðar rfkisins á Reyðarfirði
hefur sætt gagnrýni, en um stöð-
una sóttu einnig tveir starfsmenn
Vegagerðarinnar: Páll Elfsson og
Sigurjón Ölason og fékk Páll
meðmæli Vegagerðarinnar til
starfsins.
Einar Þorvarðarson, umdæmis-
verkfræðingúr Vegagerðarinnar
á Reyðarfirði, staðfesti einnig við
Mbl. að hann hefði sagt sig úr
Framsóknarfélaginu vegna þessa
máls og að um 25 aðrir starfs-
menn Vegagerðarinnar eystra
hefðu sent samgönguráðherra
mótmælabréf vegna stöðuveiting-
arinnar.
P^ll Elfsson, flokksstjóri hjá
Vegagerðinni, sagði í samtali við
Mbl. að hann hefði sagt starfi sínu
lausu strax og hann frétti af
stöðuveitingunni. „Ég átti fast-
lega von á því að fá þessa stöðu
eftir að meðmæli Vegagerðarinn-
ar urðu mér jákvæð. Ég fæ ekki
annað séð en að það sem mér er
fundið til foráttu sé það eitt að ég
er sjálfstæðismaður, en ekki
framsóknarmaður eins og sam-
Framhald á bls. 19
AGUST LOFTSSON á heimili sínu í gær. Ljosm Mbl ’’
/
„Otrúlegt að
ekki fór verr,>
12 ára drengur slapp óbrotinn
undan afturhjólum strœtisvagns
EINS og Morgunblaðið skýrði
frá f gær varð það slys f Norður-
felli hér í bæ að drengur sem
var að fara út úr strætisvagni
lenti undir vagninum. Aftari
hjól vagnsins fóru yfir báða
fætur drengsins, en við skoðun
kom f Ijós að hann var óbrot-
inn. Drengurinn var aðeins
skorinn og marinn. Pilturinn
sem lenti f þessu óhappi heitir
Ágúst Loftsson 12 ára gamall
til heimilis að Norðurfelli 1.
Mbl. heimsótti Ágúst í gær og
spjallaði við hann.
„Ég var að fara út úr vagnin-
um. Mér skrikaði fótur og rann
undir vagninn,“ sagði Ágúst.
Hann sagði að hann hefði lítið
getað gert sér til bjargar. „Ég
var sá eini sem fór úr vagninum
og var hann því að aka í burt
þegar ég rann til. Sársaukinn
var mjög mikill, en þetta var
allt afstaðið á augnabliki."
Agúst sagðist hafa fengið
strák til að hlaupa og segja for-
eldrum sinum frá slysinu, en
hann á heima örstutt frá slys-
staðnum.
„Það er nánast ótrúlegt að
ekki fór verr,“ sagði móðir
Agústs. „Hjólin hafa farið yfir
fæturna ofanverða. Skurður
myndaðist fyrir ofan og neðan
hné á vinstri fæti, þar varð að
sauma 16 spor að utan og annað
eins innan skinns. Auk þessa
hefur drengurinn marist mjög
mikið á báðum fótum,“ bætti
hún við.
Ágúst Loftsson fékk að fara
heim af slysadeild eftir aðgerð.
Var hann settur í svonefndar
gifsspelkur á vinstra fæti. Var
honum sagt að hafa hægt um
sig í 10 daga. Þegar Mbl. bar að
garði var Ágúst í rúminu og las
sögur fyrir frænku sfna sem
var í heimsókn.
Móðir Ágústs sagði að erfitt
væri fyrir fótgangandi að kom-
ast leiðar sinnar á þvt svæði þar
sem slysið varð. Sagði hún þar
enga gangstétt meðfram götum.
Sýslumaður
Skagfirðinga
slasast í um-
ferðarslysi
SÝSLUMAÐUR Skagfirðinga Jó-
hann Salberg Guðmundsson slas-
aðist mikið á sjöunda tímanum á
þriðjudagskvöld þegar hann varð
fyrir bifreið á Suðurgötu i
Reykjavík á móts við Grímshaga.
Liggur Jóhann á gjörgæzludeild
Borgarspítalans. Rifbrotnaði
hann og hlaut innvortis meiðsli í
brjósti. Hann er ekki talinn vera í
lífshættu.
„Kona undir
áhrifum” er
loks komin
PAKKINN með kvikmynd
John Casavetes — Konu
undir áhrifum, sem sýna
átti á fyrsta degi kvik-
myndahátíðarinnar, er
kominn til landsins og
verður mvndin nú sýnd kl.
2, 9 og 11.30 í dag í Há-
skólabíói.
Kvikmyndin er búin að valda
forráðamönnum kvikmynda-
hátíðarjnnar miklu hugarangri.
Fyrst kom babb f bátinn með
greiðslur fyrir myndina, síðan
lenti filman fyrir mistök vestur í
Kaliforníu í stað þess að fara til
Islands og þegar hún siðan komst
til New York, tafðist hún þar
vegna óveðurs sem olli því að allt
flug lá niðri. En nú er filman sem
sagt komin, en þetta er talin bezta
mynd Casavetes, eins sérstæðasta
leikstjóra Bandaríkjanna og
reyndar ein helzta skrautfjöður
kvikmyndahátíðarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir
Konan sem lézt
KONAN, sem lézt í umferðarslys-
inu á Elliðavogi á miðvikudag, hét
Jóhanna Sigurðardóttir til heimil-
is að Birkiteig 29, Keflavik.
Jóhanna var fædd 20. janúar
1950. Hún lætur eftir sig eigin-
mann og þrjú hörn.
Mál belgíska skipst jórans
bíður gengisskráningar
„MÁLIÐ er nú til ákvörðunar hjá okkur, en það verður ekkert frekara gert meðan
engin gengisskráning er, þar sem allar sektir í landhelgismálum eru miðaðar við
gullkrónu,“ sagði Bragi Steinarsson vararfkissaksóknari, er Mbl. spurði hann í gær
um mál Maes Erwins, skipstjórans á belgfska togaranum Henriette 0-236 frá
Ostende, sem varðskipið Árvakur kom með til Reykjavfkur f gær vegna ólöglegrar
möskvastærðar.
Varðskipið kom að togaranum á
Reykjaneshrygg í fyrrakvöld.
Fóru varðskipsmenn um borð og
mældu veiðarfærin og sagði
Þröstur Sigtryggsson hjá Land-
helgisgæzlunni að mælingar
hefðu sýnt möskvastærð frá
120—130 millimetrum, meðal-
stærð 125 mm, „en við teljum
möskvastærð undir 135 mm ólög-
Iega,“ sagði Þröstur.
Landhelgisgæzian sendi málið
til sakadóms Reykjavíkur í gær-
morgun með beiðni um dóms-
rannsókn, en sakadómur endur-
sendi málið og sagði aðeins lög-
reglustjóra og saksóknaraembætt-
ið geta kært mál til sakadóms.
Landhelgisgæzlan sendi málið þá
til saksóknaraembættisins, sem
sendi það áfram til sakadóms með
beiðni um dómsrannsókn. Dóms-
rannsókn lauk i gær og var málið
þá sent saksóknara til ákvörðun-
ar, en eins og frain kemur af
orðum Braga Steinarssonar fyrst í
fréttinni verður beðið með hana
þar til gengisskráning hefst að
nýju.
Tólf belgískír togarar hafa leyfi
til veiða á íslandsmiðum og mega
þeir veiða 6.500 tonn, þar af 1500
tonn af þorski. Þröstur Sigtryggs-
son sagði Mbl. að Samkvæmt upp-
lýsíngum Belganna sjálfra hefðu
þeir á síðasta ári veitt 5.970 tonn
við Island, þar af 1407 tonn af
þorski.
f y** "i kh r ? \
\\ } í æM , f mm
Henriette í Reykjavíkurhöfn í gær.
Ljósm. Mbl, öl. K. M.