Morgunblaðið - 19.03.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. MARZ 1978
29
15 ára
rændi
banka
Vcstur-Berlín 17. marz. AP.
LÖGREGLA Vestur-Berlínar
sagði í dag, að henni hefði
tekist að hafa uppi á 15 ára
gömlum dreng, sem rændi
banka í einu hverfa borgarinn-
ar og komst undan með 33.500
mörk, eða jafnvirði um 6.1
milljónar króna.
Ungi bankaræninginn á að
hafa sagt við einn gjaldkera
bankans: „Nú er alvara á
ferðum," og beint að honum
plast-skammbyssu. Gjaldker-
inn elti stráksa og sagði síðan
lögreglu hvar hann væri að
finna.
• •
Oldungadeild á
fjölbrautastigi?
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks-
ins í fræðsluráði Reykjavíkur hafa
lagt fram í ráðinu tillögu þar sem
fræðslustjóra, stjórnarnefnd Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti og
skólameistara er gert að kanna
hvort tímabært sé að stofna
„öldungadeild" við skólann. Könn-
unin beinist ekki síður að verkleg-
um greinum en bóklegum. Tillaga
þessi var síðan samþykkt með sjö
samhljóða atkvæðum.
— Minning Svafa
Framhald af bls. 23
lendis og erlendis. Hún taldi
kennsluna sitt eiginlega ævistarf,
en segja má að sú þjónusta, sem
hún rækti við ýmis félagasamtök
og þá fyrst og fremst kvennasam-
tökin, hafi einnig jafngilt fullu
ævistarfi.
Áður en Svafa lauk kennara-
prófi hafði hún kennt í heimasveit
sinni og víðar, en lengstan
kennsluferil átti hún á tveimur
stöðum, Bíldudal og Akranesi og
hafði á hendi skólastjórn á báðum
stöðum. Á Akranesi var hún um
skeið bæði skólastjóri unglinga- og
iðnskóla og er víst eina konan, sem
gegnt hefur þeim embættum sam-
tímis. Þar starfaði hún lengst, eða
frá 1020 til 1944.
Félagsmálastörf hóf hún einnig
heima í Öxarfirði og um tvítugt
vsy hún formaður kvenfélagsins
þar. Hvar sem hún dvaldist var
hún í forustusvéit kvennasamtaka,
en hún tók einnig mikinn þátt í
öðrum félagshreyfingum, svo sem
ungmennafélögum, bindindisfélög-
um og barnaverndarfélögum, auk
kennarasamtakanna.
Hún var formaður Kvenfélags
Akraness frá 1926—1944 og for-
maður Sambands borgfirskra
kvenna frá 1930—1944. Árið 1944
ákvað hún að skipta um starf,
sennilega mest vegna heilsubrests,
sem hrjáði hana alla ævi, og réðst
hún þá framkvæmdastjóri Kvenfé-
lagasambands íslands og fluttist
til Reykjavíkur.
Það fyrsta sem skráð er í
fundargerðum K.í. um Svöfu er frá
landsþinginu 1938. Þá ræðir hún
um að K.í. verði að afla sér trausts
valdhafanna, svo að því verði falið
að fjalla um lagasetningar, er
varða starfssvið kvenna. Tilefni
ummælanna var það, að lög um
húsmæðrafræðslu höfðu verið sett
án samráðs við kvennasamtökin.
Var Svafa kosin í nefnd, er sk.vldi
ganga á fund ríkisstjórnarinnar og
mótmæla slíkum vinnubrögðum.
Þann sama metnað hafði Svafa
fvrir hönd íslenskra kvenna á
öllum sviðum og fram kemur í
viðhorfi hennar til þessa máls.
Þær áttu að sýna og sanna, að svo
væri máium best borgið, að þær
væru með í ráðum.
Frá þessum tíma mun Svafa
hafa setið hvert landsþing K.í.
meðan kraftar leyfðu og hafði hún
mikil áhrif á mótun stefnu sam-
bandsins og starfshætti, bæði sem
fulltrúi og starfsmaður. I fundar-
gerð landsþings árið 1943 segir, að
þáverandi formaður, Ragnhildur
Pétursdóttir, hafi óskað að hætta
formennsku og bent á Svöfu sem
eftirmann sinn. V’egna einróma
áskorana hélt Ragnhildur þó
áfram starfi sínu um skeið, en
Svafa var kosin í stjórn á þessu
þingi. Eftir að hún var ráðin
framkvæmdastjóri ferðaðist hún
víða um landið, stuðlaði að stofnun
nýrra félaga, samræmdi lög félaga
og héraðssambanda og flutti
konum hvatningarorð til samstöðu
og samstarfs. Að fjórum árum
liðnum sagði hún lausu fram-
kvæmdarstjórastarfinu, en ekki
rofnuðu tengsl hennar við K.í.
fyrir það.
Árið 1950 hófst útgáfa tímarits-
ins Húsfreyjunnar og var Guðrún
Sveinsdóttir ráðin fyrsti ritstjóri
hennar. Þegar hún lét af því starfi
eftir þrjú ár, var Svöfu falið það
verkefni og gegndi hún ritstjórn-
inni til áttræðisaldurs, er hún
sjálf taldi sig ekki hafa lengur
þrek til að sinna því eins og hún
vildi.
Svafa starfaði einnig mikið í
Kvenréttindafélagi íslands, var
lengi í stjórn þess, framkvæmda-
stjóri Menningar- og minningar-
sjóðs kvenna og átti lengi sæti í
bygginganefnd Hallveigarstaða.
Ymis kvennasamtök gerðu hana að
heiðursfélaga í viðurkenningar-
skyni fvrir störf hennar og á
níræðisafmæli hennar stofnuðu
borgfirskar konur Heiðurssjóð
Svöfu Þórleifsdóttur. Er honum
ætlað það hlutverk að hlynna að
dvalarheimilinu Höfða á Akranesi
og er í vörslu Kvenfélags Akra-
ness. Forseti íslands sæmdi Svöfu
riddarakrossi fyrir félagsmála-
störf hennar.
Því fer fjærri að hér hafi verið
gerð tæmandi upptalning á félags-
störfum Svöfu, en þetta ætti að
nægja til að sýna, að hún sat ekki
með hendur í skauti og horfði
afskiptalaus á baráttu íslenskra
kvenna fyrir auknum mannrétt-
indum og velferð heimila og barna.
Gáfur hennar og uppeldisáhrif
hljóta að hafa fallið mjög í einn
farveg og skipuðu henni í fremstu '
sveit baráttunnar fyrir bættu
mannlífi hvar sem hún fékk því við
komið.
Svafa var bráðgáfuð kona,
skarpskyggn með afbrigðum,
óvenjulega fljót að greina aðalatr-
iði frá aukaatriðum og að leggja
hvert mál Ijóst fyrir. Minnug var
hún og fróð og víðlesin í bók-
menntum, einkum norrænum, og
þýddi mikið úr þeim málum, enda
málhög og prýðilega ritfær. Hún 1
var án efa skaprík, en stillt vel og
fylgdi fast eftir þeim málum, sem
hún taldi horfa til framfara. Til
hennár var gott að leita ráða um
hvað eina, hún veitti andsvör af
íhygli og velvild, var skemmtin í
viðræðum hafði glöggt skopskyn
og var ágætur ræðumaður. Þótt
hún léti af ritstjórn Húsfreyjunn-
ar, lauk ekki samstarfi okkar
ritstjórnarkvenna við hana, því
löngum sóttum við til hennar ráð,
fræðslu og hvatningu. Samstarfið
við hana var auðgandi, svo sem
kynni við gáfað og gott fólk jafnan
eru.
Svafa giftist ekki, en ól upp einn
fósturson og hjá honum og fjöl-
skyldu hans dvaldist hún þar til
heilsubrestur knúði hana til að
leita sér athvarfs á Eliiheimilinu
Grund. Hún unni mjög fjölskyldu
sinni og naut einnig mikils ástríkis
af þeim.
Suður í Afriku heyrði ég flutta
þessa bæn:
„Drottinn, ég hef uppgötvað að
líf mitt er letur, sem aðrir lesa
daglega. Iljálpaðu mér að verða
penni, sem fræðir og svíkur aldrei,
skapar en eyðileggur aldrei, leitar
þess, sem má vera mönnunum til
góðs."
Líf Svöfu Þórleifsdóttur var
mjög í anda þessarar bænar. Hún
var sífræðandi, hvort heldur hún
starfaði sem kennari, sem félags-
legur leiðbeinandi eða ritstjóri.
Hún leitaði ávallt þess, sem má
vera mönnSnum til góðs.
Kvenfélagasamband íslands
kveður hana með virðingu og þökk.
Sigríður Thorlaeius.
Sumir versla dýrt —
aörir versla hjá okkur
Okkar verð eru ekki tilboö
^ heldur árangur af f I
ÍM hagstæðum innkaupumMfl
Mikið úrval af
páskaeggjum. 20% afsláttur.
Hvergi betra verð.
Ótrúlega fjölbreytt úrval
af sælgæti fyrir páskana:
Almonds súkkulaöihúöaöar hnetur
Thin mints, súkkulaöimint
Allsorts, lakkrískonfekt
Coctail Jasmin, konfektkaramellur
Week End súkkulaðikonfekt
Smith Kendon brjóstsykur 8 teg.
Verkade súkkulaöi, margar teg.
Konfekt í miklu úrvali.
Ný sending
,Í5ÍÍS,^,\ af dönskum kökum:
M Smákökur.
Rúllutertur.
Lagtertur.
mTertubotnar.
P§|k Tartalettur.
IgBi Marengstoppar.
MfflM Makkarónukökur
Mackintosh's
QualityStreet
LIQUORICE
^VIIsorts
cyihnonds
DERAIN
:olates & Candi
STARMYRI 2 AUSTURSTRÆTI 17
Bassett's