Morgunblaðið - 01.04.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978
HÓLMUR Á STRANDSTAÐ í ÓLAFSFIRÐI — Eins og sést á þessari mynd er Hólmur strandaður
skammt frá hafnargarðinum á Ólafsfirði og þar rétt fyrir ofan er byggðin.
Ljósm.: Svavar Magnússon.
RARIK hefur greitt
55 millj. olíuskuldina
Fékk 305 milljónir kr. til þess
og til efniskaupa i Austurlínu
Qvíst hvort Hólmur næst á flot:
Rætt um að moka
saltinu úr skipinu
EKKI tókst að ná færeyska
flutningaskipinu Hólmur af
strandstað í Olafsfirði í fyrrinótt,
eins og þá var ráðgert. Varðskip-
ið Óðinn reyndi þá að ná Hólmi
á flot á flóðinu um nóttina. en þá
vildi ekki betur til en svo að
dráttarvírinn slitnaði við hlið
varðskipsins. Síðan hefur ekki
verið reynt að ná skipinu á flot,
og óvíst er hvort það er hægt mcð
góðu móti, þar sem skipið hefur
nú sigið töluvert í sandin. Hins
vegar hefur verið rætt um að
létta skipið. með því að moka
saltfarminum fyrir borð, en það
hefur ekki verið ákveðið enn. Þá
var Morgunblaðinu tjáð í gær gð
menn deildu um hvort það borg-
aði sig að ná Hólmi á flot, þar sem
skipið er orðið 55 ára gamalt.
Morgunblaðið var tjáð í gær, að
komið hefðu upp óskir um að létta
Hólm, — en í skipinu eru 100 lestir
af salti — með því að moka saltinu
í sjóinn, en tryggingarfélag skips-
ins hefði neitað þeirri ósk af
einhverri ástæðu. Ahöfn skipsins
hefur verið um borð frá því að það
strandaði og átt sæmilega vist, en
í gærkvöldi átti að flytja áhöfnina
í land á Ólafsfirði. Þá eru menn
frá tryggingarfélagi skipsins og
eigendum þess væntanlegir til
Ólafsfjarðar á morgun.
Hluti Reykjavík-
ur vatnslaus í gær
STÓR hluti Reykjavíkurborgar
varð vatnslaus eftir hádegi í gær
og var vatn almennt ekki komið
í hús fyrr en eftir kvöldmat. bað
voru aðeins hús í austasta hluta
borgarinnar sem ekki urðu vatns-
laus. og að sögn bórodds Th.
Sigurðssonar vatnsveitustjóra, er
langt síðan jafn stór hluti borgar-
innar hefur orðið vatnslaus.
Þóroddur Th. Sigurðsson sagði
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann, að það hefði verið um kl. 9
í gærmorgun, sem fyrst hefði orðið
vart bilunar á vatnsæð inn til
borgarinnar. Vinnuvél frá Hlað-
bæ, sem var að grafa fyrir
aðfærsluæð hitaveitunnar frá
Elliðaá að Öskjuhlíð, hefði þá rifið
í sundur 600 mm vatnsæð sunnan
við Bústaðaveg. Þessi æð hefði
verið skammt frá aðalæðinni inn
til borgarinnar og þegar átt hefði
Framhald á bls.26
„RAFMAGNSVEITUR ríkisins
hafa gert upp vanskilaskuldir
sínar vegna úttekta í janúar og
febrúar, eins og lofað var,“
sagði Vilhjálmur Jónson, for-
stjóri Olíufélagsins h.f., í sam-
tali við Mbl. í gær. „Næsti
gjalddagi hjá þeim er svo 25
apríl, en þá eiga þeir að greiða
fyrir marzúttektina*.
Eins og komið hefur fram,
námu vanskil rafmagnsveitn-
anna vegna olíukaupa í janúar
og febrúar 55 milljónum króna,
en Vilhjálmur Jónsson sagði, að
„vanskilavextir yrðu reiknaðir
eftir á“.
Kristján Jónsson, rafmagns-
stjóri, sagði í samtali við Mbl.,
að auk 55 milljónanna hefði
Rarik fengið 250 milljónir króna
til að leysa út efni í Austurlínu
og myndi vinna við hana nú
hefjast aftur og yrði vonandi
Laus úr
gæzlu
MAÐUR sá sem á föstudaginn
langa var settur í gæzluvarðhald
vegna kæru ungrar stúlku um
nauðgun, var sleppt lausum í
gærkvöldi, en þá þótti ekki ástæða
til að yfirheyra hann lengur að
sinni.
Útsölunni að ljúka:
500 tonn
af smjöri
hafa selzt
ALLMJÖG hefur gengið á þá
fjárhæð. sem ríkisstjórnin
ákvað að leggja fram í því
skyni að auka smjörsöluna í
landinu og minnka smjör-
birgðir. Samkvæmt upplýsing-
um Guðmundar Sigþórssonar
deildarstjóra f landbúnaðar-
ráðuneytinu þarf á næstunni
að taka til athugunar hvort
hætta skuli „smjörútsölunni“
cða leggja fram meira fé til að
greiða niður smjörverðið.
Samkvæmt upplýsingum
Guðmundar hefur smjörsala
verið mjög mikil síðan smjör-
verðið var lækkað. Hefur
smjörsalan numið 500 tonnum
á s.l. tveimur mánuðum en áður
er gripið var til þess ráðs að
lækka smjörverðið var
mánaðarsalah á bilinu 110—120
tonn. Salan hefur því ríflega
tvöfaldast. Verulega hefur
gengið á smjörbirgðirnar eða
„smjörfjallið" svokallaða, en
þær voru um 1100 tonn áður en
gripið var til fyrrgreindra
ráðstafana til að auka smjör-
söluna.
Tuttugu ritstjórar frá
sænskum kratablöðum
eru staddir hérlendis
lokið við hana á árinu. Efni í
Vesturlínu sagði Kristján að
kæmi ekki fyrr en í maílok eða
í júní.
Kristján sagði, að þessar 305
milljónir kæmu þannig til, að
flýtt hefði verið greiðsluáætlun
ríkissjóðs til fyrirtækisins með-
an unnið er að heildarlausn
mála, eins og Kristján orðaði
það.
UM 20 ritstjórar frá blöðum
sænskra jafnaðarmanna dveljast
um þessar mundir hér á landi.
Komu þeir í gær og ætla að vera
hér til 3. apríi, aðallega í því skyni
að kynna sér efnahagsmál og
stjórnmálaástandið hér á landi
eftir því sem tækifæri gefst til.
Hitaveita Akureyrar
formlega vigð í gær
Gunnar Thoroddsen orkumálaráð-
herra skrifar nafn sitt í gestabók
Hitaveitu Akureyrar við vígslu
hitaveitunnar í gær.
aESI'
Akuroyri. 31. marz.
HITAVEITA Akureyrar var
formlega vígð og tekin í notkun
í dag, við hátiðlega athöfn, sem
hófst í dælustöðinni á Laugalandi
kl. 14. bar voru viðstaddir meðal
annara Gunnar Thoroddsen orku-
Stefán Reykjalín. forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, ræsir
dælubúnaðinn í dæluhúsinu að
Laugalandi, við hlið hans er
Ingólfur Árnason, formaður
hitaveitunefndar Akureyrar.
Ljósm.: Sv.P.
málaráðherra og frú hans, Jakob
Björnsson orkumálastjóri, for-
svarsmenn Landsbanka íslands,
bæjarfulltrúar á Akureyri, starfs-
menn hitaveitunnar og fleiri
gestir.
Athöfnin hófst með því, að
Ingólfur Árnason, formaður Hita-
veitunefndar Akureyrar, flutti
ræðu og lýsti aðdraganda að
stofnun fyrirtækisins, en síðan bað
hann Stefán Reykjalín, forseta
bæjarstjórnar Ákureyrar, að
þrýsta á hnapp og setja í gang
dælu til merkis um það að
hitaveitan væri formlega tekin til
starfa.
Stefán Reykjalín flutti síðan
stutt ávarp og þegar hann hafði
lokið máli sínu og sett dæluna í
gang tók séra Bjartmar Kristjáns-
son sóknarprestur á Syðra-Lauga-
landi til máls. Síðan talaði dr.
Gunnar Thoroddsen orkumálaráð-
herra og flutti Akureyringum og
Framhald á bls. 26
Aðalfundur
Iðnaðarbankans
Aðalfundur Iðnaðarbankans
verður haldinn í dag, laugardag og
hefst kl. 2 að Hótel Sögu. A
fundinum verður greint frá starfi
bankans á s.l. ári og lagðir fram
reikningar. Á fundinum verður
tekin ákvörðun um útgáfu jöfnun-
arhlutabréfa og aukið hlutafé.
Hluthafar í Iðnaðarbankanum eru
nú um 1300.