Morgunblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978 5 blcxnouol Jóhann Diego, garðhónnuöur kynnir garðskipulag, utplöntun o.fl. martfartstnrn § íslandi Eeva Joenpelto. Ljósm. RAX. Benedikt Gunnars- son sýnir í Reykialimdi Barnaskemmtun á Seltjarnarnesi Kór Söngskólans í Reykjavík heldur um helgina tvenna tónleika aðra í Ilvexagerðiskirkju ok hina í Fossvogskirkju. HÖSKULDUR Skagfjörð heldur í dag harnaskemmtun í Félags- heimili Seltjarnarness og hefst hún kl. 16. Er þetta skemmtun sem hann hefur verið með á ferð um landið siðustu misseri og sagði Höskuldur, að þetta væri 55. sýning á þessari dagskrá. Á dagskrá eru tvær barnamynd- ir, rússnesk og amerísk og leikrit, sem Höskuldur sagði að væri stytzta leikrit í heimi, tæki 6 mínútur í flutningi. Þá kemur fram gestur dagsins, Ágúst ís- fjörð, sem að sögn Höskulds er nýlegur skemmtikraftur og „slag- ar“ upp í Baldur og Konna, en í fylgd með honum er málgefinn fóstursonur hans. Munu þeir spjalla ýmislegt saman félagarnir, sagði Höskuldur Skagfjörð að lokum. Myndini Ágúst ísfjörð kemur fram á barnaskemmtun Höskulds Fyrirlestur um starf rithöf- undar i Norr- æna húsinu HÉR Á landi er nú stödd Eeva Joenpclto, finnskur rithöfundur, sem flytur á laugardag fyrirlest- ur í Norræna húsinu um þær kröfur sem gerðar eru til starf- andi rithöfundar. Eeva Joenpelto sem fædd er 1921 komst í röð fremstu rithöf- unda í Finnlandi með fyrstu bók sinni árið 1950, segir í frétt Norræna hússins, en bókin heitir Kaakerhólmskaupstaður. Hefur hún skrifað um 20 bækur og ein þeirra, Mærin gengur á vatninu, hefur komið út hérlendis í þýðingu Njarðar P. Njarðvík. Um þessar mundir segist Eeva Joenpelto vera að vinna að ritverki um árið milli 1920 og 1930, og er það þriggja binda skáldverk þar sem sögusviöið er Suðvestur-Finn- land. Tvö bindi henílar eru þegar komin út og hið þriðja lýkur hún við á árinu að því er hún sagði, en verið að vinna að þýðingu þeirra á önnur Norðurlandamál. Verið er að gera kvikmynd eftir bókunum og er ráðgert að frumsýna hana í lok ársins. Fyrirlestur Eevu Joenpelto hefst kl. 16 á laugardag og verður í samkomusal Norræna hússins. Skagfjörðs í félagsheimili Sel- tjarnarness kl. 16 f dag og með honum er fóstursonur“ hans. BENEDIKT Gunnarsson listmál- ari opnaði fyrir nokkru mál- verkasýningu í sölum Vinnuheim- ilisins í Reykjalundi. Sýnir hann þar 21 mynd sem flestar eru málaðar á s.l. ári. Eru þær til sölu. Sýning þessi stendur yfir til 8. apríl og er áformað að halda þessari nýbreytni áfram og fá listamenn til sýningarhalds í salarkynnum stofnunarinnar. Segir í frétt frá Reykjalundi að þetta nýmæli hafi verið starfsfólki og vistfólki til mikillar ánægju. Tónleikar kórs Söngskólans KOR Söngskólans í Reykjavík heldur tvenna tónleika nú um helgina, í Hveragerðiskirkju laug- ardaginn 1. apríl kl. 4 og í Fossvogskirkju sunnudaginn 2. apríl kl. 4. Flutt verður Messa á stríðstíma (Missa in tempori Belli) eftir Haydn. Stjórnandi er Garðar Cortes og einsöngvarar nemendur úr Söngskólanum í Reykjavík. Vorlauka - kynning í dag kl. 2-6 . Þau kynna Sigríður Ingólfsd, garóyrkjufræðingur kynnir vorlauka, sáningu sumarblóma og matjurta. Evert Ingólfsson, garóyrkjufræðingur kynnir vorlauka, meðferð garðrósa o.fl. Látið fagmenn aðstoða við val vorlauka. Heimsækið Gróðurhúsið í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.