Morgunblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978 Nírœð: Guðrún Guðmundsdótt- ir frá Sveinungseyri Ef að litið er yfir farveg aldaBna sem liðnar eru má ailtaf sjá nöfn persónuleika sem skarað hafa fram úr hvað atgervi og risn snertir meðal samtíðar sinnar. Ekki verður um það deilt að aðalkjarni þjóðar vorrar er sprott- inn upp úr dreifbýlinu. Þar hafa fæðst og alist upp þeir menn og konur sem hvað mestan svip hafa sett á mótun og þróun þjóðlífs vors, barist við ofurefli en gengið með sigur af hólmi í hverri raun. Eitt nafnið sem skráð verður með letri minninganna á bókfell aidanna er nafn Guðrúnar Guðmundsdóttur frá Sveinungs- eyri í Gufudalssveit. Það veit ég fyrir víst að enginn efar sem hlotnast hefur að kynnast henni. Ekki bara að sjá hana sem snöggvast, heldur kynnast lífs- starfi hennar, þrotlausri baráttu erfiðra tíma í afskekktri sveit með lítið annað veganesti en takmarka- lausan viljastyrk og trú á jörðina sem hún byggði. Guðrún er fædd 1. apríl 1888 í Arnkötludal í Tungusveit í Strandasýslu. Foreldrar hennar voru Guðmundur Sæmundsson frá Gautshamri bóndi þar og seinni kona hans Guðbjörg Magnús- dóttir frá Vonarholti í sömu sveit Sakaríassonar. Guðbjörg var syst- ir Jóhönnu fyrri konu Guðmundar. Guðmundur bjó í Arnkötludal 1874 — 1900, en fluttist þá vestur í Gufudalssveit að Sveinungseyri. Guðmundur var fæddur 1843 dáinn 1926. Hann var sonur Sæmundar bónda á Gautshamri er var fæddur 1801, Björnssonar prests í Tröllatungu fæddur 1769 Hjálmarssonar prests í Trölla- tungu 1742 Þorsteins sonar. Séra Hjálmar var á sínum stúdentsár- um í þjónustu Eggerts skálds Olafssonar. Þessir langfeðgar voru á orði fyrir söngmennt og hag- mælsku og þeir feðgar sr. Hjálmar og sr. Björn stunduðu einnig lækningar með góðum árangri. Móðir Guðmundar í Arnkötludal föður Guðrúnar var Guðrún Jóns- dóttir frá Kirkjubóli í Tungusveit Þórðarsonar systir Kristínar fyrri konu Sæmundar á Gautshamri. Kona séra Björns í Tröllatungu og móðir Sæmundar var Valgerður Björnsdóttir frá Þursstöðum í Mýrasýslu fæddur um 1730, Runólfssonar á Mófellsstöðum í Skorradal Guðmundssonar Magnús í Vonarholti, faðir Guðbjargar í Arnkötludal og afi Guðrúnar var fæddur 1825. Hann var sonur Sakaríasar á Heydalsá, er var fæddur 1801 Jóhannssonar prests á Brjánslæk Bergsveins- sonar prests á Stað í Grunnavík Hafliðasonar. Kona sr. Bergsveins var Halldóra Snæbjarnardóttir Mála-Snæbjarnar lögréttumanns á Sæbóli á Ingjaldssandi Pálsson- ar sýslumanns í ísafjarðarsýslu, Torfasonar prests á Kirkjubóli í Langadal vestra, dáinn 1668, Snæbjarnarsonar prests þar Torfasonar sýslumanns þar Jóns- sonar. Kona sr. Snæbjarnar Torfa- sonar og móðir sr. Torfa á Kirkjubóli var Þóra dáin 1652, Jónsdóttir sýslumanns á Holta- stöðum í Langadal og Grund í Eyjafirði, fæddur 1538, dáinn 1613 Björnssonar prests á Melstað er höggvinn var 7. nóvember 1550 í Skálholti með föður sínum Jóni biskupi Arasyni. Systir Magnúsar í Vonarholti afa Guðrúnar var Guðlaug Sakaríasdóttir kona Torfa Bjarnasonar skólastjóra í Ólafsdal. Eins og sjá má af framanskráðu liggja sterkir stofnar að ætt og uppruna Guðrúnar. Enda hygg ég að hún hafi erft alla bestu eiginleika sinnar stóru ættar. Gott mannorð er betri en mikill auður, vinsæld er betri en silfur og gull. Svo segir í Orðskviðum Salómons. Eg held að Guðrún hafi þegar á unga aldri tileinkað sér þessi orð og haft þau að leiðarljósi. Enda vann hún sér óskoraða hylli allra sem hún umgekkst. Systkini Guðrúnar voru mörg og því úr litlu að spila hjá foreldrum hennar og dóu mörg systkinanna á unga aldri. Guðjón sem var verkstjóri hjá Reykjavíkurborg mun hafa verið þéirra elstur. Næst honum kom Sigrún, sem talin er vera söguhetja Hagalíns Kristrún í Hamravík, Elísabet sem varð bóndakona á Hyrningsstöðum, Sigríður lengst af búsett í Reykja- vík, Karl Óðalsbóndi á Valshamri í Geiradal. Sæmundur drukknaði 24 ára, Ragnheiður dó 19 ára, Halldór átti lengst af heima á Kollabúðum. Hann fékk á unga aldri bæði kíghósta og barnaveiki og gekk því aldrei heill til skógar upp frá því. Guðrún var aðeins sjö ára þegar hún missti móður sína. Svo snemma nísti mótlætið hana holundarsári sem ekkert getur læknað nema minningin um góða og göfuga móður. A þeim árum sem Guðrún er ung stúlka átti hún ekki margra kosta völ hvað snerti að afla sér menntunar. Þá trónuðu ekki skól- ar um byggðir landsins eins og gerist í dag. Þegar hún var 17 ára fór hún fyrst að heiman þá að Klúku í sömu sveit og var þar þar til hún var 21 árs, en þá flutti hún alfarin úr Strandasýslu. Næsti verustaður hennar var í Bæ í Króksfirði í Reykhólasveit hjá heiðurshjónunum Ingimundi Magnússyni og Sigríði konu hans, hinu mesta fyrirmyndarheimili ) eins og þau gerðust best í þann tíð.' Þar mun hún hafa dvalið í tvö ár. Þá flytur hún að Hyrningsstöðum til Bjarna Eggertssonar og Elísa- betar systur sinnar sem var gift Bjarna og hún þar a.m.k. næstu þrjú árin. Arið 1912 giftist hún manni sínum Óskari Arinbjörns- syni frá Munaðstungu og munu þau hafa hafið sína fyrstu búskapartíð þar. Þaðan flytja þau að Miðjanesi í sömu sveit og eru þar til ársins'1919 að þau flytja að Sveinungseyri í Gufudalssveit, sem þau bjuggu eftir það alla sína búskapartíð sem mun hafa verið um þrjátíu ára skeið, en þá tók Sæmundur sonur þeirra við jörðinni. Það þætti smár bústofn í dag sem þau byrjuðu með.- Ein kýr, og rúmar þrjátíu kindur og tveir hestar og hafa fyrir stórum barnahóp að sjá á harðbýlli jörð eins og Sveinungseyri var þá. Næsti verslunarstaður mun hafa verið Flatey á Breiðafirði og illfært eða ófært á milli lands og eyja vetrarlangt. í Flatey var einnig næsta læknis að vænta, það var ekki hægt að grípa símann og hringja í þá daga ef einhver varð lasinn og kom þá fyrst og fremst til kasta húsfreyjunnar að hjúkra og annast þá er sjúkir voru þótt ærinn starfi væri fyrir hendi við daglegt brauðstrit. Er þau komu að Sveinungseyri var tún bæði lítið og kragaþýft, grýtt og slægjur í úthaga bæði erfiðar og rýrar. Túninu breyttu þau á næstu árum, bæði sléttuðu það og stækkuðu og munu seint vera talin handtök húsfreyjunnar við það verk meðan börnin voru lí.til, en hvert handtak blessaðist og bar góðan ávöxt í lífi þeirra og starfi. Þau eignuðust sjö börn sem komust á legg en eitt misstu þau í fæðingu. Þau sem upp komust eru þessi: Steinunn, fædd 2. júlí 1913, dáin 21. júní 1969; Arnór, fæddur 27. júlí 1914, verslunar- maður í Reykjavík; Sæmundur, fæddur 6. des. 1915, bóndi á Sveinungseyri; Kristinn, fæddur 30. júlí 1918, lögregluþjónn í Reykjavík; Guðbjörg, fædd 26. mars 1920, húsfreyja í Kópavogi; Guðmundur, fæddur 30. ág. 1926, lögregluvarðstjóri í Kópavogi; Guðrún, fædd 17. apríl 1928, fangagæsla í Reykjavík. Auk þeirra sem hér eru framan skráð misstu þau eitt barn árið 1917. Þetta er stór hópur eða þætti það í dag, þrátt fyrir allt það öryggi sem nútíma þjóðfélag veitir með öllum sínum styrkjum og lúxus sem þykir sjálfsagður. Hvað þá í afskekktu sveitabýli fyrir hartnær sextíu árum. Það getur hver maður séð aö vinnudagur Guðrúnar á Sveinungseyri var bæði langur og strangur sem krafðist fyllstu útsjónarsemi og hagsýni við hvert einsta starf sem leysa þyrfti, hvor:. heldur var utan húss eða innan. Hjónin voru bæði einkar samrýnd í starfi og sam- taka með að leysa hvern þann vanda sem að höndum bar. Árið 1939 byggðu þau nýtt íbúðarhús á jörðinni og skömmu síðar öll gripahús, enda jörðin þá orðin gjörbreytt. Tún orðin mikil og slétt og aðstaða öll hin ákjósan- legsta til arðsamrar búsetu. Þá var orðið ökufært vestur sýsluna og lá þjóðvegurinn um hlaðið á Sveinungseyri og því afar gest- kvæmt og öllum veitt af fágætri rausn, enda á orði haft hjá ferðafólki að víða væri gott að koma en hvergi eins og að Sveinungseyri. Slíkar voru mót- tökurnar og hlýjan í öllu viðmóti að þar var eins og allir væru nánustu ættingjar að koma heim eftir langa fjarvist. Það eru ábyggilega margir sem bera hlýj- an hug til Guðrúnar á Sveinungs- eyri og minnast hennar með þakklæti í huga. Mann sinn missti Guðrún 25. júní 1954. Hann drukknaði í Breiðafirði á heimleið úr sjúkra- húsi. Var það mikið áfall fyrir Guðrúnu. En þá eins og svo oft áður sýndi hún hversu mikla hetjulund hún hafði að geyma. Gott mannorð er betri en mikill auður. Vinsæld er betri en silfur og gull. Frá því ég fyrst man eftir Guðrúnu minnist ég þess fyrst og fremst hversu glaösinna hún var alltaf og hlý í öllu viðmóti hvort sem áttu hlut að máli menn eða málleysingjar. Hún lét sér annt um allt. Hún hafði mikið yndi af söng og hefur ennþá eftir níu áratuga göngu á erfiðri lífsbraut. Óskar heitinn maður Guðrúnar var móðurbróðir minn sem þessar línur ritar og er mér því Guðrún ekki ókunn, heldur mætti segja að hún væri önnur móðir mín eins og raunar allra þeirra fjölmörgu barna sem hún hefur umgengist á lífsleiðinni og huggað og glatt svo engum getur gleymst sem hefur orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast henni. Kringum 1960 flutti Guðrún svo alfarin til Hafnarfjarðar og bjó þar ein í leiguíbúð og sá að öllu leyti um sig sjálf, sívinnandi í höndum uns sjónin bilaði svo að hún gat ekki lengur verið næg sjálfri sér og flutti þá til Kristins sonar síns að Kúrlandi 1 í Reykjavík og nú síðasta árið hefur hún dvalið á dvalarheimili aldraðra sjómanna í Reykjavík. Guðrún mín. Ég vil með þessum fátæklegu línum flytja þér þakkir fyrir allt gott sem ég hefi frá þér hlotið á lífsleiðinni. Sömuleiðis kveðju og þakkir frá móður minni sem þreyir nú ein í þagnardjúpi gleymskunnar sex dögum eldri en þú ert. Sömuleiðis þakkir frá systkinum mínum frá Hyrnings- stöðum. Við sendum þér okkar innilegustu árnaðaróskir á nítug- ásta afmælisdaginn og vonum að góður Guð varðveiti þig hverja líðandi stund uns lokadagur lífs þíns hverfur í móðu aldanna. Það skal tekið fram að Guðrún dvelur á afmælisdaginn að Kúr- landi 1 hjá Kristni syni sínum og tekur á móti gestum á milli 16 til 18. Lifðu heil. Guðm. A. Jónsson. Bolvíkingar efstir á skák- þingi UMFÍ ÚRSLITAKEPPNI í skákþingi UMFÍ 1977 íór fram í Reykjavík 18. og 19. mars s.l. Sex sveitir frá aðildarsamböndum og félögum UMFÍ voru mættar til leiks. Skákmeistari UMFÍ 1977 varð sveit ungmennafélags Bolungar- víkur, hlaut 14 vinninga. Röð hinna sveitanna og vinningar urðu sem hér segir: sæti vinn. 2. sv. Víkverja 11'/2 3. sv. UMSK 11 4. sv. USAH 9 5. sv. UMSE Vk 6. sv. UÍA 7 Skákþing UMFÍ hefur verið háð árlega frá 1969 og hefur sveit UMSK oftast hlotið sigurtitilinn á þessum tíma eða sex sinnum alls, HSK einu sinni og UÍA einu sinni. Verðlaunagripurinn sem skák- meistari UMFÍ hlýtur hverju sinni til varðveislu er haganlega útskor- inn skákriddari sem skorinn var á sínum tíma af Jóhanni Björnssyni myndskera. Undirbúningur fyrir skákþing UMFÍ 1978 er þegar hafinn en úrslitakeppnin fer fram á 16. Landsmóti UMFÍ sem fram fer á Selfossi 21,—23. júlí í sumar. Svíar haldi sig vid kjarnorku JStokkhólmi, 29. marz. AP. SÉRSTÖK stjórnskipuð nefnd lagði til í dag að Svíar haldi fast við þá stefnu að nota kjarnorku sem sinn annan helzta orkugjafa. Álit nefndarinnar er talið mikið áfall fyrir Torbjörn Falldin forsætisráðherra og Miðflokkinn. Niðurstaða nefndarinnar gengur þvert á stefnu flokksins, sem valdi flesta nefndarmennina. Aðeins þrfr nefndarmanna af 15 voru samþykkir því að Svíar létu af allri kjarnorkuframleiðslu fyrir lok næstu áratugar. „Það á eftir að koma í ljós hvort stjórnmálaflokkarnir taka sömu afstöðu og fulltrúar þeirra í nefndinni. Ég hef sömu skoðun og áður í þessum málum,“ sagði Torbjörn Fálldin í dag. Orkunefndin var í einu og öllu sammála um að Svíþjóð reyndi af fremsta megni að minnka olíuþörf sína, en veitti fé í staðinn til að vinna orku úr eigin auðlindum er endurnýja sig, svo sem sólarorku. Nefndin leggur til að Svíar noti betur afgangshita frá kjarnorku- verum til húsahitunar til að minnka olíuþörf sína. Sex kjarnorkuver eru nú í notkun í Svíþjóð og fimm eru í smíðum. Nefndin hefur ekki enn gert tillögur um varúðarráð- stafanir í sambandi við kjarnorku- ver og kjarnorkuframleiðslu, en Fálldín sagðist telja þær tillögur nefndarinnar mikilvægasta hlut- verk hennar. 9tl raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Borgarfjörður Aöalfundur Sjálfstæöiskvennafélags Borgarfjaröar veröur haldinn aö Brúarreykjum, þriöjudaginn 4. apríl n.k. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi heldur fund í Félagslundi á Reyöarfiröi sunnudaginn 2. apríl kl. 2 e.h. Fundarefni: Framboö til alþingiskosninga. Stlórnin. Sjálfstæðisfélag Akureyrar boöar til rabbfundar sunnudaginn 2. apríl n.k. kl. 14 aö Kaupvangsstræti 4. Fundarefni: Almennar umræöur um skipulagsnefnd Akureyrarbæjar. Starfsreglur og starfssviö nefndarinnar. Nefndarmennirnir Guömundur Guölaugs- son og Haraldur Sveinbjörnsson koma á fundinn, einnig Haraldur Haraldsson sem vinnur aö hinu marg umtalaöa miöbæjarsklpulagi. Allt áhugafólk um þetta efni hvatt til aö koma á fundinn og taka þátt I umræöum. Stjórnin. Stjórnin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.