Morgunblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978 47 Meistaraslagur í meistarakeppninni MEISTARAKEPPNIN í knattspyrnu hefst í dag er íslandsmeistarar Akraness fá bikarmeistara Vals í heimsókn. Leikurinn fer fram á Akranesi og hefst klukkan 14. Upphaflega átti leikurinn að vera á Melavellinum, en hann er ekki oröinn leikhæfur vegna breytinga, sem verið er að gera á honum. Eflaust fýsir marga til að sjá pessi tvö stórlið íslenzku knattspyrnunnar síöustu árin eigast við og margir eru peirrar skoðunar á ÍA og Valur veröi enn í sumar tvö á toppnum í 1. deildinni. Þrlöja liöiö í meistarakeppninni er liö IBV og mæta Eyjamenn liöi Vals um aöra helgi í Eyjum, en Vestmann- eyingar urðu í þriðja sæti 1. deildar- innar síöastliöið sumar. Litla bikarkeppnin er fyrir nokkru hafin, en enn hafa tvö 1. deildarliö- anna í keppninni ekki spilaö, þ.e. ÍBK og UBK. Úr þessu verður bætt á morgun er Keflvíkingar fá Blikana í heimsókn og hefst leikur liöanna kl. 14 á morgun. Nýir þjálfarar hafa tekið viö störtum hjá báöum félögum og mikill áhugi hefur veriö á báöum stöðum. Stórir hópar leikmanna æfa af krafti og samkeppni um sæti í liöunum er mikil. l_------------------—— Júdómót unglinga Á MORGUN, sunnudag 2. apríl, verður haldið júdómót í ípróttahúsi Kennaraháskólans par sem keppa juniorar á aldrinum 18—20 ára og einnig verður keppt í flokkum drengja 11—14 ára. í junioraflokknum verður skipt í pyngdarflokka eftir pví sem fjöldi keppenda gefur tilefni til. Mót ungu piltanna er hið priðja í rööinni á pessum vetri og er pátttaka geysi- mikil. Keppnin hefst kl. 14. Þá leika einnig í litlu bikarkeppn- inni í dag Hafnarfjaröarliðin FH og Haukar og hefst leikurinn á Kapla- krikavelli klukkan 14. Þessi hafa bæði leikið viö Akranes og tapað með tveggja marka mun. Reykjavíkurmótið í knattspyrnu átti að hefjast um helgina, en þar sem Melavöllurinn er ekki tilbúinn, hefur mótinu veriö frestaö um eina viku. Leikdagar í Meistarakeppninni og Litlu bikarkeppninni veröa sem hér segir, allir leikimir hefjast klukkan 14. MEISTARAKEPPNIN, LauKard. 1. apr. LaiiKard. 8. apr. LauKard. 15. apr. LauKard. 22. apr. LauKard. 19. apr. LauKard. 6. mai. Ia — Valur Í.B.V. - Valur ÍA. - ÍB.V. Valur — ÍA Valur - Í.B.V. ÍB.V. - ÍA. LITLA BIKARKEPPNIN, LAUGARDAGUR 1. aprfl Haukar - FII Keflavík — BreiAablik LAUGARDAGUR 8. april Akranes — Keflavík Breidablik — Haukar LAUGARDAGUR 15. april Keflavík — FH LAUGARDAGUR 22. april FH - Breiðablik Ilaukar — Keflavík LAUGARDAGUR 29. aprH Breiðablik — Akranes. Allir leikirnir hefjast kl. 14.00. STÚDÍNUR SIGRUÐU ÁN ERFIÐLEIKA KR-STÚLKUR urðu Reykjavíkurmeisturum ÍS ekki mikil hindrun er liðin áttust við í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ í fyrrakvöld. ÍS-stúlkurnar náðu forystunni strax í upphafi og voru komnar með 14 stiga forystu um miðjan fyrri hálfleikinn, 28—14. í hálfleik var staðan 32—20 peim í vil. í seinni hálfleik hélt veisla ÍS-stúlknanna áfram og voru þær komnar í 52—29 þegar um 13 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Síðustu mínúturnar voru heldur fálmkenndar og var lítið skorað en sigur ÍS var öruggur og verðskuldað- ur. Lokatölur uröu 59—34 og því tvöfaldur sigur stúdenta í Bikar- keppninni, en sama saga gerðist með KR-inga í fyrra í þessari keppni. Lið stúdenta viröist vera yfirburöa- lið á mælikvarða íslensks kvenna- körfuknattleiks. Hafa þær tekið alveg ótrúlegum framförum frá því í fyrra, en þjálfari þeirra er Dirk Dunbar. Nú eiga ÍS-stúlkurnar aðeins eftir að leika tvo leiki í íslandsmótinu, gegn KR og ÍR og með sigri í þeim ieikjum tryggja þær sér einnig íslandsmeist- aratitilinn. Bestar í liöi ÍS gegn KR voru Kolbrún Leifsdóttir og Guðný Eiríksdóttir. Þá var Þórdís Kristjáns- dóttir einnig góð á köflum og í heild áttu ÍS-stúlkurnar ágætan dag. KR-stúlkurnar máttu nú sjá á eftir bikarnum til ÍS, en segjast verður eins og er aö KR-liðið er verulega slakara enn í fyrra. Þær hafa að vísu aðeins tapaö einum leik í íslandsmót- inu, gegn ÍS, en með leik eins og í fyrrakvöld eiga þær ekki möguleika gegn ÍS þegar liðin leika síðari leik sinn í íslandsmótinu. Skárstar hjá KR voru Linda Jónsdóttir og Kristjana Hrafnkelsdóttir, en aðrar virtust varla vita hvaö fram fór. Stig ÍS skoruðu: Kolbrún Leifsdótt- ir 17, Guðný Eiríksdóttir 15, Þórdís Kristjánsdóttir 10, Hanna Birgisdóttir 6 stig, og aðrar minna. Stigahæstar hjá KR voru: Linda Jónsdóttir 8, Emilía Sigurðardóttir 7 stig og Kristjana Hrafnkelsdóttir 6 stig. GG ÞAÐ VAR MIKIÐ um að vera í íþróttalífinu í Vestmannaeyjum um páskana. Ekki skíðaæfingar eins og svo víða annars staðar á landinu heldur héldu Eyjakylíingar sitt fyrsta golfmót, landsliðið i sundi kom í heimsókn og handknattleiksmenn Þórs tryggðu sér sigur í 3. deildinni í handknattleik. Leikur lið frá Eyjum því í 2. deild næsta vetur og í handknattleiksiþróttinni, sem og öðrum greinum inniiþrótta, er það starf, sem unnið hefur verið siðan Vestmanneyingar fengu sína glæsilegu íþróttamiðstöð, þegar farið að bera ávöxt. LIF I ÍÞRÓTT- UNUM ÍEYJUM Að sjálfsögðu fékk Hannes Leifsson flugferð eftir að sigur hafði unnizt yfir Tý og sæti í 2. deild var Þórs. Sigurvegarar Þórs í þriðju deildinni í handknattleik. Lengst til vinstri í aftari röð er Hannes Leifsson þjálfari liðsins og einn stcrkasti leikmaður þess, en fyrir framan hann er Þórarinn Ingi ólafsson, skipstjóri í Eyjum, áður leikmaður með Víkingi og landsliðinu. (ljósmyndir Sigurgeir). Liðlega 40 manna hópur sundfólks úr Ægi og þau, sem valin hafa verið til landsliðsæfinga, æfðu í lauginni í Eyjum ásamt sundfólki þaðan. Á sundmóti, sem haldið var, voru sett þrjú (slandsmet. auk fjölda af persónulegum og félagsmetum. Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi, synti 200 metra skriðsund á 2.14.0. Bjarni Björnsson, Æ, synti 800 metra skriðsund á 8.49.6. Stúlknasveit Ægis synti 4x100 metra skriðsund á 4.27.7, Auk þessara setti Hugi Harðarson, Selfossi, drengjamet og ólafur Einarsson, Ægi, sveinamet. Þeir Guðmundur Þ. Harðarson og Þórður Gunnarsson stjórnuðu æfingunum í Eyjum og gáfu þeir sundfólkinu engin grið yfir hátíðarnar. Landsliðsfólkið synti t.d. tæplega 2400 kflómetra samtals, 17.5 kflómetrar á mann á dag. Golfvöllur Eyjamanna í Herjólfsdal er orðinn brúklegur til notkunar og á páskadag var fyrsta golfmót ársins í Eyjum. Mikil þátttaka var í mótinu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Á miðvikudag fyrir páska léku Eyjaliðin Þór og Týr í þriðju deildinni i handknattleik og með sigri í þeim leik tryggði Þór sér sæti í 2. deildinni á næsta ári. Eðlilega var mikill fögnuður meðal leikmanna Þórs og nú í vikunni fengu þeir sigurlaunin afhent. Kylfingar voru fljótir að afgreiða páskaeggið á páskadag og brugðu sér síðan í golfi inni i Herjólfsdal. Ilátt á hundrað manns voru við sundæfingar í hinni glæsilegu sundlaug í Eyj- um og sést hluti hópsins á þess- ari mynd ásamt Þórði þjálfurunum Gunnarssyni og Guðmundi Harðarsyni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.