Morgunblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 10
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978 Næst lá leiðin til Hans Petersen, Nóatúni 21. Adolf Karlsson afhenti þar Ijósmyndavél, sem framkallar myndirnar sjálf og gaf Öldu síðan nokkur holl ráð varðandi ljósmyndun, svo sem að halda myndavélinni kyrri, er tekin væri mynd. peteisen Svo sem venja hefur verið undanfarin ár ákváðu nokkur fyrirtæki í Reykjavík í samvinnu við Morgunblaðið að heiðra fyrsta barn ársins og foreldra þess. Fyrsta barnið fæddist, eins og kunnugt er, á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 18 mínútum eftir miðnætti á nýársnótt. Var það stúlka 18 merkur að þyngd og 51 cm að lengd. Móðir telpunnar, Alda Valgeirsdóttir frá Ási í Hegranesi, brá sér til Reykjavíkur fyrir skömmu og heimsótti dag einn fyrirtækin 13 sem um er að ræða. Voru henni afhentar veglegar gjafir og er ekki að efa að fyrsti þjóðfélagsþegninn 1978 mun njóta góðs af þeim í framtíðinni. Morgunblaðsmenn slógust í för með Öldu þegar hún veitti gjöfunum viðtöku, og eru myndirnar hér á síðunni teknar við þau tækifæri. ‘wt. í -% Þá var komið við í Skartgripaverzlun Jóns og Óskars að Laugavegi 70. Alda valdi sér þar vandaða veggklukku að gjöf, en fyrsti þjóðfélagsþegninn 1978 fékk silfurhnífapör með myndum af Mikka mús og Andrési önd og myndaramma úr silfri. Sögðu þeir félagar Jón (t.h.) og Óskar að sams konar hnífapör hefðu verið gefin barnaspítala Hringsins og hefði þá brugðið svo við að matarlyst sjúklinganna jókst um helming. Fyrst lá leiðin í Kjötmiðstöðina við Laugalæk, þar sem Hrafn Bachman afhenti Öldu veglega matarkörfu. „Þú hefur þá nóg að gera í dag,“ varð Hrafni að orði við það tilefni. Það er stutt að fara frá Laugavegi 70 til númer 20, en þar er Karnabær með eina a£ verzlunum sínum. Eftir langa umhugsun ákvað Alda að velja sér Akryl-peysu, í ljósbrúnum lit, og gallabuxur af nýjustu gerð, náttúrulega bláar. Hér á myndinni þakkar Alda Grími Bjarnasyni fyrir sig, íklædd skrúðanum. Ránargötu 29, a, sími 25896. í svo til miðju Bankastrætinu er Mæðrabúðin og þar afhenti Ásta Jónsdóttir fyrir hönd Blábers laglega barnakerru, sem brjóta má auðveldlega saman. Ætti því ekki að væsa um fyrsta barn ársins, þegar það fer í gönguferð með móður sinni. LJOSMYNDAVORUVERSLUN LAUGAVEGI 1 78 SIM! 8581 1 Suðurlandsbraut 8 Við Laugaveg 178 er ljósmynda- stofa Mats Wibe Lund til húsa og þangað var haldið næst. Mats afhenti Öldu þar gjafabréf upp á ókeypis ljósmyndun af telpunni og foreldrum hennar, sem og litlu telpunni heiðursskjal fyrir góða frammistöðu hjá ljósmyndaranum. Úr Kjötmiðstöðinni lá leiðin upp í Fálkann við Suðurlandsbraut 8. Guðmundur Karlsson í reiðhjóladeild- inni afhenti Öldu þar snotran barna- stól, svo litla telpan ætti að geta setið til borðs. V C' 'v- ;-5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.