Morgunblaðið - 01.04.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRIL 1978
13
Hagkvæmast fyrir ís-
lenzka ríkið að bjóða út
verk á frjálsum markaði
Frá aðalfundi Verktakasambands Islands
þessum málum og láta ekki
glepjast af því, sem er lítt
markvert.
Ég hefi fram að þessu fjallað um
viðhorfin í iðnaðarlöndunum
almennt og þó einkum í vestræn-
um iðnaðarlöndum. Ég vil að
lokum fjalla nokkuð um íslenzk
málefni sérstaklega.
Rétt er að byrja á því að spyrja,
hvernig hagvöxtur hafi verið á
Islandi samanborið við önnur lönd.
Gylfi Þ. Gíslason sagði í gær, að
ef litið væri yfir allt tímabilið frá
aldamótum, hefði hagvöxtur hér
verið örari heldur en í nágranna-
löndunum. Ég býst við að þetta sé
rétt, þótt í sumum löndum eins og
t.d. í Finnlandi hafi hagvöxtur
sennilega verið jafnör eða örari en
hér. Ég tel aftur á móti ekki, að
þetta eigi við um tímabilið eftir
styrjöldina. Ef við lítum á tíma-
bilið frá 1950 er heildarhagvöxtur-
inn að vísu mjög svipaður á íslandi
og í þeim Evrópulöndum, sem eru
innan OECD. í þeim var hagvöxt-
ur talinn 3,8% að meðaltali á ári
1950-1960 og 4,8% 1960-1970.
Hér á Islandi er hagvöxtur, þ.e.
vöxtur þjóðarframleiðslu, talinn
hafa verið 4,3% 1950—1960 og
5,0% 1960—1970. Þetta eru mjög
svipaðar tölur eins og við sjáum,
en hins vegar verður annað upp á
teningnum, ef reiknað er á mann.
Þá kemur fram, að í Evrópulönd-
um OECD var hagvöxtur á mann
mjög svipaður báða áratugina, 3,7
og 3,8% á ári, en á íslandi var
hann 2,1% fyrra áratuginn og
2,8% þann síðari. Við erum því
1—2% undir meðaltali þessara
landa og í hópi þeirra landa, sem
minnstum hagvexti hafa náð á
mann, reiknað á þessum 20 árum.
Erfiðara er um samanburð fyrir
undanfarin ár, 1970—1976,
fullkomnar tölur liggja ekki fyrir
og miklar sveiflur hafa orðið bæði
hér og annars staðar. Ég býst þó
við, að eitthvað svipað verði uppi
á teningnum fyrir þau ár.
Nú kemur að öðru atriði. Þótt
hagvöxtur hafi verið hægari en í
öðrum Evrópulöndum á þessum
árum felur það ekki í sér að
hagsældaraukning hafi verið
minni en annars staðar á þessu
sama tímabili. Hér kemur til
sögunnar bati viðskiptakjara, sem
við nutum en hinar þjóðirnar ekki.
A tuttugu ára tímabilinu
1950—1970 hafa viðskiptakjör á
mann á Islandi batnað um það bil
l‘/2% á ári að meðaltali, nokkru
minna fyrri áratuginn og nokkru
meira þann seinni. Þegar þessu er
bætt við, koma fram álíka tölur
eins og hjá hinum þjóðunum.
Vöxtur þjóðartekna á mann, sem
við getum litið á sem mælikvarða
efnahagslegrar hagsældar, er því
svipaður hér á landi eins og í
þessum löndum.
Enginn er ánægður
Það er alkunna, að menn eru
ekki mjög ánægðir með afkomu
sína hér á landi. Þessa dagana eru
loðnuskipstjórar í verkfalli og
hafa haldið skipum sínum til
hafnar. Þetta eru tekjuhæstu
menn á Islandi, en þeir telja sig þó
bersýnilega ekki hafa nóg að bíta
og brenna. Þannig er þessu farið,
hvert sem við lítum. Á nýliðnu ári
hafa staðið yfir miklar launadeilur
og miklar kjarabætur hafa orðið.
Þó er enginn ánægður. Menn vilja
með öðrum orðum bera meira úr
býtum fyrir sig sjálfa. í viðbót við
þetta kemur svo, að hér á landi eru
framundan meiri verkefni en hjá
flestum öðrum þjóðum, vegna
þess, að við erum fáir og lifum í
stóru og tiltölulega lítt numdu
landi. Ef við ætlum að geta sinnt
þeim verkefnum að marki, veitir
ekki af verulegum hagvexti. Rökin
fyrir því, að hagvöxtur þurfi að
vera mikill á næstu árum og
áratugum eiga því við á íslandi í
enn ríkara mæli heldur en í
flestum öðrum löndum.
I þessu sambandi skiptir einnig
máli, hvaða horfur eru varðandi
þróun viðskiptakjaranna. Geta
þau fært okkur þann ábata í
framtíðinni, sem þau gerðu síðast-
liðin tíu til tuttugu ár? Það er
erfitt að mynda sér skoðun á
þessu. Mér býður þó í gruQ, að það
sé hæpið að búast við slíku og
óvarlegt af íslendingum að byggja
áætlanir sínar á von um slíkan
hagnað. Bati viðskiptakjara hefur
að verulegu leyti byggst á skorti á
fiski vegna ofveiði. Ekki virðist
ósennilegt, að afleiðing stækkunar
fiskveiðilögsögu verði aukning á
framboði á fiski næsta áratuginn.
Þetta gæti leitt til þess að
viðskiptakjör okkar versnuðu.
Annað mál er svo hvort þróun
eftirspurnar getur vegið á móti
þessu. Við framleiðum lúxusvöru
fyrir ríkustu þjóðir heims, en ekki
fæðu handa hungruðum og fátæk-
um heimi. Það er önnur ástæða
þess, að viðskiptakjör ökkar hafa
farið batnandi. Verið getur, að
bættur efnahagur og breyttar
lífsvenjur í þessum löndum leiði
enn sem fyrr til vaxandi eftir-
sj)urnar, er komi okkur til góða.
Ég held samt sem áður, að
óvarlegt sé að gera ráð fyrir
áframhaldandi bata viðskipta-
kjara og því beri enn meiri
nauðsyn til þess að hagvöxtur
aukist.
Náttúruauðlindir landsins veita
nægan grundvöll til þess að standa
undir örum hagvexti. Ef vel er á
málum haldið gætu fiskveiðar
aukist í allt að 2 millj. tonna að
því að talið er, og nýting aflans
getur enn aukist mikið. Um
orkuna gildir þetta í enn ríkara
mæli. Þar erum við enn á byrjun-
arstigi og nýtum innan -við 10%
þeirra orkulinda, sem kunnar eru
með nokkurri vissu. Um þá orku-
lind, sem lítið er vitað um,
jarðvarmann á háhitasvæðum,
gildir þetta ennþá fremur. Við
munum heldur ekki eiga við nein
alvarleg mengunarvandamál að
stríða í fyrirsjáanlegri framtíð, og
tiltölulega auðvelt að fást við þau
vandamál, séu ráð í tíma tekin.
Svo er vel menntuðu og hæfu fólki
á að skipa í þessu landi, sem getur
fljótt hagnýtt sér nýja tækni.
Gatan er því greið. Við höfum öll
grundvallarskilyrði til þess að
geta haldið uppi örum hagvexti.
Hvort það tekst, er aftur á móti
undir því komið, hvort við erum
enn til þess að stjórna okkur
sjálfir, og umfram allt hvort við
getum ráðið við verðbólguna.
Aðalfundur verktakasambands
íslands var haldinn 17. marz s.l.
Formaður sambandsins, Ármann
Örn Ármannsson, setti fund og var
Leifur Hannesson kjörinn fundar-
stjóri. Framkvæmdastjóri sam-
bandsins, Othar Örn Petersen, flutti
skýrslu stjórnar.
Um 90 af hundraði félaga
sambandsins sóttu fundinn.
Á starfsárinu var fengizt við hin
ýmsu verkefni, sem máli skipta fyrir
verktakaiðnaðinn, og má þarf nefna
endurskoðun almennra útboðs- og
samningsskilmála um verkfram-
kvæmdir (ÍSÍ-30),' kjaramál og
barátta fyrir eðlilegum grundvelli
verktakaiðnaðar á Islandi. Auk þess
hélt sambandið tvo almenna fundi
við mikla aðsókn um málefnin
„Hvernig á að standa að opinberum
framkvæmdum?“ og „Verklegar
framkvæmdir á Keflavíkurflur-
velli“. Þá hóf sambandið útgáfu
fréttabréfs á árinu.
Tvær ályktanir voru samþykktar
á fundinum og fara þær hér á eftir:
— Aðalfundur Verktakasambands
íslands, haldinn föstudaginn 17.
marz 1978 bendir á þá þjóðar-
nauðsyn að hafa sterkan verktaka-
iðnað í landinu til þess, að tækni-
þekking í heiminum í dag verði nýtt
hér á landi sem skyldi. Jafnframt
bendir aðalfundurinn á, að sterk
verktakastarfsemi er nauðsynleg frá
þjóðhagslegu sjónarmiði.- Skorar
aðalfundurinn á íslenzk stjórnvöld
að búa íslenzkum verktakaiðnaði
viðunandi starfskil.vrði m.a. með
fjármagnsfyrirgreiðslu á við aðra
atvinnuvegi og með því að létta á
gífurlegri gjaldtöku ríkisins af
tækjum og byggingarefni til mann-
virkjagerðar, svo sem háum tolli og
þar að auki söluskatti af vélanotkun.
— Aðalfundur Verktakasambands
íslands, haldinn föstudaginn 17.
marz 1978, ítrekar enn þá skoðun
sambandsins, að íslenzk stjórnvöld
eigi að hlutast til um, að allar
verklegar framkvæmdir á vegum
ríkisins og sjálfstæðra stofnana
þess séu boðnar út. I því sambandi
er bent á að telja verður að
sannreynt sé, að hagkvæmast er
fyrir íslenzka ríkið að bjóða verk út
á frjálsum markaði. Þá er sérstak-
lega varað við þeirri þróun, að
ýmsar ríkisstofnanir hafi á sinni
hendi alla þætti verklegra fram-
kvæmda, þ.e. hönnun, verkáætlun,
framkvæmd, eftirlit og úttekt í
verklok, þar sem enginn annar aðili
kemur nærri.
Þá er það staðreynd að verk sem
boðin eru út, eru betur undirbúin
heldur en verk, sem framkvæmd eru
að öllu leyti í sömu stofnun.
Jafnframt fagnar aðalfundurinn
franikominni stefnu iðnaðarráð-
herra í málefnum verktaka-
iðnaðarins og vísar í því sambandi
á framtak Landsvirkjunar vegna
útboðsframkvæmda við Hraun-
eyjarfossvirkjun.
I stjórn sambandsins voru kjörnir
Ármann Örn Ármannsson,
formaður og aðrir í stjórn eru
Guðmundur Þengilsson, Páll Sigur-
jónsson, Pétur Jónsson og Sigurður
Sigurjónsson.
Sambandið hefur nú skrifstofu að
Háaleitisbraut 68.
(Frá Verktakasambandi Islands)
því skora ég á forráðamenn
Dómkirkjunnar að líta á málið í
ljósi þessa. Það er gert að miklu
máli í greinargerðinni, að kirkju-
kórinn hafi nánast verið óstarf-
hæfur vegna mannfæðar og vegna
þess að Ragnar hafi verið hættur
að sinna honum. í þessu sambandi
ber að benda á það, að það verður
æ erfiðara og erfiðara að fá fólk
til þess að binda sig við söng við
guðsþjónustur, og það er alveg
sérstaklega erfitt að fá fólk til
þess að taka það að sér að syngja
í þeim kirkjum, þar sem messað er
tvisvar á hverjum sunnudegi
meira en helminginn af árinu.
Þetta vita forráðamenn Dómkirkj-
unnar, ef þeir vilja vita það, og
þeir eiga að vita það, að á þessu
á Ragnar enga sök, og þess vegna
er ekki hægt að vísa honum úr
starfi á þessari forsendu. Það er
líka gert að miklu máli í greinar-
gerðinni, að Ragnar skuli hafa
leyft sér það að taka að sér störf
utan kirkjunnar svo sem með því
að taka að sér hljómsveitarstjórn
við óperuflutning í Þjóðleikhúsinu.
Út frá þessu er ef til vill ekki úr
vegi að upplýsa það hver fastalaun
dómorganistans eru. Þau eru
sjötíu og eitt prósent af þeim
launum, sem kennarar við tónlist-
arskólana í landinu fá. Fastalaun
dómorganistans eru því skv. nú-
gildandi samningum kr. 167.000 á
mánuði. Úr því svo er, að organ-
istastarfið við sjálfa höfuðkirkju
landsins er ekki betur launað en
þetta, því skyldi þá sá, sem hefur
það á hendi, ekki átölulaust mega
eiga þess kost að afla sér auka-
tekna við störf utan kirkjunnar.
Eða líta forráðamenn Dómkirkj-
unnar svo á, að það séu forréttindi
presta hennar að auka tekjur
Framhald á bls. 45.
^hvölí'^
ÍRIAND
/ Þórskaffi sunnudaginn 2.apríl kl. 19-1.00.
Matur
Kvikmynd
Ásadans
Randver
Danssýning
Bingó
Uppákoma
Þeir matargestir sem koma fyrir kl. 20.00 verða sjálfkrafa
þátttakendur í ferðahappdrætti og fá ókeypis lystauka.
Borðapantanir í síma 2 33 33 kl. 16-19 daglega.
Pantið snemma þi'i síðast var húsfyllir!
TSatnvinnu- (3) LANDSÝN
ÆinJjý" —
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16
SÍMI 28899
AUSTURSTRÆTI 12 SIMI 27077