Morgunblaðið - 01.04.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978
33
kynnzt því af eigin raun, að slíkt
fólk hefur lifað jarðnesku lífi og
ekki aðeins í bókum stórskálda.
Slík reynsla vekur manni fögnuð.
I henni er fyrirheit um sigur þess
góða í grimmilegum átökum ógn-
legrar aldar.
Katrín var ákveðnari en Ingólf-
ur. Hún var honum góður bak-
hjarl, svo afskiptalaus sem hann
var af öllu veraldarvafstri. Það
sópaði að henni þegar hún var upp
á sitt bezta og sá um gestrisni
þeirra af gjöfulu hjarta. En það
áttu þau sameiginlegt að spyrja
ekki um eigin hag heldur gleði og
aðbúnað annarra. Til þeirra var
því auðvelt að sækja þá andlegu
næringu og upplýsta viðhorf, sem
bezt hefur dugað alþýðu manna
hér á landi fyrr og nú. En af
öðrum auði veraldlegum gátu þau
ekki miðlað. Þó fannst börnunum
aldrei neitt skorta á æskuheimil-
inu, enda kunnu þau bæði til
verka, ekki sízt húsmóðirin, sem
saumaði jafnvel hverja flík á
húsbóndann og börnin fimmtán.
Sú kynslóð, sem nú er að vaxa úr
grasi, mætti staldra við líf þessa
fólks og íhuga raunveruleg verð-
mæti með hliðsjón af þeirri
lífsfyllingu, sem hægt var að
sækja í baðstofuhlýtt umhverfi
tengdaforeldra minna — og þeirra
líka.
Þegar yngri tvíburarnir,
Magnús og Páll, þurftu að fara tií
náms í Menntaskólann á Akureyri,
fluttust þau að Kaupangsbakka í
Eyjafirði og undu þar allvel hag
sínum, þar til Ingólfur dó í janúar
1954.
Hann hafði kviðið því að hverfa
frá Hólsfjöllum vegna þess honum
þótti sem þá væri bóndastarfi
hans teflt í tvísýnu. En þegar hann
naut sín í nýju og vinalegu
umhverfi Eyjafjarðar, tók hann
gleði sína og hafði jafnvel orð á
því, að þau hefðu vel mátt flytjast
fyrr. En nú var komið að sárs-
aukafullri skilnaðarstund. Þau
giftu sig 14. sept. 1913 og höfðu
búið í góðri og farsælli sambúð um
40 ára skeið. Katrín átti sterka trú
og sagði stundum, þegar móti blés
og harmur var að þeim kveðinn:
Þetta hefur víst átt að fara svona.
Sú sannfæring nægði henni í einu
og öllu, að einhver tilgangur væri
í órannsakanlegum vegum guðs,
ekki síður en þær götur áttu sér
tilgang og markmið, sem lágu um
æfintýri Vopnafjarðar í æsku
hennar.
í dag verður hún lögð við hlið
Ingólfs í kirkjugarði Akureyrar.
Sízt af öllu mundi hún telja
þennan lokakafla í lífsbók sinni
tilgangslausan. Af því mættu
niðjar hennar, sem nú eru stórt
hundrað, ýmislegt læra. En þó er
þeim áreiðanlega þakklæti efst í
huga og stoltir mega þeir vera af
þessari konu, sem stendur okkur
fyrir sjónum eins og sú eik sem
blessuð er, margffaldast og uppfyll-
ir jörðina.
Þegar yngstu drengirnir þurftu
að fara í Háskólann, fluttist
Katrín til Reykjavíkur og bjó þeim
heimili, þar til þeir kvæntust, en
tók svo aftur að sér heimili Páls,
sonar síns, og barnungrar sonar-
dóttur, Guðnýjar Þóru, þegar
Guðrún, kona Páls, dó í blóma
lífsins. Þá var Katrín komin hátt
á áttræðisaldur, en vílaði ekki
fyrir sér að taka við nýju hlut-
verki. Hún hafði unnið í Heklu á
Akureyri og síðar í Bláfeldi í
Reykjavík og sparaði ekki hlýyrðin
um það góða fólk, sem hún vann
með, né heldur þá- drengskapar-
menn hjá lífeyrissjóði Iðju sem
léttu undir með henni. Og í
Borgarspítalanum átti hún ekki
orð yfir það góða fólk, sem rétti
henni líknandi hendur, og kvaddi
lífið með undursamlegu þakklæti
til þess, sem veitti henni hlutdeild
í því fagnaðarerindi, sem vex úr
góðum hug — til staðfestingar á
þeim miklu sannindum, að þar eru
guðs vegir, sem góðir menn fara.
Sjálf var hún einn þeirra; góðorð
til allra manna.
Matthfas Johannessen
Leikfélag
Kópavogs
Snœdrottningin
Syning í dag kl. 3
Fáar sýningar eftir
Miöasala frá kl. 1,
sfmi 41985.
AlKa.YSINOASIMINN ER:
22480
El
B1
E1
B1
B1
B1
B1
SiiðWat
Bingo kl. 3 i dag.
Aðalvinningur vöruúttekt ffyrir kr. 40.000.—
B1
B1
B1
B1
B1
B1
B1
BlElElElEIElEIEnElElEIEIEIEIElElElElBUilBl
Opiö i kvöld Opiö i kvöld Opið i kvöld
HÖT<L /AúA
SÚLNASALUR
Hljómsveit
Ragnars
Bjarnasonar
og söngkonan
Þuríður
Sigurðardóttir
Dansað til kl. 2
Borðpantamr i sima 20221 eft-
irkl. 4.
Gestum er vinsamlega bent á að
áskilinn er réttur til að ráðstafa
fráteknum borðum eftir kl
20 30
Átthagasalur — Lækjarhvammur
Opiö í kvöld til kl. 2.
Hinir bráðskemmtilega og sívinsælu LÚDÓ
OG STEFÁN leika ffyrir dansi.
Opiö i kvöld Opið i kvöld Opið i kvöld
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiöar, Pick-Up bifreið og jeppabifreið er
veröa sýndar að Grensásvegi 9 þriðjud. 4. apríl kl. 12—3.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl. 5.
Sala Varnarliðseigna.
Morgunblaðið óskar
eftir blaðburðarf ólki
AUSTURBÆR
ingolfsstræti, Miöbær
Sigtún Hverfisgata
' . „ 4-62.
Uthverfi
Sogavegur
Upplýsingar í síma 35408
wgunftfiifrtfe
l.apríl II1
gleðin
er í Festi þetta kvöld
Muniö, tíu tær uppí loft,
takmarkiö, enginn sneyptur heim.
HAUK A-stuð — HAUKA-stuðið er orginai.
Sætaferðir: B.S.Í., Hafnarfirði og Torginu, Keflavík.
1. apríl nefndin.
Hlutavelta Vals
veröur haldin í lönaöarmannahúsínu Hallveigarstíg kl. 14.00 sunnudaginn 2. apríl.
Fjöldi eigulegra muna.
Engin núll — Mætiö snemma.
Handkanttleiksdeild Vals.