Morgunblaðið - 18.04.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
3
GEYSIHARÐUR árekst-
ur varð á Vesturlandsvegi
við Skálatún laust eftir
hádegi á sunnudag. Þar
rákust santan tvær bif-
reiðar og voru fjórir
menn fluttir á slysadeild
Borgarspítalans meira og
minna slasaðir. Bifreið-
arnar eru gjörónýtar.
Grunur leikur á því að
ökumaður bifreiðarinnar,
sem árekstrinum olli, hafi
verið undir áhrifum
áfengis.
Fjórír slösuðust í
hörðum árekstri
á Vesturlandsvegi
valt. í Lada-bifreiðinni
voru tveir menn og slösuð-
ust báðir og sérstaklega þó
ökumaðurinn, sem að að-
gerð lokinni var lagður inn
á gjörgæzludeild. Er hann
fótbrotinn, nefbrotinn,
kinnbeinsbrotinn, rifbrot-
inn og hlaut auk þess
innvortis meiðsli. Félagi
hans meiddist töluvert í
andliti. í Volkswagenbif-
reiðinni voru feðgar og
slasaðist ökumaðurinn
töluvert á fótum en sonur
hans hruflaðist og kvart-
aði um meyðsli í maga en
slapp að öðru leyti án
meiðsla.
Sem fyrr segir leikur
grunur á því að ökumaður
Lada-bifreiðarinnar hafi
verið undir áhrifum áfeng-
is.
Bflarnir erir ónýtir eins og sjá má á myndunum.
Ljósm. Eðvar Olafsson.
Volkswagen-rúgbrauð
svokallað var á leið frá
Reykjavík en Lada-bifreið
á leið í bæinn. Rétt áður
en bifreiðarnar mættust
snarbeygði Lada-bifreiðin
yfir á öfugan vegarhelm-
ing og skall harkalega á
vinstra framhorni Volks-
wagenbifreiðarinnar.
Þeyttist síðarnefnda bif-
reiðin útaf veginum og
Flugvélin á brautinni á ísafjarðarflugvelli, en á hinni myndinni sést hvar verið er að fjarlægja hana.
Ljósm.: Mbl. Úlfar Ágústsson.
Gleymdi að setja hjólin niður
LJÓST er nú að það var fyrir
mannleg mistök en ekki bilun
í tækjabúnaði að lítil flugvél
frá Flusfélagi Norðurlands
magalenti á flugvellinum á
ísafirði sl. laugardag. Að sögn
taismanns loftferðaeftirlitsins
gleymdi flugmaðurinn að láta
hjól vélarinnar niður í lending-
unni.
Flugvélin var í áætlunarflugi
og var að koma frá Akureyri inn
til lendingar á ísafirði þegar
óhappið varð. Flugmaðurinn var
einn í vélinni þegar þetta
gerðist. Óhappið kom algjörlega
flatt upp á flugvallarstarfsmenn
á ísafirði sem vissu ekki fyrr en
flugvélin kom inn og lenti á
maganum án þess að hjólin
kæmu nokkru sinni niður.
Flugvélin lá á flugbrautinni
frá því um 11.30 og þar til um
kl. 5 um daginn, og gat þess
vegna engin flugumferð farið
fram um flugvöllinn á meðan.
Meðal annars þurftu farþegar
sem ætluðu með Fokker-vél
Flugfélagsins að bíða allan
þennan tíma og olli þessi bið
mikilli gremju meðal þeirra, að
sögn fréttaritara Mbl. á ísafirði
en ástæðan mun hafa verið sú
að tryggingafélag vélarinnar
krafðist þess að vélin yrði ekki
hreyfð fyrr en fulltrúi þess væri
kominn á staðinn. Þegar hapn
loks kom var fárra mínútna
verk að taka vélina af flugbraut-
inni.
I samtali við Mbl. í gær sagði
Skúli Jón Sigurðsson, talsmaður
loftferðaeftirlitsins, að ekki
væri unnt að draga dul á, að
óhapp þetta stafaði af því að
flugmaðurinn hreinlega gleymdi
að setja hjól vélarinnar niður í
lendingunni. Ekkert benti til
þess að bilun hefði orðið í
búnaði vélarinnar. Skúli kvað
ekki einsdæmi að atvik af þessu
tagi kæmu fyrir, þetta væri eins
og hver önnur mannleg mistök
sem ekki ættu að geta komið
fyrir en gerðu það engu að síður.
■■
mmm
—t ■
Guðrún skip-
uð lektor
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
skipaði í gær Guðrúnu Erlends-
dóttur lögfræðing lektor við
lagadeild Háskóla íslands. Aðal-
svið hins nýja lektors verður
stjórnarfarsréttur.
Eins og fram hefur komið í Mbl.
voru þrír umsækjendur um
lektorsstöðuna og við atkvæða-
greiðslu meðal kennara í lagadeild
fengu tveir þeirra jafn mörg
atkvæði, Guðrún og Björn Þ.
Guðmundsson borgardómari, 4
atkvæði hvort.
„Ovænt
sumargjöf’
MIÐVIKUDAGINN 19. apríl, síð-
asta vetrardag, efnir Rithöfunda-
samband Islands til bóksölu á
Bernhöftstorfunni til ágóða fyrir
sambandið, eins og venja hefur
verið tvö undanfarin ár.
Þar verða seldar bækur áritaðar
af höfundum og eru þær innpakk-
aðar svo að enginn veit hvaða bók
hann hreppir. Hver pakki kostar
tvö þúsund krónur.
Flestir bókaútgefendur í landinu
hafa gefið nýjar eða nýlegar
bækur og úrval er mikið.
Opið síðasta vetrardag á Torf-
unni í Bankastræti klukkan 10 til
6.
(Fréttatilk. frá Rithöfundasambandi íslands)