Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 vlí« M0RÖJN/- V KAfp/no * (!| ____________________________ '^xzyOtm GRANI göslari Ég hélt að þú værir svo ánægður með störfin sem vörugæða-eítirlitsmaður? Notkun öryggisbelta Maður að nafni Örn Ásmunds- son hefur sent pistla um ýmis mál, sem hann vill fá að drepa á hér í Velvakanda. Verða raktir helztu kaflar úr bréfi hans og byrjar hann á spjalli um: • Öryggisbelti „Það ætti að hefja meiri áróður í sambandi við notkun öryggisbelta á þjóðvegum, en þó ekki með boðum og bönnum. Notkun þeirra á að vera frjáls hverjum og einum. Þau eru vissulega nauðsyn á þjóðvegum og er t.d. i Þýzkalandi áberandi hversu margir nota öryggisbelti í akstri sínum á hraðbrautum, enda þykir varla annað til greina koma. Og úr því verið er að ræða umferðarmálefni langar mig í leiðinni að fá að minnast á að olíumöl verði sett á kaflann á Suðurlandsvegi austur frá Þjórs- árbrú og helzt alla leið austur að Markarfljóti. Þetta er mjög mikil umferðarleið, t.d. á sumrin er allir streyma í Þórsmörk og víðar og það er tekið það mikið af okkur bíleigendum í gjöld að við verðum að sjá árangursríka notkun þeirra fjármuna." BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í varnaræfingu vikunnar opnar suður í fyrstu hendi á einum spaða. Norður segir tvö hjörtu og suður tvo spaða, sem verður lokasögnin. Útspil vesturs er tígulás en hendur blinds og austurs eru þessar: Norður S. 54 H. ÁK875 T. D1076 L G2 ' Austur S. G3 H. DG62 T. 84 L. K10876 í tígulásinn látum við áttuna. Vestur tekur á tígulkóng og spilar síðan tvistinum. Við trompum en sagnhafi lætur gosann. Hvað nú? Mörgum kann að detta í hug að spila spaða til að hindra lauf- trompanir í borði. En snögg talning sýnir okkur að það er tilgangslaust. Suður á minnst 5 spaða, hefur sýnt 3 tígla og af þeim 5, sem eftir eru fara 2 í hjartaás-kóng og eitt í tígul- drottningu. Hann þarf því ekki að trompa lauf. Ekki er framtíð í hjartanu og því aðeins laufið eftir. Eigum við að spila sjöinu, fjórða hæsta? Tígultvistinn má skilja sem Lavin- tahl, beiðni um lægri litinn og þá á makker ásinn. Hann verður þá innkoman hans til að spila tígli og eyðileggja niðurkastið í drottning- una. Þar að auki pínir spaðagosinn hátt spil frá sagnhafa og tían, ásamt tveim smáspilum, á hendi makkers yrði slagur. En bíðum við! Suður þyrfti ekki að taka spaðagosann. Gæti látið lauf frá hugsanlegu tvíspili. Öruggur tapslagur hvort sem er. Við tökum því á laufkónginn í fjórða slag, síðan lauf á ás vesturs og tigull frá honum býr til sigurslaginn á spaðatíuna. En hana varð makker að eiga enda voru hinar hendurnar þannig. Vestur S. 1092 H. 43 T. ÁK32 L. Á954 J Suður S. ÁKD876 H. 109 T. G95 L. D3 ©PIB COPINM&IN Sjáið um að forstjórinn fái annan sjúss! MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaya eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir islenzkaói 23 izt að hann hefur hringt og látið vita en það gerði hann ekki í morgun. — Var hann í verzluninni í gær? — Jó. ég bjóst við að það vekti áhuga yðar, svo að ég tók mér leigubíl heim til hans. Foreldrarnir eru viðkunnan- legasta fólk sem býr í snyrti- legri íbúð á þriðju hæð. Móðir- in var að strauja þegar ég kom. — Sagðist þú vera frá lög- reglunni? — Nei. ég sagðist vera kunn- ingi sonar hennar og þyrfti að ná snarlega tali af honum ... — Og þá sagði hún þér að hann væri í bókabúðinni? — Einmitt! Hún hefur ekki hugmynd um ncitt. Ilann fór af stað í morgun klukkan korter yfir ótta eins og venjulega. Hún kannaðist ekki við að hann sækti neina fyrirlestra í lög- fra*ði. Þau eru ekki sérlega vel efnum búin. — Hvað gerðir þú svo? — Ég sagði þetta væri senni- lega einhver annar Jorisse og spurði hvort hún ætti mynd af syni sínum. Hún vísaði mér á mynd sem stóð á borðstofu- skápnum. Hún er viðfelldin kona og hún hefur bersýnilega ekki grun um nokkurn skapað- an hlut. Það eina sem hélt áhuga hennar var að straujárn- ið hennar ofhitnaöi ekki. Ég var um stund og hélt henni upp á snakki... Maigret sagði ekkert og sýndi engin merki þess að hann væri ánægður með þetta. Það var augljóst að Santoni hafði ekki unnið lengi undir hans stjórn. Hvorki það sem hann sagði né tónninn sem hann bcitti þegar hann skýrði frá kom heim og saman við þann anda sem Maigret og menn hans unnu eftir. — Þegar ég fór, tók ég myndina án þess hún veitti þvf eftirtekt. — Láttu mig fá hana. Hann hafði áttað sig á málinu áður en Santoni skýrði honum frá þessu. Hann horfði á myndina, sem sýndi ungan grannvaxjnn mann, síðhærðan og sennilegt var að konur hrifust af honum. Og að likind- um vissi hann vel um töfra sfna. — Og þetta er ailt og sumt? — Já, og nú er eftir að vita hvort hann kemur heim í kvöld, ekki satt? Maigret andvarpaði. — Jú, það verðum við víst að gcra. — Eruð þér ekki ánægðir? — Jú, vissulega er ég það? Til hvers var að segja nokk- uð. Santoni myndi venjast þessu smátt og smátt rétt eins og hinir höfðu gert. Það var alltaf sama sagan þegar nýr maður úr annarri deild kom yfir til hans. — Ástæðan fyrir því að ég elti ekki ungu stúlkuna er einfaldlega sú, að nú veit ég hvar hana er að íinna. Á hverjum degi klukkan hálf sex eða í síðasta lagi þegar klukkuna vantar stundarfjórð- ung í sex kemur hún aftur á skrifstofuna til að gera skil á því sem hún hefur innheimt þann daginn og gefa skýrslu um ferðir sfnar. — Viljið þér að ég fari þangað? Maigrct hugsaði sig um. Það lá við borð hann segði honum að hætta að skipta sér af þessu máli. En honum var ljóst að slíkt væri ósanngjarnt og að Santoni hafði sannariega gert eins vel og hann gat. — Farðu og athugaðu hvort hún kemur aftur á skrifstofuna og hvort hún fer heinustu leið heim með lestinni. — Kannski hún cigi stefnu- mót við vin sinn? — Já, það gæti hugsazt. Hvenær cr hann vanur að koma heim til sfn á kvöldin? — Þau borða kvöldverð klukkan sjö. Hann kemur venjulega um það lcyti. Hann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.