Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 Heldur þykir okkur ólíklegt, að knötturinn hafi verið við barkarkýlið f þeim hvít- klædda. Köppen í úrslitum einliðaleiks- ins hjá kvenfólkinu. Fyrstu lotuna vann Köjjpen 11:4, en tapaði síðan 9:11. í oddaleiknum var ekki spurning hver væri sterkari, Köppen vann 11:0. í 2. lotunni komst Webster í 10:1, en Köppen minnkaði þann mun í| 10:9 áður en Webster gerði út1 um leikinn. Englendingarnir Mike Tredgett og Ray Stevens endur- heimtu meistaratitilinn í tví- liðaleik karla er þeir unnu Svíana Hiklström og Frömann 15:6 og 15:5. Tredgett lék síðan með Noru Perry í tvenndarleik og þau unnu Köppen og Steen Skovgaard 15:9 og 15:10. í úrslitum tvíliðaleiks kvenna voru fjórar enskar stúlkur. Nora Perry og Ann Statt unnu Jane Webster og Barböru Sutton 15:7 og 15:7. liðu heilar tíu mínútur áður en það tókst að draga hann sprikl- andi af leikvelli. En hann var mættur á ný skömmu síðar og var nú vopnaður tvíhleypu sem hann skaut á dómarann með og hljóp síðan á brott. Var nú dómarinn borinn illa farinn út í bifreið við vallarhliðið, en áður en hún komst af stað, snaraðist Biteler inn og var nú vopnaður búrhníf. Bætti hann nú nokkr- um vænum sárum við þau sem fyrir voru og hljóp síðan burt á nýjan leik. Var nú ekið hið bráðasta með dómarann á sjúkrahús, áður en Biteler kæmi aftur með ný vopn. Nýlega léku saman Racing Cruz og Estoril Mendoza í villta vestrinu í Argentínu og þar eins og víðar var óánægja með dómgæsluna. Kúreki nokkur í stæðinu fylltist slíkri gremju, að hann snaraði dómarann og batt hann svo kyrfilega, að það tók lögreglumenn 15 mínútur að losa kappann. Tvö nýjustu atvikin, er þjónn var myrtur af þrem „stórstjörn- um“ og línuvörður var höfuð- kúpubrotinn, er hálft lið sótti að honum, án þess að nokkur gerði tilraun til þess að koma í veg fyrir ódæðið, hafa orðið til þess, að þarlend yfirvöld hafa loks rumskað og skipað nefnd til að pexa um vandamálið. Líklega er nefnd þessi enn að störfum, en skyldi hún komast að einhverri niðurstöðu og fari svo, hver verður hún? Varla, að Suður-Ameríkumenn séu blóð- heitari en aðrir, þvi að þó að menn hristi höfuðið og segi, Já, þeir eru svo helvíti blóðheitir þarna suður frá“ þá er það löngu staðfest, að Argentínumenn eru ekkert blóðheitari en t.d. íslend- ingar og ekki myrðum við dómara okkar hér á Fróni. Er ekki liklegra, að margir leik- menn þarna niður frá líti býsna stórt á sig, vegna þess hve fótboltinn er mikil ástríða meðal sauðsvarts almúgans? Og þeir geti leyft sér hvað sem er? Varla kemst nefndin að nokk- urri raunhæfri niðurstöðu, en varúðarráðstafanir getur hún gert. Þangað til verður haldið áfram að slátra dómurum og fleirum á knattspyrnuvöllunum og menn geta aðeins lifað í voninni um það að þessi skugga- hlið knattspyrnunnar setji ekki mark sitt á HM í sumar. -88 m—mmmmmmmmmmm þeir teldu að aðferðir slagsmála- kappans væru liðinu til góða. í Brasilíu skaut maður nokkur konu sína vegna þess að hún lék með kvennaliði í fótbolta og hann þoldi ekki að Pétur og Páll sæi hana berlæraða i stuttbux- um sínum. Karlinn var að sjálfsögðu gripinn, og var síðar sendur á hæli. Þá voru þrír skotnir til bana og fjórir sárir, er þrælvopnaður náungi reyndi að koma í veg fyrir að víta- spyrna yrði framkvæmd í borg- inni Goiania, meðal þeirra er létust var borgarstjórinn. En það eru oftar dómararnir sem líða hvað mest og í suðurhluta Brasilíu hefur liðið Onze Amig- os verið dæmt frá allri keppni fyrir að berja dómara til dauða, þess má geta að Onze Amigos þýðir: Ellefu vinir! Þá lauk öðrum leik á sorglegan hátt í borginni Santo Angelo, en þar áttust við heimaliðið og gestirn- ir Menegusso. Menegusso vann 1—0 og var markið skorað úr vítaspyrnu. Er dómarinn, Senor Busco, kom að bifreið sinni nokkru eftir leikinn, sat maður nokkur, áhangandi heimaliðs- ins, í framsætinu og skaut Busco formálalaust. Síðar kom í ljós, að Busco átti sjálfur byssuna sem þrjóturinn notaði. Hafði hann hana til vonar og vara, skyldi hann verða fyrir tilræði. Þá skulum við að lokum skreppa til Argentínu, en það er landið sem er undir smásjánni þessa dagana. í Bahaia Blanca var lítil vinátta i vináttuleik nokkrum er dómarinn, Senor Lopez, ákvaö að reka Juan nokkurn Biteler af leikvelli. Biteler stofnaði til áfloga og það HEIMSMEISTARARNIR Lena Köppen og Flemm- ing Delfs bœttu Evrópu- Lena Köppen meistaratitli í safn sitt, er þau unnu einliðaleikinn á Evrópumeistaramótinu, sem lauk í Preston í Englandi um helgina. í tvíliðaleik og tvenndar- keppni var hins vegar um enska sigra að ræða í greinunum þremur. Mikl- ar hræringar eru nú meðal bezta badmintonfólksins, sem vill að peningaverð- laun verði aukin í íþrótt- inni og fallist Alþjóða badmintonsambandið ekki á slíkt má reikna með að beztu íþróttamennirnir segi sig úr lögum við sambönd sín og komi á slíkum mótum upp á eigið eindæmi. Hafa badminton- menn í huga velgengni tennisíþróttarinnar. Þá er einnig unnið að þvf að badminton verði gerð að Ólympíuíþrótt og eru tald- ar nokkrar líkur á að slíkt verði þegar í Moskvu 1980. I úrslitum einliðaleiks karla vann Flenjming Delfs sigur á Thomas Kihlström frá Svíþjóð 10:15, 15:6 og 15:12. í oddaleikn- um var mikil barátta og Kihl- ström var yfir 12:11, en Delfs var sá sterki í lokin og vann 15:12. Jane Webster tókst að vinna eina lotu gegn Lenu HM í K N A T T S P Y R N U EINS og bent hefur verið á hundrað sinnum og hver krakki hlýtur nú að vita, verður lokakeppni HM í knattspyrnu haldin i Argentínu í júní næstkomandi. Allt frá því að vettvangurinn var valinn, hafa verið uppi raddir, misjafnlega háværar, sem draga það í efa, að þjóðin sé starfi sínu vaxin. Vissulega voru Argentínumenn seinir að hefja undirbúning sinn og eins og oft vill verða með slík rosafyrirtæki, þá ruku allar fjárhagsáætlanir út í veður og vind. Þessir þættir hafa hins vegar blessast, en það voru alls ekki þeir, sem raddirnar fyrrnefndu óttuðust, heldur illt skapferli bæði leikmanna og áhorfenda í SuðurAmeríku, ekki síst í Argentínu. Þ6TTA uoeu oto Cn-xTMJ seaes, LGtkCUKJKl. MAvj*j ^Avjvj FVteöiST FLa6TU£írA ssr'ösr* Uppþot meðal áhorfenda eru engin nýlunda í löndum þeim, né heldur að dómarar, línuverðir, leikmenn og áhorfendur séu vegnir eða stórslasaðir fyrir hinar ýmsu smávægilegu sakir. Dómarar og llnuverðir einkum fyrir lítilræði eins og að dæma vítaspyrnur eða að dæma af mðrk, leikmenn oft einungis vegna þess að þeir skoruðu, skoruðu ekki, eða björguðu marki, og áhorfendur tíðum fyrir þær sakir einar, að þeir héldu ekki með sama liði og þursinn með hnífinn í beltinu. Við skulum til gamans líta á nokkrar stuttar frásagnir, mál- inu skyldar, en af nógu er að taka. Er Felix De La Torre, leik- maður með liði nokkru í Mexíkó, var rekinn af leikvelli fyrir gróft brot, gat hann ekki setið á strák sínum og klæmdist við leikmann I liði mótherjanna. Sá hóf þegar að sparka í hann og brátt allir liðsfélagar þess móðgaða. Þegar loks tókst að flæma lýðinn brott, var Felix látinn. Annað atvik frá Mexíkó var í bænum Otumba. Dómarinn leyfði sér að dæma vítaspyrnu gegn heima- liðinu og áhorfendaskaranum líkaði það svo illa, að hann geystist inn á völiinn, brá snöru um háls dómarans og hengdi hann ofan í annarri þverslánni. Ahorfendur börðust innbyrð- is, er liðin Cristal Caldas og Pereira frá Kólumbíu áttust við í fyrstu deildinni þar í landi, og þrír dóu, auk þess sem fjöldi fólks slasaðist illa, er barist var með hnífum, glerbrotum og rörkylfum svo aö ekki sé minnst á blessaða hnúana. Áður en við yfirgefum Kólumbíu, skulum við geta um örlög Libardo Zuniga, leikmanns með Santa Rosa, sem tók við í markinu af féiaga sínum sem meiddist. Mót- herjarnir hugsuðu sér nú gott til glóðarinnar, en Zuniga var á öðru máli og varði hvað eftir annað stórkostlega veL Þetta fór svo ógurlega í skapið á einum mótherjanna, að eitt sinn, er Zuniga hafði varið, óð sá skap- skemmta sér með konunni og er kom að því að borga bílinn, tjáði hann bílstjóranum, að það værí svo mikill heiður að fá að aka svo frægri stjörnu milli nætur- klúbba að hann ætlaði ekki að borga. Er ekillinn gaf sig ekki, móðgaðist Farías með fyrr- nefndum afleiðingum. Og þá bregðum við okkur til Peru, en þar var Angel Esteban Barzola, leikmaður með Union Línuverðirnir sjást hér sskja að ólátabelgum, en fyrir aftan þá staulast dómarinn á fætur eftir að hafa verið sleginn niður. styggi að honum og sparkaði af öllum kröftum í nárann á Zuniga, sem lést næstum sam- stundis. Framherjinn situr nú bak við lás og slá, ákærður fyrir morð. Hér kemur svo ein stutt frá Chile: Landsliðsmaðurinn Jaime Farias var stungið inn í tvö ár fyrir að berja leigubílstjóra til óbóta. Farias var úti að Acolla, skotinn til bana á knæpu nokkurri, þar sem hann og félagar hans voru aö halda upp á mikilvægan sigur sem lið þeirra hafði unnið og hver annar en Barzola skoraði sigur- markið? Og Perumenn fengu sér karatesnilling til þess að búa landslið þeirra undir undan- keppni HM sem er nú lokið. Sögðu talsmenn landsliðsins, að KÖPPEN OG DELFS EVRÓPUMEISTARAR FYLGIFISKAR HM VERÐA MORÐ OG MISÞIRMINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.