Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 45
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 25 Þorvarður Guðmundsson var mikill ógnvaldur Uaukavarnarinnar í byrjun leiksins og skoraði 4 íyrstu KR-mörkin í leiknum. HAUKAR ÚR LEIK KRGÆTISLOPP- IÐ VIÐ AUKALEIK HAUKARNIR misstu endanlega af möguleikanum á íslandsmeist- aratign í handknattleik er lið þeirra tapaði 17.18 fyrir KR á sunnudagskvöld. Það eru því aðeins Víkingur og Valur, sem eiga möguleika á gullinu úr því sem komið er, en frammistaða Haukaliðsins í vetur hefur verið hetjuleg og betri en nokkur bjóst við í upphafi mótsins. Með þessum sigri eiga KR-ingar möguleika á að ná 12 stigum og gæti því farið svo að fleiri en eitt lið endaði á þeirri stigatölu og því þurfi að fara fram aukakeppni um hvaða lið leikur gegn HK um sæti í 1. deildinni næsta vetur. Eins og áður sagði hafa Haukarn- ir komið mjög á óvart í 1. deildinni í vetur. Liðið missti þrjá sterka leikmenn, þá Jón Hauksson til Akureyrar, Ólaf Ólafsson vegna fótbrots og Hörð Sigmarsson yfir í Leikni. Það munar um minna en slíka leikmenn og því var Haukalið- inu spáð litlum frama í mótinu í vetur. En í Haukum var enginn uppgjafartónn og ungir leikmenn tóku upp merkið, sem aðrir höfðu áður borið. Menn eins og Andrés Kristjánsson og Ólafur Jóhannesson hafa blómstrað í vetur og lífgað upp á handknattleikinn. Nú hafa Hauk- arnir misst af lestinni í keppninni um guilið, en þeir eiga enn mögu- leika á silfri og eru öruggir með þriðja sætið í Islandsmótinu. Þjálfari Haukaliðsins er Þorgeir Haraldsson og var hann að vonum óhress með úrslitin í ieiknum við KR er við spjölluðum stuttlega við hann að leiknum loknum. Þorgeir sagðist þó ekki geta annað en verið ánægður með veturinn í heild. — Burtséð frá KR-leiknum þá er útkoman góð hjá okkur, betri en við áttum jafnvel sjálfir von á, sagði Þorgeir. — En það er óneitanlega leiðinlegt að vera svona nálægt toppnurp, en komast ekki alla leið. Mín spá er sú að Valur vinni Víking í leik liðanna á miðvikudaginn, en ég er hins vegar ekki búinn að sjá Val vinna Fram, sagði Þorgeir á sunnudag, en leikur Vals og Fram var í gærkvöldi. Aðspurður um það hvort Haukar hefðu náð Islandsmeistaratitlinum í ár ef Hörður Sigmarsson hefði leikið með liðinu, sagði Þorgeir að hann héldi að það hefði ekki breytt miklu. — Hörður var að vísu sá leikmaður, sem batt endi á flestar sóknarlotur okkar og var alltaf markahæstur og við höfum saknað góðrar vinstri- handarskyttu í vetur, sagði Þorgeir. — En ef litið er á stöðuna í deildinni sést að við höfum ekld skorað færri mörk í ár, þarinig að aðrir hafa tekið við af Herði og mörkin hafa dreifst á alla leikmenn liðsins, sagði Þorgeir. MUNURINN HEFÐI GETAÐ VERIÐ MEIRI KR-ingar hafa oft í vetur mátt bíta í það súra epli að tapa leikjum mjög naumlega — með einu eða tveimur mörkum. Það var því kominn tími til að þeir ynnu með slíkum mun eins og gerðist í leiknum við Hauka. Það verður þó að segjast að KR-liðið hefði átt að geta unnið þennan leik með yfir- burðum því staðan var 17:12 þegar 10 mínútur voru eftir og leikurinn því örugglega unninn að því er virtist.'En leikmenn KR þoldu ekki spennuna undir lokin, fóru illa að ráði sínu hyað eftir annað og þegar upp var staðið máttu þeir þakka fyrir að ná báðum stigunum. í lokin röðuðu Haukarnir mörk- unum, Sigurgeir skoraði tvívegis með fallegum langskotum, Andrés skoraði úr víti og af línu og þegar 43 sekúndur voru eftir skoraði Þorgeir fyrirliði og þjálfari Hauk- anna. En Björn Pétursson hafði lætt einu marki inn á milli Haukamark- anna og munurinn var því eitt mark, 18:17 og KR-ingarnir með knöttinn. Haukarnir komu fram á völlinn, léku maður á mann og Sigurður Páll missti knöttinn þegar 28 sekúndur voru eftir. Haukarnir hófu sókn, en fóru sér alltof hægt og er 6 sekúndur voru eftir reyndi Þorgeir skot úr horni úr næsta vonlausu færi. Skotið var varið og KR-ingar náðu því sigri í leiknum. Sigri sem hékk á bláþræði í lokin, en hefði átt að vera miklu auðveldari hefðu leik- taugar KR-inga ekki brostið í lokin. Þá var það aðeins Björn Pétursson,, sem „hélt haus“. Fyrri hálfleikur þessa leiks var rnjög jafn, liðin samsíða á öllum tölum upp í 4:4 og hafði Þorvarður Guðmundsson skorað 4 fyrstu mörk KR. Þá komust Haukarnir yfir 6:4 og 7:5, en KR-ingum tókst að jafna 7:7 og þeir komust yfir 9:7.1 leikhléi var staðan 10:9. Haukar jöfnuðu 11:11, en KR-ingar léku mjög vel næstu mínúturnar og komust í 15:11. Síðan varð fimm markámunur 17:12, en 5 mörk Hauka gegn 1 KR-marki í lokin gerðu síðustu sekúndur þessa leiks mjög spennandi og skemmti- legan. Sigur KR-inga í leiknum var verðskuldaður, liðið lék betur en Hafnfiröingarnir, sem voru alltof bráðir í sóknaraðgerðum sínum. Þau voru að vísu falleg mörk liðsins úr hraðaupphlaupum, en það er betra að fara sér hægar á stundum og spila upp á markið í stað þess að glutra niður knettinum í óðagoti. Tveir leikmenn KR náðu stigun- um í þessum leik öðrum fremur. Emil Karlsson stóð sig frábærlega vel í markinu og hefur ekki varið annað eins í vetur. Björn Pétursson var drýgstur við skorunina að þessu sinni og gerði t.d. 3 síðustu mörk KR í leiknum og 4 þau síðustu í fyrri hálfleiknum. Björn hefur tekið lífinu með ró í undanförnum leikj- um, en þarna var hann sannarlega í essinu sínu. Jóhannes Stefánsson og Þorvarður Guðmundsson stóðu sig báðir vel og gerði Þorvarður 4 fvrstu mörk KR í leiknum, en eftir það var gengið vel út á móti honum. Haukarnir brugðu á það ráð að taka Hauk Ottesen úr umferð þegar staðan var orðin 17:12. Riðlaðist þá sóknarleikur KR-inga og e.t.v. hefði það dugað Haukum til sigurs hefðu þeir gripið til þessa ráðs fyrr í leiknum. Beztu menn Haukanna voru þeir Ingimar Haraldsson og Andrés Kristjánsson, en í heildina gerði Haukaliðið of margar vitleys- ur í þessum leik og það kostaði liðið trúlega sigurinn að þessu sinni. Góðir dómarar þessa leiks voru Gunnar Kjartansson og Óli Olsen. Mörk KRi Björn Pétursson 8 (4v), Þorvarður Guðmundsson 4, Sigurð- ur Páll Óskarsson 2, Haukur Otte- sen 2, Símon Unndórsson 1, Ævar Sigurðsson 1. Mörk Ilaukai Andrés Kristjáns- son 6 (3v), Ingimar Haraldsson 2. Elías Jónasson 2, Þorgeir Haralds- son 2, Sigurgeir Marteinsson 2, Þórir Gíslason 1. Brottvísanir af leikvellii Andrés Kristjánsson og Þorvarður Guð- mundsson í 2 mínútur hvor. Misheppnuð vítakösti Gunnar Einarsson varði frá Hauki Ottesen í fyrri hálfleik. - áij. — Það var fyrst og fremst sterk liðsheild og góður andi í hópnum sem skapaði þennan góða árangur, sem vissulega var vonum framar, sagði Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfari liðsins í samtali við Morgunblaðið. Jóhann sagði þessi úrslit gera kröfu til HSI um að vinna meira að unglingastarfi en gert hefði verið, nú ætti að halda vel utan um þennan hóp og gera honum kleift að keppa á heims- meistarakeppni unglinga 21 árs og yngri eftir tvö ár. — Við höfum ekki efni á að láta svona sterka heild sundrast sagði Jóhann. ísland — Svíþjóð 14-26 (6-11) Fyrsti leikur liðsins í keppninni var á föstudagskvöld á móti Svíum. ísland byrjaði leikinn vel, Sigurður Gunnarsson skoraði fyrsta mark leiksins með hörku- skoti, og Stefán Halldórsson bætti strax öðru marki við úr vel útfærðu hraðaupphlaupi, mikil áhersla hafði verið lögð á hraða- upphlaup á æfingum og gekk vel í mótinu að útfæra þau. Eftir 10 mín. var staðan jöfn 3—3, en þá fóru Svíar að sigla fram úr og skoruðu hvert markið á fætur öðru þar sem sóknir íslenska liðsins voru alltof stuttar og skotið of fljótt úr slæmum færum. Staðan í leikhléi var 11—6 Svíum í vil. Ekki gekk betur í síðari hálfleik og yfirburðasigur Svía var stað- reynd 24—14 og var það sanngjarn sigur eftir gangi leiksins. Svíarnir voru allir mjög hávaxnir og þrekvaxnir og léku grófan hand- knattleik. Leikur þessi var sérlega lærdómsríkur fyrir hina óreyndu íslensku leikmenn en enginn þeirra hafði leikið í Norðurlanda- móti fyrr. Besti leikmaður íslands var Sigurður Sveinsson og skoraði hann 6 mörk í leiknum, flest með þrumuskotum. Var Sigurður tek- inn úr umferð í öllum leikjunum eftir þessa góðu frammistöðu, þá Framliðið lék sinn bezta leik í vetur á móti Val og stundum stóð ekki steinn yfir steini í Valsvörn- inni í leiknum á sunnudaginn. Einkum var það línuspil Fram, sem var árangursríkt í þessum leik, en einnig hraðaupphlaup liðsins. Sést þetta bezt á þvf að lið Fram skorar aðeins 5 mörk af 21 úr langskotum, 8 koma úr vítum og 8 af línu eða úr hraðaupphlaup- um. Auk þess að leika til úrslita í 1. deildinni mætast Fram og FH einnig í úrslitum bikarsins. Óþarft er að hafamörg orð um þennan leik, Fram hafði algjöra yfirburði. Staðan í hálfleik var 12:5 og munurinn jókst í byrjun seinni hálfleiksins. Undir lokin fengu varamenn Framliðsins að spreyta sig og bilið á milli liðanna jókst ekki meir en orðið var. Erfitt er að gera upp á milli leikmanna Fram að þessu sinni, en þær Sigrún og Jóhanna áttu báðar mjög góðan leik. Oddný og Guðríð- Ovæntir yfirburðir Framstúlkna gegn Val FRAM vann mikinn yfirburðasigur á Val í 1. deild kvenna á sunnudagskvöldið. Úrslitin urðu 21i9 og það verða því Framstúlkurnar, sem leika til úrslita við FH um íslandsmcistaratitilinn. Það er langt síðan svo mikill munur hefur verið á liðum í 1. deild kvenna og fróðir menn mundu jafnvel ekki eftir svo stórum sigri í deildinni er þeir hugleiddu málið í llöllinni á sunnudagskvöldið. Reyndar vann Valur 1 ram 20i9 fyrir réttum 10 árum, en siðan hafa þessi lið marga hildi háð og oftast verið mjótt á mununum, en veldi Vals í kvennahandknattleiknum, er greinilega orðið smátt í sniðum. ur voru einnig drjúgar, en í heild átti Fram góðan dag. Mörk FRAMi Guðríður 10 (8v), Sigrún 4,. Jóhanna 3, Oddný, Steinunn, Helga og Þórlaug 1 hver. Mörk VALSi Harpa 4, Halldóra 2, Oddný 1, Hrefna 1. _ $ij kom Sigurður Björgvinsson vel frá varnarleiknum. Mörk íslands. Sigurður Sveins- son 6, Sigurður Gunnarsson 2, Árni Hermannsson 2, Stefán Halldórsson 2, Atli Hilmarsson 1, Kristinn Ólafsson 1. ísland — Noregur 18-15 (9-7)__________________ Á laugardagsmorgni var leikið gegn Noregi, og þá komu piltarnir mjög ákveðnir til leiks, og léku mjög vel. Leikurinn var jafn framan af en rétt fyrir lok fyrri hálfleiks seig ísland fram úr og staðan var 9—7 í leikhléi. Mark- varsla Sverris Kristjánssonar hafði verið mjög góð og batnaði enn þegar á leikinn leið. Varði Sverrir 15 skot í leiknum, þar á meðal tvö vítaskot og var þessi frábæra markavarsla þung á metunum og átti stærstan þátt í að tveggja marka sigur vannst á Norðmönnum 17—15. Þá var varn- arleikurinn frábær, góð hreyfing og mikið barist. Tóku íslendingar bestu skyttu Norðmanna úr um- ferð allan leikinn og tókst það vel. Mörk Islands. Sigurður Gunn- arsson 4, Sigurður Sveinsson 3, Árni Hermannsson 4, Atli Hilm- arsson 3, Sigurður Björgvinsson 1, Kristinn Olafsson 1, Magnús Guðfinnsson 1. ísland — Finnland 22-20 (14-7) Á sunnudag lék ísland tvo leiki og sá fyrri var á móti Finnum um morguninn. Finnska liðið var áberandi slakasta lið mótsins og Vörn Vals var oft víðs fjarri þega Framstúlkurnar komust í færi f leiknum á sunnudag, eins og reyndar sést á þessari mynd er Steinunn fer inn úr horni. FH og Fram leika til úrslita í 1. deild kvenna GULLVERÐLAUNUM ÍSLENSKA unglingalandsliðið í handknattleik sem þátt tók í Norðurlandameistaramót- inu í Skien í Noregi um helgina stóð sig með mikilli prýði og tókst að næla ser í silfurverðlaunin í mótinu. Voru ísl. unglingarnir jafnir Svíum að stigum, báðar þjóðirnar hlutu 6 stig en Svíar höfðu betra markahlutfall og sigruðu þar af leiðandi í mótinu. Frammistaða unglingalandsliðsins er sérlega ánægjuleg eftir slaka frammistöðu karlalandsliðsins í heimsmeistarakeppninni, og ætti að verða fslenskum handknattleik mikil lyftistöng. ísland, Danir skora svo 18—17 og allt er komið á suðupunkt, en það er seigla í íslensku piltunum og þegar mest reynir á standast þeir pressuna og tekst að sigra í leiknum 21—19. Sigurður Gunnarsson var tví- mælalaust besti maður liðsins í þessum leik skoraði hann þýðingarmikil mörk og var virkur í spili liðsins. Þá áttu þeir Sigurður Björgvinsson og Einar Vilhjálmsson góðan leik í vörninni og voru þar sem klettar. Árni Hermannsson átti þarna sinn besta leik í mótinu bæði í vörn og sókn. Var þessi sigur mjög kær- kominn og gleði piltanna mikil í leikslok. Mörk Islandsi Sigurður Gunnarsson 7 í 10 skottilraunum, Árni Hermannsson 5, Sigurður Sveinsson 2, Þráinn Ásmundsson 2, Einar Vilhjálmsson 1, Atli Hilmarsson 2, Stefán Halldórsson 2. Einn piltanna, Sigurður Björg- vinsson frá Keflavík, var kjörinn besti varnarleikmaður mótsins og þótti hann standa sig með af- brigðum vel. Besti leikmaður íslenska liðisins var kjörinn Sigurður Gunnarsson, Víkingi, var hann jafnframt þriðji markhæsti leikmaur mótsins. — þr. Úrslit leikja í mótinu. Noregur — Danmörk 15-15 ísland — Svíþjóð 14-24 ísland — Noregur 18-15 Finnland — Svíþjóð 10-28 Danmörk — Finnland 32-23 Noregur — Svíþjóð 13-22 Finnland — ísland 20-22 Svíþjóð — Danmörk 9-13 Noregur — Finnland 22-17 Danmörk — ísland 19-21 Lokastaðan Svíþjóð 4 3 0 1 83,50 6 stig ísland 4 3 0 1 75,78 6 stig Danmörk 4 2 1 1 79,68 5 stig Noregur 4 1 1 2 65i72 3 stig Finnland 4 0 0 4 70.104 0 stig átti Ísland ekki erfitt með að sigra þá örugglega. Var um tíma 10 marka munur í leiknum en þá fór að gæta kæruleysis hjá liðinu og Finnum tókst að minnka muninn niður í eitt mark er tvær mín. voru eftir. Þá skoraði ísland og lokatöl- ur urðu 22—20. Mörkin skoruðu: Atli Hilmars- son 8, Sigurður Sveinsson2, Sig- urður Gunnarsson 3, Árni Her- mannsson 4, Jón Hróbjartsson 1, Kristinn Ólafsson 2, Magnús Guðfinnsson 1. ísland — Danmörk 21-19 (10-13) Seinni hluta sunnudagsins var leikið á móti erkifjendum vorum í handknattleik, Dönum. Leikur þessi hafði úrslitaþýðingu fyrir Island, sigur þýddi silfurverðlaun, en tap þriðja sæti í mótinu svo það var að duga eða drepast. Danir höfðu sigrað Svía 13—9 og virtust vera ákveðnir í að fara ekki að tapa fyrir Islandi, léku þeir allan leikinn hraðan og góðan hand- knattleik og höfðu forystuna lengst af í leiknum. I fyrri hálfleik hafði íslenska liðið leikið flata vörn og ekki komið nægilega út á móti dönsku skyttunum, Varnaraðferðinni var breytt í leikhléi og í-síðari hálfleik var farið betur út á móti skyttum en áður. Þessi varnaraðferð gafst vel og á 14. mín. síðari hálfleiks jafnar ísland 14—14. Þá tekst Islandi að ná forystu, Sigurður Gunnarsson skorar þrjú mörk í röð og staðan verður 17—15. Sigurður Sveinsson var tekinn úr umferð en tókst að losna nægilega lengi til að skora 18—16 fyrir Haukarætla að halda sæti sínu * Armannskonur dæmdar í 2. deild HAUKAR unnu Víking í aukakeppni á botni 1. deildar kvenna á sunnudagskvöldið og með þessum sigri má reikna með að Hafnarfjarðarliðið hafi tryggt sér áframhaldandi veru í 1. deildinni. Haukastúlkurnar unnu Ármann örugglega í keppni þessara liða í siðustu viku og eftir sigurinn á sunnudagskvöldið verður að reikna með að liðið vinni einnig er Haukar og Víkingur leika seinni leik sinn 1 Hafnarfirði. Úrslitin á sunnudaginn urðu 11:9 fyrir Hauka, 5:2 í leikhléi. í byrjun seinni hálfleiksins lék Víkingsliðið vel og komst yfir 6:5 og síðan var jafnt 7:7 og 8:8. 1 lok leiksins sigu Haukarnir fram úr og unnu verðskuldað 11:9. Margrét Theódórsdóttir skoraði flest mörk Hauka, 6 talsins, Sjöfn skoraði tvívegis, en þær Kolbrún, Guðrún og Halldóra gerðu 1 mark hver. Stella gerði þrjú af mörkum Víkings, Sigurborg, Ingunn, Agn- es, Ingunn, Sigrún og Sólveig 1 mark hver. Lið Ármanns mætti ekki full- skipað til leiks gegn Haukum í Hafnarfirði í síðustu viku og á föstudagskvöldið mættu aðeins 4 Ármannsstúlkur til leiksins við Víking. Varð þvi að flauta leikinn af og dæma Víkingi stigin. Eftir því sem Morgunblaðið hefur fregn- að hefur Ármannsliðið nú verið dæmt frá frekari keppni í 1. deild og fellur því beint niður í 2. deild. Það lið, sem vinnur einvígi Víkings og Hauka, heldur sæti sínu í 1. deildinni, en hitt liðið, væntanlega Víkingur, leikur 2 leiki við IBK um sæti í 1. deildinni næsta vetur. Ekki verður annað sagt, en að uppskera Ármenninga hafi verið rýr á handknattleikssviðinu í vetur. Karlarnir féllu beint niður í 2. deild, en þaðan komu þeir fyrir ári. Kvennaliðið er nú farið sömu leið og mikil upplausn meðal leikmanna liðsins, svo mikil að hæpið er að Ármann eigi í lið næsta vetur. - áij. Ævar Sigurðsson lck að nýju með KR gegn Haukum í fyrrakvöld og stóð vel fyrir sínu. Hann skoraði eitt mark í leiknum og er þessi mynd tekin sekúndubroti áður en hann sveif inn f vitateiginn og skoraði. Úrslitaleikir yngri flokkanna um næstu helgi ÚRSLITALEIKIRNIR í íslandsmótum yngri flokkanna í handknatt- leik fara fram um næstu helgi og verður leikið á Akureyri og í Hafnarfirði. Á Akureyri leika 3. og 5. flokkur pilta, en 2. og 3. flokkur kvenna. 1. og 4. flokkur karla í Hafnarfirði. Úrslitaleikjunum í 2. flokki karla hefur verið frestað, en úrslit eru þegar ljós í 1. flokki kvenna. Þar báru Valsstúlkurnar sigur úr býtum. Ekki er enn ljóst hvaða lið leika til úrslita í öllum flokkunum, en þó er vitað að í 1. flokki karla leika Valur og Víkingur til úrslita líkt og í 1. deildinni. í 2. flokki karla eru Þróttur, FH og Þór í úrslitum. FH, Víkingur og KA berjast í 3. flokki, KR, KA og Þróttur í 4. flokki og í 5. flokki pilta eru það lið Vals, Fram og Þórs sem eru í úrslitum. Hjá kvenfólkinu eru Haukar og Þór í úrslitum í 3. flokki og Fram og Völsungur í 2. flokki kvenna. I síðastnefnda flokknum var lið Víkings svo gott sem búið að tryggja sér sæti í úrslitunum., en vegna mistaka þjálfara mætti lið Víkings of seint til leiks við KR. Dómarar flautuðu leikinn því af og dómstóll dæmdi leikinn síðan tapaðan fyrir Víking. Það fylgir sögunni að Víkingsliðið mætti 2 mínútum eftir að leikurinn hafði verið dæmdur þeim tapaður. - áij KRi Ilaukur Ottesen 2, Símon Unndórsson 2, Ólafur Lárusson 2, Ingi | Steinn Björgvinsson 1, Kristinn Ingason 2, Sigurður Páll Óskarsson- 2, Ævar Sigurðsson 2, Björn Pétursson 4, Þorvarður Guðmundsson 3. Jóhannes Stefánsson 3, Emil Karlsson 4, Örn Guðmundsson 1. IIAUKARi Þorlákur Kjartansson 2, Ingimar Ilaraldsson 3, Þorgeir Haraldsson 2. Ólafur Jóhannesson 2, Sigurður Aðalsteinsson 1, Stefán Jónsson 2. Guðmundur Haraldsson 1. Sigurgeir Marteinsson 2, Elías Jónasson 2, Andrés Kristjánsson 3, Gunnar Einarsson 2, Þórir Gíslason 1. UNGLINGARNIR AÐEINS FETI FRÁ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.