Morgunblaðið - 18.04.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
13
mætti stytta verkið að nokkru og
sérlega fella burt millispilin.
Kór Langholtskirkju er marg-
falt betri en kemur fram við
flutning Misa Criolla. Einsöngvar-
ar voru Sverrir Guðjónsson og
Rúnar Matthíasson.
Tónleikum þessum lauk svo með
því að allir kórarnir sungu saman
undir stjórn nokkurra stjórnenda
og fluttu með aðstoð hljómsveitar
tónverkið ísland eftir Sigfús
Einarsson. Samsöngur kóranna
var stórglæsilegur og einn áhrifa-
mesti söngur sem undirritaður
hefur heyrt. Það eina sem mætti
árétta, er að ekki er rétt í öllum
tilfellum að breyta raddsetningum
á ættjarðarlögum, sem sungin eru
við ýmis tækifæri. Spurningunni
um það hvað fari vel eða illa
verður aldrei svarað. Að slíta
sundur upphaf þjóðsöngsins er
„tiktúra" en ekki túlkun og smekk-
leysa að auki. Sömuleiðis er
gabbendinn í ísland ögrum skorið
tónfræðibrella, sem brýtur sundur
einfaldleika lagsins. Þetta eru að
vísu smámunir, en hátíðin Söng-
leikar 1978 er stórmál og líkleg til
að örva starf kóra um allt land.
Það er ástæða til að óska íslenzku
söngfólki, stjórn Landssambands
blandaðra kóra og framkvæmda-
stjóra hátíðarinnar til hamingju
með vel heppnaða sönghátíð.
Jón Asgeirsson.
eftir söngstjórann Björgvin Þór
Valdimarsson, skemmtilegt og
gamansamt lag. Björgvin gerði
meira en aðrir söngstjórar í
notkun vaxandi og minnkandi
styrks. Söngstjórarnir sem hér
komu fram hafa flestir aðeins
fengist við söngstjórn í stuttan
tíma en þegar náð töluverðum
árángri. Stöðugt og langvarandi
starf er undirstaða góðs árangurs
og geta eins kórs er ekki síður
undir hæfni söngstjórans komin
en getu söngfólksins. Kór Söng-
skólans í Reykjavík, undir stjórn
Garðars Cortes, batt endahnútinn
á þessa erfiðu og löngu tónleika og
flutt'i kafla úr messu eftir Haydn.
Þarna er öryggi og kunnátta meiri
en almennt þekkist í kórum
hérlendis og í samanburði við aðra
kóra á þessu móti er hann frábær.
Slíkur samanburður er ósanngjarn
og hlýtur mat á frammistöðu
kórsins að miðast við þá kóra sem
atvinnulega séð eru tengdir söng.
Einsöngvarar með kórnum voru
Valgerur J. Gunnarsdóttir, Hrönn
Hafliðadóttir, Magnús M. Magnús-
son og Sigurður Þórðarson. Undir-
leikarar með kórunum voru
Krystyna Cortes, Jónína Gísla-
dóttir, Agnes Löve, Geirþrúður V.
Bogadóttir en undirleikari Sel-
kórsins var ekki nafngreindur í
efnisskrá.
Jón Ásgeirsson.
Ljósmyndir í
Klausturhólum
Nanna Búchert er dansk-ís-
lenskur ljósmyndari, sem komið
hefur fyrir sýningu á um 70
verka sinna í Klausturhólum.
Hún er alin upp hérlendis og tók
stúdentspróf frá MR, en giftist
síðan til Danmerkur-, Fyrir
nokkrum árum fór hún að fást
við ljósmyndun og var það
aðallega fréttamyndun fyrir
dagblöð, en fljótt beindist hugur
hennar að listrænum möguleik-
um ljósmyndarans, og er þessi
sýning á Klausturhólum árang-
ur seinustu ára á þessu sviði.
Hún hefur sýnt verk sín á
ýmsum opinberum stofnunum
og á listsýningum í Danmörk á
undanförnum árum, og nú gerist
það æ tíðara, að ljósmyndarar
taki þátt í listsýningum. og að
verk þeirra séu metin listrænu
mati.
Þetta er mjög látlaus sýning
í Klausturhólum og allar mynd-
irnar eru í litlu formati, eins og
það heitir á fagmáli og vondri
íslensku. Hér er engin tilraun
gerð til að vera flott og fikta við
tískulegt yfirbragð. Hér er
miklu fremur myndbygging á
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
ferð, sem minnir mjög á, hvern-
ig góður myndlistarmaður
skipuleggur verk sitt, þannig að
myndflöturinn fái þýðingu og
allt, sem í honum gerist. Hjá
Nönnu verður vart næmrar
tilfinningar fyrir myndgerð,
sem er ekki hávaðasöm. Hún
byggir verk sín þannig, að allt
verður eins eðlilegt og frekast
má verða. Það er viss ró og
heimilislegur blær, sem verður
manni minnisstæðastur, eftir að
hafa séð þessa sýningu. Það má
vel vera, að ekkert stórkostlegt
sé hér á ferð, en það er geðþekkt
og ber með sér virðingu fyrir
verkefnum og möguleikum. Sér-
lega hafði ég gaman að barna-
myndum Nönnu, og sumar
hverjar minntu mig á Viktoríu-
tímabilið. Þessu var ég búinn að
taka eftir, áður en ég sá í
upplýsingum um listakonuna, að
hún þekkir vel til fyrirrennara
eins og Cameron o.fl.
Myndin, sem fylgir þessum
línum er dæmigerð fyrir ljós-
myndir Nönnu. Látlaus en sterk
og hefur það, sem Danir kalla
„maleriske" eiginleika. Það er
aðlaðandi tónn í þessari sýn-
ingu, sem ég persónulega hafði
ánægju af. Um tæknilega hlið
málsins er ég mjög fávitandi og
geri mér engar grillur um að
mynda mér skoðanir á þeirri
hlið málsins. Stundum kemur
það fyrir, að maður lætur slíkt
lönd og leið, en þá verða líka
aðrir hlutir að gera sig gildandi,
þannig að áhrifa gæti hjá
manni. Þannig var það í þessu
tilfelli, ég varð hrifinn, en veit
ef til vill ekki alveg af hverju.
Þetta var skemmtiíeg sýning,
sem ég hafði ánægju af að sjá.
Áð lokum vil ég aðeins benda á
þær myndir, sem Nanna hefur
gert í kirkjugörðum og að
mínum dómi eru í sérflokki.
Þau vita allt um
Hafir þú hug á að kynnast betur
hinum nýju IB-lánum og IB-veð-
lánum, skaltu bara koma eða hringja.
IB-ráðgjafar okkar kunna svör við
spurningum þínum. Sé þess óskað,
geta þeir einnig rætt og ráðlagt um
hve lengi sparað er og hversu há
upphæð.
Að ýmsu þarf að hyggja til að sparn-
aðaráætlunin standist.
Hvað þarf lánið að vera hátt til að
takmarkinu verði náð? Hvað eru líkur
á að hægt sé að leggja mikið inn
mánaðarlega?
Svör við þeim spurningum ráða mestu
um hve langt sparnaðartímabilið þarf
að vera.
Kynntu þér möguleikana betur.
Hafðu samband við IB-ráðgjafana
í aðalbanka eða einhverju útibúanna.
Fyrirhyggja léttir framkvæmdir.
Bankiþeirra sem hyggja aó framtíðinni
Iðnaðarbankinn
Lækjargötu 12, Sími 20580