Morgunblaðið - 18.04.1978, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
Bjarni Guðmundsson hefur þama sloppið einu sinni sem oftar i gegnum vöm Fram og skorar örugglega. Bjami var
bezti maður Vals i leiknum i gærkvöldi. Lj6sm Fri»w°fur.
Urslrtin ráðast í
leikVals og Víkings
-eftir að Valur vann Fram í gærkvöldi 27:19
VALUR sigraði Fram léttilega í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik 27.19 og er nú ljóst að leikur Vals og Víkings annað
kvöld verður hreinn úrslitaleikur. Fyrir leikinn hafa Víkingarnir 19
stig en Valsmenn 18 stig. Sigur og jafntefli annað kvöld tryggir
Víkingi íslandsmeistaratitilinn en ef Valsmenn sigra verða þeir
íslandsmeistarar. Það er því mikið í húfi annað kvöld og líklegt að
margir leggi leið sína í Höllina til þess að sjá Reykjavíkurrisana
Víking og Vai berjast um íslandsmeistaratitilinn.
En það er meira í húfi annað
kvöld en baráttan á toppi 1.
deildar. Þá mætast einnig KR og
Ármann og ef KR ber sigur úr
býtum nær félagið 12 stigum eða
jafnmörgum og Fram og gæti því
þurft að fara fram aukaleikur
milli félaganna um næst neðsta
sætið og hugsanlega blandast FH
eða IR einnig í þá baráttu.
Enska lands-
liðið tilkynnt
í gærkvöldi
RON Greenwood, einvaldur enska
landsliðsins, tilkynnti í gær-
kvöldi lið Englands í vináttu-
landsieiknum við Brásilíu á
. Wembley í Lundúnum annað
kvöld. Sex breytingar eru á enska
liðinu, sem lék nýlega gegn
Vestur-Þjóðverjum, flestar vegna
meiðsla leikmanna.
Enska iiðið verður þannig
skipað. Joe Corrigan (Manchester
City), Mick Mills (Ipswich), Dave
Watson (Manchester City), Brian
Greenhoff (Manchester United),
Trevor Cherry (Leeds), Kevin
Keegan (Hamburger SV), Tony
Currie (Leeds), Peter Barnes
(Manchester City), Frevor
Francis (Birmingham), Bob Latc-
ford (Everton) og Steve Coppell
(Manchester Unitcd).
Leikurinn í gærkvöldi var því
mikilvægur bæði fyrir Val og
Fram. Valsmenn virtust gera sér
fulla grein fyrir þessu því þeir
mættu mjög ákveðnir til leiksins
en það sama verður ekki sagt um
Framara. Þeir léku einn sinn
lakasta leik í vetur og áttu aldrei
minnstu möguleika gegn Val. Var
Framliðið hreint óþekkjanlegt frá
leiknum gegn Víkingi þegar barizt
var frá fyrstu til síðustu mínútu.
Lítið var skorað framan af í
fyrri hálfleik enda gerðu bæði lið
sig sek um mörg mistök. Valsmenn
komust í 5:2 en Framararnir
jöfnuðu á skömmum tíma. En
síðan urðu þeim á mistök í
sókninni, sem Valsmenn'nýttu sér
til hins ýtrasta. Skoruðu þeir
fjögur mörk í röð á þremur
mínútum og komust í 9:5 en staðan
í hálfleik var 11:7 Val í hag.
I upphafi seinni hálfleiks náðu
Framarar góðum spretti og
minnkuðu muninn í 12:11 en
Valsmenn svöruðu snarlega með
fjórum mörkum og eftir það þvarr
mótstaðan gjörsamlega hjá Fröm-
urum og Valsmenn sigldu framúr
haégt Og rólega. Mestur var
munurinn tíu mörk, 24:14, en
lokatölurnar urðu 27:19.
Valsliðið hefur náð sér verulega
á strik seinni hluta mótsins eftir
afleita byrjun. Virðast Valsménn-
irnir hafa eflst við það óstuð, sem
Verið hefur á Víkingunum seinni
hluta mótsins enda hafa möguleik-
ar Valsmanna á að halda íslands-
bikarnum vaxið stöðugt með fall-
andi gengi Víkinganna. Verður
fróðlegt að sjá uppgjör félaganna
annað kvöld. I leiknum við Fram
var varnarleikurinn mjög sterkur
og þokkalegir sprettir í sókninni,
þótt Valsmenn hafi áður sýnt þar
betri tilþrif. Þá var markvarzla
Byrnjars Kvaran góð. Auk hans
áttu beztan leik þeir Bjarni
Guðmundsson, Jón Pétur Jónsson
og Þorbjörn Jensson. Bjarni lék nú
sinn bezta leik í vetur, hélt Arnari
Guðlaugssyni í strangri gæzlu
allan leikinn og var mjög drjúgur
í sókninni. Jón Pétur virðist vera
að ná sér á strik eftir slaka byrjun
í mótinu og Þorbjörn Jensson var
sterkur og þó sérs^aklega í vörn.
Framararnir léku flestir langt
undir getu. Aðéins Gústaf Björns-
son og Guðjón Erlendsson mark-
vörður sýndu umtalsverða getu.
Arnar Guðlaugsson var tekinn úr
umferð allan leikinn og bar því
lítið á honum. Það getur svo farið
að Framarar verði að standa í
erfiðri fallbaráttu á næstunni og
þurfa þeir þá að standa sig betur
en í þessum leik og taka hlutina
alvarlegar en gert var fyrir
leikinn.
Islandsmótið 1. deild, Lapgar-
dalshöll 17. ápril, Valur — Fram
27:19 (11:7)
Mörk Vals: Bjarni Guðmunds-
son 7, Jón Pétur Jónsson 6, Jón H.
Karlsson 4 (2 v), Glsli Blöndal 3,
Stefán Gunnarsson 2, Þorbjörn
Guðmundsson 2, Steindór Giinn-
r ........................
arsson 1, Þorbjörn Jensson 1, Karl
Jónsson 1.
Mörk Fram: Gústaf Björnsson 7
(3 v), Magnús Sigurðsson 3, Jens
Jensson 3, Sigurbergur Sigsteins-
son 2, Pétur Jóhannesson 2, Arnar
Guðlaugsson 1, Atli Hilmarsson 1.
Misnotuð vítaskot: Brynjar
Kvaran varði tvö vítaskot Arnars
Guðlaugssonar í f.h.
Brottvísanir af velli: Birgir
Jóhannesson, Stefán Gunnarsson
og Gústaf Björnsson reknir af velli
í 2 mínútur hver.
Björn Kristjánsson og Gunn-
laugur Hjálmarsson dæmdu leik-
inn og skiluðu hlutverki sínu vel.
- SS.
Newcastle
í 2. dePd
EINN íeikur fór fram í l. deildinni
ensku í gærkvöldi. Ástoh Villa
sigraði Newcastle 2:0 með mörkum
Cowans og Gray. Þar með er
Newcastle fallið í 2. deild ásamt
Leicester og líklega fellur eitt
eftirtalinna liða rtieð þeim, Wolv-
és, Chelsea, QPR eða West Ham.
........ ........ v
Valur« Brynjar Kvaran 3, Karl Jónsson 1, Þorbjörn
Jensson 3, Þorbjörn Guðmundsson 2, Jón Pétur
Jónsson 3, Bjarni Guðmundsson 4, Gísli Blöndal 1, Jón
H. Karlsson 2, Stefán Gunnarsson 2, Steindór
Gunnarsson 1, Björn Björnsson 1.
Fram. Guðjón Erlendsson 3, Birgir Jóhannesson 2,
Magnús Sigurðsson 2, Jens Jensson 1, Arnar
Guðlaugsson 1, Atíi Hilmar,sson 1, Pétur Jóhannesson
2, Sigurbergur Sigsteinsson -2, Ragnar Hilmarsson 1,
Jóhannes Helgason 1, Gústaf Bj'örnSson 3.
23
STAÐAN
STAÐAN í 1. deild karta í handknatt-
leik.
Víkinxur
Valur
Ilaukar
ÍR
FH
Fram
KR
Ármann
FokastaAan
knattleik,
Fram
FH
Valur
KR
Þór
Ármann
Haukar
Víkinnur
13 7 5 1 284,246 19
13 8 2 3 274,245 18
14 7 4 3 285,255 18
13 4 4 5 266,255 12
13 5 2 6 269,280 12
14 4 4 6 286.311 12
13 4 2 7 250.255 10
13 2 1 10 239.286 5
1 1. deild kvenna 1 hand-
14 11 0 3 193,153 22
14 11 0 3 185.154 22
14 10 0 4 175,156 20
14 5 1 8 140.138 11
14 5 0 9 157.184 10
14 4 1 9 149,154 9
14 4 1 9 155,173 9
14 4 1 9 149,179 9
Marka-
hæstir
Markhæstu leikmenn 1. deildar karlai
Björn Jóhannsson, Ármanni
Andrés Kristjánss., Haukum
Jón H. Karlsson, Val
Brynjólfur Markússon, ÍR
Ilaukur Ottesen, KR
Páll Björgvinsson. Víkingi
Gústaf Björnsson, Fram
Björn Pétursson, KR
Janus Guðlaugsson, FH
Arnar Guðlaugsson, Fram
Elías Jónasson, Haukum
Símon Unndórsson, KR
Viggó Sigurðsson. Víkingi
Síðustu
leikirnir
TVÖ leikkvöld eru eftir í 1.
deild karla í handknattleik. í
kvöld kl. 20.30 mætast í
Hafnarfirði FII og ÍR og á
miðvikudag ieika í Laugar-
dalshöll kl. 20 KR og Ármann
og kl. 21 Víkingur og Valur.
Verður það úrslitaleikur móts-
ins.
80
78
75
71
64
57
54
53
51
51
50
49
49
Knatlspyrna 1
Staðan 1 Reykjavikurmótinu.
Víkinxur 2 2 0 0 5,0 5
KR 2 1 1 0 5.1 4
Þróttur 2 1 1 0 3.2 3
Valur 3 1 0 2 4.3 3
Fram 1 0 1 0 0.0 1
Fylkir 2 0 1 1 0,3 1
Ármann 2 0 0 2 0,8 8
Markahæstir,
Jóhann Torlason, Víkingi 2
Páll Ólafsson. Þrótti 2
Sigurður Indriðason, KR 2
Staðan í meistarakeppninni,
Akranes 2 1 1 0 4.3 3
Valur 1 0 1 0 1.1 1
ÍBV 10 0 1 2.3 0
Leiknir
vann Þór
LEIKNIR vann sannfærandi
sigur yfir áhugalausu Þórsliði
í aukakeppni liðanna í 2. deild
karla í handknattleik á Akur-
eyri um helgina. Vann Leiknir
24,21 (10>9) og því bendir allt
til að Þórsliðið þurfi að berjast
við Breiðablik um sæti í 2.
deildinni næsta vetur. í byrjun
seinni hálfleiksins náði Leikn-
ir mjög góðum leikkafla og
breytti stöðunni úr 10.9 í 16.11
og þar með var í rauninni gert
út um leikinn. Ilafliði Péturs-
son var í miklum ham t liði
Leiknis að þessu sinni og gerðr
11 mörk.
Þór vanrs
Snæfell
ÞÓR frá Akureyri leikur í
úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik næsta vetur. Liðið vann
Snæfell frá Stykkishólmi 79.73
í síðari leik liðanna um sæti í
deiidinni á Akranesi á laugar-
daginn. Hafði Þór forystu
allan leikinn og stigahæstur í
liðinu var Mark Christansen
með 28 stig. Einar Sigfússon
gerði 21 af stigum Snæfells.
V