Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
Iramtim 6 árabama
og þeirra sem flytja
í GÆR og í dag er verið að
innrita sex ára börn eða þau
börn, sem faídd eru 1972 í skóla
borgarinnar og fer innritun fram
kl. 15—17. Jafnframt cr í dag á
sama ti'ma innritun þeirra barna
og unglinga, sem þurfa að flytj-
ast miili skóla.
Sex ára börn í Reykjavík munu
nú vera um 1450, nokkru fleiri en
í árgöngunum bæði á undan og
eftir. Þó sá árgangur sé ekki
skólaskyldur, er nú jafnmikið
orðið af sex ára börnum í skólum
og öðrum aldursflokkum, eða
nærri 100%. Öll sex ára börn, sem
geta stundað nám, eru yfirleitt
innrituð.
Jafnframt því sem sex ára
börnin eru innrituð, er mjög
áríðandi að börn og unglingar, sem
þurfa fyrir næsta skólaár að
flytjast milli skóla vegna breyt-
inga á búsetu, láti innrita sig í dag,
því að strax að innritun lokinni
verður farið að skipuleggja
bekkjafjölda og kennslumagn í
skólunum og getur orðið erfitt að
koma barni fyrir í fullsetnum
bekkjum.
Börn, sem ljúka námi í 6. bekk
Breiðagerðisskóla og Fossvogs-
skóla og flytjast í Réttarholts-
skóla, þarf ekki að innrita. Og
börn úr 6. bekk Melaskóla og
Vesturbæjarskóla, sem flytjast í
Hagaskóla ekki heldur, þar sem
aldurshóparnir flytjast í heilu
lagi.
Laker lækkar
enn fargiöld
London 17. apríl. AP.
LAKER Airways tilkynntu í dag,
að í næsta mánuði myndi flug-
félagið bjóða „ódýrustu flugfar
gjöld sem þekkzt hafa“ á nokkr-
um flugleiðum milli Bretlands,
Bandaríkjanna og Kanada.
Fulltrúaráð
verkalýðs-
félaganna í
Hafnarfirði
styður útflutn-
ingsbannið
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
verka lýðsfélaganna í Hafnar-
firði var haldinn siðastliðinn
föstudag. A fundinum var Her-
mann Guðmundsson kjörinn for
maður fulltrúaráðsins. en á aðal-
fundinum var samþykkt eftirfar-
andi ályktuni
„Aðalfundur Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði,
haldinn 14. apríl 1978, lýsir yfir
fyllsta stuðningi sínum við út-
flutningsbann Verkamannasam-
bandsins. Skorar fundurinn á
allan verkalýð landsins að taka
sem fyrst virkan þátt í baráttunni
fyrir því að fá samningana í gildi."
Eins og áður sagði var Hermann
Guðmundsson kjörinn formaður
fulltrúaráðsins, en varaformaður
Guðríður Elíasdóttir. Ritari
stjórnarinnar var kjörinn Ólafur
Ólafsson.
— Matthías A
Mathiesen
Framhald af bls. 48
gert er ráð fyrir staðgreiðslu
opinberra gjalda.
— Hvaða tekjur mega ein-
staklingar hafa án þess að
greiða tekjuskatt?
— Samkvæmt þessu frv.
verða einstaklingar með um
1500 þúsund kr. í tekjur skatt-
lausir og hjón með 2.8—3
milljónir eftir fjölskyldustærð.
Skattleysismörk miðað við
brúttótekjur eru þó hærri:
— Hverjar eru veigamestu
breytingar, sem frumvarpið
gerir ráð fyrir?
— Tvímælalaust sérsköttun
hjóna að því er einstaklinga
varðar, segir fjármálaráðherra
en í sambandi við skattlagningu
atvinnurekstrar eru það nýjar
fyrningareglur, sem stuðla að
eiginfjármyndun fyrirtækja.
Talsmaður flugfélagsins sagði
að þá yrði boðið upp á flugferðir
frá London til Chicago, Detroit,
New York og Montreal, fyrir 99
sterlingspund (um 47.000 krón-
ur), og til Los Angeles og San
Francisco fyrir 199 pund (95.000
krónur).
Farmiði frá London til New
York og til baka kostar nú 139
pund (um 66.000 krónur).
Talsmaðurinn sagði að ástæða
lækkunarinnar væri léleg sæta-
nýting á flugleiðinni Bandarík-
in-Bretland, en hins vegar hefði
fjöldi farþega hina leiðina aukizt
verulega. „Við viljum helzt fljúga
fullum vélum báðar leiðir," sagði
talsmaðurinn.
13 þátttakendur á
félagsmálanámskeiði
Ungmennafélagið Ármann í
Hörgslands- og Kirkjubæjar-
hreppi gekkst fyrir félagsmála-
námskeiði að Kirkjubæjarklaustri
dagana 1.—4. apríl og voru alls 13
þátttakendur á aldrinum 15 til 44
ára.
Á námskeiðinu var kennd ræðu-
mennska fundarstjórn, fundar-
starf, hópstarf og farið yfir flesta
aðra þætti félagsmálastarfs. Leið-
beinandi var Magnús Ólafsson,
Sveinsstöðum í A-Húnavatns-
sýslu.
— Moro tek-
inn af lífi?
Framhald af bls. 1.
Leiðtogi Rauðu herdeildanna,
Renato Curcio, hrópaði í hryðju-
verkaréttarhöldunum í Torino í
dag, að dauðadómurinn, sem félag-
ar hans hafa kveðið upp yfir Moro
væri dómur yfir allri valdastétt-
inni á Italíu.
Curcio átti við þá tilkynningu
Rauðu herdeildanna um helgina að
„réttarhöldunum gegn Moro væri
lokið og hann hefði verið dæmdur
til dauða“.
Kristilegi demókrataflokkurinn
virtist útiioka í dag nokkra
breytingu á þeirri stefnu að semja
ekki opinberlega við ræningja
Moros. Flokksstarfsmaðurinn
Giuseppe Pisanu var að því
spurður hvort skorað yrði á
ræningjana að þyrma lífi Moros og
hann sagði: „Það getum við ekki
gert. Við erum sakborningarnir."
Hann átti með þessu við yfirlýs-
ingu frá ræningjunum þar sem
þeir fordæma flokkinn.
Leitinni að ræningjunum er
stöðugt haldið áfram. Víðtæk leit
varð gerð í morgun í skógum
eyjarinnar Elbu þar sem ónafn-
greindur maður sagði að Moro
væri í haldi. Jafnframt skoraði
blaðið Osservatore Romano í
Páfagarði á ræningjana að þyrma
lífi Moros.
I Torino-réttarhöldunum var
Curcio rekinn úr dómssalnum
þegar hafði nefnt ýmsa stjórn-
málamenn, herforingja og em-
bættismenn sem hann sagði að
væru viðriðnir áform um stjórnar-
byltingu. Guido Barbaro dómari
reyndi að þagga niður í honum þar
sem fullyrðingar hans kæmu
málinu ekki við og þegar það tókst
ekki skipaði hann lögrelgumönn-
um að færa hánn út.
I kvöld skoruðu mannréttinda-
samtökin Amnesty International á
Rauðu herdeildirnar að þyrma lífi
Moros. Samtökin sögðu áskorun-
ina senda af mannúðarástæðum og
á grundvelli alþjóðlegra
mannúðarhugsjóna og laga.
— Tvö stjórnar-
frumvörp um
skattamál...
Framhald af bls. 1.
arliðum er þó fækkað. Skattgreið-
endur fá að velja á milli þess að
telja fram einstaka frádráttarliði
eða nota í þeirra stað einn
launafrádrátt, sem nemur 10% af
tekjum.
• Barnabætur verða hærri með
börnum undir skólaskyldualdri en
öðrum börnum og barnabætur til
einstæðra foreldra verða hærri en
til annarra.
Skattlagning
atvinnurekstrar
• Fyrningar og söluhagnaður.
Reglum um fyrningar og sölu-
hagnað er gerbreytt. Gert er ráð
fyrir, að fyrning skuli reiknuð af
endurmetnu stofnverði
fyrnanlegra eigna. Fyrningarhlut-
föll lækka verulega frá því sem nú
er. Söluhagnaður allra eigna er
skattskyldur án tillits til eignar-
haldstíma. Ákvæðum um útreikn-
inga hans er breytt. (Sjá nánar um
þessi atriði á bls. 18 og 19).
• Útgáfa jöfnunarhlutabréfa er
heimiluð miðað við raunverulegt
verðmæti hreinnar eignar hluta-
félags í árslok 1978 en útgáfa
jöfnunarhlutabréfa vegna eignar-
breytinga eftir það er bundin
almennum verðhækkunum.
• Arður verður skattfrjáls hjá
hluthöfum — 250 þúsund hjá
einstaklingum — 500 þúsund hjá
hjónum.
Staðgreiðslukerfið
• Frumvarpið um staðgreiðslu
opinberra gjalda gerir ráð fyrir
að tekjur skattþegns séu áætlaðar
í ársbyrjun og síðar greiði hann,
jafnótt og hann fær laun greidd,
hluta tekna sinna í áætlaðan skatt.'
í árslok fer síðan fram uppgjör og
reynizt áætlunin of lág er hann
krafinn um mismuninn, en hafi
skattar verið ofreiknaðir greiðir
skattheimtan mismuninn.
• Staðgreiðslukerfið nær til alls
15 mismunandi gjaida, tekju-
skatts, útsvars, launaskatts, að-
stöðugjalds, landsútsvars, orlofs-
fjár og skyldusparnaðar svo að
eitthvað sé nefnt.
• Samkvæmt frumvarpinu er gert
ráð fyrir, að fjármálaráðherra geti
breytt vísitölu staðgreiðsluársins
hvenær sem er á sjálfu stað-
greiðsluárinu, en gert er ráð fyrir
því að frumvarpið í þeirri mynd,
sem það er lagt fram, taki gildi frá
og með 1. janúar 1979.
Sjá nánar um skattaírumvörp-
in á bls. 18 og 19 og miðopnu.
— Allsherjar-
verkfall
Framhald af bls. 2
vestra og síðan beðið til þess að sjá
hvað úr þeim viðræðum kæmi. Það
hafi aldrei verið ætlun VMSÍ að
fyrirskipa neinu aðildarfélagi sínu
nákvæmlega hvað það myndi gera,
enda ekki á valdi sambandsins.
Vestfirðingar hefðu valið aðra leið
og þar væru bræður og systur í
sameiginlegri baráttu með mis-
munandi aðferðum. Guðmundur
kvaðst fagna því mjög að Vestfirð-
ingar stæðu ekki aðgerðarlausir í
þessari kjarabaráttu.
hvíti með 553 , Jón Helgason með
496 tonn og Garðey með 492 tonn.
Aflinn á bát frá áramótum er
liðlega 406 tonn að meðaltali.
— Mótmæli í
Grúsíu
Framhald af bls. 1.
skránni er grúsíska ríkismál en
í uppkasti að nýrri stjórnarskrá
er aðeins tekið fram að það sé
„möguleiki" að kenna grúsísku.
Aðrar fréttir herma að þess
hafi einnig verið krafizt að
grúsíski rithöfundurinn Ziviad
Gamsakhrudia, leiðtogi Hel-
sinkinefndarinnar í Grúsíu, yrði
látinn laus úr haldi. Grúsíumað-
ur sem er kominn til Moskvu
segir að mótmælaaðgerðirnar
hafi átt sér stað en þær hafi
ekki verið eins víðtækar og látið
hafi verið í veðri vaka.
— Sveik út
Framhald af bls. 2
í fyrra tilvikinu breytti piltur-
inn ávísun útgefinni af Útvegs-
banks íslands. Hljóðaði ávísunin
uppá 420 krónur en pilturinn
breytti henni í 420 þúsund krónur
og seldi síðan ávísunina í Iðnaðar-
bankanum í Hafnarfirði 6. apríl
s.l. I hinu tilvikinu breytti piltur-
inn 326 hundruð króna ávísun frá
Sjóvátryggingafélagi íslands í 326
þúsund króna ávísun og leysti
hana út hjá Útvegsbankanum í
Kópavogi. Var þetta 15. marz s.l.
Rannsóknarlögreglunni var fal-
in rannsókn þessa máls af hálfu
bankanna og leiddi rannsóknin til
handtöku piltsins, sem viður-
kénndi brot sitt sem fyrr segir.
— Sýnir styrk...
Framhald af bls. 2
1002 atkvæði, þar af 615 í fyrstu
fimm sætin, samtals 53,75%. 6.
Jóhann G. Bergþórsson 731 at-
kvæði, þar af 559 í fyrstu sex
sætin, samtals 39,21%. 7. Páll V.
Daníelsson 646 atkvæði, þar af 557
í fyrstu sjö sætin, samtals 34,66%.
8. Ellert B. Þorvaldsson 634
atkvæði, þar af 578 í fyrstu átta
sætin, samtals 34,01%. 9. Sigþór
Sigurðsson 553 atkvæði, þar af 506
í fyrstu níu sætin, samtals 29,67%.
10. Sveinn Þ. Guðbjartsson 524
atkvæði, þar af 501 í fyrstu tíu:
sætin, samtals 28,11%. 11. Trausti
Ó. Lárusson 481 atkvæði eða
25,80%. 12. Elín Jósefsdóttir 476
atkvæði eða 25,53%. Frambjóð-
endur voru 36 en kjörstjórn vildi
ekki gefa Mbl. upp frekari úrslit.
— Aflahrota
Framhald af bls. 48
berst til einnar fiskvinnslustöðvar,
en bróðurpartur aflans fer í salt.
Einnig hefur verið lagt upp afla af
einum bát hjá söltunarstöðinni
Stemmu.
Jens sagði að dagsaflinn undan-
farið hefði verið frá 170 tonnum
upp í 360 tonn og mætti segja að
þetta hefði verið ein samfelld
aflahrota allt frá því vikuna fyrir
veiðibann. Aflinn er að langmestu-
leyti fallegur þorskur og síðan
aðallega ufsi. Eins og nærri má
geta hefur verið óhemju vinna á
Höfn undanfarið og hefst naumast.
undan að verka fiskinn, t.d. munu
aðgerðarmenn hafa haft litla hvíld
svo sólarhringum skiptir. Saltað
er venjulega frá 8 á morgnana til
11 á kvöldin og frysting er frá 8
til 7, unnið alla laugardaga og svo
sunnudaga inn á milli.
Alls er búið að landa núna 15.
þ.m. 6115 tonnum frá áramótun en
í fyrra varð heildaraflinn á
vertíðinni alls 4800 tonn. Sagði
Jens að nú munaði miklu að
línuvertíðin í ár hefði verið
sérstaklega góð allt frá áramótum
og fram í marzbyrjun þegar
loðnan fór að ganga á miðin. Nú
er netaveiðin allsráðandi og alls 15
bátar sem stunda hana.
Aflahæstur Hornafjarðarbáta
nú er Hvanney með 658 tonn,
Freyr er með 572 tonn, Gissur
— Vinna að nift-
eindasprengju
Framhald af bls. 1.
allsherjarsamkomulag milli aust-
urs og vesturs um takmörkun
kjarnorkuvopna sem eftirlit verði
haft með úr gervihnöttum.
Þegar Carter forseti frestaði
smíði nifteindasprengjunnar fyrr í
mánuðinum sögðu franskir em-
bættismenn að ákvörðun Banda-
ríkjamanna hefði engin áhrif á þá
stefnu Frakka að eiga kjarnorku-
vopn.
Nifteindasprengjan er til þess
ætluð að fella óvinahermenn sem
sækja fram en skilja byggingar
eftir óskemmdar og hún hefur
mætt mikilli mótspyrnu í Evrópu
vegna uggs um að hún auki líkur
á kjarnorkustyrjöld en Frakkar
vilja greinilega halda opnum þeim
möguleika að þeir komi sér upp
nifteindasprengj u.
Yvon Bourges landvarnaráð-
herra sagði í október að Frakkar
útilokuðu enga sérstaka tegund,
kjarnorkuvopna í áætlunum sín-
um. Frakkar taka þátt í viðræðum
Bandaríkjamanna og Rússa um
takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar
(SALT), en hafa lagt fram sjálf-
stæðar afvopnunartillögur. Valery
Giscard d'Estaing forseti gerir
grein fyrir þeim hjá Sameinuðu
þjóðunum 25. maí.
— Bara tók...
Framhald af bls. 48
þegar ég fæ heifarlegan svipti-
vind undir vænginn, tek dýfu
eins og flugvél og steypist
stjórnlaust til jarðar."
Haukur kvaðst hafa lent
þannig, að nefið á flugdrekan-
um hefði fyrst komið niður og
við það hefði brotnað þríhyrn-
ingurinn, sem svifmennirnir
halda sér í. Handleggsbrotnaði
Haukur í sama mund við þetta
átak, en kvaðst síðan hafa oltið
yfir sig og hlotið þá smávægi-
legar skrámur svo og misst
meðvitund rétt sem snöggvast.
„En það er ljóst að flugdrekinn
tók allt höggið af mér og þetta
fór því allt betur enn á
horfðist," sagði Haukur.
Hann var spurður hvort það
hefði ekki verið heldur ónotaleg
tilfinning þegar sviptivindui
inn reið á hann og hann
steyptist stjórnlaust til jarðar.
„Ég veit það ekki, ég er búinn
að vera dálítið í fallhlífastökki
einnig, og þegar vindurinn
feykir mér þarna, steypist ég
beint niður að kalla má en þar
sem ég þekki þessa tilfinningu
að falla svona í lausu lofti, brá
mér satt að segja ekkert
sérlega mikið, hugsaði svo sem
ekki mikið, bara tók því sem
verða vildi.“
Haukur var þá spurður hvort
hann væri hættur flugdreka-
íþróttinni eftir þessa lífs-
reynslu. „Ég veit það nú ekki,“
svaraði hann, „en býst varla við
því. Ég er búinn að stunda
þetta töluvert. Bróðir minn
kom mér eiginléga á þetta, og
hann var að fá nýjan dreka, svo
að ég fékk þennan sem ég
brotlenti á. Eins og ég sagði þá
vill konan að ég hætti þessu, en
maður verður bara að passa sig
næst, því að það' er ansi erfitt
að hætta þegar maður er
kominn með delluna — jafnvel
þó að svona komi fyrir.“
Haukur kvaðst vera orðinn
hinn hressasti að öðru leyti en
því að læknarnir segðu honum
að hann væri nokkuð illa
brotinn á handleggnum vegna
þess hversu brotið væri nærri
úlnliðnum. Haukur er að ljúka
síðasta bekknum í fjölbrauta-
skólanum syðra, þar sem hann
er við nám í húsasmíði en
kvaðst hugga sig við að
læknarnir segðu að hann ætii
þrátt fyrir þetta slys að geta
haldið á hamri þegar frani í
sækir.