Morgunblaðið - 18.04.1978, Side 38
46
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
Portúgalskur
rádherra sæt-
ir barsmíðum
Lissabon 17. apríl. Reuter, AP.
RÍKISSTJÓRN PortÚKals hét því í dag að tekið yrði hart á málum
þeirra manna sem réðust mcð barsmíðum á varaíorsætisráðherra
Portúnals, Antonio Almeida Santos, á iaugardag. Santos var þá á
Azor-eyjum en þanKað hafði hann komið í heimsókn.
Santos skýrði portúgölsku fréttastofunni ANOP svo frá að nokkrir
menn hefðu ráðist á hann, er hann var að fara á fund hjá
Sósíalistaflokknum. Árásarmennirnir veittu Santos þung högg og
brutu KÍeraugu hans.
Stjórnin hefur sakað frelsis-
hreyfingu Azor-eyja (FLA) um að
bera ábyrgð á árásinni á Santos,
en lögregluyfirvöld á Azor-eyjum
telja líklegt að flóttamenn frá
fyrrum nýlendum Portúgals í
Afríku hafi ráðist á varaforsætis-
ráðherrann. Vitni segja að nokkrir
þekktir flóttamenn hafi verið
meðal árásarmannanna.
Færeyskt
sjónvarp
Þórshöfn, Færeyjum 17.
apríl.
LANDSSTJÓRI Færeyja,
D.P. Danielsen, lagði í
dag fram á færeyska
lögþinginu frumvarp til
laga um færeyskt sjón-
varp.
í frumvarpinu er gert
ráð fyrir að sjónvarpi
verði komið á laggirnar
eftir um 18 mánuði og
geti þá á milli 75 og 80%
Færeyinga horft á það.
Landsstjóri Azor-eyja, sósíal-
demókratinn Joao Mota Amaral,
hefur fyrirskipað rannsókn á því
hvers vegna lögregla gerði ekkert
til að hindra árásarmennina.
Santos sagði að FLA hefði varað
lögregluna við að hjálpa honum.
Santos hefur setið í flestum
ríkisstjórnum Portúgals frá því
byltingin var gerð í landinu 1974.
Hann er fyrrum ráðherra í mál-
efnum Azor-eyja og Madeira.
Um helgina var haldinn í
Lissabon flokksfundur sósíal-
demókrata en þeir eru stærsti
stjórnarandstöðuflokkur Portú-
gais, en fara með málefni Azor-
eyja og Madeira. Var á fundinum
skorað á Francisco Sa Carneiro að
taka aftur að sér formennsku
flokksins, en hann sagði henni af
sér í nóvember í fyrra á þeim
forsendum að hægfara flokksmenn
spilltu stöðu flokksins gagnvart
öðrum fiokkum.
Litið er á úrslit fundarins sem
mikinn sigur fyrir fylgismenn
Carneiro, en að sama skapi ósigur
fyrir hægfara arm flokksins undir
forystu Antonio Sousa Franco.
Urslitin þýða að Sousa Franco
er ekki lengur formaður Sósíal-
demókrataflokksins og mun nefnd
fara með forystu flokksins fram til
næsta flokksþings.
Lögregla segir að nágranni
Moritz hafi orðið vitni að mann-
ráninu og gerði hann síðan lög-
reglu viðvart.
Lokaði lögregla öllum vegum í
kringum Panker-kastala, og von
bráðar hafði henni tekizt að hafa
upp á mannræningjum Moritz.
Kom ekki til neinna átaka er
ræningjarnir voru handteknir.
Enginn mannræningjanna
þriggja hafði áður komið við sögu
vestur-þýzku lögreglunnar og ekki
er enn vitað hver tilgangur ránsins
var.
Lögregla telur að ekki hafi
verið um pólitískt mannrán að
ræða og ræningjarnir settu ekki
fram neinar kröfur um lausnar-
gjald.
Þetta gerðist
1975 — Kommúnistar
fyrirskipa brottflutning
óbreyttra borgara frá
Phnom Penh.
1974 — Egyptar hætta
við að kaupa vopn ein-
göngu af Rússum og
leita fyrir sér hjá öðr-
um.
1973 — Nixon forseti
afnemur takmarkanir á
olíuinnflutningi og boð-
ar nýja orkustefnu til að
draga úr orkuskorti.
1955 — Einstein deyr í
Princeton, New Jersey,
76 ára gamall.
1955 — Nasser verður
forsætisráðherra
Egypta.
1949 — Lýst yfir stofh-
un lýðveldisins Eire í
Dyflinni.
1942
Sprengjuflguvélar undir
forystu Doolittle hers-
höfðingja ráðast á
Tokyo og aðrar borgir í
Japan.
1941 — Mótspyrna
Júgóslava gegn
innrásarher Þjóðverja
fer út um þúfur.
1906 — Jarðskjálfti í
San Francisco; eldar
FORSETI Líbanons, Elias Sarkis, tekur á móti framkvæmdastjóra S.Þ., Kurt Waldheim, viA komu hins
síðarnefnda til forsetasetursins f Baabda. Aðrir á myndinni eru forsætisráðherra Lfbanons, Selim el-Hoss,
og utanríkisráðherrann, Fuat Butros.
5 ríki bjóða í upplýs-
ingar Shevchenkos?
Bjargað úr klóm
mannræningja eft-
ir 1 /2 klukkustund
Kiel, Vestur-Þýzkalandi 17. apríl. Reuter.
MORITZ prins af Hessen, sonarsyni fyrrum konungs ítalfu, Victors
Emanuels, var rænt 1 dag, en lögreglu tókst að bjarga honum úr klóm
mannræningjanna 90 mfnútum síðar.
Að sögn lögreglu rændu tveir Svisslendingar og ítali Moritz í býtið
f morgun frá setri prinsins, 17. aldar kastalanum Panker. Tveir
mannræningjanna brutust inn í svefnherbergi Moritz og sögðu honum
að klæða sig hið snarasta. Þvf næst neyddu þeir prinsinn með
vopnavaldi til að fara út í bifreið sfna og óku síðan á brott. Þriðji
mannræninginn fylgdi fast á hæla félaga sinna í annarri bifreið.
New York, 17. apríl.
AP — Reuter.
Aðstoðarframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sovézki
diplómatinn Arkady N.
Shcvchenko, hefur hafnað ann-
arri beiðni sovézkra yfirvalda um
að snúa aftur til Moskvu, að sögn
bandarfsks lögfræðings hans.
Lögfræðingurinn, Ernst A.
Gross, sagði fréttariturum S.þ. að
háttsettur sovézkur embættis-
maður sem hann gæti ekki
nafngreint hefði komið beiðninni
á skrifstofu hans í New York
samkvæmt skipun sovézkra yfir
valda. Sagði Gross ennfremur að
fyrri beiðni sovézkra yfirvalda
um að Schevchenko sneri aftur
hefði borist á skrifstofu hans
fyrir viku en Shevchenko væri
staðráðinn í því að fara ekki
aftur til Sovétríkjanna og yrði
áfram í Bandaríkjunum.
Sovézka sendinefndin hjá S.þ.
gaf þær yfirlýsingar í síðustu viku
að Shevchenko hefði verið beittur
þvingunum og væri fórnarlamb
aðgerða bandarísku leyniþjónust-
unnar.
Lögfræðingurinn hitti sendi-
mann Sovétmanna á skrifstofu
sinni í Wall Street og á fundinn
var einnig mættur fulltrúi frá
bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Vildi Gross alls ekki nafngreina
sovézka sendimanninn sem einnig
hitti Shevchenko.
Á fyrri fundi sovézkra yfirvalda
með Shevchenko fyrir viku reyndu
sendiherra Sovétríkjanna hjá S.þ.
og rússneski sendiherrann í
Washington að þvinga Shevchenko
til að snúa aftur til Moskvu en án
árangurs.
Sagði Gross að fundurinn í gær
hefði verið með svipuðum hætti og
miklum málalengingum. Þá hefðu
öryggisráðstafanir í sambandi við
fjölskyldu Shevchenkos komið til
tals. Sagði Gross að sovézku
sendimennirnir hefðu tekið það
skýrt fram, að Shevchenko þyrfti
ekki að óttast um fjölskyldu sína.
Shevchenko er hæst setti
sovézki embættismaðurinn hjá
S.þ. Hann er aðstoðarfram-
kvæmdastjóri öryggisráðsins og
áreiðanlegar heimildir skýra frá
því að enn sé litið á brottveru
Shevchenkos sem frí hjá S.þ. en
hann hefur tæpar tuttugu milljón-
ir ísl. króna í árslaun.
Ástæðurnar fyrir því að hann
Quinteros
efstur á
skákmóti í
Wellington
Wellington 17. apríl.
Reuter.
ARGENTÍNSKI stórmeistarinn
Miguel Quinteros tók forystuna á
laugardag í alþjóðlegu skákmóti,
sem haldið er í Wellington á
Nýja-Sjálandi.
Quinteros er efstur með sex og
hálfan vinning og aðeins tvær
umferðir eru eftir. I öðru sæti er
filippínski stórmeistarinn Eugene
Torre með sex vinninga.
neitar að snúa aftur til Moskvu
hafa enn ekki verið gefnar upp.
Lögfræðingur hans skýrði enn-
fremur frá því í dag að það yrði
gert í bréfi til sovézku sendi-
nefndarinnar en neitaði að fjalla
nánar um málið þar til
Shevchenko hefði gefist tækfæri
til að skýra þær sjálfur fyrir
yfirmanni sínum, Kurt Waldheim.
Kurt Waldheim er nú á ferða-
lagi um Mið-Austurlönd og ekki
væntanlegur til New York fyrr en
seinna í vikunni.
Eiginkona Shevchenkos hélt til
Moskvu 9. apríl s.l. og dóttir hans
fór þangað fyrir nokkrum mánuð-
um en sonur hans starfar fyrir
utanríkisráðuneytið í Moskvu.
Ekki vildi Gross fjalla um
staðhæfingar tímaritsins Time, en
í nýjasta tölublaði þess segir, að
Shevchenko hafði verið í stöðugu
sambandi við bandarisku leyni-
þjónustuna s.l. tvö ár. Ennfremur
segir í Time-greininni að
Shevchenko fari fram á eitt
hundrað þúsund Bandaríkjadali
fyrir að gefa upplýsingar sem
hann búi yfir um hvort það hafi
verið CIA eða FBI, sem KGB hafi
matað á röngum upplýsingum.
Sagði Time ennfremur að hafnaði
bandaríska leyniþjónustan tilboði
Shevchenkos hefðu leyniþjónustur
fimm annarra ríkja haft samband
við hann um kaup á upplýsingun-
um.
Time hafði það eftir háttsettum
bandarískum embættismanni að
Shevchenko væri búinn að koma
sér í ágætis aðstöðu, vitandi það
að Bandaríkjastjórn hefði að
sjálfsögðu áhuga á upplýsingum
frá honum. Hins vegar yrði Carter
forseti að ákveða hvort þær væru
hundrað þúsund dala virði.
næstum eyða borginni
og 700 farast.
1864 — Danskur liðsafli
sigraður við Duppel og
þýzkar hersveitir ráðast
inn í Danmörku.
1847 — Bandaríski
hershöfðinginn WinfieJd
Scott tekur Cerro
Gordohæð í Mexíkó.
1775 — Paul Revere
leggur upp í fræga reið-
ferð í Massachusetts til
að vara við því að
„Bretarnir séu aö
koma.“
1663 — Tyrkir segja
Leopold I stríð á hendur.
Afmæli dagsinsi
Leopold Stokowski,
enskfæddur hljóm-
sveitarstjóri
(1882-1977) Franz von
Suppé, austurrískt tón-
skáld (1819-1895).
Orð dagsinsi Orð eru
meðal annars nytsamleg
til að dylja hugsanir
okkar Voltaire, franskur
heimspekingur
(1694-1778).
Rússi rekinn frá
Spáni fyrir njósnir
Madríd 17. apríl. Reuter.
TILKYNNT var í dag, að spænsk
yfirvöld hefðu ákveðið að vísa
sovézkum sendiráðsmanni úr
landi fyrir njósnir. Þetta er þriðji
Rússinn sem rekinn er frá Spáni
á rétt rúmu ári.
Ákvörðun stjórnvalda kemur
aðeins tveimur dögum fyrir fyrsta
þing spænska kommúnistaflokks-
ins frá því borgarastyrjöldinni
1936-39 lauk.
I marz í fyrra var sovézkur
viðskiptaráðunautur rekinn úr
landi og í júlí sama ár var
starfsmaður sovézks skipafyrir-
tækis beðinn um að yfirgefa Spán.
Þá skýrði spænskt tímarit frá
því í desember, að fjórði Rússinn
hefði verið kallaður heim til
Moskvu áður en honum var vikið
úr landi.