Morgunblaðið - 18.04.1978, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
47
Araf at heitir Kurt
W aldheim aðstoð
Beirút 17. apríl. Reuter.
PALESTÍNUSKÆRULIÐAR fulP
vissuöu Kurt Waldheim, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð
anna. um það í dag, að þeir
myndu ckki trufla tilraunir
gæzluliða S.Þ. til að flýta brott-
flutningi ísraelsmanna frá Suð-
urLíbanon.
Waldheim, sem gagnrýnt hefur
hægan brottflutning Israels-
manna, sagði við blaðamenn að
Yasser Arafat hefði fullvissað sig
um að Palestínuskaeruliðar myndu
aðstoða gæzluliðana við friðar-
gæzlustörf í Líbanon.
Hins vegar sagði Waldheim ekki
Framhald á bls. 31
Líkí Chaplins rænt
af trúarástæðum?
Los Angeles, 17. apríl AP.
„LÍKI Chaplins var ekki rænt úr gröfinni í svissneskum kirkjugarði
í auðgunarskyni heldur vegna þess að Chaplin var gyðingur," sagði
dagblaðið Herald-Examiner í Los Angeles í dag.
Blaðamaðurinn James Bacon sagðist hafa það frá áreiðanlegum
heimildum að líkþjófnaðurinn hefði verið af hreinum trúarástæðum,
því fjölskylda hins látna hefði ekki verið krafin um peninga og frú
Chaplin hefði verið skýrt frá því hvar líkið væri niður komið.
Sagði blaðamaðurinn, að hann
vissi ekki hvað frú Chaplin hefði gert
við líkið og hún væri ófáanleg til að
gefa upplýsingar þar að lútandi.
Sagði Bacon ennfremur að heimildir
sem ekki mætti nafngreina hefðu
skýrt frá því að fólk, sem ekki væri
gyðingatrúar og ætti ættingja
grafna í kirkjugarðinum
Corsier-sur-Vevey hefði látið mót-
mæli sín í ljós með því að fjarlægja
lík Chaplins úr gröf sinni.
Chaplin sem lézt á jóladag á s.l. ári
88 ára að aldri var fæddur gyðingur.
Borgarstjórinn í Corsier-sur-Vé-
vey skýrði frá því í dag að engar
Þúsundir
sofa úti
Palermo, 17. apríl. AP.
HUNDRUÐ þúsunda höfðust
við úti undir beru lofti í
Palermo, Catania, Messina og
annars staðar á Sikiley í nótt,
aðra nóttina í röð, af ótta við
nýja jarðskjálfta. Fimm fórust
í jarðskjálftum í gær og gömul
hús hrundu. Tugir slösuðust.
Clay hers-
höfðingi
lézt í gær
Chatham, Massachusetts,
17. apríl AP.
LUCIUS O. Clay, hershöfðingi,
varamaður Dweight D. Eisen-
howers í Evrópu í heimsstyrjöld-
inni síðari, og maðurinn sem
skipulagði loftbrúna til Berlínar,
lózt í dag að heimili sínu,
áttræður að aldri.
Clay var útnefndur varaher-
námsstjóri í Þýzkalandi árið 1946,
og áriö eftir var hann geröur að
yfirhershöföingja bandaríska
hersins í Evrópu sem og yfirmanni
bandaríska hernámsliðsins í
Þýzkalandi.
Hann skipulagöi loftbrúna til
Berlínar, sem komið var á er
Sovétmenn ætluöu að neyöa
Bandaríkjamenn, Breta gg Frakka
til aö yfirgefa Berlín. Clay hætti í
hernum 1949.
reglur væru til um það hverja mætti
grafa í kirkjugarðinum og þar hefðu
margir gyðingar verið jarðsettir. Þá
sagði borgarstjórinn ennfremur að
þótt Chaplin hefði fæðst gyðingur
hefði hann allt sitt líf stutt ensku
kirkjuna, þótt hann hefði ekki verið
meðlimur hennar. Presturinn, sem
jarðsetti Chaplin sagði að hann hefði
ekki tilheyrt neinum trúarhópi
opinberlega þegar dauða hans bar
að.
Að því er Herald-Examiner skýrði
frá, var eiginkonu Chaplins, Oonu,
gert viðvart um hvar líkið væri niður
komið innan sólarhrings frá ráni
þess. Fjár var ekki krafist að sögn
blaðsins þótt vitað sé að landareign
Chaplins heitins sé metin á hundrað
milljónir Bandaríkjadala.
Veður
víða um heim
Amsterdam 9 bjárt
Apena 19 skýjað
Bertín 12 skýjað
BrUssel 9 skýjað
Chicago 9 skýjaö
Frankfurt 9 snjókoma
Genf -2 skýjað
Helsinki 7 sólskin
Jóhannesarb. 20 sólskin
Kaupmannah. 10 sólskin
Lissabon 17 skýjað
London 10 sólskin
Los Angeles 17 bjart
Madrid 20 sólskin
Malaga 23 skýjað
Miami 25 bjart
Moskva 14 bjart
New York 15 bjart
Ósló 9 skýjaö
Palma, Majorca 16 bjart
París 9 skýjaö
Róm 11 skýjað
Stokkhólmur 10 sólskin
Tel Aviv 23 bjart
Tokyó 20 skýjað
Vancouver 10 skýjað
Vín 7 skýjað
í GÆR ítrekuðu ftölsk stjórn-
völd þá ákvörðun sína, að ekki
yrði samið við ræningja Aldo
Moros, sem dæmdu hann til
dauða s.l. laugardag eins og
fram hefur komið í fréttum.
í símaviðtali við Morgun-
blaðið f gær sagði Hilmar
Kristjónsson, starfsmaður hjá
Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna f Róm, að ákvörðun
ftalskra stjórnvalda byggðist á
þvf að semdu þau við ræningja
Moros' væru þau um leið að
viðurkenna starfsemi þeirra.
„Svo virðist sem Vatíkanið
hér sé að reyna að ná sambandi
við ræningja Rauðu herdeild-
anna, sem gætu allt eins verið
fasistar,“ sagði Hilmar.
„Öngþveitið er orðið slíkt að
pólitíkin er komin í heilan hring
en er ekki á láréttri línu eins og
almennt gerist og gengur. Hér
virðist ekki lengur um að ræða
hægri eða vinstri öfgasinna,
maóista eða kommúnista, held-
ur það sem fólk kallar „extra
parlamentari", öfgasinnaða
hópa sem eiga ekki fulltrúa á
þingi, eru á móti þingi og vilja
brjóta stjórnkerfið niður þótt
enginn viti hvað þeir vilja
Þetta-er
fréttatil-
frétta frá
Rauðu her
deildunum,
sem
skýrir frá
því að Aldo
Moro fyrr-
verandi for-
for-sætis-
for-sæ hafi
verið dæmd-
ur til
dauða.
Frétta
tilkynn
ingin
var send til
dagblaða f
Róm, Tór
fnó, Mflanó
og Genúa í
gærkvöldi.
99
Græða ekkert á því
að drepa Moro strax”
-segir Hilmar Kristjónsson i Róm
byggja upp í staðinn, allra síst
þeir sjálfir.
Lögreglueftirlit hefur verið
geysistrangt hér undanfarinn
mánuð eða frá því að Moro var
rænt og þannig fann lögreglan
til dæmis mann nokkurn sem
rænt hafði verið af einhverri
smámafíu í auðgunarskyni.
Almennt er álitið að Moro sé
enn á lífi enda er ræningjum
hans lítill hagur í því að drepa
hann strax og því lítur út fyrir
að spennan haldist enn um hríð.
Kröfur þeirra hafa verið það
óákveðnar að stjórnvöld vita
eiginlega ekki hvernig þau eiga
að bregðast við þeim.
Ræningjarnir heimta að
fjórtán meðlimir Rauðu her-
deildanna sem eru í haldi í
Tórínó verði látnir lausir, þar á
meðal einn aðalmaður þeirra,
Cursio. Stjórnvöld hafa ákveðið
að réttarhöldunum í Tórínó
verði haldið áfram með venju-
legum hraða, sem á ítalska vísu
er hægur.
Hefur ítalska stjórnin með
þessu tekið sömu afstöðu í
málinu og þýzk stjórnvöld forð-
um í sambandi við ránið á
Schleyer. Kristilegir demókrat-
ar hafa skýrt frá því að einskis
verði látið ófreistað til að ná
Moro heilum á húfi úr höndum
ræningjanna og segjast meira
að segja reiðubúnir að kaupa
Moro lausan."
Samúð með Moro er þó nokk-
uð blandin. Þótt hér sé um að
ræða einn virtasta stjórnmála-
mann Ítalíu taldi Hilmar að
bréf þau, er hann hefði verið
þvingaður til að skrifa, bæði til
fjölskyldu sinnar og annarra
Framhald á bls. 31
Njósnatækin í Himalayafjölliim:
Indlandsstjóm
vissi um tækin
Nýja Delhi 17. apríl.
Reuter.
INDLANDSSTJÓRN lýsti pví yfir í
dag aö Bandaríkjamenn heföu haft
full samráð við indversk stjórnvöld
pegar peir komu fyrir kjarnorku-
knúnum njósnatækjum í Hímalaya-
fjöllum til að geta fylgzt með
kínverskum eldflaugaæfingum árið
1968.
McKinney og May
flúin til Kanada
London 17. apríl. AP. Reuter.
LÖGREGLA tilkynnti í dag aö verið
gæti að Joyce McKinney, fyrrver-
andi fegurðardrottning, og vinur
hennar Keit May heföu flúiö til
Kanada á miðvikudag. Þau voru
látin laus gegn tryggingu í síðustu
viku, og áttu að tilkynna sig á
lögreglustöð á hverjum degi.
Ekkert hefur til þeirra spurzt síðan
á miövikudag, en lögreglan segir að
par sem svari til lýsingarinnar hafi
farið með flugvél frá Shannon-flug-
velli á írlandi áleiöis til Toronto og
Montreal á miðvikudag. Herma
fregnir að skötuhjúin hafi þótzt vera
heyrnarlaus og mállaus.
Leigubifreiöarstjóri hefur einnig
sagzt hafa ekið pari frá húsi því er
McKinney bjó í í Noröur-London til
járnbrautarstöövar í London á mið-
vikudagsmorgun.
McKinney og May eiga aö koma
fyrir rétt á næstunni sökuö um að
Framhald á bls. 31
Þá viöurkenndi forsætisráöherra
Indlands, Morarji Desai, að eitt
njósnatækjanna, sem knúið er
plútóníum 238, væri týnt í snævi-
Þöktum tindi fjaUsins Mount Nanda
Devi, sem er 7.816 metra hátt.
Hins vegar vísaði Desai á bug
fullyrðingum bandarísks tímarits um
aö veriö gæti aö plútóníumiö læki út
og mengaði ána Ganges. Ganges á
upptök sín skammt frá Mount Nanda
Devi.
Desai sagöi aö þrír ráöherrar,
Jawaherlal Nehru, Lal Bahadur
Shastri og Indira Gandhi, heföu
aöstoöaö Bandaríkjastjórn viö þess-
ar aögeröir á árunum 1964—‘68.
Desai sagöi ekki berum orðum aö
tækin heföu verið notuö til aö njósna
um eldflaugatilraunir Kínverja, en
engum sem hlutstaói á orö Desais,
duldist hver tilgangur njósnatækj-
anna hefði verið. Kínverjar og
Indverjar háöu stríð út af landamær-
um sínum 1962.
Forsætisráöherrann sagöi, að
njósnatækiö heföi týnzt áriö 1965 í
snjóflóói í Mount Nanda Devi. í
tækinu voru um eitt og hálft kíló af
plútóníum.
Árið 1967 var ööru njósnatæki
komið fyrir á svipuöum slóöum, og
starfaöi þaö alveg eðlilega í eitt ár,
en var þá fjarlægt og flutt til
Bandaríkjanna. Telja fréttaskýrendur
líklegt aö njósnagervihnöttur hafi
tekið viö hlutverki þess tækis.
Desai sagöi að nokkrar tilraunir
heföu verið geröar til að finna týnda
njósnatækið en þær heföu allar fariö
út um þúfur.
Rannsóknir hafa veriö geröar á því
hvort vatn Ganges væri mengaó af
plútóníum, en niöurstööur bentu til
þess aö svo væri ekki.
Sagöi Desai aö hann sæi enga
ástæöu til aó óttast mengun og aö
ólíklegt væri aö plútóníumiö hefði
nokkur áhrif á íbúa í nágrenni Mount
Nanda Devi.
Desai neitaði algjörlega aö banda-
ríska leyniþjónustan CIA eöa ind-
verska leyniþjónustan heföu átt
nokkurn hluta aö máli, en sagöi að
„vísindastofnun í Indlandi heföi
komið njósnatækjunum fyrir".
Fréttaskýrendur í Nýju-Delhí veltu
því fyrir sér í dag hvort veriö gæti aö
fréttin um njósnatækin heföi veriö
látin leka út í Bandaríkjunum til aö
klekkja á Indíur Gandhi. Gandhi sem
felld var í kosningum fyrir ári, vinnur
nú hvern kosningasigurinn á fætur
öörum og viröist til alls líkleg.