Morgunblaðið - 19.04.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 1978
3
ch""
Haukur Björnsson, framkvæmda-
stjóri Félags ísl. iðnrekenda:
Endurmat eigna
grundvallaratridi
HAUKUR Björnsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenzkra iónrekenda
sagði petta um hió nýja skattalaga-
frumvarp:
„í fljótu bragöi sýnist mér helztu
kostir frumvarpsins felast í því að
eignir fást uppfæröar til raunverulegs
verðmætis eða því sem næst og
mynda þannig metnar grundvöll
afskrifta. Þessu fylgir að söluhagnað-
ur verður ætíð skattskyldur, en það
tel ég eölilegt, þegar þessar forsend-
ur eru fyrir því. Þetta atriði laganna
tel ég þaö langmikilvægasta, því aö
með því er í fyrsta skipti í skattalög-
um reynt að taka tillit til þess
efnahagsástands, sem ríkir í landinu.
Ef þetta reynist svo, sem mér sýnist
við fyrstu sýn, þá skiptir það miklu
fyrir atvinnureksturinn.
Önnur atriði frumvarpsins eru mjög
í svipuöum dúr og núgildandi skatta-
lög kveða á um. Samfara ákvæöinu
um aö heimilt sé aö færa upp eignir
fyrirtækisins, eru skert ákvæöi um
greiöslu arös án skattskyldu, þ.e.a.s.
þar er um að ræða lækkun úr 10%
niður í 5% hjá arögreiöanda, en nú
verður 10% arður skattfrjáls hjá
viðtakanda upp aö tiltekinni fjárhæð,
sem er 250 þúsund krónur. Þetta tel
ég eðlilegt, því að þegar búiö er að
færa upp eignirnar og heimitt er að
gefa út jöfnunarhlutabréf, þá er þetta
fariö aö nálgast þaö aö veröa
sambærilegt við vísitölutryggö bréf,
sem ætti að hvetja fólk til þess að
láta fjármagn í atvinnurekstur, þótt
skattfrjáls arður sé eigi hærri en
10%. í raun er ávallt spurning, hvort
nægilegt tillit sé tekið til áhættu í því
efni. Það er atriði, sem ekki er hægt
að meta almennt. Slíkt verður að
meta í hverju tilviki."
Þorvarður Elíasson, framkvæmda-
stjóri Verzlunarráðsins:
Merk nýmæli um skatt-
lagningu fyrirtækja
ÞORVAROUR Elíasson, fram-
kvæmdastjóri Verzlunarráós is-
lands, hafói petta um skattalaga-
frumvarpið að segja:
„Hiö nýja skattafrumvarp fjármála-
ráðherra inniheldur einhver merkustu
nýmæli, sem fram hafa komið á
síðustu áratugum varöandi skatt-
lagningu fyrirtækja.
Frumvarpið gerir hvorttveggja aö
færa stjórnvöldum nýtt hagstjórnar-
tæki, sem beita má í baráttunni gegn
verðbólgunni og það gefur fyrirtækj-
unum aukna möguleika á aö lifa
veröbólguna af, ef svo fer aö ekki
takist alveg aö ráöa niöurlögum
hennar.
Á síöustu veröbólguárum hefur
eigin fé fyrirtækja rýrnað verulega
þar sem hagnaöur fyrirtækjanna
hefur ekki getaö haldið í við hvort-
tveggja, verðbólguna og skatt-
greiöslur til ríkissjóðs. Því eru
takmörk sett, hversu' langt megi
ganga á slíkri braut, án þess aö
afkastageta fyrirtækjanna skerðist.
Að mínu áliti væri þess skammt aö
bíöa, að starfsemi tslenzkra fyrir-
tækja lamaöist aö óbreyttu ástandi.
Framkomið skattafrumvarp er bæði
mikilvægt og lagt fram á elleftu
stundu.
Nú þessa dagana eru samtök
atvinnulífsins aö vinna að sameigin-
legri umsögn um einstök atriöi
frumvarpsins og tel ég rétt aö bíöa
meö allar frekari umræöur um málið
þar til því er lokið.“
Patreksfjörður:
Framboðs-
listi sjálf-
stæðismanna
Patreksfirði, 18. apríl
ÁKVEÐINN hefur verið fram-
boðslisti sjálfstæðismanna á
Patreksfirði við væntanlegar
hreppsnefndarkosningar og cru
sjö efstu sætin þannig skipuði
1. Hilmar Jónsson sparisjóðs-
stjóri, 2. Stefán Skarphéðinsson
fulltrúi, 3. Ingólfur Arason
kaupmaður, 4. Jón Hilmar Jónsson
hreppsstjóri, 5. Erna Sveinbjörns-
dóttir kennari, 6. Heba A.
Ólafsson hótelstýra, 7. Pétur
Sveinsson lögregluþjónn.
Til sýslunefndar Bragi Ó. Thor-
oddsen vegaverkstjóri og til vara
Ingólfur Arason kaupmaður.
- Páll.
Erla Jónsdóttir
Arnar Guðmundsson
Skipadir deildarstjórar vid
Rannsóknarlögreglu ríkisins
LÖGFRÆÐINGARNIR Arnar
Guðmundsson og Erla Jónsdóttir
voru í gær skipaðir deildarstjórar
við Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Erla hefur verið settur deildar-
stjóri um nokkurra mánaða skeið
cn Arnar hefur vcrið fulltrúi við
sakadóm í ávana- og fíkniefna-
málum undanfarin ár. Tekur
hann við deildarstjúrastöðu. sem
Örn Ilöskuldsson var settur í.
Erla Jónsdóttir er 33 ára gömul
og fædd í Reykjavík, dóttir Jóns
Þórðarsonar endurskoðanda og
k.h. Sigurveigar Þóru Kristmanns-
dóttur. Hún varð stúdent frá MR
1965 og lagaprófi lauk hún frá
Háskóla Islands 1972. Hún varð
fulltrúi við sakadóm Reykjavíkur
í ársbyrjun 1973 og starfaði þar
uns hún hóf störf við Rannsóknar-
lögreglu ríkisins í fyrra.
Erla er gift Jóni B. Hafsteins-
syni.
Arnar Guðmundsson er 31 árs
gamall og fæddur í Reykjavík,
sonur Guðmundur Hermannsson-
ar yfirlögregluþjóns og k.h. Her-
borgar Júníusdóttur. Hann varð
stúdent frá MR 1967 og lagaprófi
lauk hann frá Háskóla Islands
1973.
Jafnframt námi starfaði
Arnar við Búnaðarbanka Islands
en frá 1973 hefur hann verið
fulltrúi við sakadóm í ávana- og
fíkniefnamálum.
Kona Arnars er Auður Kolbrún
Sigurjónsdóttir og eiga þau tvö
börn.
smurosturnir í bordöskjunum:
veizlukostur
til daglegrar neyzlu
Næringarcfni í lOOg
af smurosti t
Prótín 16 g x
Fita 18 g ^
Kolvetni 1 g
Steínefni alls 4 g
('þar af Kalsíum 500 mg)
Hitaeiningar 230
Mynd um ævi og störf
Snorra Sturlusonar
ÍSLENZKA Ríkisútvarpið
mun láta gera kvikmynd um
ævi og störf Snorra Sturlu-
sonar í tilefni af 800 ára
fæðingarafmæli hans, — í
samvinnu við norrænar sjón-
varpsstöðvar einkum þá
norsku. Þetta kom fram í
máli Ellerts B. Schram á
Alþingi í gær.
Jónas Árnason bar fram
fyrirspurn til menntamála-
ráðherra, hvort og hvern veg
hátíðarbrigði yrðu í tilefni
„stórafmælis Snorra Sturlu-
sonar", en talið er að 800 ár
séu liðin frá fæðingu hans á
líðandi ári. Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamála-
ráðherra svaraði á þann veg,
að slík hátíðabrigði væru til
umræðu, en enn væri ekki
ákveðið með hvaða hætti til
yrði stofnað. Mat mitt er,
©
INNLENT
sagði ráðherra, að það beri að
gera á látlausan en virðuleg-
an hátt. Ekki ætti að endur-
taka stóra Snorrahátíð að
Reykholti. Skemmtilegar og
fróðlegar umræður urðu um
þetta mál, mitt í lokahrinu
þingstarfanna, sem raktar
verða lítillega á þingsíðu Mbl.
síðar.
Símaskráin
senn afhent
SÍMASKRÁIN 1978 er komin
út ok verður afhent símnotend-
um í Reykjavík, Kópavoni og
Ilafnarfirói frá og með mánu-
deginum 24. apró nk. en í
gildi gengur skráin sunnu-
daicinn 7. maí n.k.
Upplag símaskrárinnar er
um 100 þúsund eintök. Brot
skrárinnar er óbreytt frá 1977.
Þá hefur Póst- og símamála-
stofnunin vakið athygli á skrá
yfir númer neyðar og öryggis-
síma, sem birt er á forsíðu
kápunnar innanverðri, og
einnig á baksíðu. Símaskráin
verður send út um land næstu
daga.
RARÍK-stjórn-
in skipuð
IÐNAÐARRÁÐHERRA hefur
skipað í stjórn Rafmagns-
veitna ríkisins til næstu
fjögurra ára og sitja í stjórn-
inni eítirtaldir menni
Pálmi Jónsson alþingis-
maður, Akri A-Húnavatns-
sýslu, formaður, Aðalsteinn
Guðjohnsen rafmagnsstjóri
Reykjavík, samkvæmt tilnefn-
ingu Sambands ísl. rafveitna,
Axel Kristjánsson forstjóri,
Hafnarfirði, Hjalti Þorvarðar-
son rafveitustjóri, Selfossi og
Jón Helgason alþingismaður,
Seglbúðum, V-Skaftafellssýslu.