Morgunblaðið - 04.05.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978
39
Þórður Jónsson, Látrum:
bórður Júnsson.
Veturinn horfinn með sínum
löngu og dimmu nóttum frosti og
fjúki, en sól og sumar tekið við.
Veturinn hér á vestur horni
landsins má telja góðan, en þó
óstilltur til sjávarins og sér
einkenni hans þau helst að segja
má að aldrei hafi slegið niður
austnorðan roki á Vestfjarðamið-
um norðanverðum, en oft suðlæg-
ari áttir mátt sín meira á sunnan-
verðum Vestfjörðum. Veður til
sjósóknar og flugs, hefir því oft
verið óhagstætt, svo sóknin hefir
verið hörð, eins og oftast er hér á
Vestfjörðum. En nú er þetta
afstaðið í bili og sumarkoman
brosir við okkur sínu besta í dag,
og leysir það frostband sem tengdi
saman sumar og vetur síðastliðna
nótt, með sól og blíðlátri Hafrænu,
sem á að vita á gott sumar, um það
er eftir farandi staka í hinni
Alþíðleguveðurfræði sem út var
gefin 1919 eftir Sigurð Þórólfsson:
Frjósi sumars fyrstu nótt
fargi engin á né kú.
Gródakonum gerist rótt,
gott mun verða undir bú.
Samgöngur>
Mjög illa gekk oft með flug á
liðnum vetri, en flugið er aðal-
þátturinn í samgöngunum að
vetrinum við fjarlæga staði, og
mér virtist oft flogið við slæm
skilyrði, einkum á litlu vélunum,
svo að ég ætla að stundum hafi
ekki mátt miklu muna eða mikið
út af bera. Snjóþungt var líka um
tíma, og þá oft lokað, en oft,
sennilega oftast, miklu verra. En
það er sama sagan, ár eftir ár, það
eru sömu smáspottarnir, 50—100
metrar, sem loka veginum, og sem
oft er mjög auðvelt að laga með
nútíma tækni og þarf oft ekki til
nema jarðýtu nokkrar klukku-
stundir, svo þar væri snjólaust
flesta vetur, í stað þess að þar
lokast í hverjum skaflbyl. Með því
að líta meira til þessara smáu en
fjölmörgu galla á vegakerfi dreif-
býlisins mætti spara stórfé í
snjómokstri og veita mun betri og
öruggari þjónustu. En hvers vegna
er það ekki gert
Búfé og fóðuri
Nýafstaðin er hér hin hefð-
bundna skoðun á búfé og fóður-
birgðum, það eru tveir valinkunnir
menn sem framkvæma það verk í
hverri sveit, vor og haust, og gefa
um það skýrslur til hins opinbera,
einnig líta þeir til heilbrigðs
búfjár, svo að þetta er ábyrgðar-
mikið starf. Fóðurbirgðir voru hér
nægar og fénaður í góðu standi, en
umhriða og umgengni sjálfsagt
þokkaleg. Skoðunarmenn gefa
einkunnir í því sem fóðrun og
annarri umhirðu.
Veiðiskapur«
Hrognkelsaveiði er nú um það
bil að hefjast hér í sveit, en litlir
fyrirborðar um að sú gráa sé
komin á miðin að nokkru ráði.
Veiðimenn hér virðast sammála
um, að ekki ætti að hefja hér
veiðar fyrr en 5.—10. maí, til þess
að grásleppan geti gengið í friði á
sín hefðbundnu hrygningarsvæði.
Engin veiði mundi tapast við það,
en meira öryggi fyrir viðhald
stofnsins á hverjum stað. Og
einnig það, að eftir 10. maí er
hreinn viðburður að fá æðarfugl í
netin, því þá er hann yfirleitt
sestur upp, en sé byrjað mánuði
fyrr, þá er það nokkurt magn sem
ferst í netunum.
Vafasamt er hvort nokkuð verð-
ur um selveiði hér á þessu vori
vegna verðfall.s á skinnunum,
nema úr rætist með sölumögu-
leika.
Þjóðmált
Óvenjumikið finnst mér fylgst
með því sem er að gerast í
þjóðmálunum, og finnst flestum
nóg um, og svo fram af fólki
gengið að það deilir ekki lengur
um þessi mál, því það virðist ekki
um neitt að deila. Vandræðin
virðast alls staðar vaða uppi en
fæst þeirra verða leyst nema með
samstöðu þjóðarinnar allrar, en
samstöðuna vantar, úrræðin verða
því fálmkennd og festulaus.
Háttvirt Alingi virðist bara vera
hópur fólks sem hefur það gott án
þess að gera kröfur eða fara í
verkfall, en þannig er það ekki
með alla hópana. Hver þrýsi-
hópurinn eftir annan tekur valdið
í sínar heldur og setur sín eigin
lög, eða ólög, setur hina rétt
kjörnu og sterku ríkisstjórn upp
við vegg og setur henni valkosti,
allt virðist leyfilegt. Afleitt ástand
í stjórnarháttum smáþjóðar.
„Allir eru að
gera það gott
nema ég“
Flestir vilja fá meiri peninga til
að geta lifað eins og þeir á
toppnum, við það er míðað, og þeir
á toppnum telja sig þurfa verulega
meir en þeir á sléttunni, jafnvel
5—10 falt meira, til þess að geta
staðið nokkrum þrepum ofar í
lífsgæðastiganum sem tilsvarar
stöðunni. Allir kveina og kvarta,
þó læðist að manni grunur um, að
allir hafi ekki ástæðu til að kvarta,
þegar litið er til þeirra lífskjara
sem fólk getur veitt sér um land
allt til sjávar og sveita. Öllum
almennum kjaradeilum, sem ég
man til, hefir verið hrunið af stað
í þeim góða og göfunga tilgangi að
fá hækkuð laun hinna lægst
launuðu. En upp úr því að deilunni
lauk og aðilar höfðu tekist bros-
andi í hendur yfir góðum, eða
Framhald á bls. 55
VERÐ:
20“ kr. 288.000—
22“ kr. 332.000—
26“ kr. 375.000—
26“ m/ljarst. kr. 427.000—
* "
©Ð
ÐO
In-Line myndlampi (RCA), Kalt Eini
Snertirásaskipting, Spennuskynjari,
Möguleikar fyrir Plötu og myndsegul
■ •
Sölustaður:
TH. GARÐARSSON HF.
Vatnagörðum 6. Sími: 86511 (2 línur)
'
Viðgerðaþjonusta:
Radio og Sjónvarpsverkstæðið
Laugavegi 147. Sími: 23311
UTVARPSVIRKJA
MEISTARI
Hugleiðing við sumarkomu