Morgunblaðið - 04.05.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978
45
„Það er svo margs að
minnast. En hann bað mig
oft að syngja fyrir sig sálma
er hann hafði sérstakt
dálæti á, bæði eftir hann
sjálfan og aðra. Og það er á
vissan h£tt honum að þakka,
eða kenna, að ég fór að safna
þessum úrklippum sem þú
hefur áhuga á: Afi minn gaf
mér nefnilega afmælisgöf
eitt sinn er ég var barn. Það
var blað sem uppáhalds-
skáld mitt í þá daga, H.C.
Andersen, hafði áritað og
gefið afa mínum er leiðir
þeirra lágu saman af
tilviljun: Afi var viðstaddur
minningarathöfn um tón-
skáldið Hartmann, og þar
sátu þeir saman afi og H.C.
Andersen. Andersen hafði
ort minn ingarljoð um tón-
skáldið sem var prentað og
dreift á meðal þeirra er
athöfnina sóttu. Andersen
var með blað þetta í höndun-
um og skrifaði nokkrar línur
á það til afa. Blaðið, eða
afmælisgjöfina, varðveitti
ég eins og sjáaldur auga
míns, og má kannski segja,
að það hafi verið fyrsti vísir
að safni því er ég hefi verið
að draga að mér alla ævi. Nú
á ég úrklippusafn um bók-
menntir, ritdóma, tónlist,
málaralist, og yfirleitt allt
annað er ég hefi áhuga á.
Sumt af þessu er í kössum,
sem ég þarf að fara í
gegnum fyrr en síðar, og
ganga frá.“
BLM: En hver er
tilgangurinn?
„Þetta er bara tómstunda-
iðja. Kannski hefur einhver
gaman af þessu seinna
meir.“
BLM: Er eitthvað gert
opinberlega í þessa veru?
„Mér er alveg ókunnugt
um það, og raunar ókunnugt
hvað verður um safnið þegar
þar að kemur. Kannski
kærir sig enginn um þetta!?“
Þessa mynd af Jórunni Viðar tónskáldi fann ég í erlendu
tónlistartímariti. segir Guðrún. Hún segist ekki halda að Jórunn
hafi hugmynd um að mynd þessi hafi verið birt, og bað blm. að
koma Jórunni á óvart. méð þakklæti fyrir allt gamalt og gott!
Jórunn er þarna ásamt samnemendum sínum við Julliard-skólann
í New York.
Mynd þessi úr safni Guðrúnar á sennilega eftir að verða söguleg
í meira lagi. Hún sýnir, að sögn fyrstu spor Þorgerðar
Ingólfsdóttur á söngkennslubraut» og það í eiginlegri merkingu,
því þetta mun vera fyrsta kennslustund Þorgcrðar er hún var
kennaranemi í Söngkennaradeild Tónlistarskólans.
Ilér er söguleg mynd af Hljóðfærasveit Menntaskólans á Akureyri.
Aftaná myndina hefur Guðmundur Matthíasson skrifað eftirfar-
andi línur til Guðrúnar. „Hér kemur hljóðfærasveit M.A. Sá er við
trumbuna situr er sonur Júlíusar sýslumanns Hafsteins, sá hinn
Ijóshærði sem á gígjunni heldur er líka sonur hans. Dirigcntinn
Guðmund þekkir þú.“ Guðrún segir enn fremur að „spil þeirra
félaga hafi sett svo mikið fútt í mannskapinn á þessum árum, að
það hafi orðið til þess m.a. að M.A. kvartettinn var stofnaður.“
Aðgöngumiða þennan
fann Guðrún í dóti uppá
háalofti sem einn leigj-
andi hcnnar hafði ekki
hirt um að hafa með
sér. Þetta mun vera
aðgöngumiði að fyrstu
tónleikum íslenska
stúdentakórsins í Dan-
mörku. Guðrún telur
ekki ósennilegt að þeir
muni einnig vera fyrstu
tónleikar íslensks kórs
erlendis.
i
i
t
Odd-Fellow Palæets raindre Sal.
Sremn i<,o«—>903
Islandske-Studenterkor
Iioncert.
1 Kr.
Billetsalg : Wllhelm Hansen* Mutikhendel.
Reiðskóli Fáks
Ný námskeið eru að hefjast fyrir börn á aldrinum
8—14 ára. Innritun verður í dag og næstu daga
frá kl. 1—5. Sími 33679 og 30178.
Hestamannafélagið Fákur.
25 ára Gagnfræðingar
frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1953
Afmælishóf veröur haldiö föstudaginn 12. maí kl. 8 í
Bláa sal Hótel Sögu. Þátttaka tilkynnist fyrir 10. maí
til:
Thelmu Gímsdóttur sími 23391
Sigrúnar Steingrímsdóttur sími 51350
Gunnars Jóhannessonar sími 72865
Sumarbúðir KFUK
í Vindáshlíð
Innritun fer fram á aöalskrifstofu K.F.U.M. og K.
aö Amtmannsstíg 2 b. Upplýsingar í síma 17536.
Stjórnin.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Hafn-
arfirði, Garðakaupstað, á Seltjarnarnesi
og í Kjósarsýslu vegna sveitarstjórnar-
kosninga 1978.
Kosið verður á þeim stöðum og á þeim tímum, sem hér segir:
Hafnarfjörður og Garðakaupstadur:
Á skrifstofu embættisins, Strandgötu 31, Hafnarfiröi, kl.
8.45—20.00 alla virka daga, á laugardögum kl. 10.00—20.00 og
á helgidögum kl. 13.00—19.00.
Seltjarnarnes:
Á skrifstofu embættisins í gamla Mýrarhúsaskóla, Seltjarnarnesi alla
virka daga, laugardaga og helgidaga kl. 17.00—20.00.
Kjósarsýsla:
Kosið verður hjá hreppstjórum.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
Garöakaupstaö og á Seltjarnarnesi.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Karatefélag Reykjavíkur
Seiwa Kai
Innritun í nýtt byrjendanámskeiö í Karate fyrir karla og
konur 15 ára og eldri veröur sem hér segir:
Föstudaginn 5. maí kl. 19—22, og laugardaginn 6. maí
kl. 13.30 — 16.30.
Innritunin fer fram á skrifstofu félagsins að Ármúla 28
á ofangreindum tímum. Nánari upplýsingar veittar í
síma 35025.
Aö venju er kennt eftir reglum FAJKO (Federation af
All Japan Karate-Do Organizations) Goju Kai og Seiwa
Kai. Ahersla er lögð á góöar líkamsæfingar ásamt
karatekennslunni.
Aöalkennari námskeiösins veröur Kenichi Takefusa 3.
dan í Goju Ryu Karate-Do.
Einnig veröur innritaö í flokk unglinga 12—15 ára, ef
næg þátttaka fæst.
Karatefélag Reykjavíkur Seiwa Kai. Félagi í
Federation of All Japan Karate-Do Organisations —
Goju Kai og Seiwa Kai.