Morgunblaðið - 18.05.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
3
Tívolí í Reykjavík:
Nýjar hug-
myndir en nei-
kvæð reynsla
í HINNI nýju áætlun um
umhverfi og útivist í
Reykjavík fyrir næstu 5
árin kemur fram, að ýmsir
einstaklingar og félaga-
samtök hafa aö undan-
förnu lýst yfir áhuga sínum
á að beita sér fyrir eða
taka Þátt í stofnun og
rekstri skemmtigarðs í
Reykjavík.
Þess vegna er lagt til að Reykja-
víkurborg hafi forgöngu um aó
kanna starfrækslu slíks skemmti-
garös. Hlutverk hans yröi aö veita
borgarbúum upplyftingu og fræöslu
og til aö mæta aukinni þörf fyrir
tómstundastarfsemi í borginni.
Lagt er til aö borgin skipi nefnd
sem kanni m.a. mögulega þátttak-
endur í stofnun skemmtigarös,
áætlaöan kostnað og fjármögnun,
svo og hugsanlega áfangauppbygg-
ingu, einnig hugsanlega staðsetn-
ingu og verkefni slíks garös og
hvað þyrfti af byggingum og
hvernig þær skuli geröar, svo og
hvaöa starfsemi, sem nú þegar er
fyrir hendi í borginni, gæti rúmast
í slíkum garði. í Morgunblaöinu í
gær skýröi borgarstjóri, Birgir
ísleifur Gunnarsson, frá því að
þessi tillaga kæmi til umræöu í
borgarstjórn í dag, fimmtudag.
Dálítil athugun sem Morgunblaö-
iö gerði hjá þeim sem ráku gamla
Tívolí í Vatnsmýrinni hér forðum
daga leiddi í Ijós, aó þeir eru ekki
meira en svo bjartsýnir á fyrirætlan-
ir af þessu tagi, telja þær reyndar
dauöadæmdar nema til komi veru-
legt framlag frá borginni. Kenna
Á góðum dögum var oftast pröng en Þeim mun færri ef eitthvað var að veðri,
Hver man ekki eftir rafmagnsbílunum bar sem margir
ungir borgarbúar sátu í fyrsta sinn undir stýri?
þeir veöurguöunum aóallega um aö
ekki er rekstrargrundvöllur fyrir
skemmtigarö á borö viö gamla
Tívolí.
Tívolí í Vatnsmýrinni varö til í lol
stríðsins eða 1945 þegar fimrr
ungir menn í Reykjavík geröu aö
veruleika hugmynd um íslenzkan
skemmtigarö. „Það var í ágúst eöa
september að mig minnir aö ég
flaug utan meö annarri áætlunarvél
Flugfélagsins og samdi um kaup á
nauösynlegum tækjum til starf-
rækslu skemmtigarös og síðan held
ég aö þaö hafi verið næsta ár þar
á eftir sem Tívolí tók til starfa,"
sagói Sigurgeir Sigurjónsson, hrl.,
sem var einn í hópi fimm-menning-
anna.
Sigurgeir sagði, aó þeir félagarnir
heföu rekið Tívolí í nokkur ár og
gengiö vel til aö byrja með —
meöan borgarbúum þótti verulegt
nýnæmi aó þessari viöleitni en
síðan hafi komið í Ijós eftir því sem
árin liöu aó ekki var grundvöllur
fyrir þessum rekstri. „Blessaður
vertu, þaö væru áreiðanlega ein-
hverjir búnir aó setja á laggirnar
nýjan skemmtigarö, ef rekstur hans
væri einhver gróöavegur," sagöi
Sigurgeir. „Þetta getur aldrei oröið
annað en taprekstur hér á íslandi,
þar sem eru aðeins nokkrir sólar-
dagar á ári en fyrirtæki af þessu
tagi verður að vera unnt aö reka
helzt allt árið en ekki 2—3 mánuöi
yfir sumarið."
Sigurgeir sagöi, að þaö hefói
verið reynsla þeirra ef eitthvaö
heföi verið aö veðri, þá heföi
aösókn verið engin og tómt mál
væri að tala um aö byggja yfir svo
mikið flæmi, því aö það kostaði
milljaröa. „Ef einhver mynd á aö
veröa á rekstri svona skemmti-
garós þarf margvísleg tæki, sem
vafalaust kosta nú tugi milljóna
króna, þau ganga öll fyrir rafmagni
sem kostar skildinginn og auk þess
fylgir þessu mikiö mannhald. Síðan
þarf aö byggja yfir hin margvíslegu
leiktæki. Ég man, aö Magnús
Jónsson, prófessor, kom eitt sinn til
mín og sagöi: — Þetta er ekki
hægt, þiö verðið að byggja yfir
þetta. Þaö heföi þá kostað sitt —
ætli allt svæöiö hafi ekki verið um
1 hektari. Það var mikil vinna í því
fólgin aö gera svæöiö sómasam-
lega úr garöi, t.d. útbjuggum vió
tjörn, þar sem fólk gat siglt á litlum
fótstignum bátum, sem viö létum
smíóa fyrir okkur hjá Slippfélag-
inu.“
Sigurgeir sagöi einnig aó þaö
hefði verið reynsla þeirra að fólk
hefði fengið leiö á tækjunum eftir
2—3 ár og viljað fá ný í staöinn. Þá
heföi orðið að selja þau og
fyrirtækiö þá ekki ráðið viö aö
kaupa nema gömul tæki í staö
þeirra. „Nei, aö öllu athuguöu er
ekki nokkur grundvöllur fyrir þessu
aö mínum dómi, það tel ég fullreynt
og ástæðan er fyrst og fremst
veðurfarið hér á landi. Fjölgun íbúa
á höfuóborgarsvæöinu breytir
þarna ekki ýkja miklu um og miðaö
viö verólagiö hér á landi nú orðið
er rétt aö hafa í huga aö þaö myndi
kosta sitt aó sækja svona staö. En
ef borgin vill reka þetta á sinn
kostnað þá horfir málið auóvitaö
ööru vísi vió, en verður þá aö gera
sér grein fyrir aö þetta veröur aldrei
fyrirtæki til aö standa undir sér aö
Framhald á bls. 18
Parísarhjólið og hringekjan voru löngum meðal
vinsælustu leiktækjanna í Tívolí.
Stjórn Rithöfunda-
sambandsins skipt-
ir með sér verkum
STJÓRN Rithöfundasambands
Islands ok Rithöfundaráð hafa nú
haldið fyrstu fundi sína eftir
nýafstaðnar kosningar og skipt
með sér verkum.
Stjórn Rithöfundasambandsins
er þannig skipuði
Njörður P. Njarðvík formaður
(sérkosinn á aðalfundi), Vilborg
Dagbjartsdóttir varaformaður,
Kristinn Reyr gjaldkeri, Pétur
Gunnarsson ritari og Þorvarður
Helgason meðstjórnandi. Vara-
menn: Asa Sólveig og Baldur
Ragnarsson.
Stjórn Rithöfundaráðs skipai
Stefán Júlíusson formaður,
Ólafur Haukur Símonarson gjald-
keri og Ási í Bæ ritari.
Alls sitja 12 menn í ráðinu.
Hinir 9 eru: Árni Larsson, Geir
Kristjánsson, Guðmundur Steins-
son, Guðrún Helgadóttir, Jóhann
Hjálmarsson, Líney Jóhannesdótt-
ir, Sigurður Pálsson, Svava
Jakobsdóttir og Örnólfur Árnason.
Fréttatilkynning.
Átta holu golfvöll
ur í Laugarnesi
FRAMKVÆMDIR við golfvöll í
Laugarnesi eru áætiaðar á árun-
um 1980 — 83 í framkvæmdaáætl-
un um umhverfi og útivist, sem
lögð var fram í borgarráði í
fyrradag. Gert er ráð fyrir 8 holu
velli og er kostnaður við gerð
hans 38 milljónir króna.
Árið 1980 er ætlunin að hefja
gerð lítils golfvallar í Laugarnesi
og stefnt að því að ljúka mótun
iandsins að mestu levti bað árið.
er áætlaður 17 milljónir króna.
Árið eftir yrðu svo holusvæðin 8
gerð og er áætlaðað hvert þeirra
kosti eina milljón króna. 1982 er
miðað við að gróðursetja harðgera
runna í svæðið og er kostnaður við
ræktun áætlaður 7 milljónir
króna.
Síðasta árið yrði svo
endanlega gengið frá svæðinu og
stefnt að því að hægt verði að taka
það í fulla notkun, en kostnaður
við lokaframkvæmdirnar er
Fífa er fundin lausn
Fífu skáparnir eru vandaöir, fallegir, ódýrir og henta hvar sem er.
Fífu skáparnir eru íslensk framleiðsla.
Þeirfásf í þrem viöartegundum, hnotu, álm og antikeik.
Haröplast á boröplötur i mörgum fallegum litum allt eftir yðar
eigin vali. Komiö og skoöiö, kynniö ykkur Auöbrekku 53, Kópavogi.
okkar hagstaeöa verö. Látiö okkur teikna og fáiö tilboö. Simi 43820.
Fifa er fundin lausn.
'
0 ■ s * wmS® i
l< - í • '