Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 18
18 -MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978' Japanir biðja um herþotur Washington 17. maí AP. BANDARISKA landvarnaráðu- neytið heíur formlega beðið Bandaríkjaþinjí að samþykkja mestu hergagnasölu Bandaríkja- manna til Japans. í ráði er að selja Japönum 100 F-15 orrustu- þotur og 45 P-3C vélar til haráttu gegn kafbátum að verðmæti 2.2 milljarðar doliara. Flugvélarnar verða seldar á 11 ára tímabili og verða flestar smíðaðar í Japan. Japönsk yfirvöld tilkynntu seint á síðasta ári að ákveðið hefði verið að kaupa flugvélarnar til að breyta flugher Japana í nútímahorf svo og þeim herbúnaðiJapana sem er ætlaður til varna gegn kafbátum. Bandaríska landvarnaráðuneyt- ið leggur til að Japanir fái fyrst um sinn sex F-15 þotur að Sýning framlengd Málverkasýning Snorra D. Hall- dórssonar í Hamragörðum hefur verið framlcngd til 21. maí. ♦ »«-- — Valur vann Framhald af bls. 31. leikið góða knattspyrnu. En það kom líka í ljós, að leikur liðsins getur dottið niður á mjög lágt plan. I þessum leik voru þeir beztir Gústaf Björnsson, Gunnar Guðmundsson og Pétur Ormslev. Annars vaknar sú spurning þegar liðsuppstilling Fram er skoðuð, hvort nýliðum eru gefin næg tækifæri. í STUTTU MÁLI. íslandsmótið 1. deild Laugardalsvöllur 17. maí, Valur — Fram 3:0 (1:0). MÖRK VALS: Atli Eðvaldsson á 27. mínútu, Albert Guðmundsson á 71. mínútu og Ingi Björn Alberts- son á 88. mínútu. ÁMINNING: Engin. ÁHORFENDUR: 1688. Middlesbrough kaupir Stewart MIDDLESBROUGH hefur fest kaup á varamarkmanni skoska landsliðsins, Jim Stewart, fyrir 100.000 þúsund pund (190.000 dollara) Stewart lék áður með Kilmar- nock, er 24 ára gamall og þykir mjög efnilegur markvörður. FRAM AÐALFUNDUR handknatt- leiksdeildar Fram verður haldinn fimmtudaginn 25. maí n.k. Fundurinn hefst klukkan 20.30 í félagsheimili Fram. Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf. SVÍAR UNNU Sænska landsliðið lék æfingaleik við Aston Villa í Gautaborg í gærkvöldi og unnu Svíarnir 1:0. Markiö skoraði Benny Wendt í f.h. i 'iorfendur voru 12 þúsund. PÓLVERJAR TÖPUÐU Pólska landsliöinu gekk ekki eins vel í gærkvöldi. Liðið lék gegn franska liðinu Sochaux í Plock í Póllandi og tapaöi 1:0. verðmæti 144.2 milljónir dollara og átta P-3C þotur að verðmæti 100.4 milljónir dollara. Deildir þingsins hafa þrjátíu daga frest til að samþykkja vopnasöluna eða stöðva hana. Ráðuneytið áætlar að 100 F-15 þotur kosti Japani rúmlega 1.4 milljarða dollara og 45 P-3C kosti þá 778 milljónir dollara. Her- gagnasala Bandaríkjamanna til Japana síðan 1950 hefur verið að verðmæti 1.3 milljarðar dollara. Selwyn- Lloyd látinn London, 17. maí. Reuter. SELWYN-Lloyd lávarður, utan- ríkisráðherra Breta í Súezdeil- unni 1956, lézt í dag, 74 ára að aldri. Hann stóð framarlega í opin- beru lífi í þrjá áratugi og gegndi flestum mikilvægustu embættum ríkisins — á sviði utanríkismála, varnarmála og fjármála og á þingi. Ásamt Sir Anthony Eden — sem síðar varð Avon lávarður — bar hann hita og þunga dagsins í Súez-deilunni sem olli straum- hvörfum í sögu Breta og klauf þjóðina í andstæðar fylkingar. Hann varð seinna forseti Neðri málstofunnar. Cosmos tapar ekki leik NEW York Cosmos hefur ekki tapað leik það sem af er keppnis- tímabilinu í knattspyrnunni í Bandaríkjunum. Cosmos hefur leikið sjö leiki og unnið þá alla, skorað alls 23 mörk en aðeins fengið á sig sex. Þaö er ítalinn Chinaglia sem hefur skorað flest mörk liðsins, alls átta. I síðasta leik sínum sigraði Cosmos Colo- rado Caribous 4—3, skoraði júgó- slavinn Bogicevic tvisvar en Beckenbauer og Chinaglia hin tvö. Nokkuð margir leikmenn frá Englandi munu leika í Banda- ríkjunum í sumarleyfum sínum og hafa þeir dágóöan skilding upp úr krafsinu. — Her Zaire stjórnar... Framhald af bls. 1. sínum til þess að tryggja öryggi útlendinga í Shaba-héraðinu, eftir að formleg ósk um þetta barst frá belgísku stjórninni. Haldinn var mikill útifundur í Kinshasa í dag til stuðnings Mobutu forseta og var gefið fri í vinnu í borginni til að sem flestir gætu komið þangað. Talið er að um 100 þúsund manns hafi tekið þátt í fundinum þar sem Mobutu var hylltur og stuðningur Sovétríkj- anna og Kúbu við uppreisnar- mennina fordæmdur. Talið er að í innrásarliði upp- reisnarmanna séu um 4000 menn, félagar í svonefndri þjóðfrelsis- hreyfingu Kongó (FNLC) sem nú gerir innrás í annað sinn á einu ári inn í hið koparauðuga Shaba-her- að. Vmnuvikan í 40 stundir í Færeyjum Þórshöfn í Færeyjum í gær. FÆREYSKA lögþingið hefur samþykkt frumvarp lands- stjórnarinnar um styttingu vinnuvikunnar úr 42 klukku- stundum í 40 klukkustundir. Vinnuvikan verður stytt í fjórum áföngum, um hálftíma í einu, unz hún verður 40 stundir 1. októbcr 1980. Fyrsti áfangi hefst í' haust. Með þessari breytingu verð- ur vinnuvikan í Færeyjum jafnlöng og annars staðar á Norðurlöndum. - Arge. — Orlov Framhald af bls. 1. og dómarinn og viðstaddir áheyr- endur hcfðu hann að háði og spotti. Erlendum fréttamönnum og innlendum andófsmönnum hefur verið meinaður aðgangur að rétt- arhöldunum en konu Orlovs og tveimur sonum hans frá fyrra hjónabandi hefur verið leyft að fylgjast með þeim. Fyrsta daginn sem réttarhöldin stóðu gerðí lögregla upptæk segulbandstæki sem synirnir tveir höfðu meðferðis til að hljóðrita það sem fram fór. I dag var kona Orlovs klædd úr hverri spjör í viðurvist tveggja kvenlögregluþjóna og þriggja karl- manna áður en henni var hleypt út út dómshúsinu að loknum yfir- heyrslunum. Að sögn konu Orlovs og sona hans æptu viðstaddir á hann að hann væri svikari og njósnari þegar hann hugðist flytja loka- varnarræðu sína og dómarinn, Valentina Lubentsova, fyrirskip- aði honum að ljúka máli sínu þegar hann hafði talað í hálftíma án þess að gefa á því neina skýringu. Orlov hefur verið i.afður í haldi frá því 10. febrúar 1977 og er gefið að sök að hafa stundað andsovézk- an áróður með starfi sínu í nefnd þeirri sem hann setti á stofn með öðrum fyrir tveimur árum til að fylgjast með því hvernig Sovét- stjórnin færi eftir ákvæðum Helsinki-sáttmálans. Að loknum réttarhöldunum í gær var gerður aðsúgur að andófs- mönnum og erlendum fréttamönn- um sem hugðust hafa tal af konu og sonum Orlovs, en ekkert slíkt kom fyrir í dag. Samtímis réttarhöldunum yfir Orlov standa yfir réttarhöld í borginni Tbilisi í Georgíu yfir tveimur öðrum andófsmönnum og stuðningsmönnum Helsinki-nefndarinnar þar í borg, þeim Zviad Gamsakhurdia og Merab Kostava, og eru þeim bornar á brýn sömu sakir og Orlov. — 14 Rússar Framhald af bls. 1. fyrir utan Vientiane. Sagt er að fyrsti jeppinn af þremur sem mennirnir voru í hafi ekið á jarðsprengju og í því hafi vél- byssuskotárás hafizt á þá og þeir verið drepnir allir sem einn. Engin staðfesting hefur fengizt á þessu atviki í Laos og stjórnin í Bangkok segist ekki heldur geta staðfest frásögnina, sem talin er byggð á upplýsingum flóttamanna frá landinu. í Laos er talið að séu um 500—1000 sovézkir ráðgjafar og 20—50 þúsund n-víetnamskir her- menn, en stjórn landsins hefur mjög hallað sér að Sovétríkjunum og N-Víetnam eftir valdatöku kommúnista á árinu 1975. — Lík Chaplins Framhald af bls. 1. nokkurt skeið. Þeir kváðust hafa fengið hugmyndina að því að ræna líkinu af fréttum af líkráni á Ítalíu þar sem líkræningjarnir fengu greitt offjár fyrir að skila líkinu. Ekkja Chaplins vildi ekki ræða við fréttamenn í dag en að því er hermt er, er hún glöð og hrærð yfir því að líkið skuli hafa fundist og að ekki skuli hafa verið við því hróflað. Á meðan líkið var ófundið bárust lögreglunni fjölmargar falsupplýsingar um málið og vildu margir aðilar eigna sér það. Um tíma var talið að ofstækis- fullir aðdáendur Chaplins hefðu rænt líkinu og farið með það til Bretlands til að greftra það þar með leynd, en lögreglan lagði ekki trúnað á sögusagnir af þessu tagi. — Tívolí Framhald af bls. 3. mínu viti," sagði Sigurgeir. Eftir að hafa rekið Tívólí í 7—8 ár seldu þeir 5-menningar staðinn — fyrir slikk að því er Sigurgeir Sigurjónsson sagöi, og íþróttafélag Reykjavíkur kéypti hann af þeim. Forsvarsmenn þess höfðu þann háttin á að þeir seldu út til einstaklinga einstök leiktæki, og þeir hinir sömu einstaklingar höfðu þá allar tekjur af tækjunum. ÍR leigði einnig út veitingastaðinn — Vetrargaröinn — eins og raunar fyrirrennarar þeirra höfðu einnig gert en rekstur hans mun yfirleitt hafa gengiö vel. Að sögn Jakobs Hafsteins, fyrrum formanns ÍR, var Tívólí helzta tekjulind félagsins um árabil eða fram til 1957—58 er félagið seldi garöinn og Hafskip keypti en undir starfsemi af öðru tagi. Jakob sagöi þó, aö hann teldi rekstur skemmtigarös hér vafasam- an vegna veðurfarsins. — Leiguíbúðir Framhald af bls. 48 Einstaklingsíbúðirnar í Furu- gerði 1 eru um 35 fermetrar að stærð og eru eitt herbergi með svefnkrók, eldhúsi og baði auk geymslu. Hjónaíbúðirnar eru um 55 fermetrar og eru stofa og svefnherbergi auk eldhúss, baðherbergis og geymslu. Einnig er í húsinu sameiginlegt þvottahús fyrir íbúana búið fullkomnum vélúm. Ibúðirnar í Furugerði 1 voru auglýstar til leigu um mánaða- mótin nóvember-desember í vetur og bárust 240 umsóknir. Á vegum Reykjavíkurborgar er nú unnið að byggingu fleiri leiguíbúða fyrir aldraða og er gert ráð fyrir að síðar í sumar verði hús með 30 einstaklingsíbúðum við Lönguhlíð tilbúið. Þá verður upp úr næstu árámótum tekið í notkun nýtt hús, sem verið er að reisa við Dalbraut en þar verða 48 einstaklingsíbúðir og 18 hjónaíbúðir. — Ættleiðing Framhald af bls. 48 Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, sagði í samtali við Mbl. að það væri rétt að fyrir ættleiðingar til íslands hefði verið tekið, „að minnsta kosti tímabund- ið“. Sagði Guðmundur að leitað hefði verið til utanríkisráðuneytis- ins um aðstoð í málinu. Guðmundur sagði, að þegar Hjálparstofnunin hefði haft for- göngu um þetta mál, hefði hún tekið upp samstarf við norska aðila, Norsk-Korea forening. Sagðist Guðmundur ekki vita gjörla hvaða snurða hefði hlaupið á þráðinn en sagði að hugsanlega hefði norski aðilinn ekki látið stjórnvöld í Suður-Kóreu vita af því, „að sum barnanna af þeirra kvóta færu til íslands". Ágústa Bárðardóttir sagði að foreldrafélagið myndi áfram hafa samvinnu við Norsk-Korea forening, en 22 börn frá Suður- Kóreu hafa nú verið ættleidd hingað til lands. — Undanþága Framhald af bls. 48 og Verkalýðsfélagið Fram á Seyðisfirði. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Islands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að olíuinn- flutningsbannið hafi ekki verið sett til þess að veita undanþágu þegar á fyrsta degi — eins og hann orðaði það. Kvaðst hann verða illa svikinn, ef eitthvert þeirra fjögurra félaga, sem sett hefði á olíuinnflutningsbannið, svöruðu þessari undanþágubeiðni játandi. Því kvað hann ekki um annað að ræða — að sínu áliti — en hið sovézka olíuskip yrði að bíða þess að eitthvað gerðist við samninga- borðið á sáttafundum hjá sátta- semjara. — ASV Framhald af bls. 48 júní næstkomandi. Var stjórn sambandsins jafnframt heimilað að hefja beinar viðræður við atvinnurekendur, ef þeir teldu sig fúsa til viðræðna, en Pétur kvað þá hlytu að líta málið alvarlegri augum eftir þessa þróun mála. Hann kvað fulltrúa ASV hafa lýst því á samningafundinum í gær að þeir tryðu því ekki að vinnuveit- endur á Vestfjörðum vildu ekki ganga til samninga. Viðræðupunktarnir, sem vinnu- veitendur höfnuðu voru: 1. stytting vinnutíma á óskertu kaupi, 2. hugsanlegar áfangahækkanir 1. júní og 1. september, 3. að breytt yrði 4ra ára aldurshækkun í 3ja ára starfsaldurshækkun, 4. nýtt 10 ára starfsaldursþrep, 5. orlofsleng- ing fyrir ákveðinn starfsaldur, 6. lengja veikindaréttinn og 7. að fella niður fyrsta taxtann, sem Pétur Sigurðsson kvað hafa verið ákveðið láglaunaskref. Morgunblaðinu tókst ekki í gær að ná tali af Jóni Páli Halldórs- syni, formanni vinnuveitenda- félags Vestfjarða. Karvel Pálmason, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, sem sæti á í stjórn ASV, sagði í gær, að ASV hefði sýnt mikið umburðarlyndi við viðsemjendur sína og ábyrgðar- tilfinningu, sem ekki hefði verið tekið tillit til af viðsemjendunum. Því væri þetta einróma samþykkt. Hann kvaðst þó vona að ekki þyrfti til allsherjarverkfalls að koma, enda kvað hann þessar aðgerðir boðaðar með það miklum fyrirvara, að auðvelt ætti að vera að ná samkomulagi áður en allsherjarverkfall skylli á. Til stefnu væri hálfur mánuður. — Félags- miðstöðvar Framhald af bls. 48 varið til æskulýðsheimila í fyrra 42,1 milljón króna. Þær 129 milljónir, sem farið hafa til æskulýðsheimila þessi fjögur ár, skiptast þannig, að 36,2 milljónir hafa farið til framkvæmda í Breiðholti, 20,5 til framkvæmda í Bústaðahverfi/ Fossvogi, 17,5 milljónum var varið til Tónabæj- ar, 17 milljónum til framkvæmda í Árbæ, 10 milljónum var í fyrra varið til framkvæmda Vogar/ Sund, 7,5 milljónum var varið til bátaskýlis í Nauthólsvík og 1,4 milljónum var varið til fram- kvæmda við Saltvík. Nítján milljónir fóru til kaupa á ýmiss konar lausabúnaði. í Nauthólsvík hefur verið lokið við hús siglingaklúbbsins Siglu- ness, og eru þar nú báta- og tækjageymslur, verkstæði til báta- smíða og viðgerða, búningsklefar og önnur nauðsynleg aðstaða. Endurnýjað hefur verið bátaskýli utanhúss og gengið frá umhverfi í tengslum við baðlækinn í víkinni. Bátakostur klúbbsins hefur að mestu leyti verið endurnýjaður síðan 1974. Fríkirkjuvegur 11 hefur verið endurbættur og færður í uppruna- legt horf hið ytra, og unnið að endurbótum á fundarsölum og samkomusal í kjallara. Æskulýðsráð hefur nú auglýst Tónabæ til sölu og mun andvirði hans verða varið til annarrar húsnæðisaðstöðu til æskulýðs- starfs á vegum ráðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.