Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978 Iris Dagbjört, Sigrún Inga og Margrét Sif sögðust vera hinar ánægöustu meö ferðina. Ljósm. Kristján Einnig voru Guömundur Jóhannsson, Daníel Jónsson og Garöar M. ánægðir og sögóu þeir mest gaman að hafa fengið að skoöa stjórnklefann Asgeir Pétursson yfirflugstjóri og Hallgrímur Jónsson flugmaöur láta Þotuna hér sveima yfir Reykjavík. 250 börn og unglingar úr KFUM og K ganga frá boröi eftir skemmtilega ferð og án efa hafa einhver þeirra áhuga fyrir starfi flugmanns eða flugfreyju eftir ferö sem þessa. með KFUM og KFUK bömum svipuðum toga er um 500 drengir fóru í siglingu með Gullfossi út á Sundin og upp í Hvalfjörð og nokkrum sinnum hefði verið efnt til stórfunda t.d. í Laugardalshöll með um 3000 manns, börnum og foreldrum og tvisvar hafa verið haldnir drengjafundir í Háskóla- bíói. Árni sagði að tilgangur ferða sem þessara eða stórra funda væri sá að gera eitthvað sérstakt fyrir þau börn sem vel sæktu fundi og ræktu félögin hverju sinni og hefði það þótt gefast vel að bjóða upp á eitthvað líkt þessu. Ásgeir Pétursson flugstjóri, Hallgrímur Jónsson flugmaður og Baldur Bjarnasen flugvélstjóri komu sér fyrir í stjórnklefanum og sögðu þeir að þessi ferð væri ágæt tilbreyting frá hinu venjubundna flugi yfir hafið til Norðurland- anna, Luxemborgar eða Banda- ríkjanna og Ásgeir sagði að þetta væri i fyrsta sinn sem þeir færu með þessa þotu til Akureyrar, en ferðinni var sem sagt heitið norður í land, þar sem sólin skein og hægt var að sjá niður úr skýjunum. verður að sjálfsögðu að gæta fyllsta öryggis þegar svo hrað- skreiðar flugur eru á ferð. Að loknum þessum hringjum yfir Eyjafjörðinn var stefnt suður og leiðin lá nú til Reykjavíkur á ný og síðan var lent í Keflavík. Þar beið hressing, kók og pylsur, sem var vel þegið eftir þessar ferðir upp og niður nokkur þúsund fet, sem fór víst ekki of vel með magann í einstaka farþega, en öll óþægindi voru yfirstaðin um leið og fast land var aftur undir fótum. Einhvers staðar yfir hálendinu þar sem ekkert sást niður tók blm. tali nokkur börnin og fyrst var Að síöustu buðu Flugleiðir upp á kók og pylsur. í Flugleiðaþotu — Ekki ýta svona á mig! — Ég get ekkert gert að því, það var einhver sem hrinti mér! Álíka setningar og þessar mátti heyra í flugstöðVar- byggingunni á Keflavíkurflug- velli nú um helgina þegar nokkur hundruð börn söfnuðust þar saman og biðu þess að fá að fara um borð í eina þotu Flugleiða. Voru þetta börn og unglingar úr KFUM og KFUK sem var gefinn kostur á að fara í klukkustundar hringflug með Flugleiðaþotu, þau sem bezt höfðu sótt fundi á liðnum vetri. Starfsfólk Flugleiða og sveitar- stjórnar KFUM og K gátu eftir smávegis troðninga og pústra komið skipulagi á hópinn og brátt var hann tilbúinn í tvöfaldri röð í biðsalnum að ganga um borð. Áhöfnin var einnig til og flugstjóri í ferðinni var Ásgeir Pétursson yfirflugstjóri. Hann ávarpaði .lornin nokkrum orðum áður en lagt var upp í ferðina, bauð hópinn velkominn og minnti í nokkrum orðum á hina góðu sögu, sem félögin KFUM og KFUK hefðu lagt áherzlu á í sínu starfi, að börnin þekktu söguna um Jesúm Krist, en Ásgeir er félagi í KFUM og hefur starfað fyrir félagið. Árni Sigurjónsson formaður KFUM sagði í samtali við Mbl. að áður hefði verið farin ferð af í aðflugi aö Akureyrarflugvelli, en þetta er í fyrsta sinn sem DC-8 þota kemur til Akureyrar. Þegar allir höfðu fundið sér sæti í vélinni var hægt að halda af stað. Tilkynnt hafði verið að skipst yrði á um sætin við gluggana þannig að hver fengi að sitja við glugga í 20 mínútur og þannig yrði öllu réttlæti fullnægt. Flogið var í fyrstunni tvo hringi yfir Reykjavík og síðan ofar skýjum beina leið til Akureyrar þar sem Ásgeir lækkaði flugið og fór hringi yfir höfuðstað Norður- lands og sýndi bæði Akureyring- um og farþegum sínum aðflug að vellinum, en hann er nokkuð of stuttur til að DC-8 þotur geti athafnað sig þar eðlilega. Úr gluggum þotunnar mátti sjá hvar fólk staðnæmdist á götum úti og fór jafnvel út úr bílum sínum til að virða farkostinn fyrir sér. Ekki var mikil umferð um Akureyrar- flugvöll rétt á meðan flogið var yfir, en þó mátti heyra í samskipt- um turnsins við vél af minni gerðinni og sagðist hún ætla að halda sig í Hörgárdalnum meðan sýningin færi fram. Flugturninn gaf þá í skyn að nóg væri pláss í Eyjafirði fyrir tvær vélar, en það KFUM þakkaði í ferðalok fyrir hönd farþeganna. spjallað við 3 stúlkur sem sögðust eiga heima í Breiðholti. — Við erum búnar að vera á fundum hjá Gunnu Veigu í allan vetur, sögðu þær íris Dagbjört Ingibergsdóttir, Sigrún Inga Sig- urjónsdóttir og Margrét S. Haf- steinsdóttir, og við vorum líka svolítið í fyrra hjá henni. Nei, við höfum aldrei flogið í þotu áður og okkur finnst bara svo gaman. Ekki höfðu þær heiðurskonur öllu fleira um þessa ferð að segja, en litlu aftar í vélinni sátu þrír drengir sem sækja fundi hjá KFUM á Seltjarnarnesi: — Þetta er fyrsti veturinn sem við sækjum fundi, við erum 10 og 11 ára og við höfum mætt á alla fundi nema 2 eða 3 kannski. Þetta er alveg ágæt ferð og við megum gera allt, kíkja fram í til flug- mannanna og allt; sögðu þeir Guðmundur, Daníel og Garðar. Alls voru í þessu hringflugi 750 manns og voru farnar 3 ferðir. Tók hver ferð rúman klukkutíma og var áhöfnin hin sama í öll skiptin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.