Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978 15 Nýjar ásakanir frá Greenpeace GREENPEACE-samtök þau sem berjast gegn hvalveiðum hafa ítrekað áskoranir sínar til íslend- inga um að þeir hætti hvalveiðum í tíu ár og bjóðast til að ræða við Þórð Ásgeirsson skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðuneytinu. I frétt frá samtökunum segir, að þau vilji útskýra fyrir Þórði Ásgeirssyni hættulegt ástand hvalastofnsins á Norður-Atlants- hafi og ræða við hann um áhrif loðnuveiða á stofninn og óstjórn Alþjóðahvalveiðinefndarinnar (IWC) í hvalveiðimálum. Þar er endurtekið það sem fulltrúar Greenpeace héldu fram á blaðamannafundi í Reykjavík í síðustu viku og þvi haldiö fram, að Islendingar fái rangar upplýsingar um hættuna sem fylgir áfram- haldandi hvalveiði þeirra. Samtök- in vísa á bug ummælum Þórðar Ásgeirssonar og Jóns Jónssonar fiskifræðings á blaðamannafundi þess efnis, að hvalastofninn við Island sé ekki í hættu. Greenpeace segir að það sé alkunna að hvalar bæti loðnu við fæðu sína og því geti hvölum fækkað ef loðnuveiði aukist. Sam- tökin vísa á bug þeirri fullyrðingu Þórðar Ásgeirssonar að hvalar neyti ekki loðnu. Wallace hættir Montgomery, Alabama, 17. maí Reuter. GEORGE Wallace ríkisstjóri í Alabama og fjórum sinnum fram- bjóðandi í forsetakosningum hefur sagt að hann gefi ekki kost á sér til framboðs í kosningum til öldungadeildarinnar og þar með er stjórnmálaferli hans bersýnilega lokið. Wallace hafði áður tilkynnt að hann ætlaði að keppa að því að fá sæti John Sparkmans í öldunga- deildinni. Kjörtímabili hans í Alabama lýkur í byrjun næsta árs. Samtökin segja að vegna óstjórnar IWC sé óvíst hvort hvalastofninn geti náð sér ef hvalveiðum verður ekki hætt. Þau segja að IWC hafi ætíð látið undir höfuð leggjast að vernda hvalinn jafnvel þótt hann væri í hættu og alltaf verndað hvalveiðiiðnaðinn í stað hvalsins. Veður víða um heim Amsterdam 17 heiðskírt Apena 27 sólskin Berlin 17 skýjað Brússel 18 skýjað Chicago 15 skýjaö Frankturt 16 skýjaö Genf 16 skýjað Helsinki 9 rigning Jóhannesarb. 18 skýjað Kaupmannah. 14 skýjað Lissabon 19 sólskin London 17 sólskin Los Angeles 27 heiðskírt Madrid 24 heiðskírt Malaga 7 léttskýjaö Miami 28 heiðskírt Moskva 17 heiðskírt New York 12 rigning Ósló 14 skýjað Palma, Majorca 21 léttskýjaö París 17 léttskýjað Róm 21 heiðskírt Stokkhólmur 9 skýjað Tel Aviv 29 heiðskírt Tokyó 26 skýjaö Vancouver 17 heiðskírt Vínarborg 18 skýjaö Danskir sjómenn sigla heimleiðis Kaupmannahöfn 17. maí. AP. TVÖ þúsund danskir fiskimenn hættu í dag tveggja vikna mótmælaaðgerðum í Kaupmannahöfn og ákváðu að sigla heim til Borgundarhólms án þess að stjórnin hafi gengið að kröfum þeirra um skaðabætur fyrir tekjumissi og aukna aflakvóta. Fiskimennirnir hafa tvívegis lokað dönskum höfnum í þessum mánuði og stöðvað þar með bíla- og járnbrautaferjur sem eru í förum milli Danmerkur og Vestur- og Austur-Þýzkalands, Póllands, Svíþjóðar og milli dönsku eyjanna. Minnihlutastjórn jafnaðar- manna sagði fiskimönnum að hún mundi ekki beygja sig fyrir ólöglegum þrýstingi en samdi frumvarp sem verður lagt fyrir þingið. Samkvæmt því fá fiski- menn lán að upphæð 50 milljónir danskra króna frá ríkinu. Stjórnin hyggst einnig greiða fiskimönnum sem verða að leggja bátum sínum þrjá mánuði sérstak- ar skaðabætur. Enn fremur hefur stjórnin í hyggju að kalla Fisk- veiðinefnd Eystrasalts saman til sérstaks fundar áður en langt um líður. Hins vegar hefur stjórnin ekki lofað verulegri aukningu á afla- kvóta Dana á Eystrasalti. Hún sagði fiskimönnum einnig að þeir gætu ekki vænzt beinna skaðaþóta án endurgreiðslu. Þetta gerðist 1971 — Indverjar sprengja fyrstu kjarnorkusprengju sína og verða sjötta kjarnorkuveldið. 1907 — SÞ samþykkja kröfu Eg.vpta um bröttflulning friðar- gæzlusveita frá Gaza-svæðinu. 1902 — Leynisamtök hersins, OAS, hóta að myrða níu her- dómara sem fjalla uni mál Salans hershöfðingja. 1951 — Mannréttindasáttmáli Evrópu tekur gildi. 1911 — Bandamenn taka klaustrið Monte Cassino á Ítalíu. 1911 — Herlið ítala í Eþíópíu gefst upp. 1917 — Sósíalistar fá aðild að stjórn Lvov fursta i Rússlandi. 1899 — Alþjóðleg friðarráð- stefna kölluð saman í Haag. 1818 — Þýzkur þjóðfundur kemur' saman í Frankfurt og leggur niöur þýzka ríkjasant- bandið. 1815 — Prússar, Rússar og Austurríkismenn senija frið viö Saxakonung. 1801 — Napoieon verður keis- ari Frakklands. 1803 — Stríð-. hefst að nýju milli Breta og Frakka. 1793 — Frakkar sigraðir við Neerwinden. 1730 — Ensk galdralög afnum- in. — Rússar ráðast á Tyrki til að ná Azov. 1013 — Anna af Austurríki, Tvísýn kosning á Spáni Madrid, 17. maí. AP. AUKAKOSNINGAR fóru fram í tveimur af 50 fylkjum Spánar um tvö savti í öldungadeildinni í dag og talið er að þær séu próísteinn á vinsældir ríkisstjórnar Adolfo Suarez forsa'tisráðherra og and- stöðuflokka stjórnarinnar. Annað sætið losnaði vegna þess að kommúnisti sagði af sér og hitt vegna andláts sósíalista. Sósíalist- ar eru taldir hafa heldur betri sigurlíkur en aðrir flokkar. Kjör- sókn var lítil fram eftir degi. Urslitin munu líklega ekki hafa áhrif á stöðu Suarezar á þingi en þau geta skorið úr um hvað hæft er í staðhæfingum sósíalista um að fylgi þeirra hafi aukizt síðan í þingkosningunum í fyrra. Jafnframt var tilkynnt í dag að forseti herráðs landhersins, Jose Vega Rodriguez hershöfðingi, hefði sagt af sér. Tilkynningin kom á óvart og olli vangaveltum um hvort hann hefði verið óánægður með meðferð stjórn- valda á uppþotum gegn þjóðvarð- liðum í Baskahéruðunum. Fjórir þjóðvarðarliðar hafa fallið undan- farna 10 daga. Idi Amin hræðist innrás í Uganda Nairobi 17. maí. AP. IDI Amin Ugandaforseti sakaði grannríkið Tanzaníu um liðssafnað á landama‘runum í dag og skoraði á Líbýu og Súdan að skerast í leikinn til að koma í veg fyrir að ástandið versnaði. Uganda-útvarpið sagði að Amin hefði sent forsetunum Muammar Gaddafi og Gaafar Nimeiry skeyti þar sem hann segði að Tanzaníu- menn væru að draga saman herlið í Kisagati, sem innrás Var gerð frá í Uganda 1972. Hann sagði að ef forsetarnir skærust í leikinn væri hægt að færa ástandið í eðlilegt horf áður en það yrði óviðráðanlegt. Amin benti líka Juliusi Nyerere Tanzaníuforseta á að hann hefði lýst því yfir að 1978 ætti að vera ár „friðar, ástar og sátta.“ Skæruliðaher undir forystu Milton Obote réðst inn í Uganda í september 1972 til þess að reyna að kollvarpa Amin. Amin hrifsaði völdin af Obote í janúar árið áður. Obote er búsettur í Tanzaníu. Síðan Amin hrifsaði til sín völdin hefur hann oft haldið því frani að Tanzaníumenn eða herlið annarra þjóða, þar á meðal Bandaríkjamanna og Breta, væru að undirbúa innrás í Uganda. Skotárás í kjölfar sigurs Andreottis Róm, 17. maí. Reuter. VOPNAÐIR vinstrisinnar skutu lögreglumann í Tórínó í dag nokkrum klukkustundum eftir að völd í Frakklandi. Vfmæli dagsins. Lionel Lukin, enskur uppfinningamaður björgunarbátsins (1742—1834) — Bertrand Russel, brezkur heimspekingur (1872—1970) — Margot Fonteyn, brezk ballerína (1919 —) — Perry Como, handa- rískur s<»ngvari (1913 —). Orð dagsins. Við ættum ekki að blygöust okkur fyrir að segja það sem við hiygðumst okkur ekki fyrir að hugsa — Cicero, rómvei-skur stjórnmálamaður/ í’ithöfundur (lOti—43 f. Kr.). þingið samþykkti ströng lög um baráttu gegn hryðjuverkastarf- semi. Kúlurnar hæfðu lögreglumann- inn Roberto de Martino í hálsinn, fæturna og annan handlegginn. Hann var að fara heiman frá sér til vinnu og árásarmennirnir sem voru þrír flýðu á vélhjólum. Læknar segja að hann sé ekki alvarlega slasaður. Seinna var hringt í fréttastof- una Ansa og sagt að „Víglína baráttusveita kommúnista“ bæri ábyrgðina á árásinni. Hún er keimlík nær daglegum árásum vinstriöfgamanna á meðalhátt- setta embættismenn og starfs- menn iðnfyrirtækja. Samkvæmt lögum sem þingið samþykkti um tólf tímum áður með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða getur lögreglan yfirheyrt meinta hryðjuverkamenn án þess að lögfræðingar þeirra séu við- staddir, handtekið fólk og haldið því föngnu í allt að einn sólarhring til að athuga persónuskilríki þess og hlerað símtöl. Yfirburðasigur stjórnarinnar í atkvæðagreiðsl- unni virðist benda til þess að hún virðist hafa góða möguleika á að haldast við völd út árið. Jafnframt halda stjórnmála- menn áfram að vega og meta áhrif sigurs kristilegra demókrata i sveitarstjórnakosningunum um helgina en gera ekki ráð fyrir því að hann hafi áhrif á stuðning kommúnista og annarra flokka við stjórnina á þingi. Öldungadeildar- maður úr flokki kommúnista, Gerardo Chiaromonto, skýrir þá staðreynd að kommúnistar fengu aðeins 26% atkvæða miðað við 35% þannig að reikulir kjósendur hafi aftur kosið flokka sem þeir hafi stutt áður en hann bætti við: „Á því leikur enginn vafi að okkur hafa orðið á mistök." ■ ■■ 1 ERLENT,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.