Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978 23 Verndun ga Hin vandaða gamla viUa á Fríkirkjuvegi 11 friðlýst samkvæmt þeim allt sem þurfti tii hússins frá útlöndum, hurðir og glugga, stigahandrið, granít í tröppur utanhúss, gólfspæni í viðhafnarstofu o.s.frv. Sjálfa smíðina tók Steingrímur Guð- mundsson að sér. Hann var að mínu áliti vandvirkasti og besti húsasmiður, sem þá var starf- andi í Reykjavík, mesta ljúf- menni í umgengni og viðskipt- um. Timbur í máttarviðum pantaði ég frá Svíþjóð 1906. Var allt timbur í húsinu valinn sænskur viður. Gólfin voru úr 2 þumlunga plægðum plönkum, súðin úr 5/4 þumlunga borðum. Sag var notað í tróð. Utan á klæðningu var settur vandaður pappi og síðan járn. Súlur undir útihandriðin sjálf úr teakviði. Vatnslögn var í húsinu og var það algert nýmæli í Reykjavík. Ég lét grafa og sprengja djúpan brunn og múra hann innan. Úr brunninum var vatninu dælt í kjallaranum, en þaðan fór það í þrýstidælu í vatnsæðakerfi hússins. Loks lét ég gera raflögn i húsið. Annaðist Halldór Guð- mundsson rafmagnsfræðingur það verk með stakri vandvirkni, eins og honum var lagið. Að húsabaki lét ég gera gripahús og hlöðu, svo ég gæti haft þar kýr og reiðhesta á fóðrum." Thor Jensen segir svo frá því, að milli fundahalda vegna Milljónafélagsins í Kaupmanna- höfn veturinn 1908 hafi hann notað tímann til að kaupa húsgögn. „Þótt ég sæi ekki eftir fénu, sem til hússins hafði farið, hennar á því sem hann var að gera. Fyrir um það bil 40 árum eignaðist góðtemplarareglan húsið á Fríkirkjuvegi 11 og hafði þar starfsemi sína, en þá var kjallaranum breytt í samkomu- sal. Lengi var rannsóknarlög- reglan þar til húsa uppi. Skömmu fyrir 1970 stóð til að byggja hús Seðlabankans á lóðinni og urðu miklar deilur um það. Komu fram áskoranir á yfirvöld að leyfa þessu gamla húsi að standa og samdi Reykja- víkurborg þá um að skipta á lóð við bankann, og eignaðist húsið. Síðustu árin hefur Æskulýðsráð Reykjavíkur haft aðsetur í húsinu með skrifstofur og fund- arherbergi uppi, en leiksýningar o.fl. niðri. Nú í vor var gert upp garðhús- ið við Fríkirkjuveg 11, eitt glæsilegasta húsið í borginni í 70 ár, en húsið sjáift lét Reykjavíkurborg gera upp 1973 og var vandað mjög til aðgerða undir stjórn Leifs Blumensteins. Þetta vandaða einbýlishús, sem Thor Jensen lét reisa árið 1907, er eitt af þeim húsum við Tjörnina, sem borgarstjórn hef- ur nú ákveðið að vernda til frambúðar með friðlýsingu. Lóðina keypti Thor Jensen úr Útsuðurvelli af Eggert Claessen og J. Jónassyni og fyllti sjálfur upp í vik í Tjörninni fram undan húsinu. Sama ár lét hann reisa húsið og útihús ári síðar. En þar hafði hann m.a. 4 kýr, „til að vera viss um að hafa allan ársins hring nægilega mjólk fyrir sitt 16—18 manna heimili." Til hússins sjálfs var svo vandað, að Thor Jensen lá undir gagnrýni fyrir að hafa eytt miklu í það. Enda ber það þess merki enn í dag. íbúðarhúsið er járnvarið timburhús, tvílyft með risi, kvisti, karnöppum og þaksvölum. Tréskurðarskraut er utan og innan á húsinu og gefur því sérstakan svip. Tólf súlur úr tré eru utan á húsinu og við forstofuinngang. Tröppur við forstofuinngang eru úr Borg- undarhólsgraníti of* handrið úr járni og teakviði. A veggjum í forstofu og stigagangi er skraut- málaður strigi, sem ekki hefur verið raskað frá upphafi. Her- bergjaskipan hefur haldist óbreytt, en þrjár stofur eru í framhlið hússins, en parketgólf í þeirri stærstu og spjaldaloft, sem var skrautmálað og er aðeins einn listinn eftir með laufbogamynstri. í ævisögu hins mikla athafna- manns, Thors Jensens, er sagt frá húsbyggingunni, sem hann réðst í 1907 til að halda upp á 30 ára veru sína hér á landi. „Frá unga aldri hafði ég haft yndi af húsasmíðum," segir hann. „Fór ég nú í Landsbóka- safnið og fékk lánaðar bækur um húsagerð. Valdi ég fyrir- mynd að hinu nýja húsi í einni þeirra, en gerði þó á henni ýmsar breytingar. Einar Er- lendsson húsameistari gerði alla uppdrætti fyrir mig. Leysti hann það verk mjög vel af hendi svo að auðvelt var að panta íkirkjuvegur 11 man ég að það hvarflaði stund- um að mér þessar vikur í Höfn, að þarna hefði ég verið of stórtækur," segir hann. En það tókst að fá húsinu lokið í tæka tíð, svo þau hjónin gátu flutzt þangað 5. júní 1908, en börnin voru þá orðin 11 og öll í heimahúsum. Lýsir Thor húsinu og segir að niðri hafi verið stofur gegnt vestri. Hin stærri fyrir miðju var viðhafnar- og veislusalur og lítið notuð nema á stórhátíðum og við önnur sérstök tækifæri. Borðstofa var undir norðurhlið, svo rúmgóð, að vel mætti bæta við mörgum gestum, enda þótt fjölskyldan væri orðin 14 manns. Skrifstof- an var í suðausturhorninu niðri. Næst við hana móti austri setustofa húsmóðurinnar, en Thor kveðst aldrei hafa unað sér vel nema hún væri einhvers staðar nálægt og hann gæti hvenær sem var leitað álits Hvað eiga Rolling Stones, Joe Walsh, Soft Machine og Yes sameiginlegt? Jú, allar þessar hljómsveitir (tónlistarmenn) hafa nú nýlokið við upptöku nýrra hljómplatna, sem væntanlegar eru á markaðinn seinna í þcssum mánuði og í júní. Plata Rolling Stones, sem vænt- anlega kemur út snemma í júní, ber nafnið „Some Girls" og er hún fyrsta plata hljómsveitarinnar sem út kemur hjá EMI-hljóm- plötuútgáfufyrirtækinu. Á henni eru níu lög eftir þá Jagger og Richard og eitt lag eftir Norman Whitfield og Barrett Strong. Þá kemur einnig út lítil hljómplata með Stones, og ber hún nafnið „Miss You“. Nýja hljómplatan þeirra í Soft Machine fær ekki góða dóma í Bretlandi, en trommuleikari hljómsveitarinnar John Marshall tekur því með bros á vör. Annars er það nýtt að frétta af Stones að þeir eru að leggja upp í hljómleikaferð um Bandaríkin og líklegt þykir að þeir muni einnig spila 1 Bretlandi seinna á árinu. Hljómleikaferðalagið er þó skipu- lagt með þeim fyrirvara að Keith Richard, annar gítarleikari hljóm- sveitarinnar, fái leyfi lögreglu til að fara í hljómleikaferðalagið, en hann var nýlega tekinn fastur fyrir að hafa eiturlyf í fórum sínum. Hljómplata Joe Walsh nefnist „But seriously, folks" og mun koma út hinn 16. næsta mánaðar. Lítið er vitað um þá hljómplötu, utan hvað að hún kemur út hjá Asylum-fyrirtækinu. Nýja plata Soft Machine ber nafnið „Alive and well recorded in Paris“, og var, eins og nafnið bendir til, tekin upp í París. Hljómsveitina skipa nú John Marshall, trommur og ásláttar- hljóðfæri, Karl Jenkins, hljóm- borð, John Etheridge, gítar, Ric Sanders, fiðlu, og Steve Cook, bassa. Að dómi tónlistargagnrýn- enda í Bretlandi hefur hljómsveit- in oft verið betri en nú, og nýja hljómplatan fær ekki alltof góða dóma. Öðru máli gegnir um hina nýju hljómplötu Yes, sem hljómsveitin er að hljóðrita núna. Hún fær góða dóma hjá gagnrýnanda Melody Maker, sem tekur jafnvel svo djúpt í árinni, að segja hana vera beztu hljómplötu sem Yes hefur látið frá sér fara. Hljómplata þessi hefur enn ekki hlotið nafn, en tónlistin á henni er sögð vera eðlilegt framhald þeirr- Jon Anderson í stúdfóinu að vinna við upptöku á nýrri plötu þeirra í Yes. ar stefnu tónlistar er var á seinustu plötu Yes, „Going for the one“. Hljómsveitina Yes skipa nú Jon Anderson, söngur og kassagítar, Steve Howe, gítarar, Chris Squire, bassi, Rick Wakeman, hljómborð, og Alan White, trommur. Enn sem komið er, er ekki vitað hvenær hljómplata Yes kemur út, en sé hún jafngóð og af er látið, ætti að vera vel þess virði að bíða eftir henni. Gilmour med „sóló-plötu” í NÆSTU viku er væntanleg á markaðinn hljómplata með gi'tar leikara Pink Floyd, Dave Gilmour. Hljómplata þessi er fyrsta sóló-plata Gilmours og ber hún einfaldlega nafnið „Ilave Gilmour“. Hljómplatan er tekin upp í Suður-Frakklandi og á henni leika ásamt Gilmour, Willie Wilson trommuleikari, Rick Wills bassa- leikari og Mick Weaver hljóm- borðsleikari. Athygli vekur að enginn liðsmanna Pink Floyd aðstoðar Gilmour á plötunni. Á hljómplötunni eru níu lög og nefnast þau: „Mihalis", „There's no way out of here“, „Cry from the street", „So far away“, „Short and sweet", „Raise my rent“, „No way“, „Definitely" og „I can‘t breathe anymore". Beck í góðum félagsskap NÝLEGA var staðfest að gítar- leikarinn góðkunni, Jeff Beck. mun koma fram á tónleikunum 24. júní næstkomandi í Knebworth í Englandi. Ekki er vitað hverjir munu verða í hljómsveit Becks, en því hefur verið fleygt að bassaleikar- inn Stanley Clarke verði í henni, og sennilega einhverjir af kunn- ingjum Clarkes. Áðrir sem leika munu á hljóm- leikum þessum, sem haldnir eru ár hvert, eru Genesis, Jefferson Starship og Brand X, svo nokkrar hljómsveitir séu nefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.