Morgunblaðið - 18.05.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
5
Gamlar Kiljansbækur
— á uppboði Klausturhóla
Jón Reykdal og Tove Engilberts með eina af myndum Jóns heitins Engilberts.
Minningarsýning í Norr-
æna húsinu um Engilberts
Listamadurinn hefdi ordid sjötugur 23. þ.m.
Minningarsýning um Jón
Engilberts verður opnuð í
sýningasal Norræna hússins
í kvöld, og mun hún standa
til 30. þessa mánaðar, en á
þessu tímabili, eða 23. maí
nánar tiltekið, hefði lista-
maðurinn orðið sjötugur.
Aðstandendur þessarar
minningarsýningar eru
ekkja Engilberts, Tove, og
félagar í félagsskap ísl.
grafíklistamanna en Jón var
á sínum tíma stofnandi
þessa félagsskapar og síðan
heiðursfélagi þegar félagið
var endurreist af Einari
Hákonarsyni o.fl. fyrir
nokkrum árum.
A þessari sýningu eru eingöngu
teikningar, litkrítarmyndir og
vatnslitamyndir, samtals um 120
myndir og allflestar til sölu. Að
sögn Jóns Reykdals sem unnið
hefur við uppsetningu sýningar-
innár af hálfu grafíklistamanna,
má segja að litkrítarmyndirnar
myndi eins konar rauðan þráð á
sýningunni, alls um 70 talsins, og
spanna þær yfir um 30 ára tímabil
— frá 1937 til 1968. Vatnslita-
myndirnar og teikningarnar eru af
ýmsu tagi og hinar fjölbreytileg-
ustu allt frá því að listamaðurinn
er 18 ára og að fást við hefðbundin
skólaverk og fram undir síðustu
æviár hans, en Jón lézt 12. febrúar
1972.
Sýningin í Norræna húsinu
verður opin daglega frá 4—10
virka daga en frá 2—10 um helgar.
KLAUSTURHÓLAR, listmuna-
uppboð Guðmundar Axelssonar,
efna til 44. uppboðs fyrirtækisins
laugardaginn 20. þessa mánaðar
og hefst uppboðið kl. 14.00 í
Tjarnarbúð. Seldar verða bækur.
Blaðinu hefur borist uppboðs-
skráin, sem að venju er skipt í
flokka eftir efni: Ýmis rit, ljóð,
rímur, rit íslenzkra höfunda,
málfræðirit og orðasöfn, fornrita-
útgáfur og fræðirit, blöð og
tímarit, Hallgrímur Pétursson,
sagnaþættir, saga lands og lýðs,
æviminningar.
Alls verða seld 200 verk. Meðal
þeirra má nefna Islenzka sálma-
saungsbók með nótum, Kaup-
mannahöfn 1861, Útsýn, þýðingar
eftir Einar Benediktsson og fleiri,
Kh. 1892, Kvæði og nokkrar
greinir eftir Benedikt Gröndal,
Kh. 1927, Ordbog til Rimur, útg. af
Finni Jónssyni I—II, Kh. 1926—27,
Lexicon Poeticum, útg. Sveinbjörn
Egilsson, Kh. 1913—1916. Tímarit-
ið Stundin, gefin út af Sigurði
Benediktssyni, Rvík 1940—1941,
Sagan af Þuríði formanni, Rvík
1893—1897, með öllum kápum,
Islandske folkesagn og æventyr,
útgáfa Carls Andersen, Kjöben-
havn 1877. Aldahvörf í Eyjum
eftir Þorstein í Laufási. Islenzkir
samtíðarmenn I—II, Grafminn-
ingar útgefnar af Magnúsi Step-
hensen, Viðeyjarklaustri 1842,
Skóhljóð eftir Steindór Sigurðs-
son, Vestmannaeyjum 1930, Sól og
menn eftir Vilhjálm frá Skáholti,
ljóðmæli Magnúsar Stephensen,
Viðey 1842 og Steingrímur Thor-
steinsson, ein islándischer Dichter
eftir J.C. Poestion, Munchen og
Leipzig 1912. Auk þess verða
seldar ýmsar af frumútgáfum
Halldórs Laxness, þ.á.m. fyrsta
bók höfundarins, Barn náttúrunn-
ar. Einnig ljóðabók Þórbergs
Þórðarsonar, Hvítir Hrafnar.
Bækurnar verða til sýnis að
Klausturhólum, Lækjargötu 2, á
föstudag kl. 9.00—22.00, en upp-
boðið hefst laugardaginn 20.
klukkan 14.00 í Tjarnarbúð.
Kosninga-
útvarp á
stuttbylgju
Við bæjar og sveitarstjórna-
kosningarnar 28. maí og Al-
þingiskosningar 25. júní, verður
kosningaútvarp á stuttbylgju.
Útvarpað verður á 12175 khz eða
24,6 metrum. Sendingar þessar
cru ætlaðar sjómönnum á kaup-
skipum og fiskiskipum á fjar
lægum miðum og Islendingum
crlendis. Við hagstæð skilyrði
ætti að verða hægt að ná þessum
sendingum á góð tæki með
loftneti sums staðar í Vest-
urEvrópu.
Kosningaútvarp hefst um
klukkan 22.00 báða kosningadag-
ana og stendur fram eftir nóttu.
Hádegisfréttir Útvarpsins eru
alltaf sendar út á stuttbylgju á
sömu bylgjulengd, segir í frétt
frá fréttastofu útvarpsins.
MARQIR I1ALDA AD
I1ÁTALARAR
SCU ADCINS FYRIR
ATVINNUMCNN...
Ljósmyndasýn-
ing á ísafirði
ísafirði 17. maí
UNDANFARNA daga hefur stað-
ið yfir ljósmyndasýning í kjallara
Alþýðuhússins. Að sýningunni
standa 4 ísfirskir ljósmyndarar.
Þeir eru Jón Hermannsson, en
hann var með málverkasýningu
hér fyrr í vetur, Leó Jóhannsson,
Ilörður Kristjánsson og Sverrir
Jónsson, en þeir starfa allir á
Ljósmyndastofu Lcós.
. Tilefni sýningarinnar er að
Félag áhugaljósmyndara á ísafirði
var stofnað fyrr í vor.
Með sýningunni vilja þeir vekja
áhuga fólks á ljósmyndun og þeirri
miklu gleði sem þessi listgrein,
sem allir geta stundað, getur veitt.
Um 1000 manns sóttu sýninguna
og hafa nokkrar myndir selst.
Meðal mynda voru svarthvítar
myndir frá tíma Jóns Hermanns-
sonar á togurunum ísborgu og
Sólborgu og nýteknar litmyndir af
bæjarlífinu á Isafirði.
- Úlfar.
en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara,
notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér.
Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles
Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir
vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess.
AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um -
VELJIÐ AR HÁTALARA. -...
/Pekking
feynsla
Þjonust
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA