Morgunblaðið - 18.05.1978, Page 12

Morgunblaðið - 18.05.1978, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978 ríkisins á morgun Þossir mcnn tala á ársfundi Rannsóknaráðs ríkisins (frá vinstri)i Freyr Þórarinsson, Ingvi Þorstoinsson, Jakob Jakobsson. Páll Theódórsson, Ásbjörn Einarsson, Steingrímur Hermannsson ok Sigmundur Guðbjarnason. Ljósm. Kristján. Neskaupstadur og Vest- mannaey jar takmarka kjaraskerðinguna Á MORGUN verður haldinn í Háskólabíói ársfundur Rannsóknaráðs ríkisins en á fundinum verður gerð grein fyrir starfsemi ráðsins og sérfræðingar flytja erindi þar sem greint verður frá ýmiss konar rannsókna- starfsemi sem þeir hafa átt þátt f. Fundurinn hefst kl. 14 með því að Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra setur fund- inn, en hann er formaður Rann- sóknaráðs ríkisins. Þá flytur Steingrímur Hermannsson fram- kvæmdastjóri Rannsóknaráðsins erindi um starfsemi ráðsins og kynnir hann jafnframt langtíma- áætlun um rannsóknir í þágu atvinnuveganna. Síðan verða flutt þessi erindi: Páll Theódórsson eðlisfræðingur, forstöðumaður Eðlisfræðistofu Raunvísindastofn- unar Háskólans: um smíði og þróun rafeindatækja á Islandi; Ingvi Þorsteinsson magister hjá Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins: um rannsóknir á ástandi og beitarþoli íslenzkra gróðurlenda; TVEIR kaupstaðir hafa sam- þykkt að bæta upp vísitölu- skerðinguna. Vestmannaeyj- ar og Neskaupstaður. Á Neskaupstað hefur bæjar- stjórnin samþykkt að greiða verkamönnum, sem hjá bæn- um vinna, fullar vísitölubæt- ur, en í Vestmannaeyjum var ákveðið að reikna út, hver vísitöluskerðingin væri á 3. taxta Verkamannasam- handsins og láta þá fjárhæð sfðan ganga upp úr. Þá fengu allir starfsmenn Nes- kaupstaðar eins flokks hækkun, er gengið var frá sérkjarasamningum. I Vestmannaeyjum samþykkti bæjarstjórnin að reiknað yrði út hver væru laun á 3. taxta Verka- mannasambandsins samkvæmt samningunum frá því í sumar og eins samkvæmt kjaraskerðing- unni. Samþykkti bæjarstjórnin að bæjarsjóður greiddi sem launa- uppbót mismuninn og sama krónu- tala kæmi á öll laun bæjarstarfs- manna og annarra starfsmanna, sem væru á kjörum Verkamanna- sambandsins. í Neskaupstað var hins vegar samþykkt að greiða verkamönnum hjá bæjarfélaginu í samræmi við samningana frá í sumar að fullu. Þessi samþykkt nær hins vegar ekki til félaga innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, en hins vegar var Neskaupstaður nýbúinn að gera sérkjarasamninga við Starfsmannafélagið, þar sem allir bæjarstarfsmenn fengu eins flokks hækkun. Skrifstofa Óðins opin daglega fram yfir kosningar SKRIFSTOFA Málfundafélags- ins Óðins í Valhöll. Iláaleitis- braut 1. er nú opin alla virka daga frá kl. 17 — 19 fram að kosningum. Síminn er 82927. Óðinsfélagar og aðrir stuðnings- menn Sjálfstæðisflokksins eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna og jafnframt hvattir til að taka þátt í atvinnustétta- og vinnustaðafundum með borgar- stjóra en skrifstofa félagsins veitir nánari upplýsingar um tilhögun þeirra. Þessi híll endaði feril sinn þarna við veginn milli Hellu og Ilvolsvallar. Ökumaður. sem stefndi í sömu átt og kyrrstæði bíllinn á myndinni snýr. virðist hafa misst vald á farkostinum. sem eftir förun- um að dæma fór út af veginum og í sveig að honum aftur, síðan valt hann yfir veginn, lenti á hjólunum hinum mcgin og komst í öðrum sveig að veginum aftur. en ekki lengra. Ökumaður lét lögregluna ekki vita. en hann mun hafa sloppið ómeiddur. Þessi atburður varð f bftið á laugardagsmorgun, en í gær hafði lögreglan á IIvolsvclli ekki haft tal af ökumanninum. Ljósm.i Óskar Sæmundsson. Tímarit SÁÁ komið út Nýlega kom út 1. tölublað annars árgangs af Tímariti S.Á.Á., en ritstjóri þess er Garðar Jóhann Guðmunds- son. I ritinu er margvíslegt fræðsluefni um áfengismál, auk greina og viðtala. Þá er iagt frá athugun, sem til 'amans var gerð á því ivernig 185 Freeport—farar skiptust eftir stjörnumerkj- um, og varð niðurstaðan sú, að þar fóru ljón fremst í flokki, og voru 12,4%. Síðan kom nautsmerkið, 10,3%, þá komu meyjarmerki og bog- menn með 9,7%, og í fimmta sæti var vogarmerkið, 9,2%. Hópur bandarískra dómara var á ráðstefnu hérlendis fyrir nokkrum dögum. Meðal annars heimsótti hópurinn Ilæstarétt, þar sem dómararnir og makar þeirra hlýddu á erindi dr. Ármanns Snævars, forseta Hæstaréttar. Var myndin tekin við það tækifæri. Ljógm MW RAX dr. Ásbjörn Einarsson hjá Rann- sóknastofnun iðnaðarins: um iðn- tækniþjónustu; Freyr Þórarinsson jarðeðlisfræðingur hjá Orkustofn- un: um jarðhitarannsóknir á lághitasvæðum; og Jakob Jakobs- son hjá Hafrannsóknastofnun um aðferðir til að meta stærð fisk- stofna. Fundinum verður slitið um kl. 16.30 af formanni fram- kvæmdanefndar Rannsóknaráðs, dr. Sigmundi Guðbjarnasyni prófessor. Steingrímur Hermannsson sagði að þessi fyrsti ársfundur væri haldinn til að kynna fyrir almenn- ingi rannsóknastarfsemi á sviði raunvísinda, en það væri eitt meginverkefni Rannsóknaráðs ríkisins að efla rannsóknir er kæmu að gagni á hinum ýmsu sviðum atvinnu- og þjóðlífsins. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa fyrir þessu efni og til hans hefur verið boðið fulltrúum frá ýmsum rannsóknastofnunum, ráðuneytum og samtökum at- vinnuveganna. Sæljón hæstur vertíðar- bátaá Eskifirði Eskifirði, 17. maí. VETRARVERTÍÐ er lokið hér á Eskifirði og hafa stærri bátar tekið upp netin. Afli var allgóður á vertíð- inni og gæftir sæmilegar. Mestan afla vertíðarbáta hér fengu Sæljón 500 lestir, Vöttur 406 lestir. Nú eru sjómenn að búa bátana á aðrar veiðar, ýmist á troll eða humarveiðar, en minni bátar halda áfram með net- in. Togararnir hafa aflað allvel, þetta 100—150 lestir í sjóferð. Vorið hefur verið fremur svalt hér, þar til að hlýnað hefur siðustu daga. Fréttaritari Reyðar- fjarðar- bátar fengu 1246 lestir Reyðarfirði 17. maí VERTÍÐ hjá Reyðarfjarðarbát um lauk 12. maí. Afli Gunnan varð 700 tonn, sem gáfu 1.65Í þúsund krónur í hásetahiut, ojj afli Snæfugls varð 546 tonn. seæ gáfu 1.194 þúsund krónur hásctahlut. Allur vertíðaraflinn liggur salti og töluvert af fiski frá því haust. Fréttaritari Fyrsti ársfundur Rannsóknarráðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.