Morgunblaðið - 18.05.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
13
Kórinn á æfingu
Kór Langholtskirkju
heldur tvenna tónleika
Um helgina heldur kór Lang-
holtskirkju tvenna tónleika í
Reykjavík. Efnisskráin verður
fjölbreytt og meðal verka verður
mótettan „Jesu meine Freude"
eftir Johann Sebastian Bach. Þá
mun kórinn frumflytja verk sem
tónskáldin Þorkell Sigurbjörnsson
og Jón Ásgeirsson sömdu sérstak-
lega fyrir hann í vetur. Þau verða
meðal verka sem hann flytur á
Norræna kirkjutónlistarmótinu í
Helsinki í sumar en þar verður
kórinn í annað sinn fulltrúi
íslands á slíku móti.
Tónleikarnir
um helgina verða lokatónleikar
kórsins á þessu starfsári en í vetur
hélt hann þrenna tónleika auk
þess að taka þátt í hátíðarhljóm-
leikum Landssambands blandaðra
kóra.
Fyrri tónleikarnir verða í Lang-
holtskirkju föstudagskvöldið 19.
maí og hefjast klukkan 21.00 og
síðari tónleikarnir í Háteigskirkju
laugardaginn 20. maí klukkan
17.00. Miðar verða seldir við
innganginn, en styrktarfélagar fá
að venju ókeypis aðgang.
Stjórnandi kórs Langholtskirkju
er Jón Stefánsson.
Lög staðfest á
ríkisráðsfundi
75 ára í dag
Guöni Brynjólfsson, Tjarnargötu
6, Keflavík, er 75 ára í dag, 18. maí.
Eskifirði, 17. maí.
TVÖ ný fiskiskip bættust í flota
Eskfirðinga í gært Ilriinn SU 155
og nótaskipið Jón Kjartansson
SU 111.
Hrönn, sem er 41 lestar tréskip,
er keypt frá Ólafsvík og eru
eigendur Haraldur hf. Skipstjóri á
Hrönn er Jóhannes Steinsson.
NÝLEGA hélt Garðyrkjufélag
Islands aðalfund sinn. I stjórn
félagsins eru Jón Pálsson
formaður, Þórhallur Jónsson vara-
formaður, Ólafur B. Guðmundsson
ritari, Berglind Bjarnadóttir
gjaldkeri, og Einar I. Siggeirsson
meðstjórnandi.
Starfsemi félagsins er mjög
öflug og virðist fræ og lauka-
dreifing eiga miklum vinsældum
að fagna meðal félagsmanna
A FUNDI ríkisráðs í Reykjavík.
miðvikudaginn 10. maí 1978.
staðfesti forseti íslands eftir
greind lög.
1. Lög um breyting á lögum nr.
18 22. apríl 1959, um vöruhapp-
drætti fyrir Samband íslenskra
berklasjúklinga.
2. Lög um breyting á lögum nr.
29 16. des. 1885 um lögtak og
fjárnám án undangengins dóms
eða sáttar.
3. Lög um breyting á lögum nr.
19 4. nóv. 1887, um aðför.
Jón Kjartansson sem áður hét
Narfi RE 13 er keyptur hingað af
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf.
Mun hann halda strax til kol-
munnaveiða á Færeyjamiðum.
Skipstjóri er Þorsteinn Kristjáns-
son, sem undanfarið hefur verið
skipstjóri á Hólmatindi.
Fréttaritari.
einkum úti á landi. í félaginu eru
um 4600 félagar. Félagið gefur út
fréttabréfið „Garðinn" sem kemur
út 5—6 sinnum á ári. Einnig
Garðyrkjuritið, sem flytur marg-
víslegan fróðleik, en það er
væntanlegt í þessum mánuði.
Allmiklar umræður urðu á
fundinum um áhugaleysi
sjónvarps, við að sýna garðyrkju-
þætti, myndir úr blómagörðum
eða öðrum gróðri.
4. Lög um breyting á lögum nr.
18 22. mars 1949, um kyrrsetningu
og lögbann.
5. Lög um breyting á lögum nr.
19 4. júní 1924, um nauðasamn-
inga.
6. Lög um breyting á lögum nr.
19 6. apríl 1966, um eignarrétt og
afnotarétt fasteigna.
7. Þinglýsingalög.
8. Lög um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til þess að fullgilda fyrir
Islands hönd samning milli Lýð-
veldisins Islands og Sambandslýð-
veldisins Þýskalands um gagn-
kvæma aðstoð í tollamálum.
9. Lög um breyting á lögum nr.
86 16. des. 1943, um ákvörðun
leigumála og söluverðs lóða og
landa Reykjavíkurkaupstaðar.
10. Lög um breyting á lögum nr.
4 28. nóvember 1919, um landa-
merki o.fl.
11. Lög um breyting á lögum nr.
46 27. júní 1941, um landskipti.
12. Lög um breyting á jarðalög-
um nr. 65 31. maí 1976.
13. Lög um breyting á lögum nr.
51 2. maí 1968, um bókhald.
14. Lög um breyting á lögum nr.
79 23. des. 1975, um aukatekjur
ríkissjóðs, sbr. lög nr. 103 27. des.
1976, um breyting á þeim lögum.
Þá undirritaði forseti Íslands
skjal um aðild íslands að alþjóða-
samningi um ræðissamband ásamt
tveimur viðbótarbókunum við
hann varðandi ríkisborgararétt og
skyldubundna lausn deilumála.
Peter Metinus Anthonisen var
leystur frá störfum sem kjörræðis-
maður íslands í Skagen.
Ferdinando Spinelli var leystur
frá störfum sem kjörræðismaður
íslands í Torino.
Anthony John Hard.v var skip-
aður kjörræðismaður Islands í
Hong Kong.
Staðfestir voru ýmsir úrskurðir,
sem gefnir höfðu verið út utan
ríkisráðsfundar.
Ríkisráðsritari.
1G. maí 1978.
Tvö fiskiskip
til Eskif jarðar
4600 félagar í
Garðyrkjufélaginu
HagstæÖ
matarkaup
Heilir dilkaskrokkar
2.verÖ,f1. 883 kr/kg
Súpukjöt 925 kr/kg
Dra grænar baunir 1/1 ds, 289 kr
Cheerios 7 oz 259 kr
Bugles 385 kr
Rauð Flóridaepli 379 kr/kg
Fldridaappelsinur 219 kr/kg
OpiÓ til kl.10 í kvöld
HAGKAUP
SKEIFUNN115
Félagsstarf eldri borgara
Dagsferðir
sumarið 1978
Eins og undanfarin sumur efnir Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar nú til tólf dagsferða fyrir eldri
Reykvíkinga.
Farnar verða eftirtaldar feröir:
1. ferð: Fimmtudaginn 15. júní.
Skoðaöar verða sýningar á listahátíð: Erro-sýning-
in, sýning Kristjáns Davíðssonar, finnska sýningin
og höggmyndasýningin. Síðan verður drukkið kaffi
í Hljómskálagaröinum, ef veöur leyfir. Verð kr.:
650.00.
2. ferð: Fimmtudaginn 22. júní.
Farið verður um Þrengsli til Krísuvíkur og
Grindavíkur. Verð kr.: 1.400.00.
3. ferð: Þriðjudaginn 27. júní.
Skoöuð verður Hitaveita Reykjavíkur, Mosfells-
sveit, Vinnuheimiliö að Reykjalundi og Laxeldis-
stööin í Kollafiröi. Verö kr. 700.00.
4. ferð: Fimmtudaginn 29. júní.
Farið verður til Þingvalla og aö Laugarvatni. Verð
kr.: 1.400.00.
5. ferð: Þriðjudaginn 4. júlí.
Farin veröur skoðunarferð í kirkjur í Reykjavík.
Dómkirkja, Landakot, Neskirkja, Fríkirkja og
Hallgrímskirkja. Tónleikar og söngur. Verð kr.:
650.00.
6. ferð: Fimmtudaginn 6. júlí.
Fariö verður upp í Skorradal um Dragháls og heim
um Stafholtstungur. Verð kr. 2.300.00.
7. ferð: Þriðjudaginn 11. júlí.
Farið verður í Heiömörk, sædýrasafniö og kaffi
drukkiö í Hellisgeröi, Hafnarfirði, ef veður leyfir.
Verð kr.: 700.00.
8. ferð: Fimmtudaginn 13. júlí.
Farið verður að Búrfelli og skoðaður þjóðveldis-
bærinn. Verð kr.: 2.300.00.
9. ferð: Þriðjudaginn 18. júlí.
Farið verður í Hverageröi, skoöaður verður
Garðyrkjuskóli ríkisins og dvalarheimilið Ás/Ás-
byrgi. Verð kr. 800.00.
10. ferð: Fimmtudaginn 20. júlí.
Farið verður að Munaðarnesi í Borgarfirði. Skoöuð
verða orlofshús. Verð kr.: 2.300.00.
11. ferð: Þriöjudaginn 25. júlí.
Farin verður skoöunarferð um Garðabæ, um
Álftanes, komið við á Bessastööum og ekið um
Arnarnes. Verö kr.: 650.00.
12. ferð: Fimmtudaginn 27. júlí.
Farin verður Reykjavíkurferð. Skoöaö verður
Alþingishúsið, ekið um Árbæ og Breiöholt,
skoðaður fundarstaður borgarstjórnar og þar
veröa kaffiveitingar. Verö kr.: 650.00.
Nánari upplýsingar gefnar aö Noröurbrún 1, alla virka
daga klukkan 9:00—12:00. Sími 8 69 60.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.