Morgunblaðið - 18.05.1978, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
Páll Daníelsson
skrifar:
Sterkasta
aflið
Fólk hefur orðið áþreifanlega
vart við það að skammur tími er
orðinn til kosninga og hafa víða
orðið all langar og strangar
fæðingahríðir í sambandi við að
koma saman framboðslistum.
Kemur þar tvennt til. Annars
vegar hafa menn ekki sýnt þá
reisn að taka úrslitum prófkjöra,
enda þar um nokkra misnotkun að
ræða hjá smærri flokkum, þar sem
frambjóðendur hafa leitað mjög til
stuðningsfólks annarra flokka til
þess að hjálpa sér persónulega í
prófkjöri og kom slíkt einna bezt
í ljós hjá Alþýðuflokknum. Hins
vegar hafa flokkar eins og Alþýðu-
bandalagið forðast að sleppa
nokkrum áhrifum til hins almenna
kjósanda en þeim mun harðari
hefur innbyrðis valdabaráttan
orðið.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar-
firði viðhafði prófkjör í sambandi
við uppstillingu til bæjarstjórnar
með miklum glæsibrag. Þátttaka
var mikil, frambjóðendur margir
og allir það hollir sínum flokki og
sínu byggðarlagi að engin brota-
löm varð, enda þótt margir hverjir
legðu sig fram um að ná sem
beztum árangri. Vandi við sam-
setningu framboðslista á eftir
varð því lítill og um hann alger
einhugur. Er ánægjulegt að leggja
út í kosningabaráttu við slíkar
aðstæður.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ver-
ið í meirihlutaaðstöðu líðandi
kjörtímabil og hefur svo vel til
tekizt að margir, bæði stuðnings-
menn meirihlutans og fólk, sem
tilheyrir minnihlutaflokkunum í
bæjarstjórn, tala um þetta kjör-
tímabil sem eitthvert rismesta
kjörtímabil í sögu bæjarins hvað
snertir framfarir í byggðarlaginu.
Má þar nefna hitaveituna, gatna-
gerðarframkvæmdir og malbikun
gatna, byggingar skólahúsnæðis,
en 26 nýjar kennslustofur voru
teknar í notkun á kjörtímabilinu,
miklar framkvæmdir á vegum
rafveitu og hafnar, byggingar
fyrir aldraða, ýmsar framkvæmdir
á sviði félagsmála o.fl. Jafnframt
þessu hefur fjármálastjórn bæjar-
ins verið mjög traust og stendur
bæjarfélagið vel fjárhagslega.
Sjálfstæðisflokkurinn er lang
sterkasta aflið í stjórn bæjarmál-
anna með 5 bæjarfulltrúa af 11 og
er það sýnt að eigi áfram að vera
sterk stjórn í bænum þá verður
það ekki án aðildar Sjálfstæðis-
manna. Þeir einir geta tryggt
bænum áframhaldandi framfarir,
geta tryggt bænum sterka stjórn.
Þetta skilja bæjarbúar og munu
því leggjast á eitt og stuðla að því
að Sjálfstæðisflokkurinn komi
sem sterkastur út úr þessum
kosningum. En til þess þurfum við
öll að vinna vel. X—D.
Páll V.Daníelsson.
AUCI.VSINGASIMINN ER:
^22480
J JHorcuutiIetiií)
Menzies
látinn
Sydney, Ástralíu, 16. maí.
AP.
SIR ROBERT Menzies, sem
lengst hefur gegnt forsætis-
ráðherraembætti í Ástralíu,
lézt á mánudag, annan í
hvítasunnu, í Melbourne.
Hann var 84 ára gamall.
Hann hafði hætt öllum af-
skiptum af stjórnmálum fyr-
ir tólf árum.
Menzies setti mjög svip á
áströlsk stjórnmál er hann
var forsætisráðherra sam-
fleytt árin 1949-1966. Hann
var lögfræðingur að mennt,
ræðumaður góður, íþrótta-
maður og mjög hlynntur
Englendingum og öllu sem
enskt var. „Hann kunni vel
að njóta lífsins lystisemda.
Hann hafði ímugust á blaða-
mönnum og sósíalistum",
segir í fréttaskeyti AP um
hann.
Menzies setti saman stjórn
Frjálslynda flokksins sem
tók við af stjórn Verka-
mannaflokksins 1949. Hann
þótti harðskeyttur en heið-
virður stjórnmálamaður.
Hann varð forsætisráðherra
í fyrsta skipti árið 1939, en
varð að segja af sér tveimur
árum síðar eftir mikla
flokkadrætti innan Frjáls-
lynda flokksins. Síðar kom
hann aftur fram á sjónar-
sviðið og leiddi flokk sinn til
sigurs í fimm kosningum
milli 1951 og 1963.
ÆviiitýmfénMr
til næstu nágmnna
Gnunland
Ferö til Grænlands - þó stutt sé er engu lík. í
Grænlandi er stórkostleg náttúrufegurö og sér-
kennilegt mannlíf, þar er að finna hvor tveggja í
senn nútíma þjóðfélag eins og viö þekkjum þaó -
og samfélagshætti löngu liðins tíma.
Stórskemmtilegar feröir
sérstaklega fyrir fjölskyldur - starfshópa
og félagasamtök.
Spyrjið sölufólk okkar, umboðsmenn eóa
ferðaskrifstofumar um nánari upplýsingar.
Færeyjar
Það sem gerir Færeyjaferð að ævintýri er hin
mikla náttúrufegurð, ásamt margbreytilegum
möguleikum á skemmti- og skoðunarferðum um
eyjamar, og síðast en ekki síst hið vingjamlega
viðmót fólksins.
Ef þú ert einhvers staðar velkominn erlendis - þá
er það í Færeyjum.
loftleidir
ÍSLAA/DS