Morgunblaðið - 18.05.1978, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
Utgelandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulitrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Áskriftargjald 2000.00
í lausasölu
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aðalstræti 6, sími 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480.
kr. á mánuði innanlands.
100 kr. eintakið.
K osningabar áttan
Nú cru aðcin.s 10 dagar, þar til kjördagur vegna borgarstjórnar-
kosninjía í Rcykjavík og sveitarstjórnakosninga víðs vegar um
landið rennur upp. KosninKabaráttan í Reykjavík hefur verið ákaflega
róleg og umtal um borgarmál lítið. Margir furða sig á þessari deyfð,
enda mikið í húfi, þ.e. hvort meirihluti sjálfstæðismanna verður áfram
við völd eða við tekur sundruð hjörð vinstri manna í borgarstjórn. í
sjálfu sér er þessi rólega kosningabarátta þó fyrst og fremst til marks
um. að stjórn horgarmála er í góðum höndum og að borgarbúar hafa
yfir litlu að kvarta vegna framkvæmda og þjónustu borgarinnar við
þá. Ef óánægja ríkti með meirihluta sjálfstæðismanna, ef borgarbúar
hefðu mörg umkvörtunarefni á hendur borgaryfirvöldum, er enginn
vafi á því. að kosningabaráttan væri hávaðasamari en hún er nú.
Kosningaharátta minnihlutaflokkanna í borgarstjórn er einnig
staðfesting á því, að vel er haldið um stjórnvölinn hjá Reykjavíkurborg.
Minnihlutaflokkarnir hafa lítið haft sig í frammi og áberandi hefur
verið. að þeir hafa í raun og veru enga málefnalega gagnrýni fram
að færa. Ef kjósendur í Reykjavík væru spurðir að því í dag, hvað þeir
teldu öðru frcmur hafa einkennt kosningabaráttuna af hálfu
minnihlutaflokkanna yrði áreiðanlega fátt um svör af þeirri einföldu
ástæðu, að ekkert hefur einkennt hana öðru fremur.
Stefna borgarstjórnarmeirihlutans í þessari kosningaharáttu er hins
vegar ákaflega skýr. Mest áherzla er lögð á hina nýju stefnu í
atvinnumálum, sem Birgir ísl. Gunnarsson borgarstjóri hafði
frumkvæði um að marka í samráði við atvinnurekendur og launþega
í Reykjavík. Höfuðmarkmið þeirrar atvinnumálastefnu er að tryggja
hlut Reykjavíkur í atvinnuuppbyggingu á næstu árum og áratugum.
Miklu fjármagni hefur verið varið til atvinnuuppbyggingar úti á
landsbyggðinni og er allt gott um það að segja. Það má hins vcgar
ekki koma niður á atvinnuuppbyggingu í Reykjavík eða nágranna-
sveitarfélögum. Annar meginþáttur í kosningaharáttu meirihluta
borgarstjórnar eru skipulagsmálin. A síðasta áratug hafa ungir
Reykvíkingar unnið þrekvirki í byggingu Breiðholtshverfa, þar sem
á örfáum árum hefur risið upp borgarsamfélag, sem er tvöfalt
fjölmennara en stærstu kaupstaðir utan Reykjavíkur. Þetta er
auðvitað fyrst og frcmst verk þess fólks sjálfs, sem byggt hefur yfir
sig og sína í Breiðholtshverfum. En Reykjavíkurborg hefur þar komið
til sögunnar með skipulagi og þjónustu. A næstu tveimur áratugum
fram að aldamótum munu ný hverfi byggjast upp austan Elliðaáa og
hefur aðalskipulag þegar verið fullmótað og samþykkt fram til þess
tíma. í þriðja lagi má nefna „grænu byltinguna“ svonefndu. en
borgarstjóri lagði fram ítarlega framkvæmdaáætlun um umhverfismál
og útivistarsvæði fyrir 4 árum, sem nú er verið að endurnýja og er
gert ráð fyrir því skv. tillögum, sem lagðar voru fram í borgarráði
í fyrradag, að verja yfir 2000 millj. kr. á næstu árum til „grænu
byltingarinnar“.
I kosningaharáttunni hefur meirihluti sjálfstæðismanna einnig lagt
mikla áherzlu á málefni aldraðra og er nú ekkert sveitarfélag á
landinu. sem veitir öldruðum borgurum jafn fullkomna þjónustu og
aðbúnað og Reykjavíkurborg gerir, enda sækir eldra fólk mjög til
Reykjavíkur til þess að njóta þessarar þjónustu. En æskunni má heldur
ekki gleyma og að hennar hagsmunamálum hefur ötullega verið unnið
með uppbyggingu íþróttamannvirkja, skólamannvirkja. aðstöðu til
æskulýðsstarfsemi og fjölmargt fleira mætti nefna.
Það er því Ijóst nú, 10 dögum fyrir borgarstjórnarkosningar, að
málefnastaða meirihluta sjáfstæðismanna í horgarstjórn er mjög sterk,
að minnihlutaflokkarnir hafa ekkert haft fram að færa, hvorki
hugmyndir né tillögu um uppbyggingu eða gagnrýni á meirihluta
borgarstjórnar. En nú, eins og í upphafi þessarar kosningabaráttu, er
Ijóst, að hættulegasti andstæðingur borgarstjórnarmeirihlutans er
andvaraleysi borgarbúa sjálfra. Einmitt vegna þess, hve kosningabar-
áttan hefur verið róleg, einmitt vegna þess hve vel er haldið á málum
við stjórn Reykjavíkurborgar er hætta á því, að svo margir borgarbúar
gangi út frá því sem vísu, að meirihluti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn sé öruggur, að þeir hirði ekki um að notfæra sér
atkvæðisrétt sinn. í þessu er hættan fólgin. Það verður aldrei nægilega
undirstrikað, að til þess að tryggja áframhaldandi meirihluta
sjálfstæðismanna í borgarstjórn þurfa borgarbúar að koma til
skjalanna. ekki aðeins þeir sem líta á sig sem stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins í landsmálum heldur og einnig hinir, sem hafa
ekki veitt Sjálfstæðisflokknum atfylgi sitt á sviði þjóðmála en hafa hins
vegar viljað stuðla að meirihluta sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Allir þeir sem með einum eða öðrum hætti leggja hönd á plóginn
í þessari kosningabaráttu til borgarstjórnar af hálfu meirihluta
sjálfstæðismanna þurfa nú að herða róðurinn fram að kjördegi.
Urslitasóknin er að hefjast og úrslit þessara borgarstjórnarkosninga
munu ráðast af því, hvernig unnið verður á næstu tíu dögum víðs vegar
um borgina, í einstökum íbúðarhverfum. á vinnustöðum og annars
staðar. Borgarbúar verða að hafa það hugfast, að meirihluti
: 'álfstæðismanna er ekki öruggur og að hann verður ekki tryggður
afram næstu 4 árin, nema allir þeir sem vilja áframhaldandi
meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins leggi sitt af mörkum í
kosningabaráttunni.
„Þetta er eins o;
yinningur í happd
Hjónin Felix Pétursson og Ágústa Bjarnadóttir veita viðtöku leigusamningi. Með Þeim eru lengst til hægri
Guðmundur Tómasson.
Reykjavíkurborg afhendir fyrstu leiguíbi
FYRSTU leiguíbúðirnar, sem Reykja-
víkurborg hefur byggt fyrir aldraða í
Furugerði 1, voru afhentar í gær. í
húsinu eru alls 60 einstaklingsíbúðir
og 14 hjónaíbúðir auk aðstöðu fyrir
matsölu og félagsstarf. Er ætlunin að
félagsaðstaðan verði bæði nýtt fyrir
íbúa hússins og gamalt fólk í nágrenn-
inu. Verið er að leggja síðustu hönd á
frágang íbúðanna og verður flutt inn
í þær fyrstu næstu daga.
„Búin að vera á
flækingi frá því að
ég kom suður“
Það voru þeir Gunnar Þorláksson,
húsnæðismálafulltrúi Reykjavíkur-
borgar, og Ágúst ísfjörð, fulltrúi, sem
afhentu íbúðirnar ásamt Guðmundi
Jónssyni, húsverði. Þegar okkur bar
að voru þeir að afhenda Kristbjörgu
Guðmundsdóttur einstaklingsíbúð.
Kristbjörg er á áttugasta aldursári og
sagðist lengst af hafa búið austur í
Rangárvallasýslu en síðustu rúm 10
árin hefur hún búið í Reykjavík. „Ég
er búin að vera á flækingi hingað og
þangað frá því að ég kom suður og
alltaf búið í leiguhúsnæði. Þessar
íbúðir hér eru mjög snotrar og
hentugar fyrir gamalt fólk. Það er
sannarlega þarft verk hjá Reykja-
víkurborg að byggja slíkar íbúðir og
bæði er að leiguhúsnæði er ákaflega
dýrt og hitt að mjög erfitt er að fá
húsnæði, þegar fólk hefur ekki
einhvern til að halla höfði sínu að.
Þetta er sannarlega eins og stór
vinningur í happdrætti að fá íbúð sem
þessa,“ sagði Kristbjörg.
„Mesti kosturinn er öryggið,
sem þetta húsnæði skapar"
„Við hjónin erum búin að búa allan
okkar búskap eða í 47 ár í leigu-
húsnæði vestur á Bræðraborgarstíg,“
sagði Felix Pétursson en hann og kona
hans, Ágústa Bjarnadóttir, voru í
þann veginn að undirrita leigusamn-
inga að einni hjónaíbúðinni, er við
hittum þau að máli. Felix er 78 ára en
Ágústa 77 ára. „Okkur lízt prýðisvel á
íbúðina, þó ekki kunni maður eigin-
lega við sig fyrr en ýmsir persónulegir
munir eru komnir inn. Annars er
mesti kosturinn við þetta húsnæði að
hér getum við verið örugg. Maður
verður ekki á götunni það er eftir er
eins og alltaf má búast við, þegar leigt
er hjá öðrum. Hérna verður líka völ
á aðstoð, ef með þyrfti við heimilis-
hald í framtíðinni," sagði Ágústa. Við
spurðum Felix, hvort það væru ekki
mikil viðbrigði fyrir gamla og rót-
gróna Vesturbæinga að flytjast í
austurbæinn? „Það er rétt að eini
Gunnar Þorláksson, húsnæðisfulltrúi Reykjavíkurborgar, óskar
Kristbjörgu Guðmundsdóttur til hamingju með íbúðina.
„Og hérna geta gömlu mennirnir hengt
urðsson, arkitekt, en með honum er Hi