Morgunblaðið - 18.05.1978, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
Dagsferðir fyrir eldri Reykvíkinga. Beðið eftir farkosti í einni af skoðunarferðum þeim, sem
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar gengst fyrir.
Félagsstarf eldri borgara í Reykjavík;
Tólf dagsferðir um
borgina og nágrenni
Kynningarferðir sem njóta vaxandi vinsælda
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
Reykjavíkurborgar hefur aug-
lýst 12 dagsferðir um Reykja-
vík og nágrcnni fyrir eldri
Reykvíkinga í júní- og júlímán-
uði n.k.. scm eru liðir í
fjölþættu félagsstarfi í þágu
cldri borgara. Meðal staða sem
heimsóttir verða í næsta ná-
grenni borgarinnar má nefna>
nágrannasveitarfélög, Bessa-
staði, dvalarheimilið að
Ásbyrgi í Hveragerði, hitaveit-
una í Mosfellssveit, laxeldisstöð
í Kollafirði, vinnuheimilið að
Reykjalundi, Búrfellsvirkjun,
garðyrkjuskóla ríkisins, orlofs-
heimilin að Munaðarnesi, bjóð-
veldisbæinn. Laugarvatn og
Þingvelli.
í Reykjavík verða heimsóttir
fundarstðir alþingis og borgar-
stjórnar, kirkjur borgarinnar,
ný borgarhverfi (Árbær og
Breiðholt) og áð á fögrum
útivistarsvæðum í borginni,
eftir því sem veður og aðstæður
leyfa. Þá verður heimsótt lista-
hátíð í Reykjavík (19. júní) og
skoðaðar þær listsýningar, sem
þar verða á boðstólum.
Farnar verða eftirtaldar
ferðiri
• I. ferði
Fimmtudaginn 15. júní.
Skoðaðar verða sýnmgar á
listahátíð:
Erro-sýningin, sýning Kristjáns
Davíðssonar, finnska sýningin
og höggmyndasýningin. Síðan
verður drukkið kaffi í Hljóm-
skálagarðinum, ef veður leyfir.
Verð kr.: 650.00-
• 2. ferð:
Fimmtudaginn 22. júní.
Farið verður um Þrengsli til
Krísuvíkur og Grindavíkur.
Verð kr.: 1.400.00-
• 3. ferði
Þriðjudaginn 27. júní.
Skoðuð verður Hitaveita
Reykjavíkur, Mosfellssveit,
Vinnuheimilið að Reykjalundi
og Laxeldisstöðin ' í Kollafirði.
Verð kr. 700.00.-
• 4. ferði
Fimmtudaginn 29. júní.
Farið verður til Þingvalla og að
Laugarvatni. Verð kr.: 1.400.00.-
• 5. ferði
briðjudaginn 4. júlí.
Farin verður skoðunarferð í
kirkjur í Reykjavík. Dómkirkja,
Landakot, Neskirkja, Fríkirkja
og Hallgrímskirkja. Tónleikar
og söngur. Verð kr.: 650.00,-
• 6. ferði
Fimmtudaginn 6. júlí.
F'arið verður upp í Skorradal um
Dragháls og heim um Stafholts-
tungur. Verð kr. 2.300.00.-
• 7. ferði
Þriðjudaginn 11. júlí.
Farið verður í Heiðmörk, sæ-
dýrasafnið og kaffi drukkið í
Hellisgerði, Hafnarfirði, ef veð-
ur leyfir. Verð kr.: 700.00.-
• 8. ferði
Fimmtudaginn 13. júlí.
Farið verður, að Búrfelli og
skoðaður Þjóðveldisbærinn.
Verð kr.: 2.300.00-
• 9. ferði
Þriðjudaginn 18. júlí.
Farið verður í Hveragerði,
skoðaður verður Garðyrkjuskóli
ríkisins og dvalarheimilið
Ás/Ásbyrgi. Verð kr. 800.00.-
• 10. ferði
Fimmtudaginn 20. júlí.
Farið verður að Munaðarnesi í
Borgarfirði. Skoðuð verða or-
lofshús. Verð kr. 2.300.00-
• 11. ferði
Þriðjudaginn 25. júlí.
Farin verður skoðunarferð um
Garðabæ, um Álftanes, komið
Framhald á bls. 29.
Félag dráttarbrauta og skipasmiðja:
Mótmæla skilningsleysi
yfirvalda um áratuga-
skeið á málefnum þeirra
FÉLAG dráttarbrauta og skipasmiðja hélt aðalfund sinn 5. maí s.l.
Var það greinilegt á máli fundarmanna, að þeir væru orðnir
langþreyttir á skilningsleysi því, sem þcir hefðu átt að mæta um
áratugaskeið af hálfu stjórnvalda. Á fundinum kom fram ánægja með
undirtektir og skilning almennings og fjölmiðla á Rauðanúpsmálinu
svoncfnda, segir í frétt frá Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, en hana skipa Jón Sveins-
son formaður, Gunnar Ragnars
varaformaður, Þorgeir Jósepsson,
Guðmundur Marselíusson og Þór-
arinn Sveinsson.
Á fundinum voru gerðar nokkr-
ar ályktanir, m.a. um uppbyggingu
skipaiðnaðar þar sem fram kemur,
að hér á landi er fyrir hendi
markaður og þekking á veiðitækni,
ásamt þeirri tæknikunnáttu sem
til þarf til að smíða góð skip. Ljóst
sé að á næstu árum verði vaxandi
eftirspurn eftir nýjum skipum og
skipaviðgerðum, bæði vegna
breyttra veiðiaðferða og nýtingu
þeirra fiskistofna, sem hingað til
hafa ekki verið nýttir. íslendingar,
sem búa við gjaldeyrisskort og
minnkandi verkefni, hafa ekki
lengur efni á því að sjá erlendum
þjóðum fyrir verkefnum í skipa-
iðnaði. Félag dráttarbrauta og
skipasmiðja vill því enn einu sinni
leggja áherzlu á þá þörf, sem er á
lánsfjármagni á viðunandi kjörum
til að byggja upp íslenzkan skipa-
iðnað. Augljóst sé að langvarandi
fjársvelti hafi nú sorfið svo mjög
að þessum iðnaði, að til hreinna
vandræða horfi. Félagið skorar á
þá, sem með fjármál fara og
varðar iðnað þennan, að leysa
skjótt úr því ófremdarástandi, sem
hér ríkir í þessum efnum.
Þá er ályktað um viðgerðir og
endurbætur á skipum. Þar kemur
m.a. fram mikil gagnrýni á lána-
kjör hér á landi, sem valdi því að
viðgerðir verða í flestum tilfellum
hagstæðari erlendis.
Frá skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi.
Framkvæmdir við
aðalskolpleiðslu
með hreinsistöð á
Laugarnesi hafnar
Skáksambandið fær
„NÚ eru hafnar framkvæmdir við
aðalholræsi við austur- og norður-
strönd borgarinnar, frá Elliða-
vogi að Kringlumýrarræsi, en
ætlunin er að safna öllum skolp-
leiðslum á því svæði í eina
aðalleiðslu með hreinsistöð og
útrás frá Laugarnesi. Þetta er
mikil og kostnaðarsöm fram-
kvæmd, en áætlunin gerir ráð
fyrir því að verkinu Ijúki árið
1985,“ sagði Páll Gíslason, borg-
arfulltrúi, er Mbl. spurði hann
hver yrðu stærstu verkefnin í
holræsakerfi borgarinnar á næst-
unni.
„Stefnan er að safna öllum
skolpleiðslum borgarinnar í 3 stór
ræsi,“ sagði Páll, „en nú eru 27 slík
í notkun.
I sumar verður til bráðabirgða
sett 100 metra framlengingarlögn
á Fossvogsræsið, en eftir að það
var leitt út á móts við Shell-stöð-
ina við Skerjafjörð hefur Naut-
hólsvíkin hreinsast mikið, en
ennþá eru 6—7 ræsi í Kópavogi,
sem eftir er að ganga frá svo að
Nauthólsvíkin geti aftur orðið
almennur sjóbaðstaður. Það er svo
f’-amtíðarspurning með Fossvogs-
r.tsið, hvort samningar nást við
Seltjarnarnes um framlengingu
þess út fyrir Gróttu eða hvort
Reykjavíkurborg verður að taka
það yfir í Örfirisey. Þriðja stóra
ræsið verður svo, þegar öllum
fundarhamar að gjöf
skolpleiðslunum í gamla bænum
verður safnað saman. Á þessi ræsi
verða svo settar hreinsistöðvar
eins og fyrirhugað er í Laugarnes-
inu.“
í UPPHAFI aðalfundar
Skáksambands íslands sl.
laugardag greindi Einar S.
Einarsson, forseti sambands-
ins, frá fagurri og veglegri
gjöf, sem sambandinu hafði
borizt í tilefni af hálfrar
aldar afmælis sambandsins
1975.
Er þetta útskorinn fundar-
hamar, sem Halldór Sigurðs-
son tréskurðarmeistari á Eg-
ilsstöðum hefur unnið og
gefið sambandinu.
Hamarinn er skorinn út úr
Hallormsstaðarbirki og er
hamarshausinn hrókur og
áletrun tileinkun vegna 50 ára
afmælis sambandsins. Skaftið
er einnig fagurlega útskorið.
Hamrinum fylgir stallur og
er greypt í hann skákborð,
sem ætlað er til ásláttar fyrir
fundarstjóra.
DREGIÐ hefur verið um maí-bfl Happdrættis Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna, sem var af gerðinni
Lada-Sport. Bflinn hlaut Felix Þorsteinsson, Ytri-Grund,
Seltjarnarnesi, á miða nr. 39059 og sést hann hér með
fjölskyldu sinni, er hann tók við bflnum framan við
DAS-húsið að Breiðvangi 62, Hafnarfirði.