Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
t
ASDIS S. JOHNSSON
frá NorðfirAi
lést aö heimili sínu í Suöur-Karólínu, Bandaríkjunum, 19. janúar s.l.
Sytfkini hinnar látnu.
Látinn er + SVEINN JÓNSSON,
frá Kothúsum. Olga Gjöveraa, börn og ættingjar.
t
Eiginmaöur minn,
EGGERT ÞORLEIFSSON,
Skólageröi 39,
andaöist í Borgarsjúkrahúsinu þriöjudaginn 16. maí.
Fyrir hönd aöstandenda,
Magöalena Andrésdóttir.
Stjúpmóðir okkar +
INGIBJORG PÁLSDÓTTIR
Stigahliö 18
veröur jarösungin frá Fríkirkjunni föstudaginn 19. mai kl. 13.30.
Páll Skúli Halldórason, Kristín Halldórsdóttir, Aóalheióur Halldórsdóttir.
t
Eiginmaóur minn
JOSEP FLÓVENZ
Sporðagrunni 2
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. maí kl. 13.30.
Blóm'vinsaml. afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á
líknarstofnanir.
Lovísa Snorradóttir.
+
Móöir okkar,
SIGURLAUG LARUSDÓTTIR,
sem lézt 13. þ.m. veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavik, föstudaginn
19. maí kl. 10.30.
Hrefna Pjetursdóttir,
Elín Pjet. Bjarnason.
+
Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóöir,
LAUFEY EIRÍKSDÓTTIR
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 19. maí kl. 15.
Barói Jónsson,
börn og tengdadætur.
+
Útför föðurbróöur míns
INGÓLFS EINARSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtud. 18. maí kl. 3 e.h.
Erna Másdóttir.
+
Sendum þakkir öllum, fjær og nær, sem auösýndu vináttu og heiöruðu
minningu
ESTRID FALBERG BREKKAN.
Sérstakar þakkir eru sendar hjúkrunarliöi Grensásdeildar Borgarspítalans.
Ásmundur Brekkan Ólöf Helga S. Brekkan
Eggert Brekkan Björk E. Brekkan
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Halldór Guðmunds-
son byggingameistari
Er vorið kveður dyra, vekur það
vonir með hverju mannsbarni hér
á norðurslóðum og gefur klaka-
kaldri jörð yl, ljós og líf. . En vald
vorsins er ekki ætíð einhlítt.
Vorhretin eru oft sárköld og nöpur
og skella oft yfir snöggt og óvænt.
Það var helkalt hret er flutti þá
fregn að Halldór Guðmundsson,
húsasmíðameistari, væri látinn.
Hann andaðist á Landakotsspítala
hinn 8. maí s.l. eftir stutta legu.
Víst er það sælt að ganga frá verki
í fullu fjöri mót örlögum sínum, en
fyrir aðstandendur og vini er það
helkalt hret — snöggt og óvænt.
Að vísu hafði Halldór fyrir
nokkrum árum orðið fyrir sjúk-
dómsáfalli, en hafði náð sér að
mestu, þótt menjar bæri hann þess
sjúkdóms til æviloka.
Halldór var yfirsmiður Hall-
grímskirkju frá því grunnur var
lagður að þeirri byggingu, oftast
með einn smið sér til aðstoðar. Frá
þessu mikla verki var Halldór nú
kallaður, ef svo má segja með
hamarinn í hendi.
Hér verða ekki rakinn æviatriði
Halldórs, en hann var fæddur að
Vatnsleysu í Biskupstungum 20.
mars 1907, yngstur 12 systkina.
Varla mun þar hafa verið auður í
búi eða nægtir í búri. Þeir tímar
voru ekki ár allsnægta, síst hjá
barnmörgum fjölskyldum.
Mér er í minni er ég kynntist
þeim mágum Halldóri og Gísla
Þorleifssyni, múrarameistara, en
hann lést fyrir aldur fram fyrir 24
árum. Báðir voru þeir þá nýút-
skrifaðir iðnsveinar, ungir, fram-
sæknir æskumenn, fullir bjartsýni
þó pyngjan væri létt. Brátt tókst
þeim að hasla sér völl og láta að
sér kveða við byggingarfram-
kvæmdir í höfuðborginni og víðar.
Sú saga verður ekki rakin hér, en
+
Þökkum auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu, móöur,
tengdamóöur og ömmu okkar,
RANNVEIGAR J. EINARSDÓTTUR,
frá Bolungarvík
Matthias E. Jónsson,
Leifur A. Símonaraon, Ingibjörg E. Kristjánsdóttir,
og barnabörn.
+
Alúöarþakkir sendum viö öllum þeim, er auösýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
ÓSKARS GUÐMUNDSSONAR.
Sérstakar þakkir færum viö eigendum H. Benediktsson h.f. fyrir aö heiöra
minningu hins látna.
Kristjana Axelxandersdóttir,
Alla Ó. Óskarsdóttir, Karl K. Guömundsson,
Daniel G. Óskarsson, Guórún Siguróardóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum vió öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug
við andlát og útför tengdamóöur og ömmu
JÓNÍNU OLADÓTTUR
frá Siglufiröi.
Kristín Jónsdóttir,
Anna Reinhardsdóttir,
Valgarö Reinhardsson,
Auöur Reinhardsdóttir,
Stefanía Reinhardsdóttir,
Elísabet Reinhardsdóttir,
Reinhard Reinhardsson.
+
Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug vegna andláts og
jaröarfarar, eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
GUNNARS SVANHÓLM JÚLÍUSSONAR,
Hjaltabakka 30,
Rósa Kolbeinsdóttir,
Guórún Gunnarsdóttir, Asgeír Sigurðsson,
Kolbrún Gunnarsdóttir, Birna Gunnarsdóttir
og barnabörn.
+
Ég þakka öllum sem hafa sýnt mér vinsemd og velvilja í sambandi viö fráfall
konunnar minnar.
- ■ ... ................. |
" - í 9 h Hákon O. Jónasson.
+
Þakka innilega samúð og hluttekningu vió andlát og jaröarför unnusta míns
BALDURS PÉTURS STEFÁNSSONAR
Víkurbraut 6,
Grindavfk.
Sérstakar þakkir til Sjómannafélags Grindavíkur.
Karólína Jónsdóttir.
er allt að einu heillandi og
lærdómsrík.
A þessum árum hófust kynni
okkar Halldórs og hafa haldist
óslitin síðan. í nærri fjórðung
aldar spiluðum við saman
„Gosarnir". Við spilaborðið kemur
skaphöfn manna oft skýrt frám.
Aldrei varð séð, hvorki í orði eða
æði Halldórs hvort vel var spilað
eða allt fór úrskeiðis. Stór orð og
hvatskeytlegar aðfinnslur spila-
félaganna lét hann sem vind um
eyru þjóta. Tæki steininn úr í
rökræðum, brosti hann kankvís. —
Við þrír, sem „enn stöndum á eyri
vaðs“, þökkum þessar og aðrar
ánægju- og gleðistundir með
honum. Þau gleymast ekki „Gosa-
gildin" né heldur glaðværar kvöld-
stundir á heimili þeirra hjóna. ■
Þar fór saman höfðingleg reisn
og Ijúft viðmót. Þá ríkti gleði og
gaman. Sönglistin fékk ómældan
skerf. Röddin var hvergi spöruð.
Fjárlögin sungin spjalda á milli.
Hljómmikil baritón-rödd Halldórs
hóf þau í hærra veldi.
Ég minnist veiðiferða okkar í
kyrrð fjallavatnsins og vor- og
nóttleysukvöldanna í Brekkukoti.
Þær stundir voru að vísu of fáar,
en lifa í minningunni skýrar,
bjartar og hugljúfar.
Samferðamenn eru snar þáttur
í lífi hvers manns. Traustur vinur
er ómetanleg gjöf. Halldór var
tryggur vinur, fastur fyrir en
óáleitinn. Óhnýsinn um annarra
hagi, en greiðasemi og góðvild
voru honum í blóð borin. Hann var
samferðamaður, sem skilur eftir
góðar og bjartar minningar. Hann
hóf sig úr fátækt til mikilla verka,
sem lengi munu standa og bera
vott snilld handa hans og hugar.
Við spilafélagarnir og fjölskyld-
ur okkar þökkum langa og órofa
vináttu, sem aldrei bar fölskva á.
Konu hans, Guðfinnu Þorleifsdótt-
ur, sem sér nú á bak traustum
lífsförunaut, sendum við hugheilar
samúðarkveðjur og þakkir, svo og
vinum hans og vandamönnum.
Vertu sæll, við söknum þín.
Jón Pálsson.
„Ef Drottinn byxgir ekki húsið, erfiða
smiðirnir til ónýtis. „Sálm. 127.
Við höfum þurft að horfa á bak
tveimur kirkjusmiðum Hallgríms-
kirkju með stuttu millibili. Gunn-
ar Eiríksson lézt á s.l. vetri og
Halldór Guðmundsson bygginga-
meistari nú fyrir sLömmu. Hann
er til moldar borinn í dag. Það
þótti mikið fyrirtæki og ef til vill
ekki alls kostar skynsamlegt að
hefja smíði Hallgrímskirkju á
sínum tíma. Mörgum hefur eflaust
fundizt viðvörunarorð Lúkasar-
guðspjalls eiga þar við, þar sem
segir: „Því að ef einhver yðar ætlar
að reisa turn, þá sezt hann fyrst
niður og reiknar kostnaðinn, hvort
hann hafi það sem þarf til að
fullgjöra hann, til þess að eigi fari
svo, að þegar hann er búinn að
leggja grundvöllinn, en geti ekki
lokið við smíðina, þá fari allir sém
það sjá að spotta hann og segja:
„Maður þessi fór að byggja en gat
ekki lokið við það!““
Já, sumum kann að finnast að
fyrirhyggjuna hafi vantað við
þessa framkvæmd a.m.k. í upp-
hafi. En þeir Halldór, Gunnar og
félagar þeirra, og raunar eiga þar
hlut að máli allir hinir mörgu
vinir Hallgrímskirkju, hafa í röst
áranna þaggað niður þessar radd-
ir. — Turninn mikli er risinn,
sömuleiðis kór með hvolfþaki sínu,
og það er táknrænt að Halldór og
menn hans höfðu hrært síðustu