Morgunblaðið - 18.05.1978, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAI 1978
27
segja fyrir um hina árvissu
hækkun í mars. Hún varð ekki til
fyrir kaupmennina, heldur hefði
hún orðið meiri, ef á annað
hundrað fleiri manns hefðu starf-
að við dreifingu mjólkurinnar.
Nú hefur snúningshraðinn orðið
nokkuð mikill:
Hagsmunir fjöldans eru, að
veita sem mesta og besta þjónustu
á sem ódýrastan og hagkvæmast-
an hátt.
Þannig var að undirskriftasöfn-
uninni staðið, að ekki er hægt að
■taka neitt mark á henni.
„Lilja“ segir að kaupmenn hafi
ekki viljað ráða elstu starfsstúlk-
urnar. Konan, sem kom með
mjólkinni í mína verzlun, byrjaði
hjá samsölunni við stofnun hennar
fyrir 43 árum. Betri starfskraft er
ekki hægt að hugsa sér, og það
getur annað samstarfsfólk hennar
staðfest með mér.
Hallveigu Einarsdóttur bið ég
afsökunar á því að tilvitnun mín
í orð hennar í viðtali við Frjálsa
verzlun, gáfu „Lilju" tilefni til svo
illgjarnrar árásar á hana, fyrir
þau störf, sem félagskonur treystu
Hallveigu best til að inna af hendi
fyrir sig, því annars hefðu þær
ekki kosið hana sem formann
félags síns.
Þótt almenningur dæmi ekki
þann, sem verður fyrir slíku
aðkasti, heldur hinn, sem fram-
leiðir óþverrann, vill enginn fá
slíkar gusur á sig.
I grein minni hinn 4. apríl, gerði
ég að umtalsefni þá hættu, sem
þjóðfélaginu getur stafað af öfga-
fullum minnihlutahópum, sem
sætta sig ekki við leikreglur
mjólkurbúða, og baráttuaðferð
þeirra skýrt dæmi um slíka
„þjóðfrelsishreyfingu".
Trúlega hefur hópurinn aldrei
getað lokið lestri greinar minnar
fyrir vonsku og leyfi ég mér því í
lokin að birta niðurlag hennar.
Fátt er svo
I með öllu...
Þó held ég að aðgerðirnar gætul
lorðið þjóðinni að miklu gagni efl
Iþær yrðu til þess að vckja athyglif
lalmennings á, hve hættulegt geturl
lorðið því lýðræði og frelsi, sem viðl
llangflest viljum búa við, þegarl
llítill en harðsnúinn hópur geturl
Jtalið fólki trú um að hann hafil
lalmenningsálitið með sér, og meðl
[því hindrað lögboðin yfirvöld í|
laðgerðunt sent þau telja að séu |
|þegnunum fyrir bestu.
Það er ljótur leikur að vekja I
|tortryggni og óvild á milli bænda, |
| kaupntanna og neytenda, og væri [
| kröftum, sem í það hafa farið, |
|betur varið til fræðslu og upplýs-|
| inga um þau störf sem þessar|
| stéttir inna af hendi:
Þegar húsmóðirin tekur eina|
| mjólkurfernu úr kæliklefa versl-
lunarinnar, leiðir hún sjaldnast|
] hugann að því hve margar hendurl
I hafa sameinast um að framleiðal
vandaða, holla og góða vöru handa |
I fjölskyldu hennar. Það starf byrj-
ar ekki þegar kýrin er mjólkuð, |
I heldur miklu fyrr. Við hefðum gott I
| af að hugleiða betur alla þá|
samvizkusemi sent hver og einn [
I þarf til að bera við framleiðslu,
vinnslu og dreifingu mjólkurvara. I
Mjólkursantsalan ætti að gera I
nteira af því að kynna starfsemi [
| sína, þá er ég þess fullviss að |
| enginn efast um að þar er öll 1
1 meðferð og vinnsla mjólkurvara |
| nteð því fullkomnasta og besta sem |
| þokkist.
Matvörukaupmenn skilja vel þá j
| ábyrgð sem á þeim hvílir við sölu
| ntjólkurvara, jafnt og annarraj
|viðkvæmra matvara.
Þeir hafa einnig sýnt fram á að |
|barátta þeirra fyrir auknu frelsi í [
| mjólkursölumálum hefur orðiðj
I öllum aðilum til góðs og í dag mun |
| enginn óska eftir gamla fyrir-
j komulaginu aftur.
óskar Jóhannsson.
lýðræðisins og svífast einskis í
baráttunni gegn þeim, sem voga
sér að leggja stein í götu þeirra.
Menn forðast sletturnar og láta
þá afskiptalausa, en þá er voðinn
vís. Ég taldi Samtökin gegn lokun
Eina rangfærsla mín í fyrr-
nefndrigrein kemur fram í síðustu
orðunum og leiðrétti ég það hér
með:
Enn munu þó sjö manneskjur
óska eftir gamla laginu, og þá
helst brúsamjólkina aftur.
Þökk fyrir birtinguna.
óskar Jóhannsson.
Jakob V. Hafstein lögfræðingur:
Borgarstjórinn okkar
— örugg forysta, framkvæmdastjórn og þekking
Guðmundur E. Sigvaldason
upplýsinga lágu hér eftir um
skrifstofu orkumálastjóra.
8) Sérfræðingar Orkustofnunar,
sem fengust við Kröflurannsóknir,
sérfræðingar frá jarðvísindastofu
Raunvísindastofnunar Háskólans,
frá Norrænu eldfjallastöðinni og
frá jarðeðlisfræðideild Veðurstofu
íslands mynduðu vinnuhóp til
rannsókna á umbrotum við Kröflu.
Hlutverk vinnuhópsins var að
samræma rannsóknirnar, kynna
niðurstöður og gera tilraun til
túlkunar. Fundir vinnuhópsins
voru haldnir í húsakynnum Orku-
stofnunar. Efni og niðurstöður
umræðnanna var á vitorði stjórn-
anda Orkustofnunar. í vinnuhópn-
um voru flestallir íslenzkir sér-
fræðingar sem hafa unnið að
rannsókn háhitasvæða heima og
erlendis. Vísindaleg breidd og
fagleg reynsla hópsins skapaði
traustan grunn sem Orkustofnun
gat byggt á. Vísindalegt gildi
umræðna í hópnum styrktist við
það að allir voru sammála um
túlkun rannsóknanna. Opinbert
álit Orkustofnunar, eins og það
kom fram í fréttatilkynningum
iðnaðarráðuneytis, var ætíð í fullri
mótsögn við niðurstöður umræðna
í vinnuhópnum.
í júní 1976 var fullgild Sönnun
fyrir tilvist mikils magns af
bergkviku undir virkjunarsvæðinu
lögð fyrir fund í vinnuhópnum.
Ennfremur að 13 tonn af kviku
streymdi inn í jarðlögin undir
Kröflu á sekúndu hverri.
10) Þessar upplýsingar virtust
engin áhrif hafa á stjórnanda
Orkustofnunar og óvitað hvort
þær komust til iðnaðarráðuneytis.
Nokkrir sérfræðingar vinnuhóps-
ins birtu því skýrslu um ástand
Kröflusvæðisins í dagblöðum í
ágúst 1976. Sú skýrsla hafði engin
áhrif á framkvæmdir við Kröflu.
11) 29. desember 1976, 31. októ-
ber 1976, 20. janúar 1977, 27. apríl
1977, 8. september 1977, 2. nóvem-
ber 1977 og 6. janúar 1978 urðu
umbrotahrinur á Kröflusvæðinu.
ítarleg rannsókn þessara viðburða
hefur í einu og öllu staðfest túlkun
jarðvísindamanna og undirstrikað
réttmæti þeirra viðvarana, sem
orkumálaráðherra voru sendar í
janúar 1976.
íslendingar búa við lýðræðislegt
þjóðskipulag. Eigi lýðræði að
haldast verður að fylgja leikregl-
um þess. Hlutverk forystumanna
er erfitt og getur krafizt persónu-
legra fórna. Forystumaður deilir
heiðri af góðum verkum með
samstarfsmönnum sínum í flokki
eða stofnun. Einn og óstuddur
verður hann að taka á sig ábyrgð
og afleiðingar mikilla mistaka.
Þetta er óumflýjanleg skylda.
forystumanns, annars dregur
hann þann flokk eða stofnun, sem
honum var falin forsjá fyrir, með
í fallinu.
Kröfluvirkjun er stærstu fjár-
málamistök sem gerð hafa verið á
íslandi. Engin afsökun eða mild-
andi aðstæður geta skotið forystu-
mönnum þessara framkvæmda
undan þeirri skyldu, sem leikregl-
ur lýðræðisins leggja þeim á
herðar. Þeir verða að víkja úr
stöðum sínum.
Það er bitur reynsla fyrir menn,
sem hafa lengi og vel unnið nýt
störf, að sjá að lokum, að þeir gera
þjóð sinni, flokki og stofnun mest
gagn með því að víkja. Orkumála-
ráðherra, orkumálastjóri og
Kröflunefndarmenn verða að horf-
ast í augu við þá staðreynd.
Guðm. E. Sigurvaldason
Tunguvegi 11, R.
Senn er aðeins vika þar til
borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík fara fram. Kosninga-
baráttan hefur ekki verið hávaða-
söm og hvassviðri stjórnmálanna í
lágmarki.
Boðar þetta illt eða gott?
Þessari spurningu hafa margir
velt fyrir sér undanfarnar vikur og
svörin eru á margan hátt. Eitt
virðist þó sameiginlegt álit manna:
Ahugaleysið og andvaraleysið er í
dag hættulegasti andstæðingur
meirihluta sjálfstæðismanna í
borgarstjórn Reykjavíkur.
Kommúnistum, framsóknar-
mönnum og krötum hefur hingað
til tekist — að vissu marki — sá
áróður, að telja mönnum trú um,
að sjálfstæðismenn séu öruggir
um sigur í næstu borgarstjórnar-
kosningum og þannig stungið
margan góðan liðsmann svefn-
þorni auðvaldsins. Þetta er hættu-
merki, sem varast ber og það er
hollt og aðkallandi nauðsyn fyrir
alla stuðningsmenn borgarstjórn-
armeirihlutans að minnast þess,
að oft hefur það áður munað mjóu,
að forysta sjálfstæðismanna í
borgarmálefnum Reykjavíkur
glátaðist.
Ef svo færi nú, væri þess
skammt að bíða, að sami stjórn-
málalegi glundroðinn og kaup og
sala á málefnum borgarinnar
hæfist sem „landlægt" hefur verið
í landsstjórnarmálum um áratuga
skeið og valdið margvíslegum
mistökum.
Slíkt mega borgarbúar ekki láta
henda höfuðborg landsins. Og því
til viðbótar mundi slík óvissa og
aukin áhrif sundrungarflokkanna
í borgarstjórn Reykjavíkur leiða
til þess að nýtt yrði heimild til
fjölgunar borgarfulltrúa í Reykja-
vík upp í 21, og þar með stórauka
stjórnunarkostnað borgarinnar.
Sjálfstæðismenn verða því nú að
varpa frá sér andvaraleysinu,
vakna til stórra dáða og átaka og
sýna sundrungarflokkunum, að
sjálfstæðismenn séu vel vakandi,
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri
að þeir haldi betur vöku sinni en
sundrungaröflin, að þeir séu í
góðri viðbragðsstöðu, vinni betur
en andstæðingarnir — og sigri!
Borgarstjórinn okkar, Birgir
Isleifur Gunnarsson, er ákaflega
vinsæll maður, traustur og stefnu-
fastur og hefur með sér á að skipa
í borgarstjórn víkinga til verka,
vinsælan langt út fyrir raðir
flokkaskipana og aðra drjúga
liðsmenn.
Þessu er ekki þannig farið um
minnihlutaflokkana í borgar-
stjórn. Þar er hver höndin uppi á
móti annarri, stefnule.vsið í al-
gleymingi og glundroðinn á næsta
leyti — ef illa færi.
Borgarstjórinn okkar hefur að
undanförnu kallað þúsundir Reyk-
víkinga til fundar við sig í öllum
hlutum borgarinnar. Þar hefur
hann lagt spilin á borðið, skýrt
hlutiægt og með hógværð málefni
borgarinnar, hvað hafi gerst á
kjörtímabili því, sem nú er að
ljúka, hvað sé framundan og
svarað mýmörgum fyrirspurnum
borgararanna. Þekking hans og
kunnátta á högum og máiefnum
borgarinnar, frá hinu smæsta til
hins stærsta, hefur vakið undrun
og aðdáun Reykvíkinga og eflt
vinsældir og traust borgarbúa til
borgarstjórans okkar til stórra
muna, og var staða hans þó óvenju
traust í þessum efnum fyrir.
Það er því enginn vandi á
höndum fyrir borgarbúa að
treysta nú enn sem fyrr, á sem
eftirminnilegastan hátt, forystu
Birgis Isleifs Gunnarssonar í
málefnum Reykjavíkurborgar.
En hvað gera sundrungaröflin
óg minnihlutamennirnir í borgar-
stjórn Reykjavíkur? Þeir þegja
þunnu hljóði. Þeir eru málefna- og
stefnulausir, en fyrst og fremst
þegja þeir vegna þess, að þeir vilja
ekki vekja sjálfstæðismenn af
svefni andvara- og áhugaleysisins,
því að þeir vita, að slíkt er miklu
hættulegri andstæðingur en þeir
sjálfir.
Við skulum hins vegar vakna og
vera vel vakandi. Við skulum
standa að baki borgarstjórans
okkar, Birgis ísleifs Gunnarsson-
ar, og gefa honum gott og öruggt
vegarnesti með atkváeðum okkar í
hönd farandi borgarstjórnarkosn-
ingum. Þá er Reykjavík borgið.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
AKiLÝSINGA ViÍMIW Þ'W-
22480