Morgunblaðið - 21.05.1978, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1978
Vélin getur auk borSviSar og uppistaðna hreinsað
flekamót úr timbri eða stáli
Vélin er mjög einföld i notkun og traust i rekstri
og getur hreinsað 40—530 mm breitt og
14—150 mm þykkt mótaefni eSa flekamót án
þess að stilla þurfi sérstaklega fyrir hvern stærS-
arflokk.
Vélin fer einstaklega vel með timbrið og hvorki
klýfur það eða mer. Hugsanlegir naglar i timbrinu
skaða hvorki vélina eða hreinsisktfur hennar á
neinn hátt.
Hreinsiskifurnar (4 stk) eru úr slitsterku efni og
endast til hreinsunar á u.þ.b. 20.000—30.000
ferm. timburs. TH hreinsunar á stálmótum eða
plastklæddum mótum eru notaðir til þess gerðir
stálburstar.
Vélin vinnur jafnt hvort heldur timbrið er blautt.
þurrt eða frosið
Vélin er mjög traustbyggð i alla staði og nær án
slitflata og þarf einungis að smyrja hana árlega.
Vélin hreinsar samtimis tvo aðlæga fleti (á hlið
og kant). Til hreinsunar á öllum fjórum flötum
mótatimburs þarf að renna efninu tvisvar i gegn-
um vélina. Vélin dregur sjálf i gegnum sig timbr-
GRINKE 20D
MÓTAHREINSIVÉL
GRINKE 20D
er vél til
hreinsunar
á mótatimbri
ið, vætir það ef þörf gerist, og innbyggSur blásari
dregur til sín allt ryk og steypuhröngl og skilar
því í haug eða poka.
Vélin ásamt einum eða tveim mönnum vinnur á
við stóran flokk manna. Afköst hennar eru 18.5
m/mín. en þe8 samsvarar því, að 555 m timburs
séu hreinsaðir á klst (allar fjórar hliðar þess).
Vélin er 900 kg að þyngd og útbúin þannig að
flytja megi hana á milli staða á venjulegum
fólksbíl með dráttarkrók. Einnig eru festingar á
henni svo að lyfta megi henni með byggingar-
krana.
Stærð vélarinnar: HxBxL = 1,4 x 1,1 x 1,7 m.
Við leigjum einnig út GRINKE
20D mótahreinsivél.
GRINKE 20D er v-þýzk gæða-
framleiðsla
— Leitið nánari upplýsinga.
Laugavegi I78 simi 38000
Henrik Thoraren-
sen fyrrv. skrif-
stofustjóri-Minning
F. 31. október 1902.
D. 15. maí 1978.
A morgun verður til moldar
borinn Henrik Thorarensen, fyrr-
verandi aðalgjaldkeri og síðar
skrifstofustjóri Útvegsbanka ís-
lands, Reykjavík.
Var hann kominn af merkum
sunnlenskum höfðingjaættum.
Faðir hans var Hannes Skúlason
Thorarensen, forstjóri, Reykjavík,
ættaður úr Rangárþingi. Móðir
hans var Luise Marie f. Bartels,
ættuð af Suðurnesjum. Voru þau á
sínum tíma þekkt í Reykjavík fyrir
dugnað og mannkosti.
Henrik stundaði á unga aldri
nám í verzlunarfræðum í Eng-
landi, eftir undirbúningsnám
heima. Stundaði hann síðan um
skeið almenn verzlunarstörf í
Reykjavík.
Rúmlega tvítugur að aldri eða
árið 1923 réðist hann í þjónustu
Islandsbanka, sem síðar tók upp
nafnið Útvegsbanki Islands h.f. og
var síðan breytt í ríkisbanka undir
nafninu Útvegsbanki íslands.
Henrik gegndi fyrst í stað
almennum bankastörfum, var
lengi aðstoðargjaldkeri bankans,
síðan aðalgjaldkeri hans frá 1/1
1944 að -telja og gegndi hann því
starfi í 12 ár. Var hann að síðustu
ráðinn skrifstofustjóri bankans og
gegndi því starfi til starfsloka í
bankanum.
Við öll þessi störf var Henrik
stjórnsamur í betra lagi, enda
skapmaður og enginn aukvisi.
Má af þessu sjá, að hann ávann
sér vaxandi traust hjá yfirboður-
um sínum, en störf sín rækti hann
af stakri samviskusemi og dugn-
aði, sem hvort tveggja var honum
í blóð borið; var hann og hús-
bóndahollur, en eigi að síður
réttsýnn gagnvart starfsfólkinu.
Henrik hefur víða mikið komið
við sögu félagssamtaka banka-
manna og jafnan lagt þar góðum
AUSTURLAND
Kynning á
sólarlandaferöum
Mallorca
Portúgal
Jónas Guðvaröar-
son, aðalfararstjóri
verður til viðtals um
val sólarlandaferða
mánudaginn 22. maí
Hótelinu Reyöarfiröi kl.
14-16.
Skrúöur Fáskrúösfiröi kl.
17-19.
Þriðjudaginn 23. maí
Flugvellinum Egilsstöðum
kl. 10-12.
Hótelinu Eskifiröi kl.
14-16.
Flugleiðir Norðfiröi kl.
17-19.
miðvikudaginn
24. maí
Flugleiðir Seyðisfirði kl.
10-12.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL^r
jafelagshusmu simi 26900
Eimskipafelagshusmu
Móðlr okkar og tengdamóðír,
MARIE BRYNJÓLFSSON
andaöist á Landakotsspítala 19. maí.
Elsa Magnúsdóttir Skafti Benediktsson,
Magnús M. Brynjólfsson, Sigrún Guömundsdóttir.
Eiginkona mín,
ÁSA ÁRNADÓTTIR,
sem lést 17. þ.m. verður jarösungin frá Keflavíkurkirkju miövikudaginn 24.
þ.m. kl. 14.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent
á Sjálfsbjörg.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Péll Guðmundsson,
Keflavik.
+ Eiginmaður minn, faöir okkar og tengdafaðir
PÉTUR BJÖRNSSON
fyrrv. erindreki,
Drépuhlíð 40,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, miövikudaginn 24. maí kl.
13:30.
Póra Jónsdóttir
Hallfríöur E. Péfursdóttir, Stefanía M. Péfursdóttir, Kristin H. Pétursdóttir, Björn Pétursson, Stefán Friðriksson, Ólafur Tómasson, Baldur Ingólfsson, Bergljót Ólafsdóttir.
Systir okkar. Í LILJA HJARTARDÓTTIR,
Njálsgötu 83,
veröur jarðsungin þriöjudaginn 23. maí nk. kl. 13.30. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju. Ingibjörg Hjartardóttir Anna Hjartardóttir Hafsteinn Hjartarson
Eiginmaöur minn og faöir,
HENRIK THORARENSEN,
fyrrverandi skrifstofustjóri,
veróur jarösunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 22. maí kl. 13.30.
Eybóra Thorarensen,
Louise Erna Thorarensen.