Morgunblaðið - 21.05.1978, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1978
— Heilbrigðari
grundvöllur
Framhald af bls. 3
bankann og útbúið kennitölur
um rekstur.
Þá var nýlega útbúinn bók-
haldslykill fyrir heildverzlun og
mun félagið veita aðstoð við
uppsetningu hans, svo og upp-
lýsingar varðandi mögulega
tölvuvæðingu fyrirtækja. Þá má
nefna að innan félagsins hefur
verið mikill áhugi á útbreiðslu
starfsemi fyrir verzlun og hefur
verið unnið ýmislegt í sambandi
við það. Ennfremur hefur komið
fram áhugi á því, að heildverzl-
un gegni vaxandi hlutverki í
dreifingu íslenzks iðnaðar.
Að lokum má geta um ýmsa
samstarfsaðila innan lands og
utan svo sem Verzlunarráð
Islands, Kaupmannasamtökin,
Verzlunarmannafélagið, líf-
eyrissjóði og Verzlunarbankann.
Þá er félagið ásamt þessum
félögum aðili að Húsi verzlunar-
innar og hafa samtök verzlunar-
innar ávallt með sér náið
samstarf. Kjararáð verzlunar-
innar er samstarfsaðili í kjara-
málum.
FIS hefur samskipti við sam-
svarandi erlend samtök, aðal-
lega á Norðurlöndum, og eru
haldnir annað hvert ár fundir í
samtökum Norrænna heildsala-
samtaka og var slíkur fundur
haldinn hér 1976. Þá hefur
félagið nokkur samskipti við
alþjóðasamtök heildsala.
í dag er stjórn FÍS skipuð
eftirfarandi mönnum: Jón
Magnússon er formaður, Valde-
mar Baldvinsson, Ólafur
Haraldsson, Agúst Ármann,
Einar Birnir, Richard Hannes-
son og Sverrir Sigfússon.
I tilefni afmælisins gefur
félagið út veglegt afmælisrit í
5000 eintökum. I ritnefnd þess
voru Árni Gestsson, Gunnar
Ásgeirsson Sigurður Gunnars-
son og Sturla Eiríksson.
í afmælisritinu segir svo m.a.
í ávarpsorðum Geirs Hallgríms-
sonar forsætisráðherra:
„Stórkaupmenn eu útverðir
íslenzkrar verzlunarstéttar og
oft ekki síður erindreki þjóðar
sinnar á erlendum vettvangi en
stjórnskipaðir fulltrúar. Eftir
aldalanga einangrun og án
innlendrar verzlunarhefðar var
ekki heiglum hent að hefja bein
viðskipti við erlendar þjóðir.
Miklu skipti að strax í upphafi
tækist að afla íslandi góðs orðs
meðal erlendra viðskiptavina.
Áreiðanleiki ásamt framsýni
voru einkenni brautryðjendanna
í íslenzkri stórkaupmannastétt.
Býr þjóðin enn að þessum
orðstír í helztu viðskiptalöndum
sínum, enda hafa eftirmenn
brautryðjendanna verndað
þennan dýrmæta arf.“
Þá er ávarp Ólafs Jóhannes-
sonar, viðskiptaráðherra, þar
sem hann segir m.a.: „Á ofan-
verðri 18. öld, þegar verzlun var
gefin frjáls fyrir þegna Dana-
konungs fór að rofa til í þessum
efnum. Enn varð breyting til
batnaðar árið 1855, þegar verzl-
unin var gefin frjáls þegnum
allra þjóða. Baráttan fyrir
verzlunarfrelsi var ávallt í órofa
tengslum við sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. Það var því ekki
fyrr en hillti undir sjálfstæði að
þátttöku landsmanna sjálfra
tók að gæta að mun í verzlun-
inni. Fór mest allur innflutning-
ur landsmanna um hendur
danskra kaupmanna allt til loka
síðustu aldar.
Á þessum merku tímamótum
er við hæfi að líta til þessara
ófrelsisalda til samanburðar við
stöðu mála nú. Þá sést, að
framfarir í verzlunarmálum,
sem flestar umbætur, sækja
þrótt sinn til sjálfstæðis lands-
ins og lýðræðiskipulags þess.“
í afmælisritinu kemur fram
að í fyrstu stjórn félagsins voru:
Arent Claessen formaður, Björn
Ólafsson ritari, Hallgrímur
Benediktsson varaformaður,
Starfsmannafélög—einkaaðilar
Þetta sumarhús er til sölu
3 svefnherbergi, salerni, eldhús og stofa. Húsgögn, dínur, eldavél,
vatnshitari o.fl. fylgir. 220 v. raflögn er í húsinu.
Nánari upplýsingar í síma 52257 eftir kl. 7 á kvöldin.
ÍGEGNUM
U0GUNA!
Með áskrift að Vísi færðu fréttir
dagsins g/óðvo/gar í gegnum /úguna
til lesturs þegar þér hentar, hvort
sem þú ert heimavinnandi eða grípur
til hans þegar heim kemur að
loknum vinnudegi.
Áskrift er ekki aðeins þægi/egri fyrir
þig, heldur einnig hagkvæmari auk
þess að gefa glæsilega vinningsvon.
1 .júní verður dreginn út Simca GLS frá
Chrysler íáskrifendagetraun Vísis, léttum
og skemmtilegum leik,sem þú tekur
að sjálfsögðu þátt I gerist þú áskrifandi.
SANNAÐU T/L. MEÐÁSKRIFTÁTTU
STÓRKOSTLEGA VINNINGSVON OG FÆRÐ
FRÉTTIR DAGSINS FRÁ FYRSTU HENDI,
íGEGNUM LÚGUNA. Síminn er 8 66 11.
Ingimar Brynjólfsson féhirðir
og Magnús Th. S. Blöndahl
meðstjórnandi.
Þá eru í afmælisritinu ýmsar
greinar, sem lýsa ástandinu í
verzlunarmálum íslendinga fyrr
og nú, og þeirri þróun, sem átt
hefur sér stað eftir að verzlunin
var gefin frjáls 1855 og þar til
íslenzkir kaupmenn tóku við
henni úr höndum Dana. Lýst er
aðdraganda að stofnun fyrstu
heildsöluverzlunarfyrirtækjanna
upp úr síðustu aldamótum. Það
voru fyrirtæki Garðars Gísla-
sonar og O. Johnson & Kaaber.
Þá má nefna greinar um ýmsa
þætti úr sögu FÍS og áfanga í
starfi félagsins.
— Minning
Framhald af bls. 26
frá 1. jan. 1944 í tólf ár og síðan
skrifstofustjóri til starfsloka.
Hann kostaði kapps að rækja
störf sín af stakri samviskusemi,
trúr bankanum og réttsýnn í garð
starfsfólksins. Hann var mikill
félagshyggjumaður og lagði jafn-
an góðum málum lið sitt.
Mörg fyrstu starfsár Starfs-
mannafélags Útvegsbankans, er
hann var einn í hópi stofnenda,
var hann gjaldkeri þess.
Henrik Thorarensen var um
tveggja ára skeið formaður Sam-
bands íslenzkra bankamanna.
Hann var einnig þekktur fyrir ötul
og óeigingjörn störf og forystu í
félagssamtökum skátahreyfingar-
innar á Islandi. Var hann orðinn
varaskátahöfðingi íslands, er
hann hætti virkum störfum í þeim
gagnmerka félagsskap.
Að vegferð þessa lífs lokinni,
þökkum við gamlir starfsfélagar
Henriks í Útvegsbankanum
ánægjulega samferð og órofa
vináttu með bæn um að hans bíði
vor og birta í nýjum heimkynnum
annars lífs.
Við vottum eiginkonu og dóttur
einlæga samúð.
Adolf Björnsson.
— Afmæli Sören
Framhald af bls. 20
um eignir sínar með sixpensara á
höfði og undarlega hreinum fötum,
eins og dalamaður í kaupstaðar-
ferð. Þarna komu hinir ágætustu
menn í viðskiptaerindum. Stein-
grímur Steinþórsson, sem ráðið
hafði hann að Baldursheimi forð-
um, lagði ekki í stórhátíðir nema
fá svínakjöt hjá vini sínum
Bögeskov, ég man ekki hvort það
var allt stipmlað.
Seljalandsvegurinn lá yfir Háa-
leitið og var það leið bóndans til
mjólkurstöðvarinnar. Það var ró
og festa þarna í Kringlumýrinni
1955. Gömlu Reykjavík þekkti ég
af afspurn og lestri góðra bóka.
Enn var skarkalinn fyri utan of
fast undir fæti.
Bögeskov, vinur minn og tengda-
faðir, fékk bréf árið 1963. Borgin
þurfti á túnum hans að halda.
Æðrulaust flutti þessi þéttbýlis-
maður sig ofar í holtið og situr nú
löngum við gluggann sinn að
Safamýri 56 og virðir fyrir sér
vaxandi trjágróður og mikla um-
ferð á þessum áður sumarhúsa- og
kartöflugarðasvæði samborg-
aranna.
í nær 60 ár hefir ferðin staðið.
10 sinnum hefir hann farið
„hjem“. í boði Friðriks Danakon-
ungs mætti hann á kjól. Hennar
hátign Margrét drottning bauð
honum í hús Frímúrarareglunnar
á Islandi og nældi í barm hans
minnispening Dannebrogsorðunn-
ar. Þar fannst mér tvennt fara á
skjön við þá góðu reglu, kona
húsbóndi og Bögeskov heiðursgest-
ur.
Af Bögeskov og Ágústu hefi ég
margt þegið á liðnum árum. Það
mun danskur siður að þakka fyrir
sig áður og eftir fenginn beina. Af
þessum hjónum hefi ég margt
fengið, sem var til saðningar og
grundvallar eigin heimilisstofnun.
Eg læt duga að þakka þeim fyrir
hana Kristínu mína, hún hafði
ráðið sig norður til kaupavinnu og
tókust með okkur kærleikar.
Björn.