Morgunblaðið - 31.05.1978, Page 1

Morgunblaðið - 31.05.1978, Page 1
32 SÍÐUR 112. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hvítir Shaba Rabat, 30. maí. Reuter. MOBUTU Sese Seko forseti Zaire sagði í dag að uppreisnarmenn hefðu myrt alla hvíta menn sem þeir tóku í gíslingu þegar þeir hörfuðu frá námubænum Kolwezi í Shabahéraði — karla, konur og börn. Hann sagði að fjöldamorðin hefðu verið framin á laugardag- inn en ekki væri vitað um fjölda þeirra sem hefðu vcrið myrtireða hvar morðin hefðu átt sér stað. Vitað er að rúmlega 200 hvítir menn voru drepnir eftir árás uppreisnarmanna í Kolwezi. Þegar franskir og belgískir fallhlífaher- menn höfðu flutt á brott um 2.000 hvíta menn hermdu fréttir að uppreisnarmenn hefðu haft á brott með sér ótiltekinn fjölda hvítra gísla. Starfsmenn franska varnar- málaráðuneytisins í París sögðu í kvöld að þeir hefðu engar upplýs- SAS boðar ný fargjöld Ósló, 30. maí. AP. EF BANDARÍSKA flugfélagið Northwest Arlines býður lækk- uð fargjöld á flugleiðum yfir Norður-Atlantshaf þegar flug- ferðir félagsins frá Svíþjóð og Danmörk hefjast mun skandi- naviska flugfélagið SAS bjóða svipuð fargjöld „innan hóflegra marka" að því er Knut Hagrup forstjóri sagði í dag. Northwest Airlines hefur að- setur í Minnesota og tekur við ferðum á leiðum sem Pan American-flugfélagið hefur hingað til flogið yfir Norð- ur-Atlantshaf. Gert er ráð fyrir því að reglulegt áætlunarflug til og frá Stokkhólmi og Kaup- mannahöfn hefjist 1. ágúst. Fargjaldabeiðni Northwest er í athugun hjá skandinavískum flugmálayfirvöldum. gíslar í myrtir ingar um afdrif hugsanlegra gísla_ sem væru enn í höndum uppreisn- armanna. Þeir 150 hermenn út- lendingahersveitarinnar sem eru enn í Kolwezi hafa árangurslaust leitað að gíslum og hvítum mönn- um sem kunna að hafa farið í felur. Ráðuneytið birti í gær lista með nöfnum 48 Frakka í Zaire sem ekki er vitað hvar eru niðurkomnir, en á það er lögð áherzla að ekki sé víst að þetta fólk sé' fangar uppreisnarmanna þótt þess sé saknað. Mobutu sagði að aukin hern- aðaraðstoð Marokkóma/ina væri á undirbúningsstigi. Hann sagði að Zairemenn mundu fá hernaðarað- stoð frá Afríkuríkjum sem teldu sér ógnað af Rússum og Kúbu- mönnum og að ekki yrði sent til Zaire herlið á vegum Einingar- samtaka Afríku (OAU). Forsetinn sagði að árás upp- reisnarmanna á Zaire hefði gengið undir nafninu „Hernaðaraðgerð dúfa“ og' verið upphaflega skipu- lögð í Havana í marz. Hann kvað skjöl sanna að uppreisnarmenn hefðu hitzt í Algeirsborg 28. marz til að ljúka undirbúningi árásar- innar á Kolwezi. Upphaflega hefði átt að gera árásina 10. júní og því hefðu Zaire-mepn verið óviðbúnir árásinni er hún var gerð 11. maí. Nokkrir leiðtogar frá aðildarlöndum NATO hlýðd á Josef Luns framkvæmdastjóra við setningu ieiðtogafundar bandalagsins. Efst á myndinni er Konstantín Karamaniis forsætisráðherra Grikk- lands, þá Geir Hallgrimsson forsætisráðherra, Jimmy Carter forseti og loks Bulent Ecevit forsætisráðherra Tyrklands. Handtökur við komu Brezhnevs Prag, 30. maí. Reuter. Öryggislögreglan í Prag handtók að minnsta kosti 11 andófsmenn úr mannréttindahreyfingunni á heimilum þeirra skömmu áður en Leonid Brezhnev, forseti Sovét- ríkjanna, kom í opinbera heim- sókn til Tékkóslóvakíu. Þetta eru mestu lögregluaðgerðir gegn hreyfingunni síðan hún var stofn- uð fyrir 16 mánuðum. Einn þriggja talsmanna hreyfingarinnar, heimspekingur- inn Ladislav Hejdanek, var meðal þeirra sem voru handteknir. Leitað var á heimili hans og fjögurra annarra andófsmanna. Andófsmenn segja aðgerðirnar séu til þess ætlaðar að koma í veg fyrir mótmæli meðan á heimsókn Brezhnevs stendur. Ottazt er að fleiri hafi verið handteknir. Arás á þorp í S-Líbanon Beirút, 30. maí. AP. ÍSRAELSKT stórskotalið gerði skyndilega árás á þorp múhameðs- trúarmanna í Suður-Líbanon í dag og fimm óbreyttir borgarar féllu og 17 særðust að því er palestínsk- ir skæruliðar halda fram. Þorpin eru 12 til 15 km frá landamærum Israels. Leiðtogar NATO lýsa ugg út af umsvifum Rússa í Afríku Washington, 30. maí. Reuter. AP. FUNDUR æðstu manna aðildar- ríkja Atlantshafsbandalagsins hófst í Washington í dag og þeir beindu athyglinni að hernaðar- umsvifum Rússa og Kúbumanna í Afríku og stirðum samskiptum Bandaríkjamanna og Tyrkja og létu í ljós þungar áhyggjur af vaxandi hernaðarmætti Rússa í Evrópu. Carter forseti lýsti yfir því í setningarræðu að þótt Atlants- hafsbandalagið léti sig aðallega Evrópu varða gæti árvekni bandalagsins ekki einskorðast við þá heimsálfu eina. Hann sagði að með starfsemi sinni í Afríku kæmu Rússar og Kúbumenn í veg fyrir að einstakar þjóðir gætu ráðið stefnu sinni. Jafnframt tilkynnti bandaríska utanríkisráðuneytið að alþjóðleg ráðstefna yrði haldin í París í næstu viku til að ræða sameiginleg viðbrögð vestrænna ríkja og Afríkuríkja við aðgerðum Rússa og Kúbumanna í Afríku. Frakkar Sadat reiðubúinn í styrjöld út af Níl Kaíró, 30. maí. Reuter. AP. ANWAR Sadat forseti sagði í dag að Egyptar mundu leggja út í styrjöld ef eitthvert ríki reyndi að stífla Níl eða réðist á Súdan. Þegar fréttaritari spurði Sadat á blaðamannafundi um fréttir um að Eþíópíumenn hygðust gera stíflu á Tana-vatni, einum af upptökum Nílar. sagði Sadat að iífsafkoma Egypta byggðist 100% á Nfl. Þegar hann var að því spurður hvort hann mundi leggja út í styrjöld út af Níl, sagði hann að þar sem um líf eða dauða væri að tefla mundu Egyptar ekki hika við það. Sadat var að því spurður hvaða afstöðu Egyptar tækju ef Súdan yrði ógnað vegna stríðs Erítreu- manna og Eþíópíumanna. Sagði Sadat að um líf eða dauða væri að tefla fyrir Egypta og að ef eitthvað yrði gert á hlut Súdana mundu Egyptar á samri stundu ganga í lið með Súdönum. Þjóðirnar eru í varnarbandalagi og hafa með sér stjórnmálalega og efnahagslega samvinnu. Jafnframt lýsti Sadat því yfir að hann ætlaði að sjá til í 'tvo mánuði hvort tilraunir hans til að semja frið við Israel heppnuðust eða mistækjust. Hann sagði að ef tilraunirnar færu út um þúfur væri þa- r ekki sagt að öll von væri úti og að þá mætti reyna aðrar leiðir og aðrar aðferðir. En hann gaf í skyn að svo gæti farið að hann féllist ekki á að endurnýja samninginn við ísrael um aðskilnað herja á Sinai-skaga er rennur út í október. Sadat gaf í skyn að hann kynni að taka ákvorðun fyrir 26 ára afmæli egypzku byltingarinnar 23. júlí. Jafnframt setti Sadat ofan í við erlenda fréttaritara vegna skrifa þeirra um . þjóðaratkvæðið á dögunum og tók einkum fyrir fréttaritara The Times, Christoph- er Walker, og útvarpið í London Framhald á bls. 18 sögðu að meðal þátttökuríkja yrðu Bandaríkin, Bretland Frakkland, Vestur-Þýzkaland og Kanada sem eiga aðild að Öryggisráðinu auk Afríkuríkja og ef til vill Ítalíu. Utanríkisráðherra Frakka, Louis de Guiringaud, lét einnig í ljós áhyggjur stjórnar sinnar vegna þróunar mála í Afríku og Framhald á bls. 19 Carter forseti býður Geir Hallgrímsson velkominn til Ilvíta hússins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.