Morgunblaðið - 31.05.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
7
Sigurblað en
sorgartónn
í fyrsta tölublaði Þjóö-
viljans ettír kosningasig-
ur AlÞýðubandalagsins i
Reykjavík, birtast
athyglisverðar hugleið-
ingar eftir fréttastjóra
blaðsins. Þar er m.a. látið
að Þvi liggja, að ekki
megi binda of bjartar
vonir við hugsanlegt
samstarf vinstri afla í
borgarstjórn Reykjavíkur
og vitnað til vinstri
stjórnar í iandsmálum Því
til staðfestingar. „Nú
stendur fyrir dyrum aö
gera málefnasamning við
Framsóknarflokkinn og
AlÞýðuflokkinn um stjórn
borgarinnar næstu fjögur
árin,“ segir í Þessari
hugleiðingu. „AlÞýðu-
bandalagsmenn hafa áð-
ur gert samning við borg-
araflokka," segir enn-
fremur. „Um hefur verið
að tefla málefnasamning
ríkisstjórna. Síðast mál-
efnasamning Þríggja
flokka vinstri stjórnar.
Það var aö mörgu leyti
góö stefnuskrá frá
sjónarhóli sósíalista...“
En síðan kemur rúsínan í
pylsuendanum: „En auð-
vitaö var ekki staðið við
málefnasamninginn."
Þetta er skrítið sam-
starfsinnlegg í fyrsta
blaði Þjóðviljans eftir
borgarstjórnarkosningar.
„Ekki staðið við samn-
inga“ var staðhæfing út
af fyrir sig. Orðið
„auðvitað" gefur henni
svo sérstætt svipmót.
„VaLt aö
treysta" sam-
starfsflokkum
En fréttastjóri Þjóðvilj-
ans hefur fleira að segja
um væntanlega sam-
starfsflokka í borgar-
stjórn Reykjavíkur. Um
Þennan nýja meirihluta
segir hann m.a.: „En Það
eru Þrjú hjól undir vagn-
inum. Og Þau kunna að
bila Þegar minnst varir,
eða Þegar móti fer að
blása.“ En síðan bætir
hann við í karlmannleg-
um tón og á Þá að
líkindum viö eigin flokks-
menn: „Við bilum ekki.“
Og enn segir hann: „En
Það er valt aö treysta
Framsókn og AlÞýðu-
flokki. Það segir
reynslan...“ Er verið að
afsaka eitthvað fyrir
fram? Eða er hér einhver
„húsbóndatónn" I garð
samstarfsflokka?
Um hugsanlegt vinstra
samstarf í borgarstjórn,
skoðaö í Ijósi reynslunn-
ar, segir fréttastjóri Þjóð-
viljans: „Á stjórnlist
AlÞýðubandalagsins á ár-
dögum vinstrí stjórnar
var einn höfuðgalli. For-
ystumenn flokksins svo
og Þjóðviljinn notfærðu
sér hina pólitísku
Þreytu... til að . byggja
upp gífurlega eftirvænt-
ingaröldu meðal lands-
manna. Að mörgu leyti
eðlilegt vanproskamerki
é sósíalískum flokki sem
hlýtur i hverjum tíma að
gera flokksmönnum sín-
um grein fyrir pví, að
samstarf við borgara-
flokka hlýtur að vera ein
samfelld saga vonbrigða
fyrir pá sem trúa pví að
sósíalisminn sé handan
næsta götuhorns...“
Samfelld
sorgarsaga
„Samstarf við borgara-
flokka (væntanlega er
hér átt viö Framsóknar-
flokk og AIÞýðuflokk)
hlýtur að vera ein sam-
felld sorgarsaga...“
Þetta er tónninn í Þjóð-
viljanum í upphafi
væntanlegs vinstra sam-
starfs í Reykjavík. Ööru
vísi var tónninn í blaðinu
Þegar pað falaöist eftir
atkvæðum Reykvíkinga
við Þessa „samfelldu
sorgarsögu“ — sem nú er
svo kölluð í Þjóðviljanuml
Enn segir fréttastjórinn
á Þjóðviljanum: „Það hef-
ur lengi verið skoðun
undirritaðs að AlÞýðu-
bandalagið ætti ekki aö
ganga til neins konar
stjórnarsamstarfs við
borgaraflokka nema Það
hafi trúnað og umboð
fólks til að gegna
forystuhlutverki í slíku
samstarfi." Nú „blasi sú
staðreynd við“ að
AlÞýðubandalagið „veröi
ótvírætt forystuafl og
langstærsti flokkurinn í
briggja flokka meirihluta-
samstarfi í borgarstjórn
Reykjavíkur“, Þó „valt sé
að treysta Framsókn og
AIÞýöuflokki", eins og
líka segir í hugleiöing-
unni um hina „samfelldu
sorgarsögu“.
„Alls ekki
sammála því,“
segir Alþýöu- |
flokkur |
Um hiö „ótviræða for- I
ystuafl" AlÞýðubanda-
lagsins, segir Björgvin
Guðmundsson, borgar- I
fulltrúi Albýðuflokks hins
vegar: „Ég er alls ekki I
sammála Því að svo I
verði. Mín skoðun er sú
að Það eigi aö mynda I
Þriggja flokka stjórn um |
borgina, sem verði hlið-
stæð samsteypustjórnum I
Þriggja flokka... að sem |
mest jafnræði ríki milli .
allra flokkanna, Þannig I
að Þar verði enginn einn I
flokkur riðandi afl.“ .
Kristján Benediktsson, i
borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, segir á I
sama hátt: „Ég er Þeirrar i
skoðunar og byggi Það á
reynslu, sem við höfum I
úr öðrum bæjarfélögum, i
að Þótt flokkar séu mis-
stórir, sem fara með I
stjórn, fari Það ekki eftir i
stærð Þeirra... hvaða
forystu og áhrif Þeir hafa I
í samstarfinu". Og hann i
bætir við: „Þótt Fram- >
sóknarflokkurinn hafi að- I
eins hlotið einn borgar- .
fulltrúa í Reykjavík verð- I
ur slíkur meirihluti ekki I
myndaður án hans.“ Hér .
er minnt á vald Þess sem I
oddaaöstööuna hefur.
Það er fróðlegt að I
skoða Þessi ummæli i
borgarfulltrúa AIÞýðu- og
Framsóknarflokks í Ijósi I
Þess boðskapar, sem i
fréttastjóri Þjóðviljans
flytur Reykvíkingum í I
fyrsta blaði sínu, eftir i
kosningar.
10 ástæður fýrir kaupum
á PHILCO
bvottavélum
Q 0
- J 0
Tekur inn heitt og kalt vatn, sem þýðir
tíma og rafmagnsspamað.
2.
Vinduhraði sem er allt að 850 snún/-
mín, flýtir þurrkun ótrúlega.
3.
4 hitastig (32/45/60/90°C), sem henta
öllum þvotti.
4.
Spamaðarstilling fyrir vatn og raf-
magn.
5.
3 mismunandi hraðar í þvotti og tveir í
vindu, tryggja rétta meðferð þvottar-
Viðurkennt ullarþvottakerfi.
7.
Stór þvottabelgur, sem tekur 5 kg. og
stórar dyr er auðvelda hleðslu.
8.
Fjöldi kerfa, sem henta þörfum og þoli
alls þvottar.
9.
Fullkomin viðgerðarþjónusta er ykkar
hagur. {
10.
Verðið er mun lægra en á sambærileg-
um véluni.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
PHII.CO og fallegur
þvottur fara saman.
Skíðanámskeið í
Langjökli
Tvö námskeiö veröa haldin í sumar.
10—15 júní 12 ára og yngri.
15—20 júní 13 ára og eldri.
Verö kr. 28.000-
Upplýsingar hjá ferðaskrifstofu Guömundar Jónasson-
ar h.f. sími 35215 og Tómasi Jónssyni sími 75706.
11 I Þjóðhátíðarnefnd
Reykjavíkur
Sölutjöld 17. júní í Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til veitingasölu á þjóöhátíðar-
daginn vinsamlegast vitji umsóknareyöublaöa aö
Fríkirkjuvegi .11. Opiö kl. 16.15. Umsóknum
skal skilaö í síöasta lagi föstudaginn 9. júní
Þjódhátídarnefnd.
LNJ límtrésbitar
og bogar
■
AF HVERJU NOTUM VIÐ
LNJ LÍMTRESBITA?
Vegna þess að:
# Þeir eru ódýrir í uppsetningu.
(auðvelt að reisa húsgrind á einum degi)
# Þeir eru fallegir á að líta.
# Þurfa lítið viðhald.
# Ryðga ekki.
# Þeir veita mikið viðnám gagnvart eldi.
# Léttir í meðförum.
# Hægt að saga, skrúfa og negla í þá með
einföldum verkfærum.
# Skapa ótrúlega marga möguleika fyrir
verkfræðinga og arkitekta.
# Öruggt framleiðslueftirlit.
# Góð og fljót þjónusta.
# Stuttur afgreiðslufrestur.
# Hagkvæmt verð.
Eigum þessar stærðir fyrirliggjandi:
90x400 mm í allt að 25 m lengd
90x300 mm í allt að 25 m lengd
65x266 mm í allt að 25 m lengd
Timburverzlunin
Völundur hf.
KLAPPARSTÍG 1. SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244