Morgunblaðið - 31.05.1978, Side 10

Morgunblaðið - 31.05.1978, Side 10
10 MORGUNBMÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978 Frá vinstri. Ásgeir Erlintí Gunnarsson, Óskar Eggertsson og Ingólfur Eggertsson. Rafmagnsverkstæðið Póllinn hf., ísafirdi: Erum bjartsýnir á að þetta eigi eftir að ganga vel -segir Ásgeir E. Gunnarsson framkvæmdastjóri • Rafverktakafyrirtækið Póllinn h.f. er eitt þeirra fyrirtækja á ísafirði sem er tiltölulega ungt, en það var stofnað árið 1966. Stofnendur voru 5, bræðurnir óskar, Haukur og Ingólfur Eggertssynir, ásamt Gunnari Steinþórssyni og Hans W. Haraldssyni. óskar sem er rafvirkja- meistari hafði um skeið rekið raftækjavinnustofu á ísafirði og til að færa út kvíarnar var fyrirtækið stofnað. óskar Eggertsson var framkvæmdastjóri fyrstu árin en um síðustu áramót tók Ásgeir Erling Gunnarsson við fjármálunum, en óskar hefur alla verkstjórn á sinni könnu. Mbl. var nýlega á ferð vestra og ræddi þá við Ásgeir og greindi hann í upphafi frá helztu verkefn- um Pólsins: „Aðalverkefnin hafa verið raf- lagnavinna, hvers konar lagnir og viðgerðir, rekið er almennt raf- magnsverkstæði til að annast viðgerðir á heimilistækjum, ýmis konar vélum og tækjum fyrir skip og bíla t.d. í kælikerfum skipa o.fl., en öll þjónusta við skipaflotann hefur aukist mjög með árunum. Þá er rekin sérstök deild, hönnunar- deild, en þar ræður ríkjum Örn Ingólfsson, rafmagnstækni- fræðingur, og er þar unnið að hönnun og framleiðslu nýrra rafeindatækja og við bindum miklar vonir við þá framleiðslu nú í náinni framtíð. Auk þess er rekin verzlun með alls kyns rafíótæki og heimilistæki, en verzlunarstjóri er Sigurður Þórðarson." Póllinn h.f. er í eigin húsnæði við Aðalstræti 9, en keypt var á sínum tíma gamalt timburhús og innréttað fyrir starfsemina. I gamla húsinu er nú rekin verzlun- in og skrifstofa fyrirtækisins, en áfast því hefur nú verið reist stór bygging er hýsir alla viðgerðar- og framleiðslustarfsemina. Var það byggt árið 1975 og verður væntan- lega tekinn í notkun síðasti áfanginn nú í sumar. Ásgeir sagði að starfsmenn Pólsins væru í allt um 20, aðallega rafvirkjar en einnig útvarpsvirkjar. Ásgeir Erling Gunnarsson er spurður nánar um hönnunardeild- ina: „Stærsta verkefnið að sviði framleiðslunnar er rafeindavog, sem við getum boðið til kaups nú á þessu ári og er reyndar verið að taka eina slíka í notkun hjá Hraðfrystihúsinu Norðurtangan- um um þessar mundir. I þetta fyrirtæki höfum við þegar lagt nokkrar milljónir, höfum reyndar sótt um styrk til Framkvæmda- sjóðs og erum við bjartsýnir á að þetta eigi eftir að ganga vel. Þessi vog á að skapa aukna hagkvæmni í rekstri frystihúsanna með því að auka eftirlit með nýtingu afla. Sigurður Þórðarson verzlunar- stjóri Eins og ég gat um áðan hefur einn rafmagnstæknifræðingur unnið að þessari hönnunarvinnu síðan 1976. Af öðru á verkefna- listadeildarinnar má nefna þráð- laust tímatökutæki, sem þegar hefur verið reynt í keppni, smíðuð hafa verið flotvörpuljós, aðallega eftir pöntunum, þá höfum við framleitt spennustilla, sjálfvirk hleðslutæki, baujuljós, álagsstýri- tæki, en það stjórnar orkunotkun t.d. hjá þeim sem kaupa ákveðinn orkutopp, þá stjórnar tæki þetta alveg orkunotkuninni, og lekaað- vörunartæki, en það gefur til kynna þegar of mikill sjór er kominn i vélarrúm og hefur þetta tæki m.a. fengið viðurkenningu hjá Vélbátaábyrgðarfélagi Isfirðinga." Hleypti iðnkynningarárið ein- hverjum fjörkipp í ykkar starf? „Það hefur áreiðanlega haft sín áhrif hér eins og víða annars staðar, þrátt fyrir að hér hafi ekki verið haldinn dagur iðnaðarins eins og var víða um landið. En frá því þessi framleiðsla var sett á stofn hefur hún hlaðið utan á sig og þakka ég það því hversu vel hefur tekizt til með að finna góðar leiðir til að framleiða á samkeppn- ishæfu verði vörur til að nota hér, en það er m.a. vegna þess að við höfum þróað sjálfir framleiðsluna og okkur hefur tekizt að bjóða uppá vörur sem eru vel hæfar til að þola álag við misjafnar aðstæð- ur, hvort heldur er fyrir bíla, báta, vinnuvélar eða annað.“ Eru einhver sérstök vandamál sem steðja að framleiðslufyrirtæki úti á landsbyggðinni? „Eitt af kostnaðarsamari atrið- um hjá okkur er lagerinn, við reynum að halda stórum og góðum lager, því við verðum að hafa allt efnið við hendina. Hér er ekki hægt að taka upp símann og hringja eftir því sem okkur vantar frá dreifingaraðila í Reykjavík. Við flytjum einnig inn hluta af efninu sjálfir og seljum okkar vinnu á sama verði og gert er í Reykjavík og hefur þetta ólíkt meiri kostnað í för neð sér heldur en fyrir það sem geta sótt í heildsölur í Reykjavík hvenær sem vantar einhvern smá hlut. Þetta er fyrst og fremst það sem fyrirtæki úti á landsbyggðinni eiga við að glíma. „En við erum bjartsýnir," sagði Ásgeir Erling, „og reynum að Ein framleiðsluvarannai Lekaað- vörun fyrir vélarrúm skipa spjara okkur og það að uppbygg- ingin gangi ekki eins hratt og æskilegt væri, þá heldur hún þó stöðugt áfram og við munum halda áfram á sömu braut og þegar hefur verið mörkuð. Við horfum til þess að Framkvæmda- sjóður geri eitthvað fyrir okkur varðandi nýsmíðina, því þótt styrkupphæðin myndi í sjálfu sér ekki ná nema skammt yrði hún þó ótvíræð viðurkenning á þessu starfi." Ný sjúkra- bifreið í V-Skafta- feDssýslu Litla-Hvammi 29. maí RAUÐA KROSS deild Víkur- læknishéraðs tekur í dag í notkun nýja sjúkrabifreið. Bifreiðin er af Ford-gerð, úthúin mcð drifi á öllum hjólum og sérstaklcga innrétt- uð fyrir sjúkraflutninga með viðeigandi útbúnaði frá Bíla- klæðningu í Kópavogi. Heildarverð bifreiðarinnar með öllum búnaði er 6.8 millj. kr., þar af greiðir sýslusjóður V-Skaftafellssýslu helming verðsins, en afganginn fjár- magnar Rauða kross deildin og fór fram almenn fjársöfnun í þeim tilgangi. Fjársöfnunin gekk afbragðsvel og má segja að fiest öll félög svo sem Lions-klúbburinn Suðri, kven- félög, stéttarfélög og sveitarfé- lög á svæðinu, hvert fyrirtæki auk einstaklinga hafi lagt sitt lóð á vogarskálina. Rauða kross deildin mun sjá um rekstur bifreiðarinnar. Stjórn Rauða kross deildar- innar skipa Jón Ingi Einarsson skólastjóri, formaður, Steinunn Pálsdóttir húsfrú, ritari, og Elsa Tryggvadóttir hjúkrunar- kóna, gjaldkeri. — Sigþór Við Rauðalæk Til sölu mjög góö 5 herb. íbúö 138 fm aö stærö. íbúöinni fylgir bílskúr. Makaskipti á minni íbúö koma til greina. Upplýsingar gefur Hafsteinn Hafsteinsson hrl. Suðurlandsbraut 6. Sími 81335. Akurgerði Til sölu er hæð og rishæö í steinhúsi viö Akurgerði. (íbúöin í kjallara fylgir ekki). Á hæðinni eru 2 samliggjandi stofur, eldhús meö borökrók, rúmgóöur skáli og ytri forstofa. í rishæöinni eru 4 svefnherbergi, baö og gangur. Rólegur og vinsæll staöur. Upplýsingar gefa undirritaöir. Þorsteinn Júlíusson hrl. Árni Stefánsson, hrl. Skólavörðustíg 12, Reykjavík Suöurgötu 4, Reykjavík. Sími 14045. Sími 14314. Örn Ingólfsson tæknifræðingur sér um hönnunardeildina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.