Morgunblaðið - 31.05.1978, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
Þetta gerðist
Júgóslavar til
í að framselia
Belgrad, 30. maí. AP. Reuter.
JÚGOSLAVAR tilkynntu í dag að
þeir væru reiðubúnir að fram-
selja vestur-þýzku hryðjuverka-
mennina fjóra, sem þeir hafa
handtekið, en tóku fram að þeir
hefðu beðið Vestur-Þjóðverja að
framselja jafnmarga júgóslavn-
eska hryðjuverkamenn að því er
kom fram í frétt frá fréttastof-
unni Tanjug.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum í Karlsruhe komu vest-
ur-þýzku hryðjuverkamennirnir
til Júgóslavíu til að sitja „fund
æðstu manna“ Baader-Meinhof—
hópsins þar sem átti að ræða nýjar
hryðjuverkaaðgerðir í Vest-
ur-Þýzkalandi.
Hryðjuverkamennirnir telja sig
arftaka hinna upphaflegu leiðtoga
samtakanna, sem sviptu sig lífi í
Stammheim-fangelsi í Stuttgart í
október í fyrra. Samkvæmt heim-
ildunum í Stuttgart er trúlegt að
fleiri hryðjuverkamenn verði
handteknir, þó ekki endilega í
Júgóslavíu.
Vestur-Þýzka lögreglan vill yfir-
heyra tvo hinna handteknu, Brig-
itte Mohnhaupt og Rolf Clemens
Wagner í sambandi við morðin á
Hanns-Martin Schleyer, Júrgen
Ponto og Siegfried Buback.
Vestur-Þjóðverjar neita því að
Júgóslavar reyni að skipta á
hryðjuverkamönnunum og
júgóslavneskum hryðjuverka-
mönnum sem hafa verið handtekn-
ir í Vestur-Þýzkalandi.
Tanjug-fréttastofan minntist
heldur ekki á það að samband væri
á milli framsalsbeiðni Vest-
ur-Þjóðverja og beiðni Júgóslava
um framsal júgóslavneskra
hryðjuverkamanna.
Þýskir embættismenn telja
handtökurnar síðasta árangur
alþjóðlegrar leitar að vest-
ur-þýzkum hryðjuverkamönnum.
Alls hafa verið handteknir 12
vinstrisinnaðir hryðjuverkamenn í
Hollandi, Sviss, Frakklandi,
Grikklandi og Jógóslavíu.
150 Kúbumenn
fara daglega
til Angóla
Lissabon, 30. maí AP.
VESTRÆNIR embættismenn
sögðu í dag að Kúbumenn flyttu
um þúsund hermenn í hverri viku
til Angóla, til að stuðla að örari
hernaðaruppbyggingu í iandinu.
Heimildirnar hermdu að Kúbu-
menn hefðu sent 150 hermenn á
viku til Angóla, en upp á síðkastið
hefði feröum þangað fjölgað veru-
lega og væri nú svo komið að 150
hermenn væru sendir þangað
daglega.
Samkvæmt sömu heimildum er
herstyrkur Kúbu nú í Angóla um
23.000 hermenn. Þá segir að ekki
verði greint að fleiri hermenn fari
frá Angóla aftur heim til Kúbu nú
en áður.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað
veldur hinni miklu fjölgun kúb-
anskra hermanna í Angóla, en
talið er að hermennirnir fari með
hermönnum Angóla í árásarferðir
til nágrannalanda Angóla.
1977 — Rhódesíumenn taka
bæ í Mozambique.
1973 — Öldungadeild Banda-
ríkjaþings samþykkir að stöðva
fjárveitingar tii ioftárása á
Kambódíu.
1970 — Rúmlega 50.000 farast
í jarðskjálfta í Perú, 20.000
saknað og 200.000 siasast.
1966 — Evariste Kimba fv.
forsætisráðherra og þrír aðrir
dæmdir til dauða í Kongó fyrir
samsæri um að steypa Mobutu
forseta.
1962 — Stríðsglæpamaðurinn
Eichmann hengdur í ísrael.
1961 — Suður-Afríka verður
sjálfstætt lýðveldi utan brezka
samveldisins.
1942 — Nazistaforinginn
Heydrich veginn í Prag.
1937 — Þýzk flotaárás á
Almeria, Spáni, eftir loftárásir
lýðveidissinna á orrustuskipið
„Deutschiand".
1928 — Venizeios snýr aftur
til Grikklands sem forsætisráð-
herra.
1926 — Gomes de Costa gerir
stjórnarbyltingu í Portúgai.
1910 — Sambandsríki Suð-
ur-Afríku stofnað.
1902 — Friðurinn í Vereenig-
ing bindur enda á Búastríðið.
1793 — Ógnarstjórnin hefst í
Frakklandi.
Afmali dagsins. Walt Whit-
man, bandarískur rithöfundur
(1819-1910) - Sir Francis
Younghusband, brezkur her-
maður — landkönnuður
(1863—1942) — Rainier fursti,
í Monakó (1923 — —).
Innlent. D. Jón Guðmundsson
ritstjóri 1875.
Orð dagsins. Þeir stjórnmála-
menn ná lengst sem segja hæst
og oftast það sem allir hugsa —
Theodore Roosevelt, forseti
Bandaríkjanna (1858—1919).
Kristilegir
demókratar
juku fylgi
sitt á Sikiley
Palermo, Sikiley,
30. maí. Reuter.
Stjórnarflokkur Ítalíu, Kristi-
legi demókrataflokkurinn, jók
verulega fylgi sitt í héraðskosning-
um, sem haldnar voru á Sikiley um
síðustu helgi.
Samkvæmt tölvuspám munu
kristilegir demókratar auka fylgi
sitt um 3,6%. Nokkur fylgisaukn-
ing mun einnig verða hjá
kommúnistum eða 1%..
Fyrstu tölur bentu til að Kristi-
legir demókratar fengju 43%.
atkvæða, kommúnistar 19% og
sósíalistar, sem eru þriðji stærsti
stjórnmálaflokkurinn, 16,4%..
Samkvæmt þessum tölum tapa
sósíalistar 3,2%..
Meö „almennum sérfargjöldum" getur afsláttur
af fargjaldi þínu orðið 40%, og enn hærri sért
þú á aldrinum 12 - 22ja ára - og ekki nóg með
það, nú bjóðum við enn betur.
„Almenn sérfargjöld" okkar eru 8-21 dags
fargjöld sem gilda allt árið til nær 60 staða í
Evrópu.
Láttu starfsfólk okkar á söluskrifstofunum,
umboðsmerin okkar, eða starfsfólk ferðaskrif-
stofanna finna hagkvæmasta fargjaldið fyrir
þig og þína.
Nú færð þú fjölskylduafslátt
til viðbótar
flucfelac LOFTLEIDIR
ISLANDS
Þessi nýi fjölskylduafsláttur gildir til allra
Norðurlandanna, Bretlands og Luxemborgar.
Fyrst er reiknað út „almennt sérfargjald" fyrir
hvern einstakan í fjölskyldunni - þá kemur
fjölskylduafslátturinn til sögunnar á þann hátt
að einn í fjölskyldunni borgar fullt „almennt
sérfargjald" en allir hlnir aðeins hálft.