Morgunblaðið - 31.05.1978, Síða 17

Morgunblaðið - 31.05.1978, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978 17 Staða Sjálfstæð- isflokks og Alþýðu- flokks svipuð og 1966 og 1970 í FRÉTTUM um úrslit bæjar- og sveitarstjórnakosninga á sunnudaginn var, hefur í samanburði á stöðu flokkanna nú yfirieitt verið miðað við úrslit síðustu bæjar- og sveitar- stjórnakosninga vorið 1974. í þeim kosningum urðu hins vegar mikiar breytingar á fylgi flokkanna sérstaklega Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks. Sjálfstæðisflokkur vann stór- sigur en Alþýðuflokkur tapaði miklu fylgi. Morgunblaðið hefur hins veg- ar tekið saman yfirlit um atkvæðahlutfall flokkanna nú miðað við úrslit sveitarstjórna- kosninga 1966 og 1970, og kemur þá nokkuð önnur mynd fram heldur en ef miðað er við kosningarnar 1974, sem háðar voru við sérstakar aðstæður. f súluritum þeim, sem hér fylgja með, er byggt á meðaitalshlut- falli flokkanna í Reykjavík og kaupstöðum landsins. Aðeins er miðað við hrein flokksfarmboð. A-Alþýðuflokkur, B-Fram- sóknarflokkur, D-Sjálfstæðis- flokkur og G-AIþýðubandalag. Engar verulegar breytingar við endurtalningu ENDURTALNINGU at- kvæða í borgarstjórnarkosn- ingunum lauk í fyrrinótt klukkan 04. Engar verulegar breytingar urðu á kjörfylgi flokkanna, en samkvæmt upplýsingum Björgvins Sig- urðssonar, formanns yfir- kjörstjórnar í Reykjavík, var endurtalið til þess að koma í veg fyrir allar vangaveltur, þar sem svo lítill munur var á 8. manni D-listans og 5. manni G-listans. Niðurstöður síðari talning- ar urðu: A-listi 6.250 atkvæði og 2 menn kjörna 13,4% gildra atkvæða. B-listi 4.368 atkvæði og 1 mann kjörinn 9,4% gildra atkvæða. D-listi 22.100 atkvæði og 7 menn kjörna 47,4% gildra atkvæða. G-listi 13.864 atkvæði og 5 menn kjörna 29,8% gildra atkvæða. Samkvæmt þessu missti A-listi 11 atkvæði við síðari talninguna, B-listi bætti við sig einu atkvæði, D-listi missti 9 atkvæði og G-listi bætti við sig 2. Ógild atkvæði voru 132 og auð 688. Þá er enn eftir að reikna út breytingar vegna útstrikana á listum flokkanna og breyt- ingar á innbyrðis röðun frambjóðenda. Er það tölu- vert flókinn reikningur, sem ekki mun liggja fyrir fyrr en að einhverjum tíma liðnum. Frá endurtalningu atkvæða í Austurbæjarskólanum í fyrrinótt. Talningu lauk um klukkan 04, en hafði engar verulegar breytingar í för með sér frá frumtalningu, sem fram fór aðfararnótt mánudagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.