Morgunblaðið - 31.05.1978, Síða 19

Morgunblaðið - 31.05.1978, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978 19 — NATO Framhald af bls. 1 sagði í viðtali við Washington Post að Frakkar hefðu sýnt í verki að þeir væru reiðubúnir að styðja Afríkuríki sem væru fús að verja sig. Hann kvað Carter forseta hafa sýnt vilja á að gera slíkt hið sama. Hann átti við björgun hvítra manna í Kolwezi eftir innrás uppreisnarmanna í Shaba-hérað í Zaire. Á aukafundi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um af- vopnunarmál í dag neitaði vara- forseti Kúbu, Carlos Rodriguez, að Kúbumenn hefðu tekið þátt í innrásinni í Shabahérað. Hann sagði að lýsing Carters á atburð- unum í Shaba væri alröng og að Bandaríkjastjórn vissi að hún væri byggð á endurteknum lygum. James Callaghan, forsætisráð- herra Breta, minntist einnig á afskipti Rússa í Afríku þegar hann ávarpaði NATO-fundinn og sagði að Rússar yrðu að skilja að áhyggjur vestrænna ríkja en jafnframt vita að vesturveldin mundu ekki láta reka á reiðanum þannig að til árekstra þyrfti að koma. Hann sagði að báðir aðilar vissu hvað væri í húfi og af vestrænni hálfu yrði stefnt að friði og afvopnun en án veikleikamerkis og friðkaupastefnu. GEIR IIEIM Geir Hallgrímsson forsætisráð- herra hélt heimleiðs frá Washing- ton í dag, fjórum dögum fyrr en ferðaáætlun hans gerði ráð fyrir, og hann sleppti því síðari degi leiðtogafundar NATO og varð að afþakka heimboö Carters forseta í Hvíta húsið í kvöld, en þá hélt forsetinn kvöldverðarboð fyrir forystumenn NATO-landa að því er segir í skeyti frá fréttaritara Morgunblaðsins. Sömuleiðis varð ekkert af fyrir- huguðum hádegisverðarfundi for- sætisráðherra með Kurt Wald- heim, aðalritara Sþ, en sá fundur var ráðgerður á föstudag. Einar Ágústsson utanríkisráðherra tjáði fréttamanni Morgunblaðsins að hann mundi hlaupa í skarðið fyrir forsætisráðherra. Forsætisráðherra hefur raunar átt mjög annríkt hér í Washington og naumast haft tíma til að sinna öðru en opinberu dagskránni: lokuðum fundi með forystumönn- um hinna NATO-þjóðanna og tveggja stunda hádegisverðarboði í Hvíta húsinu. RÆTT UM EYJAHAF Josef Luns, framkvæmdastjóri NATO, sagði fréttamönnum í gær að líkur væru á að NATO víkkaði út ábyrgðarhlutverk sitt. En ekkert hefur ákveðið komið fram í ræðunum á fundinum hvernig brugðist skuli við afskiptum Rússa og Kúbumanna í Afríku, en það mál verður rætt í smáatriðum á fundinum. Grikkir og Tyrkir hafa fallizt á að taka að nýju upp viðræður um deilur sínar um nýtingu auðlinda á Eyjahafi og reyna enn að binda enda á fjandskap þjóðanna. Bulent Ecevit, forsætisráðherra Tyrkja, er núverandi heiðursforseti Atlantshafsráðsins og hann minntist ekki beinlínis á deilu Tyrkja og Grikkja þegar hann ávarpaði setningarfundinn. En hann sagði að leysa bæri ágrein- ingsmál innan NATO með gagn- kvæmum skilningi. Ecevit hafði áður látið í ljós gremju vegna þess að Cart- er-stjórnin hefur enn ekki aflétt vopnabanninu sem Bandaríkja- menn settu á Tyrki 1974 þar sem Tyrkir beittu bandarískum her- gögnum í innrásinni í Kýpur. Haft var eftir Ecevit í viðtali við New York Times að hann teldi Tyrkjum engin hætta stafa frá Rússum og að hann mundi undirrita yfirlýs- ingu þegar hann færi í heimsókn til Sovétríkjanna í næsta mánuði. I Napoli sagði yfirmaður liðsafla NATO í Suðaustur-Evrópu, Harold Shear flotaforingi, í dag að NATO gæti ekki orðið traust og öruggt bandalag fyrr en Grikkir og Tyrkir gerðu út um ágreining sinn. Hann sagði að deilur þeirra væru alvarlegasta vandamál alls bandalagsins en spáði því að Bandaríkjaþing kynni að aflétta vopnabanninu á Tyrki og sagði að Grikkir væru að semja um að taka aftur þátt í hernaðarsamvinnu NATO. Carter forseti og Helmut Schmidt ræddust jafnframt við í Hvíta húsinu í dag og urðu ásáttir um að leitast við að taka sam- ræmda afstöðu til helztu efna- hagsvandamála iðnaðarríkjanna. — Er ekki til viðtals... Framhald af bls. 12. neitt um þetta, en mér skilst að það sé ekki hægt að beita fyrir sig neinum samþykktum um lögbann til að stöðva þetta. Ég geri ekki ráð fyrir því að nýi borgar- stjórnarmeirihlutinn hafi tök á því að stöðva utan borgarstjórnar- fundar slíkar framkvæmdir, þar sem það eru eigendur sem eru að rífa eigur sínar.“ Þá var rætt við Gérard Lemarque, Fríðu Haraldsdóttur og Kristínu Unnsteinsdóttur. en þau búa í Bröttúgötu 3 A og voru meðal þeirra, sem höfðu frum- kvæði að lagfæringu umræddar lóðar í fyrra. „Við íbúarnir hér í hverfinu fengum í fyrra leyfi eigandans til að búa til þennan garð þar sem áður var ekki annað en grjót og drasl. Við unnum að þessu mörg saman og við þolum ekki að horfa á þessa eyðileggingarstarfsemi," sagði Gérard. „Borgin lét okkur meira að segja hafa efni í þessar umhverfisbætur og okkur finnst réttur eigandans engan veginn nægilegur til þess að hann geti farið svona með okkar umhverfi," sagði Fríða. Kristin Unnsteinsdóttir sagði: „Mjög margir íbúar hér í Grjóta- þorpi unnu saman að því að laga garðinn, og okkur finnst ömurlegt hvernig nú er búið að fara með þetta. Við viljum ekki láta slétta og við viljum ekki hafa neitt bílastæði hér, meðal annars þess vegna gengum við þannig frá lóðinni að hún var öll í stöllum. Það getur verið að lagalegur réttur sé fyrir hendi til að róta þessu öllu upp og eyðileggja, en siðferðilegur réttur eigandans er að okkar mati enginn." Töluverður hiti var í umræðum manna á meðal í Bröttugötunni og var þar margt manna. Þegar Morgunblaðið var í þann veginn að hverfa af vettvangi var mótmæla- fólkið að bræða með sér frekari aðgerðir málstað sínum til árétt- ingar, og stóðu þá yfir umræður um það hvort taka bæri boði Birnu Þórðardóttur um lán á gjallar- horni tii að koma skilaboðum til borgarbúa um að þörf væri frekari liðveizlu. . — Reiknar með kjori... Framhald af bls. 2. nöfn né annað væru ákveðin í því sambandi. Þegar Mbl. spurði þá, hvernig þeir teldu eðlilegast að þrjú sæti meirihlutans í borgarráði yrðu skipuð, svöruðu þeir eftirfarandi: „Það hefur ekki verið gengið frá því, en ég tel eðlilegt, að í borgarráði sitji einn fulltrúi frá hverjum meirihlutaflokkanna," sagði Björgvin Guðmundsson. „Mér finnst ekki annað koma til greina en að flokkarnir þrír eigi hver sinn fulltrúa í borgarráði," sagði Kristján Benediktsson. ★ ★ ★ Á dagskrá borgarstjórnarfund- ar á fimmtudaginn eru kjör forseta borgarstjórnar, fyrsta og annars varaforseta, kjör ritara, kjör borgarstjóra, en að því loknu kjör í ýmis ráð og fastanefndir á vegum borgarstjórnar, þar á meðal borgarráð, fræðsluráð, heil- brigðismálaráð, æskulýðsráð, hafnarstjórn, byggingarnefnd og skipulagsnefnd svo dæmi séu tekin, en um er að ræða á fjórða tug ráða og nefnda. Þá verða lagðar fram fundar- gerðir ráða og nefnda frá fundum, sem haldnir hafa verið frá síðasta borgarstjórnarfundi 18. maí sl. " Þess vegna er jógúrtið nu bæði þykkara og ávaxtaríkara en áður Taktu jógúrt til bragðs, breytingin er Æ vel þess virði.\ Nýjung: Enn ein breyting fyrir bragðið. Nú býðst kaffijógúrt, og ekki seinna vænna, því það hefur lengi verið ein vinsælasta jógúrttegundin í Evrópu. Mjólkursamsalan í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.