Morgunblaðið - 31.05.1978, Page 28

Morgunblaðið - 31.05.1978, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAI 1978 VlEÍ> <, (0 ^ * X-J. 0 °'L_ u. ..p if' r-a r*z,T) Ú - 1 I»eir kunnu að búa til hílílautur í gamla daj;a. skal ég segja þér! Ilvað langar þig nú að gera< Fara á bíó, út á völl eða horfa á hann pabba þinn taka til hendi. Borðaðu nú hafragrautinn þinn og vertu eins sætur og myndarlegur og þeir í sjón- varpinu! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Að loknu spilinu hér að neðan taldi suður sig hafa spilað upp á íiokkuð góða möguleika. Aðeins önnur svíningin þurfti að takast, sem þýddi 757í vinningslíkur. Norðtir gaf og norður-suður voru á hættu. Norður S. D652 H. 642 T. KG L. ÁG64 Vestur S. 84 H. K83 T. 10753 L. KD108 Austur S. 3 H. G1095 T. D942 L. 9532 Suður S. ÁKG1097 H. ÁD7 T. Á86 L. 7 Kristinn dómur • Kristinn dómur og stefnuskrá stjórn- málaflokks á íslandi Hér kemur bréf frá Árelíusi Níelssynii „ísland er land friðarins. Það á þrátt fyrir allt og hefur átt í öllum stjórnmálaflokkum vitra, góða og framsýna stjórnmála- menn. Þótt aðrir séu þar einnig áberandi. ísland á hvorki vopn úr málm- um né eitri. Það á enga hermenn. Enga herskóla til að kenna vopna- burð, manndráp og morðtækni. í Islandi kunnu stjórnmálafor- ingjar allt frá Jóni Sigurðssyni til Geirs Hallgrímssonar að semja um frelsi, mannréttindi og þjóðar- hag örsmárrar, hrjáðrar og ör- birgrar nýlendu í nyrztu höfum til jafnréttis við frjálsustu ríki heims, án hertækja og án nokkurs blóðdropa. Þar tókst að skapa hin hlýjustu vináttutengsl milli ný- lendu og nýlenduveldis fortíðar- innar. S' • Avextir kristinnar lífsskoðunar Þar tókst að færa út umráða- svið eyjarinnar á hafinu til þeirrar víðáttu, sem gæti gjört hana að stórveldi. Og um leið var þar fordæmi skapað heimsbyggð allri með fiskivernd og réttlæti milli strandríkja og hafdjúpa. Þar áttu íslenzkir menn forystu og fyrir- sögn á ýmsan hátt t.d. Hans G. Andersen og Einar Ágústsson og fleiri. Á íslandi er örbirgð breytt í auð, allt til óhófs, á hálfri öld. Þetta eru allt ávextir kristinnar lífs- skoðunar, sem metur mannréttindi, kærleika, sann- leika og frelsi sem hornsteina hvers samfélags. • Útfærsla kristinnar hugsjónar Og þótt í engu sé hallað af mér um frelsi einstaklings til skoðana og trúar, þá vil ég skrá hér samþykkt frá síðasta lands- Lokasamningurinn var sex spað- ar og vestur spilaði út laufkóng. Sagnhafi tók slaginn í borði og tók tvisvar tromp. Síðan spilaði hann lágum tígli frá hendinni og svínaði gosanum. Hugmyndin var að láta seinna hjarta úr borðinu í tígulás- inn og spilið því unnið ætti vestur drottninguna. En þetta tókst ekki. Austur tók slaginn og spilaði hjarta. Og þegar svíning þar tókst ekki heldur tapaðist spilið. En norður var ekki ánægður með þetta. Hann sagði spilið vera pottþétt úr því trompin þrjú lágu ekki öll á annari hendinni. Útspilið vildi hann taka í borði og trompa strax lauf á hendinni. Síðan tvo slagi á tromp með ás og drottningu. Trompa aftur lauf á hendinni en þá yrði gosinn góður hefði vestur átt aðeins eitt smáspil með hjónunum. En svo var nú ekki. Og til að einangra hjartalitinn vildi norður, þegar hér væri komið, taka á kóng og ás í tígli og trompa tígul í borði. Suður ætti þá á hendi hjörtun þrjú og tvö tromp. En í horði væru laufgosi, þrjú hjörtu og eitt tromp. Og þegar laufgosanum væri spilað frá borðinu mátti festa vestur í ónotalegri klemmu með því að láta hjartasjöið frá hend- inni. Hann yrði þá að spila hjarta frá kóngnum eða tígli í tvöfalda eyðu. Sama var hvort gæfi tólfta slaginn. MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaya eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaði 54 — í fyrsta lagi verður það ekki alveg strax. Og í öðru lagi vildi ég helzt vera laus við hávaða og læti heima fyrir. — Já, ég skil það. — Albert er ekki myndugur og foreldrar hans gætu... — Gaman hefði ég af því að skrafa við hann Albert yðar... — Ef ég hefði fengið ein- hverju ráðið væri hann löngu búinn að koma hingað. Hann er bjálfi. Ég er viss um að hann liggur nú skjálfandi og nötrandi... — Þér virðist nú ekki bera sérstaka virðingu fyrir honum? — Ég ber ekki virðingu fyrir neinum. — Nema yður sjálfri? — Ég bcr enga virðingu fyrir sjálfri mér. Ég reyni að gæta mín og verja mig. Það var tilgangslaust að halda samræðunum áfram. — Hafið þér sagt yfirmönn- um minum að ég sé hér? — Ég hringdi þangað og sagði að ég þyrfti að tala við yður vegna þess að það væru ákveðnar upplýsingar sem okk- ur vantaði. — Hvenær búast þeir við mér aftur? — Ég nefndi engan sérstak- an tfma. ___~ Má ég fara núna? _______ — Já, ég skal ekki tefja yður lengur. — Ætlið þér að láta ein- hvern af mönnum yðar fylgjast með mér? Það lá við hann ræki upp hlátpr, en honum tókst að vera alvarlegur. — Það er ekki útilokað. — Ég get sagt yður strax að það er tímasóun. — Þakka yður samt fyrir komuna. Maigret lét fulltrúa fylgjast með henni, enda þótt hann þættist þess fullviss að ekkert kæmi út úr því. Janivier hafði ekkert sérstakt fyrir stafni og fékk því það verkefni. Maigret sat sjálfur í meira en tíu mfnútur við skrifborð sitt og studdi hönd undir kinn, pfpan í munninum og starði út um gluggann. Loks stóð hann upp og rétti úr sér og tautaði fyrir munni séri — Bölvuð druslan! Og án þess að vita fullkom- lega hvað hann ætti nú að taka sér íyrir hendur gekk hann inn á skrifstofu fulltrúanna og spurðii — Nokkuð nýtt að frétta af stráknum? Albert Jorisse hlaut að brenna í skinninu eftir því að ná sambandi við Monique. En hvernig átti hann að bera sig eftir því nema eiga á hættu að vcrða handtekinn? Það var ein spurning sem Maigret hafði gleymt að bera fram. Spurning sem hafði nokkra þýðingu. Var það hann eða hún sem geymdi peningana sem átti að nota í Suður-Ameríkureisuna? Ef hann var með peningana var hann sjálfsagt allvel fjáður. Ef ekki hefði hann lítið fengið að borða. Hann beið nokkra stund og hringdi svo til fyrirtækisins. — Má ég fá að tala við fröken Monique Thouret? — Augnablik. Ég held hún hafi verið að koma. — Já. Það var rödd Monique. — Verið ekki of kátar. Enn ekki Albert, heldur lögreglu- foringinn. Ég gleymdi að spyrja yður um eitt atriði. hvort ykkar geymir pening- ana? — Það geri ég. — Hvar gcymið þér þá? — Ég hef skrifborð sem hægt er að læsa. — Er hann með pcninga á sér? — Árciðanlega ekki mikla. — Þakka yður fyrir. Annað var það nú ekki. Lucas gaf honum merki um

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.