Morgunblaðið - 31.05.1978, Page 31

Morgunblaðið - 31.05.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978 31 Callaghan fer Rússar berja livíta bottan Á MIÐVIKUDAGINN var fór Robert nokkur Trente Jones ■ sögulega ferð, nánar tiltekiö til Sovétríkjanna og erindi hans Þangaö er Þaö að hanna fyrsta golfvöllinn í landi Þar. Áöur hafa Rússar litið á íÞrótt Þessa sem undarlega í meira lagi og aöeins stundaöa af heimsvaldasinnum. Robert veit hvað hann syngur, þegar hanna á golfvelli, enda hefur hann teiknað 400 slíka í 42 fylkjum í Bandaríkjunum auk 23 annarra landa. Hann segist vart ráða sér af kæti, að Sovétmenn skuli nú hafa ákveðið að snúa sér að íþróttinni, reyndar verði það aöallega erlendir kaupsýslumenn og stjórnmálamenn sem stunda munu völlinn fyrst um sinn, en vonir standi til að sovézk alþýöa muni láta til sína taka heldur fyrr en seinna. Völlurinn, sem mun verða 7000 faðma langur, er um 10 km frá Moskvu og verður stefnt að því að Ijúka gerð hans fyrir ÓL 1980. Það næsta því sem Rússar hafa komist að kynnast íþróttinni til þessa, var fyrir tilstilli Vladimirs Kutznetzov og bandaríska ræðismannsins LLewllins Thompson. Kutznetzov hafði kylfur inni í skáp í skrifstofu sinni í Moskvu og var öllum stundum að berja kúlur. Hann er besti golfleikarinn í Rússlandi. Hann er líka eini golfleikarinn í landinu. Er honum voru færðar reglur Bandaríska golfsambandsins, ýtti hann þeim til hliöar með þeim orðum að Sovétmenn myndu búa til sínar eigin reglur. Thompson hafði geysilega víöáttumikiö net á sendiráðslóðinni en var engu að síður sífellt aö brjóta rúður. Sjálfur Brésnef lagöi blessun sína yfir tiltækiö og sagði þegar teikning var lögð á borðið fyrir framan hann: „Nei, þetta er ekki svo vitlaus hugmynd. Jú, viö skulum bara drífa okkur í þetta.“ Sjálfur hefur Brésnef aldrei leikið golf, en hann á öll tæki til þess, síöan hann heimsótti Richard Nixon hér um árið og var leystur þaöan út með gjöfum. Eigandi þessa fyrsta golfvallar mun verða sjálft ríkið, alveg eins og er um öll meiriháttar fyrirtæki þar í landi. Hins vegar mun líklega verða bið á því, að Sovétmenn framleiði sín eigin golfáhöld, enda verða fyrst aö vera til staöar þarlendir kylfingar. Argentínumenn breyta vinnutíma Það vakti allmikið umtal í Argentínu fyrir skömmu, er ráðherra einn hljóp skyndilega af mikilvægum fundi til þess að horfa á landslið Argentínu leika upphitunarléik gegn Uruguay. Upp úr því varð mikið umtal þar í landi um það hvort ekki ætti að breyta vinnutíma til þess að gefa fólki kost á að sjá leikina. Ýmis ráðuneyti í landi þar hafa tilkynnt breytingu á vinnutíma og búist er við því að önnur fylgi í kjölfarið, svo og fyrirtæki ýmiss konar. Sum fyrirtæki hafa þó kosið að láta koma fyrir á vinnustöðum sínum fullkomnum sjónvarpsskermum svo að starfsliðið geti fylgst með á vinnustað. 128 CL kr. 2.455.000 128 L kr. 2.215.000 Til afgreiöslu strax Þú færö meira en nóg fyrir peninc pegar pú kaupir Fiat 128. FlAT EINKAUMBOÐ Á ISLANDI DAVÍÐ S/GURÐSS0N hf. SlÐUMÚLA 35. SÍMI 85855. Á MEÐFYLGJANDI mynd má sjá gömlu Liverpool-kempuna Ian Callaghan í baráttu við Wohlers, leikmann með Borrussia Mönchengladbach. Myndin er tekin, er Liverpool tryggði sér rétt, fyrst enskra liða, til þess að leika um Evrópubikarinn annað árið í röð. Liverpool vann síðan Brugge 1 úrslitunum eins og kunnugt er og var Callaghan þá varamaður, en kom ekki inn á. Það er því að öllum líkindum sfðasti leikur hans með Liverpool, sem myndin sýnir, a.m.k. í Evrópuleik. Ian Callaghan hefur verið allt í öllu hjá Liverpool síðustu 15 árin og 1964 lék hann (og Liverpool) sinn fyrsta Evrópuleik á Laugardalsvellinum gegn KR. Á þessu tímabili hefur kappinn unnið flest það með liði sínu sem langflesta dreymir aðeins um og Ian Callaghan var auk þess í enska landsliðshópnum árið 1966 og lék einn leik, gegn Frökkum, sem Englendingar uhnu 2—0. Síðan er það alkunna, að Englendingar urðu heimsmeistarar. Callaghan hefur fimm sinnum orðið Englandsmeistari með Liverpool, árin 1963-64,1965-66,1972-73,1975-76 og 1976-77. Á þessu tímabili hefur liðið auk þess þrisvar hafnað í öðru sæti. Bikarinn hefur liðið unnið 1965 og 1974 og komist auk þess tvívegis í úrslit, en tapað. í Evrópu hefur einnig gengið vel, liðið komst í úrslit Evrópubikarkeppni íikarhafa 1966, sigraði í UEFA-keppninni árin 1972—73 og 1975—76 og Evrópubikarinn hefur liðið unnið síðustu tvö keppnistímabilin. Það liggur því við að Callaghan þurfi viðbyggingu við heimili sitt undir allar „medalíurnar". Hann leikur um þessar mundir í Bandarikjunum með Fort Lauderdale Strikers og næsta vetur er ekki ólíklegt að hann leiki með liði Preston, en það vann sér rétt til þess að leika í annarri deild á næsta keppnistímabili. — gg. Fjölskyldubfllinn frábaeri sem hentar bezt íslenzkum aöstæöum. ÍSLENZKA landsliðið í knattspyrnu, leikmenn 21 árs og yngri, lék sinn fyrsta landsleik í gærkvöldi gegn Norðmönnum og fór leikurinn fram í Fredriksstad. Leiknum lauk með sigri Norðmanna LO og var það ósanngjarn sigur, jafntefli hefði verið nær lagi í þessum leik, samkvæmt þeim upplýsingum, sem Gunnar Sigurðsson fararstjóri landsliðsins sagði f samtali við Morgunblaðið f gærkvöldi. Að sögn Gunnars var völlurinn, sem leikið var á, hreint hörmuleg- ur, grjóthart moldarflag og holótt að auki. „Völlurinn var miklu verri en völlurinn á Akranesi og er þá mikið sagt,“ sagði Gunnar. „Strákarnir eru óvanir að leika á svona hörðum velli og voru þeir því heldur óhressir yfir aðstæðun- um.“ ísland fékk fyrsta tækifæri leiksins strax á 3. mínútu þegar Ingi Björn Albertsson fyrirliði íslenzka liðsins fékk boltann í dauðafæri en skallaði framhjá markinu. Er ekki að vita hvernig leikurinn hefði þróast, ef Ingi hefði komið boltanum í markið. Leikurinn fór aðallega fram á miðju vallarins í fyrri hálfleik en á 43. mínútu kom eina mark leiksins. Boltinn barst inn í vítateig íslendinga og höfðu tveir varnarmenn íslands möguleiká á því að hreinsa boltann frá en mistókst og framherjanum Kort- gaard tókst að skora af stuttu færi. Jón Þorbjörnsson mark- vörður hafði hendur á knettinum en tókst ekki að halda honum svo að hann endaði í markinu. í seinni hálfleik fór leikurinn sem fyrr aðallega fram á miðju vallarins. Liðin léku oft vel saman en tókst ekki að skapa sér hættuleg tækifæri. Þremur mínút- ÍBV og FH í KVÖLD eiga að lcika í 1. dcildinni í knattspyrnu ÍBV og FH, og fer leikurinn fram í Vestmannaeyjum og hefst kl. 20.00. Leikur þessi átti að fara fram síðastliðinn iaugardag, en þar sem ekki var flogið til Eyja varð að fresta honum. • Ingi Björn Albertsson var fyrirliði í fyrsta landsleik leik- manna 21 árs og yngri. Tveir leikmenn máttu vera eldri en 21 árs og var Ingi annar þeirra. ið sanngjörn úrslit Islenzkur ósigur en jafntefli hefði ver- um fyrir leikslok komst Atli Eðvaldsson einn inn fyrir vörn Norðmanna og skaut að markinu. Boltinn stefndi í markið en skotið var of laust og öðrum bakverðin- um tókst að bjarga á síðustu stundu. Þar fór forgörðum bezta tækifæri leiksins. Gunnar sagði að íslenzka liðið hefði eftir aðstæðum staðið sig vel og kvað hann engan hafa skarað framúr. I STUTTU MÁLI, Þriðjudagur 30. maí. Fredriksstad- stadion, Noregur — ísland U). Mark Noreits, Arnt Kortgaard á 43. minútu. Áhortendur, 783. Lið íslands, Jón Þorbjörnsson, Rafn Rafnsson, Einar Ólafsson, Róbert Agnars- son, Sigurður BjörKvinsson, Guðmundur Kjartansson, Ingi Björn Albertsson, Aibert Guðmundsson, Atli Eðvaldsson, Arnór Guðjohnsen og Pétur Pétursson. Pétur Ormslev kom inn fyrir Inga Björn í s.h. Veður var mjög gott meðan leikurinn fór fram, sól og yfir 20 stiga hiti. —SS. Meistaramót íslands MEISTARAMÓT ístands í frjólsfþróttum, fyrri hluti, fer fram i Laugardaisvellinum 3. og 4. júní n.k. Keppnisgreinar eru, Fyrri dagur, Tugþraut fyrri hluti, 4x800 m boðhiaup karla og 300m hlaup kvenna Seinni dagur, Tugþraut síðari hluti, 10000 m hlaup og fimmtarþraut kvenna. Keppnin hefst kl. 14 biða dagana. Þitttökutilkynningar þurfa að berast f sfðasta lagi miðvikudaginn 31. maf til skrifstofu FRl eða í pósthólf 1099 isamt þitttökugjaldi 200 kr. fyrir hverja ein- staklingsgrein og 400 fyrir boðhlaupsveit. Frjilsfþróttasamband Islands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.