Morgunblaðið - 31.05.1978, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
31
Callaghan fer
Rússar berja livíta bottan
Á MIÐVIKUDAGINN var fór Robert nokkur Trente Jones ■ sögulega ferð,
nánar tiltekiö til Sovétríkjanna og erindi hans Þangaö er Þaö að hanna
fyrsta golfvöllinn í landi Þar. Áöur hafa Rússar litið á íÞrótt Þessa sem
undarlega í meira lagi og aöeins stundaöa af heimsvaldasinnum.
Robert veit hvað hann syngur, þegar hanna á golfvelli, enda hefur hann
teiknað 400 slíka í 42 fylkjum í Bandaríkjunum auk 23 annarra landa. Hann
segist vart ráða sér af kæti, að Sovétmenn skuli nú hafa ákveðið að snúa
sér að íþróttinni, reyndar verði það aöallega erlendir kaupsýslumenn og
stjórnmálamenn sem stunda munu völlinn fyrst um sinn, en vonir standi til
að sovézk alþýöa muni láta til sína taka heldur fyrr en seinna.
Völlurinn, sem mun verða 7000 faðma langur, er um 10 km frá Moskvu
og verður stefnt að því að Ijúka gerð hans fyrir ÓL 1980.
Það næsta því sem Rússar hafa komist að kynnast íþróttinni til þessa, var
fyrir tilstilli Vladimirs Kutznetzov og bandaríska ræðismannsins LLewllins
Thompson. Kutznetzov hafði kylfur inni í skáp í skrifstofu sinni í Moskvu og
var öllum stundum að berja kúlur. Hann er besti golfleikarinn í Rússlandi.
Hann er líka eini golfleikarinn í landinu. Er honum voru færðar reglur
Bandaríska golfsambandsins, ýtti hann þeim til hliöar með þeim orðum að
Sovétmenn myndu búa til sínar eigin reglur. Thompson hafði geysilega
víöáttumikiö net á sendiráðslóðinni en var engu að síður sífellt aö brjóta
rúður.
Sjálfur Brésnef lagöi blessun sína yfir tiltækiö og sagði þegar teikning var
lögð á borðið fyrir framan hann: „Nei, þetta er ekki svo vitlaus hugmynd.
Jú, viö skulum bara drífa okkur í þetta.“ Sjálfur hefur Brésnef aldrei leikið
golf, en hann á öll tæki til þess, síöan hann heimsótti Richard Nixon hér um
árið og var leystur þaöan út með gjöfum. Eigandi þessa fyrsta golfvallar mun
verða sjálft ríkið, alveg eins og er um öll meiriháttar fyrirtæki þar í landi.
Hins vegar mun líklega verða bið á því, að Sovétmenn framleiði sín eigin
golfáhöld, enda verða fyrst aö vera til staöar þarlendir kylfingar.
Argentínumenn breyta vinnutíma
Það vakti allmikið umtal í Argentínu fyrir skömmu, er ráðherra einn
hljóp skyndilega af mikilvægum fundi til þess að horfa á landslið
Argentínu leika upphitunarléik gegn Uruguay. Upp úr því varð mikið
umtal þar í landi um það hvort ekki ætti að breyta vinnutíma til þess
að gefa fólki kost á að sjá leikina. Ýmis ráðuneyti í landi þar hafa
tilkynnt breytingu á vinnutíma og búist er við því að önnur fylgi í
kjölfarið, svo og fyrirtæki ýmiss konar. Sum fyrirtæki hafa þó kosið
að láta koma fyrir á vinnustöðum sínum fullkomnum sjónvarpsskermum
svo að starfsliðið geti fylgst með á vinnustað.
128 CL kr. 2.455.000
128 L kr. 2.215.000
Til afgreiöslu strax
Þú færö meira en nóg fyrir peninc
pegar pú kaupir Fiat 128.
FlAT EINKAUMBOÐ Á ISLANDI
DAVÍÐ S/GURÐSS0N hf.
SlÐUMÚLA 35. SÍMI 85855.
Á MEÐFYLGJANDI mynd má sjá gömlu Liverpool-kempuna Ian
Callaghan í baráttu við Wohlers, leikmann með Borrussia
Mönchengladbach. Myndin er tekin, er Liverpool tryggði sér rétt,
fyrst enskra liða, til þess að leika um Evrópubikarinn annað árið
í röð. Liverpool vann síðan Brugge 1 úrslitunum eins og kunnugt
er og var Callaghan þá varamaður, en kom ekki inn á. Það er
því að öllum líkindum sfðasti leikur hans með Liverpool, sem
myndin sýnir, a.m.k. í Evrópuleik.
Ian Callaghan hefur verið allt í öllu hjá Liverpool síðustu 15 árin
og 1964 lék hann (og Liverpool) sinn fyrsta Evrópuleik á
Laugardalsvellinum gegn KR. Á þessu tímabili hefur kappinn unnið
flest það með liði sínu sem langflesta dreymir aðeins um og Ian
Callaghan var auk þess í enska landsliðshópnum árið 1966 og lék
einn leik, gegn Frökkum, sem Englendingar uhnu 2—0. Síðan er
það alkunna, að Englendingar urðu heimsmeistarar. Callaghan
hefur fimm sinnum orðið Englandsmeistari með Liverpool, árin
1963-64,1965-66,1972-73,1975-76 og 1976-77. Á þessu tímabili
hefur liðið auk þess þrisvar hafnað í öðru sæti. Bikarinn hefur liðið
unnið 1965 og 1974 og komist auk þess tvívegis í úrslit, en tapað.
í Evrópu hefur einnig gengið vel, liðið komst í úrslit
Evrópubikarkeppni íikarhafa 1966, sigraði í UEFA-keppninni árin
1972—73 og 1975—76 og Evrópubikarinn hefur liðið unnið síðustu
tvö keppnistímabilin.
Það liggur því við að Callaghan þurfi viðbyggingu við heimili sitt
undir allar „medalíurnar". Hann leikur um þessar mundir í
Bandarikjunum með Fort Lauderdale Strikers og næsta vetur er
ekki ólíklegt að hann leiki með liði Preston, en það vann sér rétt
til þess að leika í annarri deild á næsta keppnistímabili. — gg.
Fjölskyldubfllinn
frábaeri
sem hentar bezt
íslenzkum aöstæöum.
ÍSLENZKA landsliðið í knattspyrnu, leikmenn 21 árs og yngri, lék
sinn fyrsta landsleik í gærkvöldi gegn Norðmönnum og fór leikurinn
fram í Fredriksstad. Leiknum lauk með sigri Norðmanna LO og var
það ósanngjarn sigur, jafntefli hefði verið nær lagi í þessum leik,
samkvæmt þeim upplýsingum, sem Gunnar Sigurðsson fararstjóri
landsliðsins sagði f samtali við Morgunblaðið f gærkvöldi.
Að sögn Gunnars var völlurinn,
sem leikið var á, hreint hörmuleg-
ur, grjóthart moldarflag og holótt
að auki. „Völlurinn var miklu verri
en völlurinn á Akranesi og er þá
mikið sagt,“ sagði Gunnar.
„Strákarnir eru óvanir að leika á
svona hörðum velli og voru þeir
því heldur óhressir yfir aðstæðun-
um.“
ísland fékk fyrsta tækifæri
leiksins strax á 3. mínútu þegar
Ingi Björn Albertsson fyrirliði
íslenzka liðsins fékk boltann í
dauðafæri en skallaði framhjá
markinu. Er ekki að vita hvernig
leikurinn hefði þróast, ef Ingi
hefði komið boltanum í markið.
Leikurinn fór aðallega fram á
miðju vallarins í fyrri hálfleik en
á 43. mínútu kom eina mark
leiksins. Boltinn barst inn í
vítateig íslendinga og höfðu tveir
varnarmenn íslands möguleiká á
því að hreinsa boltann frá en
mistókst og framherjanum Kort-
gaard tókst að skora af stuttu
færi. Jón Þorbjörnsson mark-
vörður hafði hendur á knettinum
en tókst ekki að halda honum svo
að hann endaði í markinu.
í seinni hálfleik fór leikurinn
sem fyrr aðallega fram á miðju
vallarins. Liðin léku oft vel saman
en tókst ekki að skapa sér
hættuleg tækifæri. Þremur mínút-
ÍBV og FH
í KVÖLD eiga að lcika í 1.
dcildinni í knattspyrnu ÍBV og
FH, og fer leikurinn fram í
Vestmannaeyjum og hefst kl.
20.00.
Leikur þessi átti að fara fram
síðastliðinn iaugardag, en þar
sem ekki var flogið til Eyja varð
að fresta honum.
• Ingi Björn Albertsson var
fyrirliði í fyrsta landsleik leik-
manna 21 árs og yngri. Tveir
leikmenn máttu vera eldri en 21
árs og var Ingi annar þeirra.
ið sanngjörn úrslit
Islenzkur ósigur en
jafntefli hefði ver-
um fyrir leikslok komst Atli
Eðvaldsson einn inn fyrir vörn
Norðmanna og skaut að markinu.
Boltinn stefndi í markið en skotið
var of laust og öðrum bakverðin-
um tókst að bjarga á síðustu
stundu. Þar fór forgörðum bezta
tækifæri leiksins.
Gunnar sagði að íslenzka liðið
hefði eftir aðstæðum staðið sig vel
og kvað hann engan hafa skarað
framúr.
I STUTTU MÁLI,
Þriðjudagur 30. maí. Fredriksstad-
stadion, Noregur — ísland U).
Mark Noreits, Arnt Kortgaard á 43.
minútu.
Áhortendur, 783.
Lið íslands, Jón Þorbjörnsson, Rafn
Rafnsson, Einar Ólafsson, Róbert Agnars-
son, Sigurður BjörKvinsson, Guðmundur
Kjartansson, Ingi Björn Albertsson, Aibert
Guðmundsson, Atli Eðvaldsson, Arnór
Guðjohnsen og Pétur Pétursson. Pétur
Ormslev kom inn fyrir Inga Björn í s.h.
Veður var mjög gott meðan leikurinn fór
fram, sól og yfir 20 stiga hiti. —SS.
Meistaramót íslands
MEISTARAMÓT ístands í frjólsfþróttum,
fyrri hluti, fer fram i Laugardaisvellinum
3. og 4. júní n.k. Keppnisgreinar eru,
Fyrri dagur, Tugþraut fyrri hluti, 4x800 m
boðhiaup karla og 300m hlaup kvenna
Seinni dagur, Tugþraut síðari hluti, 10000
m hlaup og fimmtarþraut kvenna.
Keppnin hefst kl. 14 biða dagana.
Þitttökutilkynningar þurfa að berast f
sfðasta lagi miðvikudaginn 31. maf til
skrifstofu FRl eða í pósthólf 1099 isamt
þitttökugjaldi 200 kr. fyrir hverja ein-
staklingsgrein og 400 fyrir boðhlaupsveit.
Frjilsfþróttasamband
Islands.